Morgunblaðið - 28.08.2002, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HLJÓMSVEITIN múm hefur und-
anfarna þrjá mánuði verið á tón-
leikaferðalagi um heiminn til að
fygja eftir nýjustu plötu sinni, Loks-
ins erum við engin. Í vikulok ætlar
sveitin svo að koma hingað upp á Ís-
landsstrendur til að leika fyrir
landa sína í Þjóðleikhúsinu. Morg-
unblaðið sló á þráðinn austur til
Japans þar sem Örvar Þóreyjarson
Smárason er við upptökur ásamt
Gunnari Tynes og Kristínu og Gyðu
Valtýsdætrum, en þau skipa einmitt
hljómsveitina múm.
„Já við erum búin að vera á tón-
leikaferðalagi síðan um miðjan
maí,“ segir Örvar. „Það er búið að
ganga alveg frábærlega. Reyndar
svolítið langt, en alveg ótrúlega
gaman.“
Fjórmenningarnir í múm hafa
leikið víðast hvar í Evrópu og
Bandaríkjunum og eru nú sem áður
sagði staddir í Japan. Örvar segist
ekki hafa nákvæma tölu yfir þann
fjölda tónleika sem þau hafa haldið
á ferðalaginu.
„Ætli þetta séu ekki í kringum 20
staðir í Evrópu og eitthvað svipað í
Bandaríkjunum. Svo erum við búin
að halda tvenna tónleika hér í Jap-
an,“ segir Örvar. „Við erum núna að
hljóðblanda lag með japanskri söng-
konu. Þetta er mjög hæfileikarík
söngkona sem vantaði hjálp við eitt
lag og við vildum vera lengur hér í
Japan og vinna.“
Hann segir þá staði sem sveitin
hafi verið að spila á eins misjafna og
þeir eru margir. „Við höfum verið
að spila í allt frá litlum klúbbum upp
í nokkra kastala, meðal annars í
Sviss og á Ítalíu,“ segir Örvar.
„Þetta er búið að vera mjög fjöl-
breytt, við erum búin að vera að
spila jafnt úti sem inni og einnig á
stórum hátíðum.“
Örvar segir þau mest hafa verið
að troða ein upp á tónleikum en þó
hafi á stundum hinar og þessar
hljómsveitir og tónlistarmenn verið
fengin til að hita upp fyrir þau.
„Við erum búin að vera að spila
með fullt af frábærum hljómsveitum
og tónlistarmönnum,“ segir Örvar.
Selja alveg nóg
Örvar segir plötu þeirra víðast
hvar hafa fengið góða dóma og seg-
ir þau vera búin að selja „alveg nóg“
af plötunni án þess þó að hafa ná-
kvæmar sölutölur.
Þegar talið berst að fyrirhug-
uðum tónleikum hér á landi segir
Örvar þau „loksins“ vera á leið heim
að spila.
„Við erum ekki búin að spila
heima svo rosalega lengi. Við spil-
uðum nokkur lög í Fríkirkjunni í
maí en það teljast varla tónleikar,“
segir hann og hlakkar auðheyr-
anlega mikið til heimkomunnar.
„Ætli við spilum ekki allt sem við
erum búin að vera að spila á tón-
leikaferðalaginu okkar,“ segir Örv-
ar aðspurður um dagskrá tón-
leikanna. „Það eru í rauninni lög af
báðum plötunum okkar, alveg frá
byrjun. Ætli við spilum þau ekki
bara öll þó svo að íslenskir áhorf-
endur hafi kannski heyrt margt áð-
ur. Lögin hafa líka breyst svolítið.“
Múm verður þó ekki kvartett á
tónleikunum í Þjóðleikhúsinu held-
ur hafa þau sér til fulltingis slag-
verksleikarana Samuli Kasminen
frá Finnlandi og Adam Pierce frá
Bandaríkjunum.
„Þeir eru báðir frábærir tromm-
arar og ég hlakka mikið til að leyfa
Íslendingum að heyra það sem við
höfum verið að gera með þeim,“
segir Örvar.
Það er Smekkleysa í samvinnu við
Rás 2 sem stendur að tónleikunum
sem fram fara næstkomandi laug-
ardag, 31. ágúst. Forsala að-
göngumiða er þegar hafin í versl-
uninni 12 tónum á Skólavörðu-
stígnum.
Loksins erum við á Íslandi
Múm leikur af fingrum fram í Þjóðleikhúsinu um helgina.
Múm leikur í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn
birta@mbl.is
PRIMAL Scream er brothætt fyr-
irbæri. Á það til að koma með snilld
en þess á milli er hún úti að aka. För-
um aðeins yfir þetta: Sonic Flower
Groove (’87): Ágætis nýbylgjupopp.
