Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TUGIR heimila í Hafnarfirði hýstu í
síðustu viku þýska blásturshljóð-
færaleikara auk annars heim-
ilisfólks. Þeir sem hafa átt leið um
bókasafnið, íþróttahús, skóla eða
aðrar stofnanir í bænum þessa daga
hafa hugsanlega rekist á einhvern
þessara gesta en um er að ræða 43
manna lúðrasveit frá bænum Linn-
ich í Þýskalandi sem kom til lands-
ins sunnudaginn 18. ágúst og fór á
sunnudaginn var.
Upphaf þessarar heimsóknar má
rekja til þess að Lúðrasveit Tónlist-
arskólans í Hafnarfirði (LTH) lagði
land undir fót í fyrra og heimsótti
meðal annars Linnich þar sem hún
lék með þessari hljómsveit, sem
heitir Jugendblasorchester Over-
bach. Hljómsveitin er að mestu
skipuð menntaskólakrökkum en
skólinn sem hún tilheyrir leggur
sérstaklega áherslu á tónlist í sínu
skólastarfi. Með heimsókninni nú
voru þýsku krakkarnir að endur-
gjalda heimsóknina frá í fyrra.
„Stjórnandinn þar vildi endilega
að sveitin kæmi hingað og þá sótt-
um við um styrk til Ungs fólks í
Evrópu og fengum hann,“ segir Úlf-
hildur Grímsdóttir, formaður for-
eldrafélags LTH, þegar hún og
tveir krakkar úr þýsku lúðrasveit-
inni gefa sér tíma til spjalls við
blaðamann frá annars vel skipu-
lagðri dagskrá á meðan á heim-
sókninni stendur. Úlfhildur bætir
því við að þetta sé í fyrsta sinn sem
þessi styrkur sé veittur til foreldra-
félags í þessum tilgangi. Þá hafi
Hafnarfjarðarbær og ýmsir aðilar
hafi styrkt þau með ýmsum hætti
sem sé ómetanlegt.
Erfitt að fá krakkana
í rúmið
Hún segir heimsókn krakkanna
vissulega setja mikinn svip á bæinn.
„Við útbjuggum tónlistartengdan
ratleik þar sem þau fóru í stofnanir
í Hafnarfirði, skrifstofur, bókasafn-
ið, íþróttahús, skólana og alls konar
byggingar þannig að þau voru úti
um allan bæ og þessi hópur er mjög
sýnilegur. Síðan spiluðu þau í Hafn-
arborg, í sundlauginni og á fleiri
stöðum.“ Má þar nefna Sólheima í
Grímsnesi og síðasta dag heimsókn-
arinnar voru haldnir tónleikar í
Víðisstaðakirkju.
Allir þýsku hljóðfæraleikararnir
gistu inni á heimilum krakka úr
LTH og Úlfhildur segir sambúðina
hafa gengið mjög vel. „Það er helst
að það sé erfitt að fá þau í rúmið.
Þau vilja ekki fara að sofa heldur
vaka frameftir og spjalla.“ Hún seg-
ir tjáskiptin fara að mestu fram á
ensku en þó geti sumir af íslensku
krökkunum brugðið fyrir sig þýsku.
Eins og í þorpinu heima
Stephanie Büttgen og Michael
Dahmen leika bæði í þýsku lúðra-
sveitinni og segjast yfir sig hrifin af
landi og þjóð. „Ég hef farið í nokkr-
ar ferðir með hljómsveitinni og
þetta er frábær ferð – gæti verið sú
besta sem ég hef farið í,“ segir
Michael. „Við höfum öll þá tilfinn-
ingu að við séum búin að eignast
nýja vini hér á Íslandi og við erum
mjög undrandi á því hversu ólík
löndin eru. Til dæmis eru 18 millj-
ónir íbúa í Þýskalandi en allir virð-
ist þekkja alla á Íslandi. Þetta er
eins og í þorpinu okkar heima og
það er mjög indælt.“
Stephanie er líka ánægð með að
búa heima hjá íslensku krökkunum
og segir það ekki koma að sök þótt
þeir séu almennt svolítið yngri en
þýsku krakkarnir. „Við höfum setið
á kvöldin og talað um það sem er
ólíkt með löndunum tveimur og
mismunandi lífsstíl fólksins,“ segir
hún.
Þau segja íslenskt landslag hafa
komið sér á óvart og það hvað sund
er mikið iðkað hérna. „Ég fer aldrei
í sund heima en hér er ég alltaf í
vatni,“ segir Michael og hlær. Þau
hafa þó ekki fengið nóg af buslinu
og hlakka mikið til heimsóknar í
Bláa lónið sem stendur fyrir dyrum
skömmu eftir að viðtalið er tekið.
