Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.08.2002, Qupperneq 18
ERLENT 18 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ DICK Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, rétt- lætti í fyrradag með kröftugri hætti en áður þá stefnu Bandaríkjastjórnar, að rétt sé koma Saddam Hussein, forseta Íraks, frá með beinum hernaðarafskiptum. Er litið á ræðuna sem svar við þeirri gagnrýni, sem komið hefur fram í Bandaríkjunum að undanförnu á fyrirætlanir um árás á Írak. Cheney sagði á fundi með uppgjafahermönn- um, að hættulegast af öllu væri að hafast ekkert að og bíða þess, að Saddam Hussein kæmist yfir kjarnavopn. Sagði hann, að Bandaríkjastjórn myndi áfram hafa náið samráð við bandamenn sína en lagði áherslu á, að hún liti á það sem sið- ferðilega skyldu sína að bægja burt írösku hætt- unni og það heldur fyrr en seinna. „Við getum ekki leyft okkur að líta undan og láta sem ekkert sé. Við getum ekki bara vonað það besta og látið öðrum eftir að leysa vand- ann,“ sagði Cheney. Áhrifamiklir gagnrýnendur Undanfarnar vikur hafa margir, jafnt repú- blikanar sem demókratar, gagnrýnt þá stefnu stjórnarinnar að standa jafnvel ein að hernaðar- aðgerðum gegn Írak. Um síðustu helgi bættist James Baker, fyrrverandi utanríkisráðherra í stjórn George Bush eldra, í gagnrýnendahópinn en hann sagði, að þótt það væri líklega auðvelt að sigra Íraka á vígvellinum, væri það of áhættusamt fyrir Bandaríkjamenn að ráðast í það einir. „Ef við komum nýrri stjórn á laggirnar í Írak, verðum við að hafa þar herlið. Kostnaðurinn við það, stjórnmálalegur, efnahagslegur og jafnvel í mannslífum, gæti orðið mjög hár,“ sagði Baker í grein, sem birtist í New York Times. Aðrir þungavigtarmenn í Repúblikanaflokkn- um, Brent Scowcroft, fyrrverandi öryggisráð- gjafi, Lawrence Eagleburger, fyrrverandi utan- ríkisráðherra, öldungadeildarþingmaðurinn Chuck Hagel og fulltrúadeildarþingmaðurinn Dick Armey, hafa tekið í sama streng og þeir segjast óttast, að árás á Írak myndi verða til að kynda undir hatri á Bandaríkjamönnum í Mið- austurlöndum. Cheney svaraði þessari gagnrýni í ræðu sinni og sagði, að röksemdirnar væru rangar. Ef Saddam Hussein yrði leyft að koma sér upp kjarnavopnum, yrði síðar erfitt að mynda breið- fylkingu gegn honum. Þá gaf hann lítið fyrir ótta manna við viðbrögðin í Miðausturlöndum. Sagði hann, að yrði Saddam velt úr sessi, myndi íraskur almenningur fagna því eins og íbúar í Kabúl hefðu fagnað bandarísku hermönnunum. „Öfgamennirnir í þessum heimshluta yrðu að endurskoða áætlanir sínar um heilagt stríð, hóf- samir menn myndu fagna og líkur á lausn í deil- um Ísraela og Palestínumanna myndu aukast,“ sagði Cheney. Ræða Cheneys kemur í kjölfar frétta um, að lögfræðingur Hvíta hússins telji George W. Bush forseta ekki þurfa samþykki þingsins fyrir árás á Írak. Talsmenn forsetans leggja þó áherslu á, að hann muni hafa þingið með í ráð- um. