Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 26
26 C MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Á
rtúnshöfðinn í
Reykjavík hefur
lengst af verið
iðnaðarhverfi, en
nú er skrifstofu-
og þjónustustarf-
semi að sækja inn
inn í þetta hverfi í
vaxandi mæli á kostnað hefðbund-
innar iðnaðarstarfsemi. Þetta er
svipuð þróun og átt hefur sér stað í
sumum öðrum iðnaðarhverfum borg-
arinnar.
Þannig var Múlahverfið iðnaðar-
hverfi til að byrja með og vélaverk-
stæði og skurðgröfufyrirtæki þar
áberandi. Síðan tóku verzlunar- og
þjónustufyrirtæki að sækja inn í
Múlahverfið og iðnfyrirtækin hop-
uðu, fyrst inn á Skeifusvæðið og það-
an upp á Ártúnshöfða.
Þegar þetta gerist er ástæðan yf-
irleitt sú, að iðnfyrirtækin treysta
sér ekki til þess að greiða jafnhátt
kaupverð eða húsaleigu og verzlun-
arfyrirtækin fyrir húsnæðið.
Svipuð þróun hefur átt sér stað að
undanförnu við Borgartún, en ný
glæsileg skrifstofu- og verzlunarhús
hafa risið þar í stað gamalla iðnaðar-
húsa. Þessari uppbyggingu er þó
hvergi nærri lokið, því að áformað er
að reisa enn fleiri glæsilegar nýbygg-
ingar við Borgartún á næstunni.
Nú er svipuð þróun hafin á Ár-
túnshöfðanum, en þar hafa alls konar
iðnaðarhús verið mest áberandi.
Borgin og höfuðborgarsvæðið í heild
eru stöðugt að þenjast út og gömul
iðnaðarsvæði henta þá síður fyrir þá
starfsemi, sem þau voru ætlað fyrir í
upphafi. Reynslan sýnir, að þegar
byggðin þenst út, þá flytja iðnfyrir-
tækin sig út í jaðrana.
BYGG, Byggingarfélag Gylfa og
Gunnars, er nú með í undirbúningi
tvær stórbyggingar við Bíldshöfða 9 í
Höfðahverfi á lóð, sem áður tilheyrði
Hampiðjunni. Lóðin er á horni Breið-
höfða og Bíldshöfða á mjög áberandi
stað, þannig að húsin verða afar sýni-
leg og eiga vafalaust eftir að setja
mikinn svip á umhverfi sitt.
Bæði húsin verða átta hæðir.
„Hver hæð er um 700 fm, kjallarinn
er 1.035 fm og efsta hæðin, sú
áttunda, er inndregin og um það bil
500 fm að stærð. Möguleiki er á að
tengja húsin saman og fá út úr því
allt að 11.000 fm húsnæði,“ segir
Gylfi Guðjónsson arkitekt, en teikni-
stofa hans annaðist deiliskipulag lóð-
arinnar og vinnur að hönnun
húsanna.
„Húsin eru hugsuð sem skrifstofu-
og þjónustuhúsnæði, sem gefi kost á
miklum sveigjanleika í innra skipu-
lagi og henti fjölþættri og síbreyti-
legri starfsemi framsækinna fyrir-
tækja, ekki sízt í tölvugeiranum,“
heldur Gylfi áfram.
Henta fyrirtækjum af ýmsum
stærðum
„Húsin munu því henta fyrirtækj-
um af ýmsum stærðum, stórum,
meðalstórum og jafnvel litlum starfs-
einingum, þar sem nokkrir aðilar
geta verið um hverja hæð.
Talsvert verður í þessi hús lagt og
allur frágangur mjög vandaður. Hús-
in verða þannig einangruð að utan og
klædd annaðhvort með málmklæðn-
ingu eða flísum.
Gott útsýni verður frá þessum
húsum yfir sundin til norðurs og
vesturs, til Esjunnar og út á sundin.
Að sögn Gylfa verður reynt að gæta
þess, að sem flestar vinnustöðvar í
húsunum hafi gott útsýni.
Morgunblaðið/Arnaldur
Horft niður Breiðhöfða. Bæði húsin verða átta hæðir. Hver hæð er 700 fm, kjallarinn er 1.035 fm og efsta hæðin, sú átt-
unda, er inndregin og um það bil 500 fm að stærð. Möguleiki er á að tengja húsin saman og fá út úr því allt að 11.000 fm
rými. Húsin eru til sölu- og leigumeðferðar hjá Fasteignamarkaðnum.
Lóðin er á horni Breiðhöfða og Bíldshöfða á mjög áberandi stað, þannig að húsin verða afar sýnileg og eiga vafalaust eftir að setja mikinn svip á umhverfið.
Tölvuteikning/Teiknistofa arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar ehf.
Frá vinstri: Gunnar Þorláksson og Gylfi Ómar Héðinsson, aðaleigendur BYGG, sem byggir húsin, og Gylfi Guðjónsson arki-
tekt, hönnuður húsanna. Myndin er tekin á byggingarlóðinni.
Ártúnshöfði fær andlitslyftingu
BYGG ehf. hyggst reisa tvær
stórbyggingar við Bíldshöfða
Ártúnshöfðinn á eftir að breyta um yfirbragð í fram-
tíðinni. Magnús Sigurðsson kynnti sér fyrirhugaðar
nýbyggingar BYGG við Bíldshöfða 9. Þær verða átta
hæðir og samtals um 11.000 ferm.
Húsin standa við Bíldshöfða 9 við hliðina á húsi Hampiðjunnar. Neðra húsið
sést naumlega en efra húsið þeim mun betur á tölvuteikningunni til vinstri, þar
sem húsin eru sett inn í landslagið. Allt þjónusturými, svo sem lyfta, snyrt-
ingar, kaffistofur, geymslur og fleira, er í sérbyggingu, til hliðar við vinnusvæðin
og tengjast aðalhúsi með glerbyggingu. Þetta leiðir til þess að skrifstofurýmið
býður upp á mikla möguleika í nýtingu.