Morgunblaðið - 21.05.2002, Qupperneq 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 33
vissu um að hann sé kominn á betri
stað.
Helga Jónsdóttir.
Á stríðsárunum lokaðist fyrir öll
viðskipti til Evrópu önnur en til Eng-
lands. Íslendingar juku þá mjög við-
skipti sín við Ameríku. En vegna
skömmtunar stríðsins settu Banda-
ríkin útflutningskvóta á ýmsar vöru-
tegundir til hinna ýmsu viðskipta-
landa. Þetta varð til þess að fyrir
hvert land þurfti að gera sameiginleg
innkaup á mörgum vörum. Til að sjá
um þessi innkaup voru íslenskar
sendinefndir gerðar út af örkinni til
dvalar í Bandaríkjunum á meðan
stríðið varði. Feður okkar Þórs voru
báðir í þannig nefndum og fluttu
vestur með fjölskyldur sínar. Þetta
var upphafið að vináttu okkar Þórs og
má segja að það sé stríðinu að þakka
að við kynntumst sem ungir drengir.
Reyndar var hann skírður Þorsteinn
en kallaður Thor vestanhafs og fest-
ist það nafn við hann ævilangt. Móðir
hans var skosk og enska var almennt
töluð á heimili þeirra fyrir vestan en
sjálfur talaði ég litla ensku í fyrstu.
En smátt og smátt jókst málakunn-
áttan og tjáskiptin þar með og vin-
skapurinn í réttu hlutfalli við það.
Þegar stríðinu lauk hurfu menn
aftur til Íslands og bjuggum við nú
miklu nær hvor öðrum en við höfðum
gert í New York og hittumst oftar.
Nú var komið að mér að hjálpa Þór
með íslenskuna og brátt skipti engu á
hvoru málinu við töluðum saman. Síð-
an liðu árin á sinn venjulega hátt, oft
var ýmislegt brallað saman, fleiri vin-
ir bættust í hópinn, við uxum úr grasi,
fórum í menntaskóla, fengum bílpróf
og lukum stúdentsprófi. Skugga bar
þó á unglingsár Þórs er hann varð
fyrir móðurmissi fimmtán ára gam-
all.
Að loknu menntaskólanámi skildu
leiðir, báðir fórum við í verkfræði, ég
fór vestur um haf en Þór til Dan-
merkur að loknu fyrrihlutanámi hér
heima. Hann var þá líka orðinn fjöl-
skyldufaðir, giftur ágætri konu og
faðir tveggja indælla barna. Þó varð
það samt svo að hjónabandið endaði
með skilnaði. Þór vann svo í Dan-
mörku um skeið en kom síðan heim
og vann hjá Íslenskum aðalverktök-
um í fyrstu, en síðar og lengst af hjá
verkfræðistofunni Hönnun og var
hann einn af eigendum hennar. Í og
með vegna hversu snúin lögfræðileg
enska getur verið og einnig vegna
þess hve enskan var Þór töm tunga,
en ekki síður vegna þess hve kræfur
samningamaður hann var, þá beind-
ust störf hans hjá Hönnun fljótt inn á
það svið að vinna við samninga við er-
lenda verktaka. Þá starfaði hann og
um skeið í Sviss hjá Electrowatt
Engineering og vann víða á þeirra
vegum, t.d. í Taílandi. Öll árin sem við
vorum hvor í sinni heimsálfunni héld-
um við sambandi og hittumst af og til
og er við vorum báðir fluttir heim var
sem við héldum áfram þeim tengslum
sem við höfðum sem smástrákar.
Þór var traustur vinur vina sinna
og var tilbúinn að leggja mikið á sig
fyrir þá, væri þess þörf. Hann hafði
góða kímnigáfu, sá oft kaldhæðnu
hliðina á hlutunum og gerði oftar grín
að sjálfum sér en öðrum. Sem ungur
maður var hann í íþróttafélagi og
keppti í sundi. Hann var myndarleg-
ur á velli, enda kvennagull á þeim ár-
um. Það fór því miður svo að hann
háði harða glímu við Bakkus á seinni
árum.
