Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 16
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hreinar vaxtatekjur Íbúðalánasjóðs námu 1.087 milljónum króna.
HAGNAÐUR Íbúðalánasjóðs á
fyrstu sex mánuðum þesssa árs nam
906 milljónum króna. Á öllu árinu
2001 var 373 milljóna króna tap af
rekstri sjóðsins.
Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði
segir að þróun gengismála hafi mest
að segja um bætta afkomu sjóðsins
en hann er með tæplega 3.000 millj-
ónir króna í skuldum sem bundnar
eru þróun evrunnar hverju sinni. Á
árinu 2001 var sjóðurinn með um 613
milljóna króna gengistap en á fyrri
helmingi þessa árs er gengishagn-
aður upp á 269 milljónir. Þá eru
vaxtagjöld lægra hlutfall af vaxta-
tekjum fyrstu sex mánuði yfirstand-
andi árs en í fyrra, eða um 92,7% af
vaxtatekjum miðað við mitt yfir-
standandi ár en 97,8% í fyrra.
Í tilkynningunni segir að annar
rekstrarkostnaður og aðrar rekstr-
artekjur séu nokkurn veginn á áætl-
un.
Hagnaður Íbúðalána-
sjóðs 906 milljónir
Morgunblaðið/Ásdís
Stefnt er að því að allt rými Smáralindar verði komið í útleigu á næsta ári.
HAGNAÐUR Smáralindar ehf.
fyrstu 6 mánuði þessa árs nam 317
milljónum króna. Þetta er fyrsta 6
mánaða uppgjör félagsins en rekst-
ur þess hófst 10. október 2001.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) nam 261 millj-
ón króna á fyrstu 6 mánuðum þessa
árs. Veltufé frá rekstri á tímabilinu
nam 13 milljónum króna. og 85
milljónum að teknu tilliti til gjald-
færðra vaxta af víkjandi láni frá
móðurfélagi félagsins. Í lok tíma-
bilsins var eiginfjárhlutfallið rúm-
lega 32% að teknu tilliti til víkjandi
láns frá móðurfélaginu. Heildar-
tekjur á tímabilinu námu 537 millj-
ónum, þar af námu leigutekjur 420
milljónum króna. Rekstrargjöld án
afskrifta á tímabilinu voru 276 millj-
ónir króna en afskriftir námu 160
milljónum. Fjármagnsliðir voru já-
kvæðir um 281 milljón.
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands kemur fram að í lok júní voru
3.244 m² óleigðir í verslunarmið-
stöðinni eða um 8,3% af heildar-
leigurými hússins. Veginn meðallíf-
tími leigusamninga félagsins er um
11 ár.
Heildareignir í lok tímabilsins
námu 10.806 milljónum, þar af nam
bókfært verð verslunarmiðstöðvar-
innar Smáralindar 10.285 milljónum
króna.
Eigið fé 30. júní sl. var 2.043
milljónir og víkjandi lán frá móð-
urfélaginu nam 1.427 milljónum
króna. Í lok tímabilsins námu heild-
arskuldir án víkjandi láns frá móð-
urfélaginu 7.336 milljónum, þar af
voru langtímaskuldir 5.858 milljónir
króna. „Í lok maí sl. var gengið frá
samkomulagi við Ístak hf. um loka-
uppgjör á verksamningi um bygg-
ingu verslunarmiðstöðvarinnar.
Kostnaður vegna uppgjörsins hefur
verið færður til eignar sem stofn-
kostnaður í reikningum félagsins
30. júní sl. og á móti sem skamm-
tímaskuldir, en unnið er að því að
ganga frá uppgjöri og fjármögnun
þessa kostnaðar sem verður að
stærstum hluta fjármagnaður af
móðurfélagi Smáralindar ehf. Þessi
staða skýrir að mestu leyti lágt
veltufjárhlutfall félagsins í lok tíma-
bilsins,“ að því er segir í tilkynn-
ingu.
Áætlað að í árslok verði 95–97%
Smáralindar í útleigu
Frá opnun Smáralindar hefur fé-
lagið gert 8 nýja leigusamninga um
leigu á rúmlega 2.100 m². Félagið á
nú í viðræðum við nokkra aðila um
gerð leigusamninga og er áætlað að
í árslok verði búið að leiga um 95–
97% af heildarleigurými verslunar-
miðstöðvarinnar og að hún nái fullri
útleigu á árinu 2003, að því er fram
kemur í tilkynningunni.
