Morgunblaðið - 21.05.2002, Side 18

Morgunblaðið - 21.05.2002, Side 18
LISTIR 18 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á GÓÐUM stað í sandinum liggja níu egg. Það er risaeðlu- mamman sem geymir þau þar og bíður eftir að þau klekjist út. Allt í einu er eitt egg horfið og mamman leitar örvæntingarfull að elsku litla unganum sínum. Litli unginn sem er nýskriðinn úr egginu sínu er alveg týndur og ákveður að fara af stað að leita að mömmu sinni. En að hverju á hann að leita? Hann veit ekki einu sinni hvernig hún lítur út! Þannig hljómar upphaf leik- sýningarinnar Týndar mömmur og talandi beinagrindur sem verður frumsýnd á morgun í Gerðubergi. Á ferð sinni hittir hann fljúg- andi dreka sem hefur nýlokið við að sporðrenna 17 risaeðlum og hefur ekki lyst á svo mikið sem einni í viðbót fyrr en í næstu viku. Drekinn og risaeðluunginn ná samt ekki verulega vel saman fyrr en drekinn hefur dottið í stóra fljótið og blotnað svo ræki- lega að hann hleypur saman eins- og íslensk lopapeysa og verður ennþá minni en risaeðluunginn. Einnig verður á vegi ungans gamansöm beinagrind sem vísar honum veginn áleiðis til mömmu. Þetta er sýning sem hefur not- ið gríðarlegra vinsælda í Svíþjóð frá því hún var frumsýnd í Pero-leik- húsinu í Stokkhólmi í september 2000 og eru sýningar orðnar nær 300 síðan og farið vítt og breitt um Svíþjóð. Höfundur og leikari sýningarinnar er íslenska leikkonan Bára Lyngdal Magnúsdóttir en hún hefur verið í búsett í Svíþjóð um árabil og starfað með Pero-leikhúsinu, Borgarleikhús- inu í Uppsölum og Konunglega leik- húsinu í Stokkhólmi. Síðast sáu Ís- lendingar hana í kvikmyndinni Mávahlátri. Pero-leikhúsið er eitt þekktasta leikhús Svíþjóðar af svokölluðum frjálsum leikhúsum og aðalleikstjóri þess og stjórnandi er Peter Engkvist. Hann er Íslendingum að góðu kunn- ur en síðasta leikstjórnarverk- efni hans hér var Beðið eftir God- ot í Borgarleikhúsinu á liðnum vetri. Áður hafði hann leikstýrt Ormstungu – Ástarsögu og barnaleiksýningunni Loft- hrædda erninum Örvari í Þjóð- leikhúsinu. Bára segir að Týndar mömmur... sé fyrsta leiksýning Pero fyrir svo ung börn, 3–5 ára, en það hafi lengi verið á dagskrá að vinna sýningu fyrir þennan aldurshóp. „Við beitum leikhúsaðferð sem Pero er þekktast fyrir, sam- blandi af látbragði, tónlist og tali. Lykillinn að svona sýningu er að finna rétta frásagnaraðferð, svo börnin treysti sögumanninum. Þá er allt í lagi þó illa gangi fyrir risaeðluunganum á leiðinni því börnin treysta því að allt fari vel að lokum.“ Auk Báru tekur sellóleikarinn Katrin Forsmo þátt í sýningunni en þess má geta að önnur íslensk leikkona Anna Elísabet Borg, hefur leikið Týndar mömmur og talandi beinagrindur á vegum Pero-leikhússins að undanförnu. Leikstjóri sýningarinnar er Magnus Lundblad en Peter Engkvist var listrænn ráðunaut- ur. Helga Arnalds brúðugerðar- kona gerði drekann og tónlistin er eftir Ulf Eriksson. Um næstu helgi verða fjórar sýn- ingar, laugardag og sunnudag kl. 14 og 15 og er ástæða til að geta þess að laugardaginn 25. maí kl. 14.00 verður boðið upp á táknmálstúlkun. Þá er ókeypis inn fyrir fullorðna í fylgd með barni. Pero-leikhúsið í Gerðubergi á Listahátíð Týndar mömmur og talandi beinagrindur Bára Lyngdal með drekann og risaeðluungann. Morgunblaðið/Árni Sæberg „AGNDOFA og orðlaus“ var eina rétta lýsingin á hugarástandi und- irritaðs eftir magnaða tónleika