Önnu konu sinni reyndist Þór ein-
staklega vel er heilsa hennar fór að
bila. Þegar hún lést fyrir nokkrum
árum grunaði mann ekki að Þór
myndi fylgja henni innan fárra ára.
Öll kveðjum við þetta líf, sumir fljótt
og aðrir seint. Með fráfalli Þórs er
genginn góður vinur.
Ágúst Valfells.
Þorsteinn Þór Gregor Þorsteins-
son er allur. Okkur félögum hans
fannst kallið koma nokkuð óvænt og
fyrir aldur fram. Vekur það okkur til
umhugsunar um hverfulleika lífsins.
Þór eins og hann var oftast kallaður
varð stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1955 og hélt út í lífið
ásamt þeim glaðværa hópi sem þá út-
skrifaðist. Þór var orðinn fjölskyldu-
maður þegar þetta var og því kominn
að þessu leyti nokkuð á undan flest-
um skólasystkinum sínum í reynslu
og þroska.
Hann valdi sér verkfræði sem
framtíðar starfsvettvang og urðum
við félagarnir samferða í verkfræði-
nám við Háskóla Íslands og
Tækniháskólann í Kaupmannahöfn.
Á Kaupmannahafnarárunum mynd-
aðist alveg einstök samkennd á milli
okkar félaganna og héldum við hóp-
inn bæði í námi og við flestar uppá-
komur í samkvæmislífi Kaupmanna-
hafnarstúdenta. Þóttum við nokkuð
fyrirferðarmiklir, átta saman, og ein-
hverra orsaka vegna hlaut þessi hóp-
ur samheitið „groddarnir“. Þetta
þótti okkur einkennilegt þótt liðið
gæti orðið harðsnúið, þegar við átti,
eins og fram kemur í bókun eins
fundar í stúdentafélaginu en þar var
ritað „komu groddar og hleyptu upp
fundi“. Sannleikurinn er hins vegar
sá að liðsmenn hópsins voru hver öðr-
um ljúfari, raunbetri og viðmótsþýð-
ari. Þótt okkur fyndist nafngiftin
óréttmæt í fyrstu fannst okkur hún
vera kankvíslega skemmtileg og svo
fór að við gerðum hana að heiðurs-
nafnbót sem við félagarnir berum
með stolti.
Þór hélt heimili í Vanløse í Kaup-
mannahöfn með fyrstu konu sinni Jó-
hönnu Guðrúnu Rósinkranz. Voru
groddar þar tíðir gestir og voru þar
haldin mörg skemmtileg groddap-
artí. Það var dásamlegt að koma á
heimili þeirra hjóna. Við, sem ekki
vorum komnir með fjölskyldur þá,
nutum þess í ríkum mæli að fá að
blandast í fjölskyldulífið þar sem hús-
freyjan, glaðlynd og glæsileg, ásamt
tveimur mannvænlegum börnum og
eiginmanni tóku á móti okkur opnum
örmum.
Að loknu námi í verkfræðinni árið
1962 skildust leiðir groddanna.
Margir fengu sér vinnu hjá ýmsum
fyrirtækjum í Danmörku, þar á með-
al Þór, en aðrir fóru heim til Íslands.
Þór fór að vinna hjá fyrirtækinu O.H.
Brødsgaard í Kaupmannahöfn og
fékk þar mörg vandasöm verkefni til
úrlausnar sem hann leysti af mikilli
þrautseigju og nákvæmni eins og
hans var von og vísa. Þar bar e.t.v.
einna hæst hönnun á 200 metra háum
skorsteini sem krafðist þekkingar á
ysta jaðri verkfræðinnar. Þór hófst
þegar handa við að afla sér þekkingar
á þessu sviði með því að spyrja alla
helstu verkfræðinga í Danmörku og
víðar spjörunum úr og tókst að skila
verkinu frá sér með sóma. Það var
ekki laust við að við hinir groddarnir
yrðum dálítið öfundsjúkir yfir því að
hafa ekki lent í jafn mikilvægu verk-
efni og ekki síst sá okkar sem hafði
unnið við að hanna 35 metra háan
skorstein og hafði verið býsna stoltur
af þar til risaskorsteinn Þórs kom til
sögunnar. Á þessu tímabili ævi sinnar
var Þór jafnan kallaður herra Skor-
steinsson meðal okkar groddanna.