Hagnaður
Smáralindar
317 milljónir
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Sjóvá-Almennra
trygginga hf. nam 253 milljónum
króna á fyrri hluta ársins en var
350 milljónir króna á sama tíma í
fyrra og hefur því minnkað um tæp
28%. Rekstur móðurfélagsins er
tekinn fyrir í töflu þar sem ekki var
gert samstæðuuppgjör á síðasta ári
og tölur er varða samstæðuna því
ekki samanburðarhæfar við síðasta
ár. Samstæðan inniheldur einnig
Sameinaða líftryggingarfélagið hf.
en Sjóvá-Almennar hf. jók hlut sinn
í félaginu úr 25% í 60% sl. vor.
Bókfærð iðgjöld skaðatrygginga
félagsins námu 5.204 milljónum
króna en bókfærð iðgjöld líftrygg-
inga 544 milljónum króna. Bókfærð
tjón skaðatrygginga voru 2.758
milljónir króna en bókfærðar líf-
tryggingabætur 141 milljón króna.
Hreinn rekstrarkostnaður vegna
skaðatryggingarekstrar var 590
milljónir króna og vegna líftrygg-
ingarekstrar 188 milljónir króna.
Fjárfestingartekjur yfirfærðar á
vátryggingarekstur voru 315 millj-
ónir króna og að teknu tilliti til
þeirra var 123 milljóna króna tap af
fjármálarekstri á fyrri hluta ársins.
Fjárfestingartekjur hafa því
lækkað verulega miðað við sama
tímabil fyrra árs og veldur því eink-
um styrking krónunnar og minni
verðbólga, segir í tilkynningu frá
félaginu. Langtímafjárfesting fé-
lagsins í dótturfélögum leiðir einnig
til tímabundinnar lækkunar á
vaxtaberandi eignum.
Viðunandi afkoma
Í heildina litið er afkoman við-
unandi að mati stjórnenda. Áhrif
dótturfélagsins, Samlífs, á afkom-
una eru neikvæð um 67 milljónir
króna á tímabilinu. Hagnaður af vá-
tryggingarekstri eykst á milli ára
en brýnt er að þessi þáttur starf-
seminnar sé rekinn með góðum
hagnaði, segir í tilkynningu. Fram
kemur að afkoma eignatrygginga
batnar nokkuð á fyrstu sex mán-
uðunum og að á sama tíma valdi
það nokkrum áhyggjum hve slæm
afkoma er af almennum ábyrgðar-
tryggingum. Á síðasta aðalfundi fé-
lagsins kom fram að áætlanir gerðu
ráð fyrir að afkoma þess á árinu
2002 yrði áþekk eða nokkru betri
en á síðastliðnu ári. Ekkert hefur
komið fram sem gefur tilefni til
breytinga á þeim áætlunum gagn-
vart móðurfélagi og samstæðu.
Verðleiðréttingum er ekki beitt í
uppgjörinu nú eins og gert var í
fyrra. Í árshlutareikningnum kem-
ur fram að 210 milljónir voru færð-
ar sem tekjur vegna verðlagsbreyt-
inga á fyrri hluta síðasta árs. Hefði
þeim verið sleppt hefði hagnaður
síðasta árs numið 140 milljónum
króna.
!
" !
#$
!
%
& '&
()
&
*+*,
-./
0,/1*
01-2
023+
/
24*
232,3
2/21+
4*.3
2/*/
3--
23536
23536
!
!
"
!
"
"
!
#
$ % $ % $ %
#
#
Minni hagnað-
ur hjá Sjóvá-
Almennum
LÍF hf., áður Lyfjaverslun Íslands
hf., hagnaðist um 177 milljónir
króna á fyrstu mánuðum þessa árs.
Á sama tíma í fyrra var tap félags-
ins 32 milljónir. Tekjur tímabilsins
á þessu ári námu um 3,3 milljörð-
um króna, sem er um 6% aukning
frá sama tímabili árið 2001. Í til-
kynningu frá félaginu segir að
reiknað sé með að tekjur ársins í
heild verði um 6,8 milljarðar og
tekjuaukningin um 9% frá fyrra
ári.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsgjöld (EBITDA) nam 133
milljónum króna á tímabilinu. Af-
skriftir félagsins aukast frá sama
tímabili árið 2001 úr 52 milljónum
króna í 92 milljónir vegna aukinna
afskrifta á viðskiptavild er stafar af
kaupum félagsins á A. Karlssyni
hf. og Thorarensen-Lyfjum hf.
