Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isSigfús Sigurðsson segist aðeins geta bætt sig hjá Magdeburg / B4 Manchester United tryggði sætið í Meistaradeildinni / B2 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Morgunblaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið Sjónvarps- dagskráin frá Stonet ehf. Blaðinu verður dreift um allt land. ÁHÖFNIN á Baldri, sjómælingabáti Landhelgisgæslunnar, fann í gær flak, sem virðist eftir útlínum að dæma vera flugvélarflak, á sjávar- botni í Skerjafirði nálægt aðflugs- stefnu að Reykjavíkurflugvelli. Ásgrímur L. Ásgrímsson, skip- stjóri á Baldri, segir að útlínur flaks- ins sjáist mjög vel á tækjum sem Landhelgisgæslan fékk að láni frá bandaríska flotanum. Bolur, vængir og jafnvel stél sjáist á skjánum, en það eigi eftir að kafa niður að flakinu til að ganga úr skugga um að þetta sé flugvélarflak og þá af hvaða flugvél. Ásgrímur segir að í síðari heims- styrjöld hafi á Skerjafirði allt verið fullt af sjóflugvélum sem lágu þar við akkeri, þetta geti t.d. verið flugvél sem hafi sokkið eða vél sem hafi far- ist í aðflugi. Tilkynnti Ásgrímur fundinn til yfirstjórnar Landhelgis- gæslunnar. Áhöfnin á Baldri var við dýptar- mælingar á Skerjafirði þegar flakið fannst og segir Ásgrímur að hann hafi orðið mjög hissa þegar hann sá flakið birtast á skjánum. „Við hefð- um aldrei með þessum hefðbundna búnaði sem við höfum haft til dýpt- armælinga fundið flakið. Hefðum við lent yfir því hefði það litið út eins og smáþúst og við hefðum aldrei gert okkur grein fyrir því að þarna væri flak,“ segir Ásgrímur. Hann segir að Landhelgisgæslan hafi búnaðinn að láni til að meta hann og sjá hvernig hann kæmi Ís- lendingum best að notum. „Við erum búin að sjá mikla möguleika í okkar starfi til dýptarmælinga, en við erum líka að gera okkur grein fyrir ýmsum öðrum möguleikum, t.d. við rann- sóknarstörf þegar hafa orðið slys og þarf að staðsetja flugvélarflak eða skipsflak. Í dag fer oft mikill tími í að finna eitthvað svona, ef það þá finnst, og auðveldar búnaðurinn alla slíka leit,“ segir Ásgrímur. Ljósmynd/Níels Bjarki Finsen Hér sést vel hvernig flugvélarflakið birtist á mælitækjunum um borð í sjómælingaskipi Landhelgisgæslunnar, Baldri. Flugvélarflak fannst á botni Skerjafjarðar HANNES Hlífar Stefánsson hefur verið óstöðvandi í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands en í gærkvöld vann hann sinn áttunda sigur í röð og hefur aldrei byrjað betur á skákmóti. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson stóð sig vel í fyrra og á styrkleikalista Alþjóðaskák- sambandsins fór hann í fyrsta sinn yfir 2.600 stig og var í 89. sæti á heimslistanum um sl. áramót. Hann byrjaði líðandi ár vel og í einvígi við Nigel Short í janúar var staðan 1,5-0,5 honum í vil en fjögur töp fylgdu í kjölfarið. Síðan hefur honum ekki gengið sérlega vel en annað hefur verið upp á teningnum í hátíðarsal íþróttahúss Gróttu á Seltjarnarnesi undanfarna daga. „Mér hefur gengið frekar illa á árinu en nú hefur allt gengið upp og það er ágætt að finna fyrir þess- ari breytingu,“ segir Hannes Hlífar og bætir við að hann hafi aldrei sigrað í átta skákum í röð á svona sterku skákmóti. „Það er erfitt að útskýra þessa góðu byrjun,“ segir hann, en getur þess að hann sé stigahæsti skákmaður mótsins og það skýri ef til vill eitthvað. Aftur á móti bendir hann á að hann og Helgi Áss Grétarsson hafi oft fengið 9 eða 9,5 vinninga af 11 í landsliðsflokki en þá hafi ekki verið svona margir vinningar í röð. Hannes á titil að verja, fékk 6,5 vinninga af 9 mögulegum í fyrra en er nú kominn með 8 vinninga af 11 mögulegum eftir sigur á Jóni Viktori Gunnarssyni í gærkvöld. Helgi Áss Grétarsson tapaði fyrir Braga Þorfinnssyni og er í öðru sæti með 5,5 vinninga en Hannes Hlífar mætir honum í dag. „Ég mæti honum með svörtu og hann verður sjálfsagt mjög grimmur,“ segir meistarinn. „Það eru þrjár umferðir eftir og þetta er ekki búið.