Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ANNARRI sjúkradeild af tveimur
fyrir heilabilaða á Landakotsspít-
ala verður lokað í fjóra mánuði, frá
september til áramóta, í sparnað-
arskyni. Hjúkrunarforstjóri Land-
spítala – háskólasjúkrahúss, LSH,
segir að um sameiningu deildanna
sé að ræða en með því fækkar
rúmum fyrir heilabilaða. Reynt
verður að útskrifa sem flesta af
átján sjúklingum deildarinnar, en
aðrir verða færðir á milli deilda.
Aðstandendur sjúklinga eru mjög
ósáttir og segja fyrirvarann stutt-
an. Sviðsstjóri öldrunarsviðs segir
aðgerðirnar, sem framkvæmda-
stjórn LSH tók ákvörðun um í
gær, stangast á við væntingar og
vilja sviðsstjórnar og að samfélags-
legur ávinningur verði enginn.
Hann segir sjúklinga með heilabil-
un þurfa sérstaka aðhlynningu.
Munu aðgerðirnar auka ennfrekar
á slæmt ástand í öldrunarmálum.
Sparnaður sem hlýst af þessum að-
gerðum nemur rúmum 30 millj-
ónum króna.
Einn aðstandandi sjúklings af
deildinni sem Morgunblaðið ræddi
við segist hafa verið boðaður á
fund sl. mánudag. Þar var honum
tilkynnt að deildinni yrði lokað nk.
föstudag, þ.e. fyrirvarinn var fjórir
dagar. Á fundinum kom fram að
viðkomandi sjúklingur gæti fengið
pláss á Elliheimilinu Grund, en að-
standendur voru mótfallnir því,
enda höfðu þeir fyrr í sumar kynnt
sér aðstæður þar og verið afar
ósáttir við þær. „Þetta eru lítil her-
bergi uppi í rjáfri, með þakglugg-
um svo ekki er hægt að sjá út,“
sagði aðstandandinn sem Morgun-
blaðið ræddi við. „Við vildum alls
ekki að ættingi okkar yrði fluttur
þangað, sögðum þeim að hann
myndi veslast upp. Á fundinum var
okkur hins vegar sagt að það
myndi ekki skipta hann neinu máli
hvar hann væri, hann væri hvort
eð er svo ruglaður. Þetta þykir
mér illa sagt um manneskju sem
hefur lagt sitt af mörkum til ís-
lensks samfélags.“
Skýringin sem aðstandendum
var gefin var sú að um sparnaðar-
aðgerðir væri að ræða. „Við erum
ósátt við að lokað sé deild þar sem
sjúklingarnir eru ósjálfbjarga.“
Á fundinum var aðstandendun-
um tilkynnt að ekki yrði hlustað á
neinar afsakanir, deildinni yrði lok-
að og sjúklingarnir yrðu að flytjast
annað. „Staðan hjá okkur er sú að
hann [sjúklingurinn] verður settur
á Grund, í óþökk okkar aðstand-
endanna.“
Aðstandendur telja að um lög-
brot sé að ræða, samkvæmt lögum
um réttindi sjúklinga. „Það er
óheimilt að flytja fólk nauðung-
arflutningum. Áður en hann veikt-
ist vildi hann ekki fara á Grund.
Þetta eru nauðungarflutningar en
við höfum ekkert val. Það er verið
að ýta fólkinu út.“
200 bíða innlagnar
á öldrunarsvið
Framkvæmdastjórn LSH ákvað
í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu að
loka annarri af tveimur sérhæfðum
heilabilunardeildum sjúkrahússins
og þeim einu í landinu, í að a.m.k.
fjóra mánuði, að sögn Pálma V.
Jónssonar, sviðsstjóra lækninga á
öldrunarsviði LSH. „Þetta er mjög
tilfinnanlegt vandamál fyrir okkar
skjólstæðinga svo og sjúkrahúsið.“
Hluti sjúklinganna fer inn á aðr-
ar deildir sjúkrahússins, en reynt
verður að útskrifa þá sem hægt er,
að sögn Pálma.