Þór og Jóhanna skildu og fluttist
hann til Íslands árið 1966. Hann tók
upp sambúð með Olgu Beck, aðlað-
andi og myndarlegri flugfreyju. Þau
giftust en skildu nokkrum árum síð-
ar. Árið 1974 kvæntist Þór Önnu
Helgu Kristinsdóttur Olsson. Þeirra
samband var mjög ástríkt. Anna lést
að áliðnu sumri árið 1995 langt um
aldur fram.
Á Íslandi sinnti Þór margvíslegum
verkfræðilegum verkefnum. Árið
1966 þegar hann kom til Íslands hóf
hann störf hjá Íslenskum aðalverk-
tökum en árið 1970 gekk hann til liðs
við verkfræðistofuna Hönnun og
gerðist þar meðeigandi. Hjá Hönnun
komst Þór í kynni við svissneska
verkfræðifyrirtækið Electrowatt
sem var náinn samstarfsaðili Hönn-
unar við verkefni á Íslandi og ber Sig-
ölduvirkjun þar hæst. Þór tileinkaði
sér einkum sérfræðikunnáttu í út-
boðsgagnagerð, sem hann hefur ef-
laust fundið að átti mjög vel við hann.
Í þessu starfi nýttust hæfileikar hans
í hugkvæmni, nákvæmni og nostri til
hins ýtrasta. Í gegnum samstarf
Hönnunar og Electrowatt komst Þór
m.a. í stöðu við stjórnunardeild
Electrowatt og dvaldi ásamt Önnu í
Sviss í rúm tvö ár og þar af nokkra
mánuði í Tælandi. Að þessum tíma
liðnum hvarf hann aftur til starfa hjá
Hönnun á Íslandi og vann þar í nokk-
ur ár við margvísleg verkfræðileg
verkefni, þar á meðal kennslu við
Tækniskóla Íslands. Hann hætti
störfum hjá Hönnun og vann sjálf-
stætt um skeið en réð sig síðan til
starfa hjá Brunamálastofnun. Þar
vann hann í nokkur ár en hætti til
þess að geta helgað sig alfarið
umönnun konu sinnar, Önnu, sem átti
við alvarleg veikindi að stríða.
Eftir lát Önnu bilaði heilsa Þórs og
átti hann ekki afturkvæmt til starfa
utan heimilis. Við félagar hans grodd-
arnir og makar okkar kveðjum hann
nú og vottum börnum hans þeim El-
ísabetu Láru og Guðlaugi Erni og
þeirra fjölskyldum okkar dýpstu
samúð.
Bergsteinn Gizurarson,
Hilmar Sigurðsson,
Jóhann Már Maríusson,
Jón Birgir Jónsson,
Jónas Elíasson,
Ólafur Gíslason,
Sigfús Thorarensen.
Mottó: „Í vöggu voru ævi minni ör-
lög sköpuð.“
Hann hét Þorsteinn Gregor Þor-
steinsson fullu nafni. Gregor nafnið
stafar af því, að hann var af skozku
bergi brotinn í móðurætt. Í vina- og
kunningjahópi var hann jafnan kall-
aður Þór.
Kynni okkar hófust í gegnum hina
góðu íþrótt, sundið. Þór var þá til-
tölulega nýfluttur heim til Íslands frá
New York. Þar hafði fjölskyldan búið
og faðir hans, Helgi Þorsteinsson,
starfað á vegum Sambands íslenzkra
samvinnufélaga í allmörg ár.
Á þessum tíma átti Þór í nokkrum
erfiðleikum með íslenzkuna og leið-
beindi ég honum eftir beztu getu.
Hann kenndi mér ensku í staðinn. Þá
kom strax í ljós nákvæmni hans og
þrasgirni. En hann má eiga það, að
hann erfði það aldrei við mann, þótt
stór orð féllu á stundum. Þannig var
hann alla ævi.