Morgunblaðið/Arnaldur
Lúðrasveitirnar spiluðu meðal annars fyrir forseta Íslands á Bessastöðum meðan á heimsókninni stóð. Þarna
má sjá Ólaf Ragnar Grímsson forseta, Fritz Oidtmann, glergerðarmann frá Linnich, en hann hefur haldið sam-
bandi við Ísland síðastliðin 50 ár og kaþólska prestinn Pater Karduck sem stjórnar þýsku lúðrasveitinni.
Þýskir tónar um allan bæ
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Arnaldur
Stephanie, Úlfhildur og Michael voru hæstánægð með heimsóknina.
KÓPAVOGSBÆR hefur áskilið sér
rétt til að krefja Vegagerðina um
allan kostnað við hljóðvarnarað-
gerðir við Hafnarfjarðarveg og
Nýbýlaveg þar sem þessir vegir
liggja um eldri hverfi og umferð-
arhávaði er yfir viðmiðunarmörk-
um. Vegagerðin fellst ekki á þá
skoðun bæjaryfirvalda að slíkar að-
gerðir séu á ábyrgð og kostnað
Vegagerðarinnar.
Bæjaryfirvöld hafa sent Vega-
gerðinni bréf þar sem tíundað er
að bæjarráð hafi samþykkt fram-
kvæmdaáætlun um aðgerðir vegna
umferðarhávaða og umferðarör-
yggis. Kemur fram að frá árinu
1993 hafi átt sér stað viðræður við
Vegagerðina um hljóðvarnarvegg
við Ásbraut 3-21 vegna hávaða frá
Hafnarfjarðarvegi en til þessa hafi
Vegagerðin ekki fallist á að slíkar
aðgerðir væru á ábyrgð og kostnað
Vegagerðarinnar.
Þá segir að hluti af fyrirhuguð-
um aðgerðum sé vegna þjóðvega í
eldri hverfum, nánar tiltekið við
Hafnarfjarðarveg og Nýbýlaveg.
Vegna sífjölgandi og ítrekaðra er-
inda íbúa þar verði ekki lengur
beðið með þessar aðgerðir og því
hafi framkvæmdaáætlunin verið
samþykkt. Er í bréfinu áskilinn
réttur til að krefja Vegagerðina um
allan kostnað við aðgerðir við
þessa vegi þar sem þeir liggja um
eldri hverfi og umferðarhávaði er
yfir viðmiðunarmörkum.
Kemur fram að framkvæmdir
ársins 2002 séu um það bil að hefj-
ast og af þeim séu tvær fram-
kvæmdir í nágrenni Hafnarfjarð-
arvegar sem uppfylla ofangreind
skilyrði. Er þar um að ræða fram-
kvæmdir við Hlíðarhvamm 1-9 og
Helgubraut 2-10 en fleiri fram-
kvæmdir eru áætlaðar á næstu ár-
um.
Þörfin breytist
Að sögn Sigurðar Geirdal bæj-
arstjóra eru stöðugt gerðar auknar
kröfur um hljóðvarnaraðgerðir.
Bærinn telji að sumar af fyrirhug-
uðum aðgerðum tilheyri Vegagerð-
inni sem á móti bendi á að þessar
kröfur hafi ekki verið gerðar þegar
vegirnir voru lagðir. „Það voru allt
önnur viðhorf og sjónarmið á sín-
um tíma og líka allt annað umferð-
armagn á þessum vegum þannig að
þó að allir hafi staðið rétt að sínu á
þeim tíma þá breytist þörfin. Með
þessu erum við að reyna að halda í
okkar ýtrasta rétt og fara fram á
að þeir taki þátt í þessu þar sem
við teljum að svo eigi ótvírætt að
vera.“
Ágreiningur um
kostnað við hljóð-
varnaraðgerðir
Kópavogur
STEFNT er að því að koma
fyrir áhorfendapöllum í
Íþróttamiðstöðinni að Varmá á
næstu mánuðum. Þetta segir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Fjögur ár eru síðan Íþrótta-
miðstöðin var tekin í notkun en
vegna pallaleysisins hefur Aft-
urelding ekki nýtt sér húsið
þegar það spilar heimaleiki sína
heldur leikið þá í gamla íþrótta-
húsinu.
Aðrar framkvæmdir
bíði fram á vorið
Að sögn Ragnheiðar hefur
málið verið til umræðu innan
bæjarkerfisins að undanförnu.