Fjármagnsliðir voru jákvæðir um
171 milljón og segir í tilkynning-
unni að það stafi af styrkingu ís-
lensku krónunnar.
Eigið fé félagsins 30. júní 2002
nam 1.307 milljónum króna en var í
ársbyrjun 1.181 milljón. Eiginfjár-
hlutfall var 27,3% í lok tímabilsins
en 24,7% í upphafi árs. Veltufé frá
rekstri nam 216 milljónum.
Verðleiðréttum reikningsskilum
var hætt frá og með ársbyrjun
2002. Ef þeim hefði verið beitt
hefði hagnaður félagsins á fyrri
helmingi þessa árs orðið 12 millj-
ónum króna hærri og eigið fé 27
milljónum króna hærra, að því er
segir í tilkynningu félagsins.
Líf hf. hagnast
um 177 milljónir
Krónan veikt-
ist um 0,5%
KRÓNAN veiktist um 0,5% í við-
skiptum á millibankamarkaði í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
stýringu Kaupþings námu viðskipti
gærdagsins um fjórum og hálfum
milljarði króna.
Krónan veiktist strax í upphafi
viðskipta í gær og varð veikingin
mest 0,92%. Gengisvísitala krónunn-
ar endaði í 128,60 stigum í gær.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Afkoma
Skríns
batnar
REKSTUR tölvufyrirtækisins
Skríns á Akureyri skilaði 500 þúsund
króna hagnaði á fyrri hluta ársins. Á
sama tímabili í fyrra var tap félags-
ins um 16 milljónir króna.
Rekstrartekjur Skríns námu 41
milljón króna á fyrstu sex mánðum
ársins og veltufé frá rekstri nam 4
milljónum króna. Eigið fé félagsins í
júnílok var 23 milljónir króna, eig-
infjárhlutfall var 59% og veltufjár-
hlutfall var 0,91.
Fyrirtækið er í eigu Skýrr, Fram-
takssjóðs Landsbankans, Útgerðar-
félags Akureyringa hf., Elements hf.
og fjárfestingarfélagsins Tækifæris.
Íslensk
verðbréf
með hagnað
HAGNAÐUR Íslenskra verðbréfa
hf. á fyrstu 6 mánuðum ársins 2002
nam 4 milljónum króna eftir skatta
en á sama tímabili árið 2001 var 87
milljóna króna tap. Hreinar rekstr-
artekjur félagsins námu 71.812.231
og rekstrargjöld 67.188.124.
Eignir félagsins í lok tímabilsins
voru 1.165 milljónir króna en höfðu
verið 1.127 milljónir í lok tímabilsins
árið áður. Eigið fé félagsins í lok júní
2002 nam 117 milljónum króna. Eig-
infjárhlutfall félagsins er í lok tíma-
bilsins 31,6%.
2+35-
2+454
22+5.
2/+
24+
2,+
2++
3+
/+
4+
78 99 9 8 8 7 : ; < 9 88
VÆNTINGAVÍSITALA Gallups
hækkaði um 4,1% á milli mánaðanna
júlí og ágúst og mælist 108,7 stig í
ágúst eftir að hafa lækkað næstu tvo
mánuði þar á undan. Vísitalan er nú
tæpum 27 stigum hærri en á sama
tíma í fyrra. Frá áramótum hefur
vísitalan hækkað um rúm 34 stig.
Væntingavísitala Gallups mælir
tiltrú og væntingar fólks til efna-
hagslífsins, atvinnuástandsins og
heildartekna heimilisins. Vísitalan
getur tekið gildi á bilinu 0 til 200. Ef
jafn margir eru jákvæðir og nei-
kvæðir hefur vísitalan gildið 100. Séu
fleiri jákvæðir er vísitalan yfir 100
stigum en undir 100 stigum séu fleiri
neikvæðir en jákvæðir.
Væntinga-
vísitala Gall-
ups hækkar