„Starfsemi á sviði öldrunar verð-
ur því skert í haust og vetur. Sú
skerðing bitnar á heilabiluðum, að-
standendum þeirra og öðrum svið-
um sjúkrahússins sem ekki geta
sent okkur sjúklinga til sérhæfðrar
meðferðar.“
Á öldrunarsviði er ekki boðið
upp á varanlega vistun, heldur
greiningu, meðferð og endurhæf-
ingu. „Stór hluti af okkar vanda er
sá að þegar meðferð lýkur getum
við ekki útskrifað sjúklinga því að
hjúkrunarheimilin forgangsraða
ekki okkar sjúklingum að því
marki sem þarf. Heimahjúkrun og
heimaþjónusta er heldur ekki
byggð upp með þeim styrk að hún
geti tekið við þessu fólki. Nú er
svo komið að við getum ekki haldið
deildum opnum og erum áfram
með fjölda biðsjúklinga.“
Pálmi segir að á öldrunarsviði
séu sextíu sjúklingar sem bíði eftir
varanlegri vistun á hjúkrunarheim-
ilum og 140 bíða úti í samfélaginu.
Þá bíða 200 manns eftir innlögn á
öldrunarsvið Landakotsspítala, þar
af 50 af öðrum deildum LSH.
Rússnesk rúlletta
Pálmi segir stefnt að því að opna
heilabilunardeildina að fjórum
mánuðum liðnum. „Deildin lokar
nema að einhverjar björgunarað-
gerðir komi til og fjármagn verði
veitt til að halda henni opinni. Það
var búið að gera mönnunaráætlun
um að svo mætti verða. Við hefðum
treyst okkur til að hafa deildina
opna, a.m.k. 14 pláss af 18, ef við
hefðum fengið rekstrarlega heimild
til þess frá framkvæmdastjórn
spítalans, en það kostar um 19
milljónir.“
Pálmi telur að þegar aðgerðirnar
séu skoðaðar í heild hljótist ekki af
þeim samfélagslegur ávinningur.
„Það er gjarnan vitnað til þess að
fjárlög séu lög og það beri að
fylgja þeim. Niðurskurður þjón-
ustu í kjölfar skertra fjárveitinga
til spítalans er eins og rússnesk
rúlletta, hvar mun skotið koma nið-
ur ef reynt er að fylgja þeim?
Núna ríður þetta skot af á okkar
deild, því miður. Fjárlagagerðin er
blind að því leyti að aðeins er litið
á kostnaðarhliðina en ekki jafn-
framt skoðað að fyrir útgjöldin
fæst mikilvæg og nauðsynleg heil-
brigðisþjónusta. Vona verður að
Alþingi varðveiti mikilvæga og við-
kvæma þjónustu við aldraða.“
Um sameiningu að ræða
Í sumar hefur ein deild á öldurn-
arsviði verið lokuð. Sú deild verður
opnuð aftur nú um mánaðamótin.
„Það var ákveðið að sameina tvær
heilabilunardeildir á sama tíma, “
segir Anna Stefánsdóttir, hjúkrun-
arforstjóri á LSH. „Við munum
vera með minnkaða starfsemi á
öldrunarsviði fram til áramóta sem
nemur 18 rúmum af 125. Það þýðir
að við rekum sviðið með sama
rúmafjölda og við höfum gert í
sumar.“
Anna segir ráðningabann vera á
sjúkrahúsinu. „Á haustin eru alltaf
töluverð umskipti á starfsfólki.
Vegna ráðningabanns höfum við
ekki tök á að ráða þá sem þyrfti til
að geta haldið öllu sviðinu opnu.“
Anna segir talsvert mikinn halla
á rekstri öldurnarsviðsins. „Þessi
aðgerð mun lækka kostnað á öldr-
unarsviðinu sem nemur 30–35
milljónum króna til áramóta.“
Anna segir að með sameiningu
deildanna muni rúmum sérstaklega
ætluð heilabiluðum fækka. Hún
segir sjúklinga deilarinnar sem
lokað verður fyrst og fremst flytj-
ast á milli deilda. Undirbúningur
að lokun deildarinnar hefur að
sögn Önnu staðið um nokkurt
skeið en formleg ákvörðun um lok-
un var tekin í gær. „Það mun ekki
koma til þess að sjúklingar verði
útskrifaðir í beinum tengslum við
sameiningu heilabilunardeildanna.
Fólk sem ekki getur farið heim
mun ekki verða útskrifað.“
Deild fyrir heilabilaða á Landakoti verður lokað í fjóra mánuði vegna sparnaðar
„Samfélagslegur
ávinningur enginn“
Nauðungarflutningar, segir aðstandandi eins sjúklingsins
Morgunblaðið/Golli
MEÐ ólíkindum þykir að ökumaður
fólksbíls sem fór fram af Vattarnes-
skriðum um miðnætti í fyrrakvöld
skyldi ná að kasta sér út áður en
bíllinn stakkst niður snarbrattar
skriður og hafnaði í stórgrýttri
fjöru 130 metrum neðar. Bíllinn er
gjörónýtur og ljóst má vera að öku-
maðurinn bjargaði lífi sínu með
skjótum viðbrögðum.
