Morgunblaðið - 28.08.2002, Page 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 37
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Hylling frá Kimbastöðum er í mikilli uppsveiflu þessa dagana og greini-
legt að þarna er Sigurður kominn með kandídat til góðra afreka.
Daníel Ingi Smárason og Tyson frá Búlandi gera það ekki endasleppt og
nú sigruðu þeir í fjórgangi og íslenskri tvíkeppni.
Eyrarbakka en Hulda Geirsdóttir
sigraði í fjórgangi á Mjölni frá Hofi.
Fullt hús hjá Karenu Líndal
Karen Líndal Marteinsdóttir
sýndi og sannaði vel á þessu móti að
velgengni hennar er langt í frá bund-
inn snillingnum Manna frá Vestri-
Leirárgörðum sem hún hefur unnið
góð afrek á allt frá því hún keppti í
barnaflokki. Gerði hún sér lítið fyrir
og sigraði í öllum greinum ung-
mennaflokks og eftir einkunnum að
dæma var þar um að ræða nokkuð
örugga sigra á öllum vígstöðvum.
Í unglingaflokki komu margir við
sögu í verðlaunasætum sem er út af
fyrir sig ánægjulegt og sýnir vel að
þar eru margir mjög frambærilegir
keppendur sem geta flestir hverjir
blandað sér í baráttuna um toppsæt-
in.
Oddur flottur hjá Söru
En í barnaflokki var það Sara Sig-
urbjörnsdóttir sem vann glæsta
sigra í bæði tölti og fjórgangi á hin-
um margreynda Oddi frá Blönduósi
en Sara hafði hestaskipti við föður
sinn og nú er það spurning hvort sú
stutta skilar Oddi aftur svo vel sem
hann fór hjá henni.
Eins og áður sagði tókst Suður-
landsmótið með miklum ágætum að
þessu sinni og var mótsstjórinn
Steinunn Gunnarsdóttir hin kátasta
að móti loknu en sagði þó eitt
skyggja örlítið á sem væru miklar af-
skráningar sem getur valdið erfið-
leikum við framkvæmd mótsins.
250 metra skeið
1. Sigurður Sigurðars., Herði, á Fölva frá Hafsteinsstöðum, 23,40 sek.
2. Logi Laxdal, Andvara, á Fiðringi frá Stóru-Ásgeirsá, 23,90 sek.
3. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Óðni frá Búðardal, 24,00 sek.
4. 24,50 sek.
5. Daníel I. Smárason, Sörla, á Skruggu, 25,00 sek.
100 metra flugskeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Óðni frá Búðardal, 7,84 sek.
2. Logi Laxdal, Andvara, á Stör frá Saltvík, 8,02 sek.
3. Jóhann Valdimarsson, Gusti, á Óðni frá Efstadal, 8,40 sek.
4. Sigurður Sigurðars., Herði, á Fölva frá Hafsteinsstöðum, 8,40 sek.
5. Sigurjón Ö. Björnss., Snæfellingi, á Glámi frá Ingólfshvoli, 8,47 sek.
2. flokkur
Tölt
1. María Þórarinsdóttir, Loga, á Stubbi frá Eyrarbakka, 6,57/7,08
2. Róbert G. Einarsson, Geysi, á Guðna frá Heiðarbrún, 6,10/6,46
3. Ásta B. Benediktsdóttir, Herði, á Snót frá Akureyri, 6,03/6,37
4. Hulda G. Geirsdóttir, Gusti, á Mjölni frá Hofi, 5,70/6,24
5. Diljá Óladóttir, Herði, á Klökk frá Kiðafelli, 5,80/6,13
Fjórgangur
1. Hulda G. Geirsdóttir, Gusti, á Mjölni frá Hofi, 5,33/6,12
2. Róbert G. Einarsson, Geysi, á Guðna frá Heiðarbrún, 5,57/6,03
3. María Þórarinsdóttir, Loga, á Hegra frá Fellskoti, 5,83/5,85
4. Hannes Sigurjónsson, á Tangó frá Hvestu, 5,53/5,70
5. Valgeir Þ. Sigurðsson, Sörla, á Fjólu frá Hrólfsstöðum, 5,33/3,51
Ungmenni/tölt
1. Karen L. Marteinsdóttir, Dreyra, á Tindi frá Vallanesi, 6,77/7,16
2. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Kópi frá Kílhrauni, 6,47/6,95
3. Berglind R. Guðmundsd., Gusti, á Seiði frá Sigmundarstöðum, 6,57/
6,93
4. Kristján Magnússon, Herði, á Hlökk frá Meiri-Tungu, 6,60/6,89
5. Sylvía Sigurbjörnsd., Fáki, á Hyllingu frá Vakurstöðum, 6,60/6,75
Fjórgangur
1. Karen L. Marteinsdóttir, Dreyra, á Tindi frá Vallanesi,
2. Kristján Magnússon, Herði, á Hlökk frá Meiri-Tungu, 6,43/6,73
3. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Kópi frá Kílhrauni, 6,33/6,67
4. Þórdís E. Gunnarsdóttir, Fáki, á Kópi frá Voðmúlastöðum, 6,13/6,47
5. Sylvía Sigurbjörnsd., Fáki, á Sporði frá Höskuldsstöðum, 6,17/6,46
Fimmgangur
1. Karen L. Marteinsdóttir, Dreyra, á Glaðni frá Laxárdal, 6,47/6,76
2. Berglind R. Guðmundsdóttir, Gusti, á Lind, 5,90/6,06
3. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Drift frá Ytra-Dalsgerði, 5,50/5,91
4. Kristján Magnússon, Herði, á Skolla frá Hindisvík, 5,40/5,57
5. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Hyl, 6,27/0,00
Gæðingaskeið
1. Karen L. Marteinsdóttir, Dreyra, á Glaðni frá Laxárdal, 8,00
2. Kristján Magnússon, Herði, á Eldi frá Vallanesi, 7,55
3. Berglind R. Guðmundsdóttir, Gusti, á Óttu frá Svignaskarði, 7,46
4. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Hyl, 6,21
5. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á Magna frá Búlandi, 5,58
Unglingar
Tölt
1. Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Oliver frá Austurkoti, 6,80/7,36
2. Anna Bianchi, Fáki, á Natan frá Hnausum, 6,57/7,07
3. Hermann R. Unnarson, Mána, á Braga frá Þúfu, 6,37/6,70
4. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Byl frá Kleifum, 6,20/6,58
5. Halla M. Þórðardóttir, Andvara, á Regínu frá Flugumýri, 6,13/6,50
6. Linda R. Pétursdóttir, Herði, á Háfeta frá Þingsnesi, 6,53/6,45
Fjórgangur
1. Anna F. Bianchi, Fáki, á Natan frá Hnausum, 6,23/6,63
2. Linda R. Pétursdóttir, Herði, á Val frá Ólafsvík, 6,30/6,53
3. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Byl frá Kleifum, 6,23/6,33
4. Sandra L. Þórðardóttir, Sörla, á Hróki frá Enni, 6,00/6,32
5. Elín H. Sigurðardóttir, Geysi, á Sæla frá Holtsmúla, 6,20/6,25
6. Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Oliver frá Austurkoti, 6,43/6,10
Fimmgangur
1. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson, Gusti, á Elju frá Reykjavík, 5,03/5,88
2. Ragnhildur Haraldsdóttir, Herði, á Nagla frá Árbæ, 4,83/5,85
3. Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Njálu frá Arnarhóli, 5,93/5,74
4. Valdimar Bergstað, Fáki, á Draupni frá Sauðárkróki, 5,37/5,50
5. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Heklu frá Gunnarsholti, 4,90/4,44
Börn
Tölt
1. Sara Sigurbjörnsdottir, Fáki, á Oddi frá Blönduósi, 7,03/7,78
2. Rakel N. Kristinsdóttir, Geysi, á Vígari frá Skarði, 6,40/6,51
3. Valdimar Bergstað, Fáki, á Sólon frá Sauðárkróki, 6,47/6,51
4. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, á Gyrði frá Skarði, 6,20/6,43
5. Viktoría Sigurðard., Mána, á Skafli frá Norður-Hvammi, 5,97/6,36
6. Jóhanna Jónsdóttir, Herði, á Darra frá Akureyri, 6,63/3,43
Fjórgangur
1. Sara Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Oddi frá Blönduósi, 6,63/7,13
2. Valdimar Bergstað, Fáki, á Hauki frá Akurgerði, 6,17/6,60
3. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, á Þráni frá Sigtúni, 6,20/6,48
4. Rakel N. Kristinsdóttir, Geysi, á Vígari frá Skarði, 6,07/6,40
5. Viktoría Sigurðardóttir, Mána, á Svarti frá Síðu, 6,13/6,30
6. Inga B. Gísladóttir, Geysi, á Úlfi frá Hjaltastöðum, 5,83/6,17
VEKRINGURINN kunni Kormák-
ur frá Kjarnholtum I hefur nú verið
seldur til Danmerkur ásamt hryss-
unni Neyslu frá Gili sem einnig hef-
ur gert það gott á skeiðbrautum
landsins. Skeiðjöfurinn mikli Logi
Laxdal er seljandi Kormáks en Gísli
Hafliði Guðmundsson, Georg Krist-
insson og Sigurjón Gylfason eru
seljendur Neyslu. Kaupandi beggja
hrossanna er Stefan Langvad sem
er kunnur í Íslandshestamennsk-
unni í Danmörku og meðal annars
formaður Dansk Islandshesteføren-
ing.