Við urðum brátt góðir vinir og
trúnaðarmenn. Kom ég á þessum
árum oft á heimili foreldra hans á
Háteigsvegi 32 hér í borg. Man ég
enn hve mér þótti þetta heimili
glæsilegt og óvenjulegt að allri gerð.
Húsgögnin voru allt öðru vísi en tíðk-
aðist á landi hér á þessum tíma og
heimilið hafði yfirbragð bandarískra
efnaheimila. Þar var jafnan gott að
koma. Foreldrum hans kynnist ég þó
lítið á þessum tíma, en Helga Þor-
steinssyni betur síðar. Hann var
merkismaður.
Það kom fljótlega í ljós, að Þór var
mikið sundmannsefni. Hann lagði
stund á skriðsundið og kynnti sér af
nákvæmni það helzta sem þá hafði
verið ritað í amerískum bókum um þá
glæsilegu íþróttagrein. Grandskoðaði
hann hvert smáatriði í því efni. Sund-
stíll hans varð því einstaklega stíl-
hreinn, hnitmiðaður skólabókarstíll.
Hann náði brátt miklum hraða á
sprettinum og var með fljótustu
mönnum við tímatökur á æfingum.
Hins vegar gekk honum verr í
keppni. Hann komst því aldrei í
fremstu röð. Til þess skorti hann
metnaðinn og keppnisskapið. Talent-
ið eitt er aldrei nóg.
Þór var vel vaxinn að líkamsbygg-
ingu, herðabreiður, niðurmjór og
hinn spengilegasti. Hann var og fríð-
ur sýnum. Því er ekki að furða, að
hann var mikið kvennagull. En jafn-
undarlega og það kann að hljóma, þá
er ég sannfærður um, að þetta hafi
ekki orðið honum til gæfu í lífinu.
Að loknu menntaskólanámi lagði
Þór stund á verkfræði. Á þeim árum
var aðeins unnt að ljúka fyrrihlutan-
um á Íslandi. Síðari hlutann varð að
taka erlendis. Þór valdi Kaupmanna-
höfn, sem þá var enn höfuðstaður Ís-
lands á vissan hátt, þótt eigi væri hún
það lengur formlega.
Við urðum samskipa með Gullfossi
til Hafnar. Aldrei hefir Carlsberg
smakkast eins vel og þessa fáu daga
um borð í Gullfossi haustið 1959. Við
vorum síðan saman við nám í Kaup-
mannahöfn í eitt ár og vorum með
fjölskyldurnar með okkur. Þetta var
yndislegur tími við störf og leik. Þá
var mikill samgangur okkar í milli og
fjölskyldnanna. Þau bjuggu í Vanlöse
en við í Lyngby og var ferðast á milli í
S-toget. Íslendingum þótti ekkert
fínt að hjóla í þá daga.
Er ég lít til baka, held ég að þetta
tímabil hafi verið hið hamingjurík-
asta í ævi míns gamla vinar. Þá var
hann enn kvæntur sinni ágætu konu,
Jóhönnu Rósinkranz og hafði átt með
henni börnin tvö, Betty og Gulla.
Eftir að Þór lauk námi í Poli-
teknisk, starfaði hann sem verk-
fræðingur í nokkur ár í Kaupmanna-
höfn, en sneri síðan aftur heim og
vann m.a. hjá Hönnun og Lands-
virkjun. Síðan fór hann til starfa hjá
Electrowatt í Zürich, en kom alkom-
inn heim árið 1981, með viðkomu hjá
okkur hjónum, þá í Strasbourg. Það
voru ánægjulegir endurfundir.
Eftir heimkomuna starfaði Þór við
ýmis verkfræðistörf, en það mun hafa
verið stopult. Á endanum varð hann
atvinnulaus. Hallaði þá fljótt undan
fæti.
Ég hefi stundum velt því fyrir mér,
hvort Þór hafi valið rétt, er hann fór í
verkfræðina. Hefði hann ekki fundið
sínum góðu hæfileikum farsælla við-
nám á sviði viðskiptanna, eins og fað-
ir hans? Því verður ekki svarað hér
eftir.
