Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 1

Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 1
200. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 28. ÁGÚST 2002 TIL HARÐRA átaka kom í gær er spænsk stjórnvöld gripu til aðgerða gegn Batasuna, róttækum stjórn- málaflokki Baska, en lögreglan lok- aði þá helstu skrifstofum flokksins. Í hafnarborginni Bilbao í Baskalandi skaut lögregla gúmmíkúlum að hópi manna sem koma vildi í veg fyrir að skrifstofum flokksins yrði lokað og réðst svo að mótmælendum með kylfur á lofti. Að sögn talsmanns Batasuna særðist að minnsta kosti einn mótmælendanna í átökunum. Þessar aðgerðir koma í kjölfar þess að rannsóknardómarinn Balt- asar Garzon lagði þriggja ára bann við starfsemi Batasuna vegna meintra tengsla við ETA, Aðskiln- aðarhreyfingu Baska, en um 800 manns hafa fallið í 30 ára baráttu ETA fyrir sjálfstæði Baskalands. Spænska þingið lagði blessun sína yfir bann Garzons í atkvæðagreiðslu á mánudag og gekk reyndar skrefi lengra því það hvatti yfirvöld til að fá flokkinn bannaðan fyrir fullt og allt. Dómarinn gaf svo út fyrirskipun seint á mánudagskvöld um að lög- reglan skyldi láta til skarar skríða og loka skrifstofum Batasuna, með valdi ef svo bæri undir. Hefur héraðsútibúum flokksins í Pamplona í Navarra þegar verið lokað, sem og í bæjunum Elizondo, Leiza, Estella og Alsasua. Þá var höfuðstöðvum Batasuna í Baskalandi, í borgunum Vitoria, Bilbao og San Sebastian, lokað í gær en í kjölfarið þurfti spænska lögreglan að gera óvirka sprengju sem liðsmenn ETA höfðu skilið eftir í nágrenni dómshússins í Tolosa, sem er ekki langt frá San Sebastian. Úrskurður Garzons hefur ekki áhrif á stöðu um eitt þúsund kjörinna fulltrúa Batasuna í ýmsum héraðs- og sveitarstjórnum en felur hins vegar í sér að öllum skrifstofum flokksins skuli lokað. Þá verða allar opinberar uppákomur á vegum Batasuna bannaðar, þ.m.t. frétta- mannafundir, og loks skal hald lagt á eignir Batasuna – en talið er að það geti valdið því að flokkurinn verði gjaldþrota. Ráðist til atlögu gegn Batasuna Madrid, San Sebastian, Bilbao. AFP, AP. Reuters Liðsmenn basknesku héraðslögreglunnar, Ertzanintza, klippa á keðjur sem Karmelo Landa, leiðtogi Batasuna í hafnarborginni Bilbao í Baskalandi, hafði notað til að hlekkja sig við höfuðstöðvar flokksins þar í borg. FULLTRÚAR á ráðstefnunni um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg í Suður-Afríku komust í gær að samkomulagi um hvernig eigi að taka á vanda fiskveiða í heiminum, að því er segir í frétt BBC. Sam- komulagið, sem er fyrsta umtals- verða samkomulagið er næst á ráð- stefnunni, kveður á um hvernig vernda beri og byggja upp fiski- stofna heimsins. Er markmiðið að gera þá nýtanlega og sjálfbæra fyrir árið 2015. Þetta er fyrsta samkomulagið sem næst er hefur nákvæma loka- dagsetningu og verður því fléttað inn í lokatexta ráðstefnunnar. Í því felst meðal annars að dregið verð- ur úr sókn og kvótar skornir niður til að stofnar geti endurnýjað sig. Bandaríkin kröfðust þess að í sam- komulaginu segði að endurnýjunin ætti sér stað „þar sem mögulegt er“ og urðu fulltrúarnir við þeirri kröfu. Fulltrúar Bandaríkjanna bentu á að sumir stofnar, eins og þorskstofninn austur af Kanada, hefðu verið ofveiddir og svo virtist sem óbætanlegt tjón hefði orðið á honum. Þrátt fyrir þetta er samkomulag- ið talið nokkur ósigur fyrir Banda- ríkin, en fulltrúar þeirra vildu að í stað þess að setja ný markmið ættu ríki að reyna að ná þeim sem þegar hafa verið skilgreind. Ofveiði er mikill vandi víða um heim. Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) eru meira en 25% fiskistofna ofveidd, 50% veidd eins mikið og þeir þola og nauðsynlegt er að draga úr sókn í um 75% fiskistofna til að tryggja að þá verði áfram unnt að nýta. Jóhannesarborg Verndun fiskistofna samþykkt HVERT einasta arabaríki er á móti hugsanlegri innrás Banda- ríkjamanna í Írak, að sögn Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands. „Ég held ekki að nokkurt arabaríki vilji árás á Írak. Hvorki Kúveit, SádiArabía né nokkurt annað ríki,“ sagði hann í ræðu sem hann hélt á fundi stúd- enta í borginni Alexandríu í gær. Varaði hann George W. Bush Banda- ríkjaforseta við því að innrás gæti leitt til glundroða og upp- lausnar í þessum heimshluta en á mánudagskvöld ítrekaði Dick Cheney varaforseti réttmæti þess að látið yrði til skarar skríða gegn stjórnvöldum í Írak. „Ef ráðist verður á Írak, og Írakar drepnir á sama tíma og Ísraelar eru að drepa Palestínu- menn, mun það hafa alvarlegar af- leiðingar. Enginn leiðtogi araba mun geta haft hemil á bálreiðum múgnum.