„Ég á von á að íþrótta- og tóm-
stundanefnd leggi til við bæj-
arráð að gengið verði í það að
bekkir komi í íþróttahúsið nú í
vetur. Það eru 3,5 milljónir
eyrnamerktar íþróttamiðstöð-
inni vegna þessa en það hrekk-
ur skammt þannig að þetta
verður tilfærsla verkefna hjá
íþróttamiðstöðinni til þess að
hægt sé að hrinda þessu í fram-
kvæmd á haustdögum. Það
verður þá gegn því að aðrar
framkvæmdir bíði fram á vor-
ið.“
Aðspurð um það hvenær
vænta megi að áhorfendabekk-
irnir verði komnir í gagnið seg-
ir hún: „Ég vænti þess að okkar
menn geti spilað í nýja salnum
með nýja áhorfendabekki alla
vega um áramótin 2002/2003.“
Vænta má ákvarðana er varða
pallana á næsta fundi íþrótta-
og tómstundanefndar Mosfells-
bæjar en hann verður haldinn í
næstu viku.
Íþróttamiðstöðin
að Varmá
Áhorfenda-
pallar
komi fyrir
áramót
Mosfellsbær
UMHVERFIS- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur hefur samþykkt að láta
móta heildstæða stefnu varðandi
slátt og upprætingu lúpínu í borg-
arlandinu. Er áætlað að byrjað verði
að framfylgja áætluninni frá og með
næsta vori.
Hópur íbúa við Klapparberg,
Lágaberg og Neðstaberg í Breið-
holti rituðu í sumar borgaryfirvöld-
um bréf þar sem lýst var miklum
áhyggum af síaukinni útbreiðslu lúp-
ínu í mólendinu neðan við byggðina
og meðafram Elliðaánum. Er á það
bent að í dalnum vaxi 160 tegundir
plantna en þar sem lúpínan fari um
gróið land hafi reynslan sýnt að
plöntutegundum fækki mjög og lúp-
ínan verði nær einráð.
Óska íbúarnir eftir því að hafist
verði handa við að slá lúpínuna sem
allra fyrst og að slegið verði árlega
hér eftir þar sem nýjar plöntur vaxi
upp af fræjum þeirra gömlu.
Ríka ástæðu þarf til að
setja fjármuni í slátt
Í umsögn deildarstjóra garð-
yrkjudeildar segir að greinileg
merki séu um að lúpínan á höfuð-
borgarsvæðinu byrji að hopa eftir
tíu ár. Á flestum þeirra svæða sem
lúpínan vex hafi verið plantað trjá-
gróðri sem muni gjörbreyta ásýnd
lands umhverfis borgina á næstu ár-
um og áratugum. „Í lengra tímasam-
hengi mun lúpínan einungis verða
tiltölulega skammvinnt millistig,“
segir í bréfinu.
Kemur fram að sláttur í borgar-
landinu sé að mestu inntur af Gatna-
málastofu og sláttur á lúpínu þurfi
að eiga sér stað þegar mestur þungi
sé í öðru viðhaldi. „Viðhald er nú
þegar undirmannað og verði ekki
aukið við mannskap verður lúpínu-
slætti ekki bætt við án þess að annað
sitji á hakanum... Í ljósi þess að trjá-
gróðri hefur víðast hvar verið plant-
að og lúpínan gefur eftir á 10-20 ár-
um þarf að mati undirritaðs að vera
rík ástæða til að setja fjármuni í
slátt.“
Í bréfi sínu segir deildarstjórinn
þó auðvelt að réttlæta slátt í nátt-
úruvættinu í Laugarási og sömuleið-
is mætti nefna Rauðhólana „sem lík-
lega yrði ekki sátt um að kaffærðust
í lúpínu þótt þeir séu raskað svæði af
mannavöldum.“
Í samþykkt umhverfis- og heil-
brigðisnefndar er deildarstjóranum
falið að móta heildstæða stefnu í
þeim málum sem varða slátt og upp-
rætingu lúpínu. „Mótuð verði stefna
um það hvort og þá hvar slá eigi lúp-
ínur í borgarlandinu og eftir henni
verði farið árlega frá og með vorinu
2003,“ segir í samþykktinni.
Stefna mótuð um lúpínuslátt
Morgunblaðið/ RAX
Lúpínan á höfuðborgarsvæðinu byrjar að hopa eftir tíu ár að því er seg-
ir í umsögn deildarstjóra garðyrkjudeildar borgarinnar.
Reykjavík