Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ 15-30% afsláttur 15-20% afsláttur Sigti 15% afsláttur Matar- og kaffistell 20% afsláttur Búsáhalda- dagar Plastvörur 15-20% afsláttur margar stærðir og gerðir Pottar, pönnur og eldhúsáhöld Ofnföst mót 30% afsláttur Allt í berjatínsluna og sultugerðina Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar Jöfnun orku- verðs í landinu NÝLEGA tóku gildilög um niður-greiðslu húshitun- arkostnaðar. Árni Ragn- arsson á orkubúskapar- deild Orkustofnunar sagði Morgunblaðinu nánar frá nýju lögunum. – Hver er ástæða nýju lagasetningarinnar? „Áður hafði ekki verið til löggjöf sem mælti fyrir um hvernig þessum fjár- munum skyldi ráðstafað eða hvernig eftirliti með ráðstöfun fjárins skyldi háttað. Því þótti brýnt að skapa lagagrundvöll fyrir niðurgreiðslurnar. Megin- skilyrði fyrir niðurgreiðslu er að um sé að ræða íbúð- arhúsnæði utan veitu- svæða hitaveitna sem nýta jarðhita. Einnig þarf að vera föst búseta í íbúðinni. Atvinnuhúsnæði og sumarhús falla því utan þessa flokks. Auk beinna niðurgreiðslna fjalla nýju lögin um styrki til stofnunar nýrra hitaveitna eða stækkunar eldri veitna. Þeir geta numið allt að áætluðum fimm ára niðurgreiðslum á raforku til hús- hitunar á viðkomandi svæði, sem sparast við tilkomu hitaveitunnar þegar til lengri tíma er litið.“ – Hafa niðurgreiðslur vegna rafhitunar tíðkast lengi? „Raforka til hitunar íbúðarhúsa hefur í um tvo áratugi verið greidd niður af ríkinu og orkufyr- irtækjum. Tilgangurinn er að jafna orkuverð í landinu og ná niðurgreiðslurnar til þeirra svæða sem njóta ekki hitunar með jarðhita. Þetta á við um veitusvæði Rafmagnsveitna ríkis- ins, Vestfirði, Vestmannaeyjar og Reyðarfjörð. Raforka er notuð til að hita upp um 12% af öllu hús- næði hér á landi, jarðhiti sér fyrir 87% og olía um 1%. Á fjárlögum ársins 2002 eru ætlaðar 853 millj- ónir kr. úr ríkissjóði til niður- greiðslna. Auk þess veita orkufyr- irtækin afslætti þannig að heildarupphæð þess fjár sem var- ið er í þessu skyni nemur um ein- um milljarði króna á ári. Hér er því um verulegar fjárhæðir að ræða.“ – Hver hefur umsjón með framkvæmd laganna? „Orkustofnun hefur eftirlit með framkvæmd niðurgreiðslulag- anna. Þetta er breyting frá því sem verið hefur því hingað til hefur dreifiveitum raforku og kyntum hitaveitum verið falin framkvæmd niðurgreiðslna á orku til húshitunar. Áfram verður niðurgreiðslunum komið til not- enda með sama hætti og áður, þ.e. þannig að orkuveiturnar lækka raforkuverðið til þeirra sem Orkustofnun úrskurðar að eigi að njóta þeirra. Á móti koma tilsvar- andi greiðslur til veitnanna úr ríkissjóði. Orkustofnun hefur auglýst eftir starfsmanni til að sinna þeim nýju verkefnum sem stofnuninni eru falin í niður- greiðslulögunum. Við- komandi mun tilheyra orkumálasviði Orku- stofnunar og hafa að- setur á Akureyri. Hann mun jafnframt sinna öðrum verkefnum, einkum þeim sem tengjast landsbyggð- inni með einhverjum hætti.