Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 2

Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Efnisyfirlit Austurbær .................................... 21 Ás ............................................. 14-15 Ásbyrgi ........................................... 5 Berg .............................................. 48 Bifröst ............................................ 8 Borgir .............................................. 3 Eign.is ........................................... 10 Eignaborg ..................................... 41 Eignamiðlun ........................ 24-25 Eignaval ..................................... 4-5 Fasteign.is .................................. 40 Fasteignamarkaðurinn ............. 16 Fasteignamiðlunin ..................... 15 Fasteignamiðstöðin .................... 9 Fasteignasala Mosfellsbæjar . 39 Fasteignasala Íslands ................. 6 Fasteignastofan .......................... 13 Fasteignaþing .............................. 17 Fjárfesting .................................... 11 Fold ............................................... 43 Foss ................................................. 7 Garðatorg .................................... 29 Garður .......................................... 24 Gimli ...................................... 38-39 Híbýli ............................................... 9 Holt ................................................ 12 Hóll ........................................ 34-35 Hraunhamar ....................... 44-45 Húsakaup ..................................... 33 Húsavík ........................................ 35 Húsið ........................................... 28 Húsin í bænum ............................ 18 Höfði ............................................. 23 Höfði Hafnarfirði ....................... 22 Kjöreign ....................................... 42 Lundur ................................... 30-31 Lyngvík .......................................... 19 Miðborg ........................................ 32 Skeifan ......................................... 37 .Smárinn ....................................... 28 Stakfell ......................................... 41 Valhöll .................................... 20-21 H ÚSIÐ við Grjóta- götu 11 er lítið gult timburhús, sem vek- ur athygli fyrir þær sakir að það er sér- staklega fallegt og greinilegt að mikil vinna hefur verið lögð í húsið. Í gegnum tíðina hefur húsið meðal annars verið í eigu Sambandsins, einnig hefur það verið notað undir fundahöld fyrir AA-samtökin og síð- ast en ekki síst var Leikfélag Reykja- víkur stofnað í húsinu. „Við festum kaup á húsinu árið 1990 en þá stóð það að Tjarnargötu 3c. Húsið var þá í mikilli niðurníðslu og hafði ekkert verið gert fyrir það í áraraðir“ segir Fanney. „ Það benti flest til þess áður en við keyptum húsið að það yrði rifið, en það hefði verið mikil synd þar sem þetta er ansi merkilegt hús.“segir Finnur. Þau hjónin fengu úthlutaðri lóð sem núna heitir Grjótagata 11 og þangað var húsið flutt„ Kjallarinn sem húsið stóð á var grjóthlaðinn, við létum múra kjallarann á þessari lóð að þeirri fyrirmynd. Það voru reyndar þær kvaðir sett- ar á húsið frá Árbæjarsafninu að sá sem keypti það gerði það upp í eins upprunalegri mynd og mögulegt væri. Við höfðum það í huga frá upp- hafi að gera húsið upp í sinni gömlu mynd þar af leiðandi var þetta engin fyrirstaða fyrir okkur“ segir Finnur. Upphaflega byggt 1880 „Húsið var byggt árið 1880 af L.A. Knudsen, sem var bæjargjaldkeri í Reykjavík. Hann seldi svo Indriða