Kormákur sem er fæddur 1995 er
undan Svarti frá Unalæk og Gló-
kollu frá Kjarnholtum. Hann á best-
an tíma í 250 metra skeiði 22,20 sek.
og 7,70 sek. í 100 metra flugskeiði
og hefur verið mjög sigursæll á
þessu ári og vann meðal annars í
250 metrunum á nýafstöðnu lands-
móti.. Neysla sem fædd er 1992 er
undan Spegli frá Tröð og Nótt frá
Gili. Hún á bestan tíma 13,68 sek. í
150 metra skeiði en Logi Laxdal
hefur einnig verið með hana und-
anfarin ár.
Orðrómur um að Þormóður
rammi frá Svaðastöðum, sem er
methafi í 150 metrunum og í eigu
Loga og Haraldar Briem, sé á leið
úr landi er ekki réttur að sögn
Loga.
Íhugar kaup á Núma
Þá er þess að geta að Sigurbjörn
Bárðarson er að hugleiða að kaupa
gæðatöltarann Núma frá Miðsitju
en hann keppti á honum á Suður-
landsmótinu um síðustu helgi eins
og fram kemur hér á hestasíðunni.
Sagði Sigurbjörn málið á frumstigi
en ef af verður gæti hann orðið
kandídat hans fyrir HM-úrtöku á
næsta ári. Honum hafi líkað vel við
hestinn á Suðurlandsmótinu. Sig-
urður V. Ragnarsson eigandi Núma
staðfesti að hann væri til sölu og vel
gæti svo farið að þeir Sigurbjörn
gerðu með sér viðskipti.
Kormákur
og Neysla
á leið til
Danmerkur
BISKUP Íslands, herra Karl Sig-
urbjörnsson, heimsækir Laufá-
sprestakall og messar þar í kirkj-
unum nk. sunnudag, 1. september.
Guðsþjónusturnar verða sem hér
segir: Laufáskirkja kl. 10.30. Greni-
víkurkirkja kl. 14. Svalbarðskirkja
kl. 16.30.
Fólk er hvatt til að fjölmenna í
messurnar og taka með sér börnin,
því biskup talar sérstaklega til
barnanna og færir þeim gjöf.
Sóknarprestur.
Åke Karlsson
gestur í Veginum
DAGANA 30. og 31. ágúst nk. verð-
ur Åke Karlson gestur í Veginum,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Åke veitir söfnuði í Gautaborg
forstöðu en er jafnframt kennari í
biblíuskólanum hjá Livets Ord í Sví-
þjóð. Åke er líflegur og skemmti-
legur kennari, þetta er hans fimmta
heimsókn til Íslands.
Dagskráin er eftirfarandi: Föstu-
dagur samkoma kl. 20:00. Laug-
ardagur kennsla frá kl. 10:00 til
16:00 og samkoma kl. 20:00. Dag-
skráin er öllum opin og aðgangur
ókeypis.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Svalbarðskirkja.
Biskup
heimsækir
Laufásprestakall
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir
taka við fyrirbænum í síma 520 9700.
Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr. Örn
Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Hádegistíð kl. 12.
Tíðagjörð þar sem textar Biblíunnar eru
sungnir og íhugaðir í bæn og lofgjörð til
Drottins. Helstu þættir þessa helgi-
halds kynntir og æfðir í upphafi stund-
arinnar, sem tekur u.þ.b. 20 mínútur.
Verið hjartanlega velkomin.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir
hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyr-
irbænaefnum í kirkjunni í síma 567-
0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í
sumar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
kl. 10–12. Við hittumst og spjöllum.
Heitt á könnunni og djús fyrir börnin.
Allir foreldrar velkomnir, með eða án
barnanna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 12, íhugun, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldra-
morgnar í dag kl. 10–12.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
bænahópar í heimahúsum. Upplýsing-
ar í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn. Samkoma í kvöld
kl. 20.30. „Ég þekki þrengingu þína“ er
yfirskrift samkomunnar. Lárus Hall-
dórsson talar. Heitt á könnunni eftir
samkomuna. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Safnaðarstarf
Brúðargjafir
Mörkinni 3, s: 588 0640
Opið mánudag-föstudags 11-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Salsaskálar frá
Brúðargjafalistar
Mörkinni 3, s: 588 0640
Opið mánudag-föstudags 11-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Hnífapör og matarstell frá
KIRKJUSTARF
MENNINGARMÁL