“ – Hverjir eiga rétt á niður- greiðslum samkvæmt nýju lögun- um? „Í stórum dráttum má segja að sömu aðilar og áttu rétt á nið- urgreiðslu áður eigi þennan rétt áfram samkvæmt nýju lögunum. Um er að ræða um 11 þúsund not- endur. Ekki er heldur verið að breyta upphæð niðurgreiðslna, en þær nema nú 2,23 kr. á hverja kWh á algengasta hitunartaxta. Þó er ekki niðurgreidd raforka umfram 50.000 kWh á ári fyrir hverja íbúð. Meðalniðurgreiðsla vegna hverrar íbúðar nemur um 90.000 kr. á ári og lætur nærri að með þessu sé orkureikningurinn lækkaður um helming.“ – Hvaða nýmæli má helst nefna í nýju lögunum? „Nýmæli í lögunum er að hitun með olíu verður niðurgreidd þar sem ekki er um aðra kosti að ræða. Miðað verður við að kostn- aður við olíuhitun verði svipaður og við rafhitun. Í þessum tilvikum verður olíunotkun áætluð út frá stærð húsnæðis og niðurgreiðsl- unni komið til notenda með bein- um greiðslum. Annað nýmæli í lögunum er að raforka frá smá- virkjunum og raforka á varma- dælur verður niðurgreidd að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Eins og áður verður kostnaður við hitun kirkna og bænahúsa trú- félaga greiddur niður á sama hátt og hitun íbúða.“ – Þurfa notendur að sækja sér- staklega um niðurgreiðslur? „Já, samkvæmt nýju lögunum þurfa allir notendur sem vilja njóta niðurgreiðslna að sækja um það sérstaklega til Orkustofnunar á þar til gerðum eyðublöðum. Hægt er að sækja um á Netinu á www.os.is/ nidurgreidslur eða fá eyðublöð hjá Orku- stofnun. Allir þeir sem nú njóta niðurgreiðslna hafa fengið send slík eyðublöð í pósti og til að tryggja að niður- greiðslur falli ekki niður þurfti að sækja um fyrir 8. ágúst sl. Um 90% þeirra sem fengu send eyðu- blöð hafa sótt um áframhaldandi niðurgreiðslur og er um 40% um- sóknanna á rafrænu formi. Áfram verður tekið á móti umsóknum, enda eru sífellt nýir notendur að bætast í hópinn.“ Árni Ragnarsson  Árni Ragnarsson fæddist á Akureyri 1952. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA 1972 og prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Ís- lands 1976. Hann stundaði fram- haldsnám við Tækniháskólann í Þrándheimi og lauk doktorsprófi þaðan 1982. Árni starfaði fyrst eftir nám við rannsóknastofn- unina SINTEF í Þrándheimi og síðar Institutt for Energiteknikk í Osló. Frá árinu 1987 hefur hann starfað á Orkustofnun og frá 1997 sem deildarstjóri orkubú- skapardeildar. Árni er kvæntur Ásrúnu Guðmundsdóttur leik- skólasérkennara og eiga þau fjögur börn. Orkustofnun sér nú um nið- urgreiðslur HREFNAN sem undanfarna daga hefur haldið sig inni í Hornafirði strandaði miðja vegu milli Skarðsins og Dynjanda. Þegar að var komið var hrefnan nýdauð og hófu menn þegar að skera hana. Hvalskurðarmenn höfðu á að giska 1,2 tonn af dýrindis kjöti upp úr krafs- inu og stendur öllum til boða að næla sér í bita. Kjötið er geymt heima í Sauðanesi en hrefnan var skorin þar skammt hjá. Þetta var fullorðin hrefna, átta metra löng og kálffull. Kálfurinn reyndist vera 120 til 140 cm lang- ur og vó 40 kg. Kálfurinn var strax settur í frost en Hvalasafnið á Húsavík hefur falast eftir honum. Kálf- urinn verður því til sýnis á safninu á næstunni. Ljósmynd/Borgar Antonsson Hrefna strandaði og drapst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.