Einarssyni húsið árið 1887 og bjó Indriði í því alla sína búskapartíð. Ár- ið 1897 var á heimili Indriða stofnað Leikfélag Reykjavíkur. Síðar keypti Þorsteinn Sigurðsson kaupmaður í Bristol húsið en hann átti það ekki lengi. Næsti eigandi á eftir Þorsteini var Sambandið. Sambandið hafði sankað að sér töluvert af eignum í Tjarnargötunni með það í huga að rífa þær allar og byggja þar höfuðstöðvar sínar. Til þess kom þó ekki því að höfuðstöðvar Sambandsins voru byggðar á Sölv- hólsgötu. Í kringum 1960 kaupir Alþingi húsið ásamt fleiri húsum í kring. Það var líka ætlunin þá að rífa húsið en það kom ekki til sem betur fer. „AA- samtökin fengu húsið til afnota fram að árinu 1990 þegar við svo kaupum það,“ segir Finnur. Húsið hefur átt fimm lögheimili „Húsið er að upplagi mjög vandað. Grindin að húsinu er einstaklega vel byggð. Húsið stóð við tjörnina og það komst mikill raki í húsið í gegnum kjallarann, þrátt fyrir það var það ekki mikið skemmt“ segir Finnur. „Þetta hús er merkilegt fyrir margar sakir en okkur fannst sér- staklega skemmtilegt að heyra að húsið hefur átt fimm lögheimili þrátt fyrir að hafa aðeins staðið á tveimur stöðum. Upphaflega hét gatan sem það stóð við Veltusund og var húsið númer þrjú. Síðan var borgarskipu- laginu breytt og stóð þá húsið við Kirkjustræti 6. Áður en húsið var flutt á þessa lóð breyttist götunafnið aftur og stóð húsið þá við Tjarnargötu 3c. Þegar við svo fluttum húsið hingað þá var heimilisfangið Túngata 10. Eftir að borgin gerði við okkur skiptasamn- ing varðandi lóðina þá fékk húsið loks sitt endanlega heimilisfang sem er Grjótagata 11,“ heldur hann áfram. Helltum okkur út í framkvæmdir „Á þeim tíma sem við keyptum húsið rákum við og bjuggum á sam- býli fyrir unglinga. Við vissum að þetta yrði mikil vinna og okkur var strax ljóst að þetta tæki allan okk- ar frítíma,“ segir Fann- ey. „Það kom sér ein- staklega vel að hafa annað aðsetur, það gerði okkur kleift að koma hingað í frítímum okkar og vinna í húsinu. Þó að það hafi verið ansi krefjandi verkefni þá var þetta kærkomin til- breyting frá meðferðar- starfinu,“ segir Fanney. „Það var af miklu að taka og það tók okkur fjögur ár að klára að gera upp húsið. Við tókum iðulega frá eina helgi í mánuði þar sem við vorum hér allan tímann og einnig notuðum við vel allan þann frítíma sem við áttum. Þar sem við þurftum ekki að búa hér á meðan framkvæmdum stóð og höfðum til- tölulega frjálsar hendur með tíma þá unnum við þetta allt sjálf, að undan- skildu húsinu að utan en þar fengum við hjálp frá kunningja mínum Atla Hjartasyni smiði“ segir Finnur. Þau hjónin fluttu inn í húsið árið 1994. Trú hinum upprunalega stíl „Það var ekki á miklu að byggja hér innan húss þegar við fórum að leita eftir vísbendingum um það hvernig húsið hefði lítið út í upphafi. Það var eitthvað eftir af panil og tré- verki sem gaf okkur vísbendingu um hvernig húsið var að innan. Við studdumst við heimildir úr norskum bókum sem fjölluðu um hús byggð á svipuðum tíma og einnig fór- um við mikið niður í Torfu og teikn- uðum upp það sem okkur vantaði þaðan. Tréverkið í því húsi er mjög svipað því sem var í þessu húsi. Segja má að tréverkið í húsinu og og sérstaklega gluggar og innri inn- búnaður séu allir fengnir af beinni fyrirmynd úr Torfunni. Þetta unnum við í samvinnu við Hjörleif Stefáns- son en hann hafði tilsjón með upp- gerð hússins af hálfu Árbæjarsafns- ins,“ segir Finnur. „Það eina sem er upprunalegt í húsinu eru stofugólfin og hurðarnar. Við pússuðum stofugólfin upp og lét- um þau standa hrá. Flest önnur gólf í húsinu eru úr rekavið frá ströndum. Við höfðum borðin misbreið og lögð- um þau eilítið geysin í samræmi við þau gólf sem fyrir voru. Hurð- arnar voru allar til, við settum þær allar upp á ný og ég smíðaði nýja karma og hurðarfalda í kringum þær,“ segir Finnur. „Allt annað í húsinu er nýtt.