Ökumaðurinn, Benedikt Matt-
híasson, var á leið um Vattarnes-
skriður frá Fáskrúðsfirði til Reyð-
arfjarðar um miðnætti í fyrrinótt
og telur að hann hafi ekki ekið
hraðar en á 50 km hraða. Í viðtali
við Morgunblaðið í gær lýsti hann
því að hann hefði verið að koma úr
vinstri beygju þegar hann ók á
hnullung á veginum. Við það missti
hann tökin á stýrinu sem small til
hægri – í átt að snarbrattri hlíðinni
– og á augabragði var bíllinn kom-
inn fram af vegarbrúninni. Bene-
dikt segist strax hafa gert sér grein
fyrir í hvað stefndi og með snar-
ræði tókst honum að opna hurðina
og kasta sér út úr bílnum. Hann tel-
ur sig hafa lent í hlíðinni um 20
metrum fyrir neðan veginn. „Ég
hugsaði bara um að halda mér föst-
um þar sem ég lenti,“ sagði Bene-
dikt og hann sá ekki þegar bíllinn
fór niður í fjöruna. „Ég hélt að bíll-
inn ætlaði aldrei að stoppa. Ég
heyrði hann bara hrynja þarna nið-
ur með þvílíkum látum.“ Benedikt
var ekki í bílbelti og telur víst að að
öðrum kosti hefði hann farið lengra
með bílnum.
Stórhættulegar skriður
Það tók hann dágóða stund að
krafla sig upp hlíðina og á veginn.
Eftir að hann hafði gengið nokkur
hundruð metra stoppaði vegfarandi
fyrir honum og ók honum til Fá-
skrúðsfjarðar þar sem hann hafði
samband við lögreglu og gekkst
undir læknisskoðun. Hann er því
sem næst ómeiddur, aðeins risp-
aður á vinstri hendi og fæti og er
hugsanlega tognaður á öxl. Bene-
dik bjó á Reyðarfirði þar til fyrir
fimm árum og hefur dvalið fyrir
austan í sumarleyfi. „Ég vissi að
þessar skriður eru stórhættulegar.
Maður gerir sér alveg grein fyrir
því þegar maður keyrir þarna. Guði
sé lof að ég var snöggur út.“
Bifreið Benedikts, sjö ára gamall
Audi, var lítið annað en brotajárn
þegar hún var dreginn upp úr fjör-
unni um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi og víða í hlíðinni mátti sjá
brak úr bílnum.
Kastaði sér út úr bíl sem stakkst 130 metra niður Vattarnesskriður
„Guði sé lof
að ég var
snöggur út“
Morgunblaðið/Albert Kemp
Bíllinn er lítið annað en brotajárn. Hér sést Óskar Þór Guðmundsson,
varðstjóri lögreglunnar á Fáskrúðsfirði, koma böndum á bílinn.
TALSVERÐAR skemmdir urðu á
íbúð í fjölbýlishúsi við Nýbýlaveg á
Hvolsvelli í gærmorgun. Gleymst
hafði að slökkva undir potti sem stóð
á eldavélarhellu og varð af því eldur
sem náði að læsa sig í eldhúsinnrétt-
ingu.
Skv. upplýsingum frá lögreglunni
á Hvolsvelli var íbúðin mannlaus
þegar eldurinn kviknaði. Eigandi
íbúðarinnar hafði farið að heiman um
morguninn og þegar hann kom til
baka klukkan 9:30 mætti honum
talsverður reykur. Brunavarnir
Rangárvallasýslu réðu niðurlögum
eldsins á skömmum tíma og reyk-
ræstu síðan íbúðina. Hún er talsvert
skemmd.
Gleymdist
að slökkva
undir potti
GÆSLUVARÐHALD var fram-
lengt í gær til 19. nóvember yfir
tveimur mönnum, sem hafa játað
að hafa ráðist á 22 ára mann í
Hafnarstræti hinn 25. maí sl.
Árásarþoli lést af völdum áverka
sinna eftir nokkurra daga sjúkra-
húslegu. Árásarmennirnir eru 20
og 23 ára og virðist sem árásin
hafi verið tilefnislaus. Mennirnir
hafa áður komið við sögu lögreglu
en þeir eiga þó ekki langan saka-
feril að baki.
Lögreglan í Reykjavík hefur
lokið rannsókn sinni á málinu og
hefur það verið sent ákæruvaldi til
áframhaldandi meðferðar.
Gæslu-
varðhald
framlengt
♦ ♦ ♦