“ Hannes Hlífar vann áttundu skák sína í röð Morgunblaðið/Golli Hannes Hlífar Stefánsson hefur aldrei byrjað eins vel á skákmóti og nú en í gærkvöld sigraði hann Jón Viktor Gunnarsson. Hefur aldr- ei byrjað betur á skákmóti  Hannes Hlífar/43 LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eftir bláu og gulu torfærumótor- hjóli af gerðinni Husaberg 501, árgerð 1998. Hjólinu var stolið tvisvar sinnum með skömmu milli- bili nýlega. Tilkynntur var þjófn- aður á hjólinu frá Álfaskeiði 127 hinn 25. ágúst. Daginn eftir til- kynnti eigandinn að hjólið væri fundið við Kaldárselsveg. Á meðan hann náði í kerru undir hjólið var því stolið að nýju og hefur það ekki sést síðan. Biður lögreglan þá sem hafa upplýsingar um hjólið að hafa samband. Mótorhjóli var stolið tvisvar RÆTT er um að herða öryggisregl- ur á Landspítala – háskólasjúkra- húsi til að bregðast við þjófnaði á lyfjum á sumum deildum spítalans. Vandamál af þessum völdum hafa farið stigvaxandi síðastliðin 10 ár, í takt við þróun á sviði fíkniefnamála úti í þjóðfélaginu, en talsvert hefur borið á að innlagðir fíkniefnasjúk- lingar með fráhvarfseinkenni hafi sótt í lyf á spítalanum. Hert hefur verið á umgengnisreglum og spítal- inn er lokaðri fyrir umgengni en áður var. Á undanförnum árum hefur verið hert á reglum um geymslu lyfja þannig að lágmarksmagn sé af eftir- litsskyldum lyfjum á deildum. Einn- ig hafa verið sett upp þjófavarna- kerfi á þeim deildum spítalans sem ekki hafa sólarhringsvakt og þá eru sérstakir öryggisverðir látnir fylgj- ast með grunsamlegum manna- ferðum. Til viðbótar þessu hafa verið settir upp tugir öryggismyndavéla og á slysadeild Landspítalans í Foss- vogi er lögreglumaður hafður á vakt á álagstímum. Ástæða þykir til að auka enn á þessar ráðstafanir í ljósi þróunarinn- ar undanfarin ár. Bæði hefur verið um að ræða hrein og bein innbrot á spítalann þar sem lyfjum er stolið en í seinni tíð eru það fíkniefnasjúkling- ar sem eru farnir að stela lyfjum og/ eða gestir þeirra. Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri tækni og eigna Landspítalans, segist vonast til þess að unnt verði að fjölga öryggis- vörðum í húsum spítalans til að auka öryggi. „Við fylgjum þessari þróun eftir með því að styrkja það öryggiskerfi sem fyrir er,“ segir Ingólfur. „Við leggjum þó mesta áherslu á öryggi sjúklinga og starfsfólksins og höfum mestar áhyggjur af því að þeim sé ógnað og þess vegna grípum við til allra þeirra ráðstafana sem við getum. Ein þessara ráðstafana felst í tæki sem starfsfólk á sumum deildum getur borið á sér og kallast litli lífvörðurinn. Tækið sendir frá sér boð ef starfsmaður lendir í hættu eða er ógnað í starfi.“ Einnig segir Ingólfur allt starfsfólk bera auð- kenniskort til að auka frekar á öryggi inni á spítalanum og hafa sumir úr starfsmannahópnum fengið þjálfun í varnarviðbrögðum. Landspítali – háskólasjúkrahús Ástæða til að herða öryggis- reglur spítalans VON er á 23 stuðnings- mönnum Stokkhólmsliðsins AIK til landsins, skv. upplýs- ingum frá Knattspyrnusam- bandi Íslands, en liðið leikur gegn Eyjamönnum í UEFA- keppninni á fimmtudag. Knattspyrnuliðið sjálft kom til landsins í gær og ætluðu leik- menn til Vestmannaeyja seinnipartinn. Enginn „hermaður“ Geir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, fékk þær upplýsingar frá sænska knatt- spyrnusambandinu að enginn úr hinum alræmda „svarta her“ væri væntanlegur til Vestmannaeyja, heldur væri eingöngu von á venjulegum, friðsömum stuðningsmönnum. Svarti herinn er hópur fót- boltabullna sem styðja AIK og standa jafnan fyrir ólátum í tengslum við leiki félagsins. Jóhannes Ólafsson, yfirlög- regluþjónn í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við Morgun- blaðið að löggæsla við leikinn yrði með hefðbundnum hætti. Von á 23 stuðnings- mönnum AIK FRYSTITOGARINN Hjalteyrin EA strandaði á sandrifi vestan við hafskipabryggjuna á Stöðvarfirði þegar hann var að fara til veiða í gær. Betur fór en á horfðist því vél- báturinn Álftafell SU 100 náði að draga togarann á flot, sem svo hélt til veiða eins og áætlað hafði verið. Að sögn hafnarvarðar á Stöðvar- firði urðu engar skemmdir á togar- anum. Hjalteyrin strandaði á sandrifi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.