“ „Finnur hannaði og smíðaði eldhúsinnrétt- inguna en hún er líka úr rekavið sem er þó mun fíngerðari en sá sem er á gólfunum. Stiginn sem liggur upp á næstu hæð og útidyrahurðin eru líka hans verk,“ segir Fanney. Málað í nýjum lit „Við lögðum mikið upp úr því að hafa húsið sem líkast því sem það var og þar af leiðandi máluðum við hér innanhúss í sömu litum og hafði verið gert upprunalega. Einu heimildirnar sem við höfðum fyrir okkur í því voru þeir litir sem sum staðar voru eftir á veggjum húsins. Það eina sem við höfum í raun og veru breytt er liturinn á húsinu að ut- an en hann var rauður. Ég hafði alltaf séð húsið fyrir mér gult og því mál- uðum við það í þeim lit,“ segir Fann- ey. „Í Noregi og víðar á Norðurlönd- unum tíðkast það að mála húsin alltaf í sama lit en þegar við fórum að spyrjast fyrir um litinn á húsinu komumst við að því að það var engin hefð fyrir því hér á landi og í raun má segja að það sé íslenskur siður að skipt sé um lit á húsi þegar nýr eig- andi tekur við því,“ segir Finnur. Ásaþak á húsinu „Þetta hús er Sveiserhús, það er einkenni þeirra að þökin koma vel fram yfir húsið og einnig eru yfirleitt skrautlistar í kringum glugga. Við vildum halda í þennan stíl og því smíðaði ég skreytingar í kringum gluggapóstana þó að ekki sé líklegt að slíkar skreytingar hafi verið á hús- inu á sínum tíma,“ segir Finnur. „Húsið er óvenjulegt að því leyti að á því er svo kallað ásaþak en þess- konar þakgerð var algeng í kringum 1700. Á ásaþökum eru engar sperrur, Ásarnir liggja á milli gafla á húsinu síðan er klætt með plægðum borðum ofan á ásana frá mæni ás og niður á vegglægu “ heldur hann áfram. „Það er líka ansi sérstakt að það er plægður plankaviður í allri bindingu hússins í staðinn fyrir grjót eða múr- stein. Hefur kennt okkur mikið „Við höfum lært ýmislegt á því að gera upp þetta hús og í dag setjum við það ekki fyrir okkur að gera hlut- ina sjálf, ég legg í ýmislegt sem ég hefði ekki treyst mér til áður“ segir Fanney. „Þetta tók langan tíma og krafðist mikillar vinnu en ég hefði aldrei trú- að því að þetta væri svona skemmti- legt. Þreum árum eftir að við klár- uðum að gera upp þetta hús sagði ég alfarið skilið við meðferðarstörf og vinn nú eingöngu við að gera upp hús fyrir aðra,“ segir Finnur. Húsið að Grjótagötu 11 er mikil prýði: Það ber þess merki bæði innan og utan að unnið hefur verið að upp- byggingu þess af mikilli natni og vandvirkni. Þess má geta að húsið hefur fengið viðurkenningu frá Ár- bæjarsafninu fyrir að vera eitt best uppgerða hús í einkaeigu. Það má því segja að sú mikla vinna sem þau hjónin hafa lagt í húsið hafi verið vel þess virði. Húsið stóð upphaflega við Tjarnargötu 3c, en var síðan flutt á núverandi stað við Grjótagötu 11. Húsið hefur fengið við- urkenningu frá Árbæjarsafninu fyrir að vera eitt best uppgerða hús í einkaeigu. Fanney Sigurðardóttir og Finnur Guðsteinsson. Leikfélag Reykjavíkur var stofnað í húsinu Við Grjótagötu 11 stendur einstaklega fallegt og vel uppgert gult timburhús. Perla Torfadóttir ræddi við hjónin Finn Guð- steinsson og Fanney Sig- urðardóttur um þá miklu vinnu sem þau hafa lagt í þetta merka hús. Morgunblaðið/Árni Sæberg Finnur Guðsteinsson hannaði og smíðaði bæði gluggana og útidyrahurðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.