bandarísku sópransöngkonunnar June Anderson fyrir troðfullu Há- skólabíói í gær. Og það gilti ábyggi- lega um fleiri. Alltjent hafa hér- lendir söngfíklar margoft klappað sig máttlausa af minna tilefni en nú, og stundum svo maður kreppti tær í laumi. En hér var sannarlega eng- in ástæða til þess. Þvert á móti læddist að manni smá efi um hvort svona mikil list – sem eins og kunn- ugt er gengur æðst út á að fela sjálfa sig – næði nú örugglega til allra viðstaddra. Eða hvort allsherj- arblekkjandi fyrirhafnarleysi söng- konunnar kæmi ekki ýmsum til að halda að allt væri jafn fis-auðvelt og það leit út fyrir. En sennilega hafa flestir eftir allt saman hugsað ná- kvæmlega eins. Því June Anderson hafði þennan fágæta hæfileika að höfða til hvers áheyranda líkt og hann væri eini útvaldi hlustandinn í salnum. Annars er sá er hér ritar varla hæfasti maður til að meta frammi- stöðu söngkonunnar þetta kvöld miðað við fyrri afrek, því hann hafði enga undangengna reynslu af henni aðra en í hlutverki Cunegonde af hljómdiskaupptöku Birtings (Cand- ide) eftir Leonard Bernstein frá 1991, þar sem hún toppaði alleftir- minnilega í sýningarstanzinum Glitter And Be Gay. Glansmeðferð Andersons á þeirri frægu fjögurra stíla aríu dugði reyndar ein sér til að búa hann undir óvenjumikla fjöl- breytni, og kom því síður á óvart en ætla mætti fyrir fram að óperu- söngkonan skyldi handleika ekki aðeins ljóðasöngslög frá sex löndum á jafnmörgum tungumálum jafn- lauflétt og raun bar vitni, heldur einnig Broadway-söngleikjahefðina í síðasta hluta, líkt og hún hefði aldrei gert annað. En vandræði undirritaðs hófust fyrst fyrir alvöru þegar upp rann sú erfiða skylda að reyna að finna eitthvað aðfinnsluhæft við flutning stjörnunnar og hins fyrsta flokks undirleikara hennar, Jeffs Cohens. Maður nærri kinokar sér við að nefna sparðatíninginn, en sá væri helzt hvað kringdu þýzku sérhljóðin í Liszt-söngvunum fjórum voru full- gleið, líkt og enskumælandi fólki er títt. Vitanlega þarf vart að taka fram, að hjá þvílíkum tjáningar- krafti, yfirburða stílkennd og lýta- lausri fjölhliða raddbeitingartækni sem Anderson jós úr af ómældri rausn þetta kvöld, verður slík að- finnsla nánast að hjómi. Eftirtektarvert var að einnig ein mesta „díva“ óperuheimsins í dag skyldi hita upp á ítölskum „antík“- aríum, og vafðist hvorki einfaldur innileiki laga Scarlattis, Cestis og Paisiellos né kröfumeiri innri dramatík þýzku laganna fjögurra, hvað þá ungmeyjarsmælkið í aríu Marguerite úr Faust Gounods (Il était un roi de Thule / L’air des bijoux), fyrir June Anderson, sem virtist endalaust geta slegið nýja strengi á hörpu sinni. Dramatíkin færðist sem vænta mátti smám saman í aukana eftir hlé. Rússneskur tregi og söknuður komst frábærlega vel til skila í tveim rómönsum Tsjækovskíjs og ekki síður í tveim blæðandi mel- ódískum sönglögum eftir Rakhman- inoff, hvar söngkonan vakti ekki minnsta athygli með algerri stjórn sinni á háttliggjandi en samt of- urveikum tónum, ýmist upp, niður eða hvort tveggja í styrk. Jafn- meistaralega var farið með gjör- ólíka tónlist hins spænska Rodrigos í Cuatro Madrigales Amatorios (Fjórum ástarmadrigölum), sem eins og heitið ber með sér voru undir áhrifum endurreisnarstíls. Kristaltær suðræn melódík í hreint út skínandi velupplagðri túlkun, einnig hjá hinum fantagóða og ljónfylgna undirleikara, er virtist alltaf ná fullum hljómi, sama