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, benti hins vegar á, að Cheney hefði ræðu sinni ekki verið að „réttlæta árás, heldur þá kenningu, að árás sé réttlætanleg“. Á því væri mikill munur sagði hann. „Skynsamlegt“ Viðbrögð við ræðu Cheneys hafa ekki verið mikil enn en Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær, að það væri „skynsam- legt“ af Bandaríkjastjórn að halda opnum þeim möguleika að ráðast á Írak. Sagði hann, að breska stjórnin útilokaði ekki slíka árás og það ættu aðrir ekki að gera. Utanríkisráðherra Qatars sagði í fyrradag, að stjórn sín væri andvíg árás á Írak og Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sagði í gær, að öll arabaríkin væru á móti hugsanlegum hern- aðaraðgerðum. Varaforseti Bandaríkjanna hafnar gagnrýni á stefnuna í Íraksmálum Segir aðgerðaleysið hættulegast af öllu AP Dick Cheney er hann flutti ræðu sína á fundi uppgjafahermanna í Washington í fyrradag. Dick Cheney segir ekki unnt að bíða eftir að Saddam Hussein komist yfir kjarnavopn Washington. AFP. LIÐSMENN al-Qaeda hryðjuverka- samtakanna eru enn að störfum í Bandaríkjunum og leggja nú á ráðin um frekari hryðjuverkaárásir þar í landi. Þetta er mat Tom Ridge, yf- irmanns heimavarna í Bandaríkjun- um, en hann telur að augljósir veik- leikar séu enn í öryggiskerfi landsins, sem hryðjuverkahópar geti nýtt sér. Ridge, sem gegnir nú embætti sem komið var á fót eftir árásirnar á Bandaríkin 11. september sl., sagðist í samtali við BBC t.a.m. hafa áhyggj- ur af efnavopnaárásum en kvaðst engu að síður telja að Bandaríkin væru mun öruggari staður nú en fyrir árásirnar í fyrra. Tók hann dæmi af því að búið væri að efla öryggi í flugi til muna. Gætu hafa smyglað efnavopnum til Bandaríkjanna Ridge benti á að lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum hefðu komið í veg fyrir nokkrar fyrirhugaðar árásir, en vildi ekki greina frá hvar slíkar árásir hefðu átt að eiga sér stað. Hann við- urkenndi hins vegar að fleiri hryðju- verkaárásir væru óumflýjanlegar. „Í ljósi þess að 19 manns héldu inn í landið til þess að skipuleggja árásirn- ar 11. september mörgum mánuðum fyrr, ef ekki árum, er fífldirfska að ætla að ekki séu fleiri hryðjuverka- menn sem bíði þess að láta til skarar skríða,“ sagði hann. Ridge taldi það ólíklegt að hryðju- verkamenn myndu beina sjónum sín- um aftur að flugvöllum þar sem ákveðið hefur verið að skanna allan farangur frá og með næstu áramót- um. Hins vegar sagðist hann telja hugsanlegt að hryðjuverkamenn gætu smyglað sýkla- eða efnavopnum til Bandaríkjanna um hafnir landsins. Ridge reikn- ar með frek- ari árásum Segir al-Qaeda enn að störfum í Bandaríkjunum London. AFP. DÓMARI í Detroit í Bandaríkj- unum sýknaði á mánudaginn mann sem hafði verið fundinn sekur um að nauðga og myrða táningsstúlku á níunda áratugn- um. Hafði maðurinn játað á sig glæpinn, en athugun á erfðaefni (DNA) sýndi fram á að hann gæti ekki verið morðinginn. Þegar maðurinn, Eddie Joe Lloyd, heyrði sýknuúrskurðinn eftir að hafa setið 17 ár í fangelsi, teygði hann fram hendurnar og sagði innilega: „Þakka þér fyrir.“ Nokkru seinna sagði hann: „Mig langar til að hlaupa fimmtíu- eða hundraðmetrana með barna- börnunum mínum.