Ungur að árum missti Þór móður
sína. Var það honum gríðarlegt áfall,
sem ég hygg að hann hafi aldrei kom-
izt yfir, enda var einstaklega kært á
milli þeirra.
Ef til vill hefir allt hans svermerí
síðar verið leit að henni. En hana
fann hann vitanlega ekki. Hins vegar
fann hann annan, er varð hans óvin-
ur. Hér var sá á ferð, sem er allra vin
en engum trúir. Eftir það einangr-
aðist Þór smátt og smátt. Það var
hryggilegt til þess að vita og við, vinir
hans, gátum lítt að gert.
Máltækið segir: „Sitt er hvað gæfa
og gjörvuleiki.“ Hitt er einnig sagt:
„Hver er sinnar gæfu smiður.“ Vel
má það vera, en þegar örlög lífsins
berja þungt að dyrum, þá verður
mörgum manninum fótaskortur.
Þannig fór með Þór.
Fyrir nokkrum nóttum dreymdi
mig minn gamla vin. Hann leit vel út
og það var eins og hann hefði færzt í
endurnýjun lífdaganna, en á honum
var fararsnið. Morguninn eftir frétti
ég, hvert förinni var heitið.
Við Sólveig sendum börnum Þórs
og öðrum ástvinum innilegar samúð-
arkveðjur.
Guð blessi minningu Þorsteins
Gregors Þorsteinssonar.
Magnús Thoroddsen.
Hann Þór er dáinn. Þegar Bettý
hringdi í mig og lét mig vita að pabbi
hennar væri dáinn, þá reikaði
hugurinn til ársins 1980. Þá bjuggu
þau Þór og Anna í Sviss. Þetta ár var
ég fertug og maðurinn minn, sem
kallaður var Bonni, bróðir Önnu, en
hann er látinn. Við vorum alltaf í góðu
sambandi við Þór og Önnu, og það
var ákveðið að við hjónin færum til
þeirra og yrðum hjá þeim í mánuð.
Þegar út var komið, þá var Þór búinn
að skipuleggja ótal ferðir til
yndislegra staða og eru þessar ferðir
alveg ógleymanlegar. Það yrði of
langt að telja alla þessa staði upp, en
þetta var svo frábærlega vel skipu-
lagt hjá Þór, hótelgistingar og annað,
þar sem allt stóðst, enda var Þór
þannig maður að hann vildi hafa allt
pottþétt.
Ég kynnist Þór er hann hóf búskap
með Önnu, og þá kom strax í ljós hvað
hann vildi hafa allt í röð og reglu; allt
varð að vera á sínum stað. Hann var
öðlingur heim að sækja og alltaf var
tekið mjög vel á móti manni. Við fór-
um oft til Þórs og Önnu þegar þau
fluttu hingað til landsins aftur, og þá
var setið og spjallað um þessar frá-
bæru ferðir ásamt ýmsu öðru og mik-
ið hlegið. Stuttu eftir að þau komu
heim, þá kom í ljós að Anna þyrfti að
fara í mjög stóra aðgerð, til London,
og Þór fór með henni í allar ferðirnar,
en þær urðu mjög margar. Ég man
eftir því hvað Þór leið illa yfir að geta
ekki gert meira fyrir Önnu sína, en
hann gerði allt sem hægt var að gera.
Við erum ekki megnug til að stjórna
þessu lífi sjálf.
Anna lést fyrir fimm árum. Ég veit
að Þór leið mjög illa yfir að missa sína
konu og náði sér aldrei að fullu eftir
það. Það hefur verið tekið vel á móti
honum, veit ég, bæði af foreldrum
hans og Önnu. Ég sendi börnum og
öllum ættingjum Þórs mínar innileg-
ustu samúðar- og vinarkveðjur.
Hvert sem leiðin liggur nú
löngum verður þessi
innilegust óskin sú
að þig Drottinn blessi.
Hanna Halldórsdóttir.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.