hvað farið var niður í styrk. Fjögur söngleikjalög eftir hinn fjölhæfa Kurt Weill luku prentaðri dagskrá, tvö á ensku og tvö á frönsku, og umturnuðu þau And- erson beinlínis húsinu með því síð- asta, „Youkali“. Rakin snilldartúlk- un, þar sem nafntogað nefkveðið „chalumeau“-regístur Maríu Callas kvað við á neðra sviði í seinni hluta. Aukalögin, Vals Juliettes (Gounod) og Can’t Help Lovin’ dat Man úr Showboat Kerns, urðu aðeins til að renna frekari stoðum undir það sem þegar var lýðum ljóst. June Anderson hafði komið, sungið og sigrað. Komin til að syngja og sigra TÓNLIST Listahátíð Háskólabíó Lög eftir A. Scarlatti, Cesti, Paisiello, Liszt, Gounod, Tsjækovskíj, Rodrigo og Weill. June Anderson sópran, Jeff Cohen, píanó. Mánudaginn 20. maí kl.16. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Ómar June Anderson ásamt undirleikara sínum Jeff Cohen í lok tónleikanna í Háskólabíói í gær. Listahátíð í Reykjavík Dagskráin í dag Þriðjudagur 21. maí Kl. 12.30 Ráðhús Reykjavíkur Fyrir augu og eyru. Í tengslum við mynd- listarsýninguna Listamaðurinn á horninu flytur Dean Ferrell kontrabassaleikari glettna efnisskrá með verkum eftir sig og aðra. Meðal verka á efnisskránni eru Wel- come to Contrabass Land eftir Barney Childs, Contra-banda eftir Dean Ferrell, Reflections on Ives and Whittier eftir Bertram Turetzky, Failing: a very difficult piece for solo contrabass eftir Tom John- son. Ókeypis aðgangur. Kl. 15.00 Gerðuberg Týndar mömmur og talandi beinagrindur. Barnasýning frá Pero-leikhúsinu í Stokk- hólmi. Kl. 17.05 Hótel Borg Má bjóða þér eitthvað annað? Örleikverk í matsal Hótel Borgar eftir Völu Þórs- dóttur og Birtu Guðjónsdóttur í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen. ÍRSKU Impac- bókmenntaverð- launin voru til- kynnt í Dublin- kastala á Írlandi á þriðjudag. Verðlaunahafinn að þessu sinni er franski rithöf- undurinn Michel Houellebecq sem hlaut verðlaunin fyrir skáldsögu sína Öreindirnar. Verðlaunin verða afhent í Dublin þann 15. júní. Sagan er niðurrifsádeila sem tek- ur á kynferði, samböndum, þjóð- félaginu og í raun mannkyninu í heild. Houellebecq þykir nokkuð umdeildur vinningshafi þar sem verkið er talið skipta lesendum í tvo hópa – þá sem hafa virkilega gam- an af því og hina sem engan veginn þola það. „Þetta á eftir að raska ró sumra og valda óróa, sumir munu líka hneykslast,“ sagði breski rithöf- undurinn og einn dómnefndar- manna, Michael Holroyd, er hann tilkynnti um verðlaunahafann. Auk Holroyd sátu fjórir aðrir rit- höfundar í dómnefnd, m.a. íslenski rithöfundurinn Steinunn Sigurð- ardóttir. Steinunn kvaðst mjög ánægð með niðurstöðuna og dóm- nefndin hefði verið sammála í nið- urstöðu sinni. „Það voru vissulega fleiri mjög góðar skáldsögur sem komu til greina en Öreindirnar er sú bók sem vakið hefur hvað mesta athygli og umtal í Evrópu frá því hún kom út,“ segir Steinunn. Þetta er í sjöunda skipti sem Impac-verðlaunin eru veitt, en verðlaunaupphæðin er sú hæsta sem veitt er fyrir eitt bókmennta- verk og nemur 100.000 evrum, eða um 8,3 milljónum króna. Þær skáld- sögur sem keppa um verðlaunin verða að hafa birst á enskri tungu, en verðlaunin skera sig einnig úr að því leyti að ef um þýtt skáldverk er að ræða þá rennur fjórðungur verð- launaupphæðarinnar til þýðandans. Öreindir hljóta Impac-verðlaunin Michel Houellebecq

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.