Engin snilld svo-
sem. Primal
Scream (’89): Mis-
tækt daður við
þungarokk.
Screamadelica
(’91): Meistara-
stykki sem markaði tímamót í tónlist-
arsögunni. Give Out But Don’t Give
Up (’94): Afar mistækt daður við
rokk. Vanishing Point (’97): Aftur
komnir á sporið. Fín plata.
XTRMNTR (’00): Stórkostlega kraft-
mikil plata sem hreinlega gneistar af.
Svona hefur það nú verið. Upp og
ofan. Og í þetta sinnið er Primal
Scream í lægð. Evil Heat er eins og
Vanishing Point, deilt með tveimur.
Flest lögin eru einhverskonar rissur
að lögum; tölvutaktar og gítarvæl í
belg og biðu og allt frekar óunnið að
því er virðist. Frekar en plata, þá
hljómar þetta eins og þynnkulegur
göngutúr með Bobby Gillespie, hvar
hann gasprar um áhrifavaldana. „Já,
já, Bobby. Þú ert svaka svalur. Þú
hlustar á Kraftwerk og Neu! og meira
að segja tæknótónlist líka!“
Það glittir vissulega í prýðilegar
hugmyndir, einhvers staðar þarna
inni á milli. En reiðileysi þessarar
furðulega metnaðarlausu plötu slær
algerlega á viljann til að bera sig eitt-
hvað eftir þeim.
Tónlist
Leti
Primal Scream
Evil Heat
Sony/Columbia
Rislítil skífa frá þessum
mistæku töffurum.
Arnar Eggert Thoroddsen
ÞAU mis-
tök urðu í
blaði gær-
dagsins að
stjörnugjöf
sem fylgja átti umsögn um
nýjustu plötu Coldplay, A
Rush Of Blood To The Head,
féll niður.
Platan átti að fá fullt hús
stjarna í einkunn.
Leiðrétting
Coldplay-
dómur
SÖNGKONAN og leikkonan
Beyoncé Knowles er ekki í náðinni
hjá dýraverndarsinnum þessa dag-
ana eftir að hún lýsti yfir opinber-
lega ágæti verslunar einnar sem sel-
ur skinn- og leðurfatnað.
Hin tvítuga Knowles sagðist hafa
gaman af að klæðast feldum og leð-
urfötum og sagði verslunina Hymie’s
Fur & Leather vera í sérstöku uppá-
haldi hjá sér, en hún er til húsa í
heimabæ hennar, Houston.
„Þetta er frábær verslun ef þú vilt
láta sauma á þig
föt úr skinnum.
Þau verða alltaf
eins og þú vilt
hafa þau,“ sagði
Knowles og bætti
við að þónokkrar
af þeim flíkum
sem hljómsveit
hennar, Destiny’s
Child, hefur
klæðst í gegnum tíðina séu einmitt
framleidd á umræddum stað.
Dýraverndarsamtökin PETA eru
ekki jafn ánægð með fatakaupin.
„Knowles er í þeirri stöðu að hafa
mikil áhrif á skoðanir fólks. Hún ætti
að nýta sér það til góðs en ekki
hvetja fólk til að murka lífið úr fleiri
sakleysingjum,“ sagði talsmaður
samtakanna af þessu tilefni.
Beyoncé
reitir dýra-
vini til reiði
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6.
Kynþokkafyllsti spæjari
allra tíma er mættur aftur!
Fyndari en nokkru sinni fyrr
Sýnd kl. 10. B. i. 14.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
Sýnd kl. 8 og 10.
Yfir 25.000 MANNS
„meistaraverk sem
lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i
l i li
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE
Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 14.
kl. 5.30, 8 og 10.15. Sýnd kl. 4 og 6 með íslensku tali.
Sýnd kl. 4 og 8 með E. tali.
The Sweetest Thing
Sexý og Single
Sýnd kl. 4 og 6. B.i. 10 ára
Radíó X
Yfir 15.000 MANNS
!"
#
$ "
#
%
&
'
'(
!)
(
!
*
#+
,
#
-
-
- .(
#
)
-
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT
Endurnýjun áskriftarkorta er hafin!
VERTU MEÐ Í VETUR
Stóra svið
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Lau 31. ágúst kl 20
Ath: örfáar sýningar í haust
AND BJÖRK OF COURSE
e. Þorvald Þorsteinss.
Lau 31. ágúst kl 20
í Herðubreið, Seyðisfirði
Leikferð
Eva³
!"
#$
%
&'()'(