“ Sagðist Mubarak viss um að Bandaríkjastjórn gerði sér grein fyrir þessu. Mubarak lýsti yfir stuðningi sínum við kröfu Bandaríkjamanna um að Íraks- stjórn hleypti vopnaeftirlitsmönn- um Sameinuðu þjóðanna (SÞ) aftur inn í landið, en þeir hafa ekki feng- ið að stíga þar fæti frá 1998. Hann lagði samt áherslu á að einungis væri hægt að refsa Saddam Huss- ein Íraksforseta og nánustu sam- starfsmönnum hans fyrir skort þeirra á samstarfsvilja. „Írak verð- ur að fylgja ákvörðun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og hleypa eft- irlitsmönnunum aftur inn … því heimurinn hefur sínar grunsemd- ir,“ sagði hann. „En ætlið þið [Bandaríkjamenn] að drepa íraska borgara vegna ákvarðana eins eða tveggja manna?“ Vilja ekki eftirlitsmenn Íraskir embættismenn leggja nú nótt við dag í viðleitni sinni til að auka stuðning erlendra ríkja, eink- um í Mið-Austurlöndum, við mál- stað sinn. Komu þeir því til leiðar að málefni Íraks verða tekin upp á fundi utanríkisráðherra Araba- bandalagsins 4. til 5. september næstkomandi, en leiðtogar margra arabaríkja hafa lagt hart að Írök- um að hleypa vopnaeftirlitsmönn- um SÞ aftur inn í landið. Varafor- seti Íraks, Taha Yassin Ramadan, kom í gær til Sýrlands til að eiga viðræður við forseta landsins, Bashar Assad, og Naji Sabri, utan- ríkisráðherra Íraks, er nú í Kína, sem lengi hefur stutt við bakið á Írökum. Dagblaðið al-Rafidain, sem rekið er af íraska ríkinu, hafði í gær eftir Ramadan að hann sæi ekki ástæðu til að hleypa eftirlitsmönnunum aftur inn í landið. Sakaði hann þá um að hafa ýtt undir árásir banda- manna áður en þeim var vísað úr landinu. „Það var þeim að kenna að Bandaríkin gerðu fjórar árásir á okkur frá árinu 1991. Af hverju ætti vera þeirra í Írak nú að koma í veg fyrir frekari árásir Banda- ríkjamanna?“ Sagði Ramadan að Írakar byggju ekki yfir neinum gereyðingarvopnum en að Banda- ríkjamenn vildu steypa Saddam Hussein burtséð frá því. „Vopna- eftirlitsmennirnir eru bara njósn- arar,“ bætti hann við. Þrír samningafundir Íraka og fulltrúa SÞ um vopnaeftirlit í land- inu hafa farið út um þúfur. Írakar segjast vilja halda viðræðunum áfram en Kofi Annan, aðalritari SÞ, hefur hafnað skilyrðum þeim sem Írakar hafa sett fyrir endur- upptöku vopnaeftirlitsins. George W. Bush Bandaríkjafor- seti tók í gær á móti sendiherra Sádi-Arabíu, Bandar bin Sultan prinsi, á búgarði sínum í Crawford í Texas-ríki. Blés hann á „ábyrgðarlaust tal“ um versnandi sambúð ríkjanna og hét því að ráð- færa sig við stjórnvöld í Riyadh áður en hann tæki ákvörðun um innrás í Írak. „Forsetinn gerði það ljóst að hann telur Saddam Huss- ein alvarlega ógn við heims- friðinn,“ sagði Ari Fleischer, tals- maður forsetans, eftir fundinn. Stjórnin í Riyadh ítrekaði í gær andstöðu sína við innrás í Írak og sagði sádi-arabískur embættismað- ur að „stríð væri óráðlegt í stöðunni“. Egyptalandsforseti hvetur Bandaríkjamenn til varfærni Arabaríkin öll and- víg innrás í Írak Kaíró. AP, AFP.  Segir aðgerðaleysið/18 Hosni Mubarak EDÚARD Shevardnadze, forseti Georgíu, til vinstri á myndinni, ræð- ir hér við tsjetsjneska flóttamenn í þorpinu Duisi í Pankisi-skarði nærri landamærunum að Tsjetsjníu. Shev- ardnadze var í gær á ferð í skarðinu og var m.a. viðstaddur útför manns sem sagður er hafa týnt lífi er rússneskar herflugvélar gerðu loft- árásir á meintar stöðvar tsjetsjn- eskra skæruliða í liðinni viku. Sagði Shevardnadze sprengjuárásina vera „glæp gegn Georgíu og heim- inum öllum“. Aukin spenna hefur færst í samskipti Rússa og Georgíu- manna að undanförnu. Þeir fyrr- nefndu segja skæruliða frá Tsjetsj- níu eiga öruggan griðastað í Pankisi-skarði og gagnrýna stjórn- völd í Georgíu fyrir aðgerðaleysi. Reuters Shev- ardnadze í Pankisi- skarði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.