“ Lloyd var á geðsjúkrahúsi og á lyfjum þegar lögregla sagði hann hafa játað á sig að hafa nauðgað og myrt 16 ára stúlku, Michelle Jackson, 1984. DNA-próf, sem gert var nýver- ið, leiddi í ljós sakleysi Lloyds og bæði lögregla og saksóknari í Detroit fóru þess á leit við dóm- ara, Leonard Townsend, að Lloyd yrði leystur úr fangelsi. Hefur málið rennt stoðum undir mál- flutning þeirra sem vilja að að- ferðir lögreglunnar í Detroit verði athugaðar. Það var Townsend sem á sínum tíma dæmdi Lloyd í lífstíðarfang- elsi fyrir morðið á Jackson. Um leið og Townsend ógilti dóminn yfir Lloyd á mánudaginn skellti hann skuldinni að nokkru leyti á Lloyd sjálfan fyrir að hann skyldi ranglega sakfelldur. „Jafnvel þótt hann kunni að hafa logið til um gjörðir sínar er að nokkru leyti við hann sjálfan að sakast,“ sagði Townsend. „Ég heyrði þennan herramann aldrei segja að hann hefði ekki framið verknaðinn.“ Lloyd er 110. maðurinn í Bandaríkjunum sem er sýknaður á grundvelli DNA-prófs, sam- kvæmt upplýsingum samtakanna Sakleysi (Innocence Project), sem beita sér fyrir því að erfðapróf séu notuð til að fá fram sönn- unargögn er komið geti að gagni fyrir þá sem sitja saklausir á bak við lás og slá. AP Eddie Joe Lloyd faðmar bróður sinn á fréttamannafundi í Detroit í Bandaríkjunum eftir að Lloyd var látinn laus úr fangelsi. Saklaus maður sat sautján ár í fangelsi Sýknaður á grund- velli DNA-prófs Detroit. AP. FORSETI Rússlands, Vladímír Pútín, vill að hægt verði að ferðast á milli landsins og aðild- arríkja Evrópusambandsins (ESB) án þess að sýna vegabréf. Telur hann að þannig verði hægt að leysa deiluna um sam- göngur við Kaliningrad-héraðið rússneska sem er við Eystrasalt en á milli þess og hins eiginlega Rússlands er litháskt og pólskt land. Hugmyndir Pútíns komu fram í bréfi sem hann sendi leið- togum ESB-ríkjanna um Kalin- ingrad-málið og þar leggur hann áherslu á mikilvægi málsins fyr- ir framtíðarsamskipti Rússa við ESB. „Ef hægt er að ná samn- ingum fljótt um þetta mál myndi það ýta undir aukin samskipti Rússlands og ESB og lyfta þeim á nýtt stig,“ sagði Pútín. Samningar nauðsynlegir vegna stækkunar ESB Rússar tóku héraðið af Þjóð- verjum í lok seinni heimsstyrj- aldar. Gert er ráð fyrir að Lithá- en og Pólland gangi í ESB á næstu árum og því ljóst að semja þarf um aðgang Rússa að héraðinu. Embættismenn ESB hafa lengi haft áhyggjur af ólög- legum innflutningi fólks frá ríkj- um Sovétríkjanna gömlu, smygli á fíkniefnum og umsvif- um glæpaflokka í austanverðri álfunni. Er því gengið hart eftir því að sendiráð aðildarríkjanna fylgi settum reglum um vega- bréfsáritun til Rússa sem vilja ferðast til sambandsríkjanna. Rússland – ESB Afnám vegabréfa- skyldu? Moskvu. AP. HELMUT Schmidt, fyrrverandi kanslari Vestur-Þýskalands, fékk hjartaáfall um sl. helgi og var gerð á honum hjáveitu- aðgerð á sjúkra- húsi í Kiel. Er líð- an hans góð eftir atvikum, að sögn talsmanns stofn- unarinnar. Schmidt er 83 ára gamall, hann var leiðtogi flokks jafnaðarmanna, SPD og kanslari 1976–1982. Í valdatíð hans varð Vestur-Þýskaland eitt af mestu efna- hagsveldum heims og stefn SPD þokaðist nær miðju. Eftir 1982 hefur Schmidt búið í heimaborg sinni, Hamborg, og ritað mikið um alþjóð- leg efnahagsmál, einkum fyrir viku- ritið Die Zeit. Schmidt fékk hjartaáfall Kiel. AFP. Helmut Schmidt ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.