Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 52
ÞOKKALEGAR horfur eru með kartöfluuppskeruna í ár en útlit fyrir að magnið verði minna en á síðasta ári. Þetta er mat Sighvats Hafsteins- sonar í Norður-Nýjabæ í Þykkvabæ, sem er formaður Landssambands kartöflubænda og hefur verið í sam- bandi við starfsbræður sína víða um land að undanförnu. Á síðasta ári tóku bændur upp um 12 þúsund tonn af kartöflum en Sighvatur telur að upp- skera þessa árs verði í kringum 10 þúsund tonn. Framleiðsla síðustu ára hefur verið 9–11 þúsund tonn á ári að jafnaði. Bændur hafa verið að senda nýjar kartöflur beint á innanlandsmarkað síðan um miðjan júlímánuð en í næstu viku hefst aðaluppskerutíminn þegar framleiðslan verður sett í geymslur. Sighvatur taldi að horfurnar væru svipaðar hjá kartöflubændum um allt land. Einna helst hefðu þurrkar í Þykkvabæ og víðar á Suðurlandi sett strik í reikninginn í sumar og norð- anáhlaup um miðjan júnímánuð. Hátt í 60 kartöflubændur eru innan lands- sambandsins en langstærstur hluti ræktunarinnar fer fram í Þykkvabæ. „Magnið verður væntanlega minna en í fyrra en á þessari stundu er erf- iðara að segja til um gæðin. Það fer eftir því hvernig okkur tekst að koma uppskerunni í hús og þar skiptir veðr- áttan í september öllu máli. Það er í raun stóra spurningin núna,“ sagði Sighvatur og tók sem dæmi að næt- urfrost snemma í september eða miklar rigningar gætu haft slæmar afleiðingar. Áhyggjur af sölumálum Auk uppskerunnar brenna sölumál einnig mikið á kartöflubændum. Sig- hvatur sagði menn hafa áhyggjur af síminnkandi hlut af kökunni, eins og hann orðaði það. Smásalar tækju meira til sín en áður og bændur fengju minna fyrir framleiðslu sína. Verð á kartöflum til neytenda hefði ekki breyst svo mikið síðustu misseri. Aðaluppskerutíminn hjá kartöflubændum nálgast Þokkalegar horfur en magnið minna en í fyrra MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. GENGIÐ hefur verið frá samkomu- lagi milli Íslandsbanka og sex hlut- hafa sem flestir tengjast svokölluðum Orca-hópi um kaup bankans á eign- arhlut hluthafanna í Íslandsbanka, samtals 21,78% af skráðu hlutafé. Umfang viðskiptanna nemur um 11,3 milljörðum króna, og hyggst bankinn selja hlutinn áfram til stofnanafjár- festa, svo sem lífeyrissjóða, í smærri hlutum. Seljendur hlutafjárins eru félög sem tengjast Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni, stjórnarformanni Baugur Group, og Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, með einum eða öðrum hætti, en þeir eru meirihluta- eigendur í FBA Holding sem á stærstan hlut í Íslandsbanka af félög- unum sex. Íslandsbanki hefur einnig gert samkomulag við fimm félög, sem einnig tengjast þeim Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má að verulegu leyti, um kaup bankans á öllum eignarhlutum félaganna fimm í Fjárfestingarfélag- inu Straumi. Umfang þeirra viðskipta nemur um tveimur milljörðum króna. Fram kemur í tilkynningu frá Ís- landsbanka vegna þessara viðskipta að bankinn muni bjóða hlutabréfin í Íslandsbanka til sölu. Í því sambandi verði leitað til innlendra og erlendra fagfjárfesta, auk þess sem stefnt sé að því að gefa almenningi kost á kaupum á hluta bréfanna í útboði í haust. Þá segir í tilkynningunni að bankinn muni í endursölu miða við að enginn einstakur hluthafi ráði yfir eignarhlut sem svarar til meira en 10% af heild- arhlutafé í bankanum að sölu lokinni. Í yfirlýsingu frá Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni og Þorsteini Má Baldvins- syni kemur fram að þeir muni í fram- haldi af samkomulaginu segja af sér sem stjórnarmenn í Íslandsbanka. Þorsteinn Már Baldvinsson segir að borist hafi gott tilboð í hlutabréf fé- lagsins í Íslandsbanka og því hafi ver- ið ákveðið að ganga að því. Hann segir jafnframt að frekara samstarf að- standenda FBA Holding sé ólíklegt. Veruleg lán liggi að baki fjárfesting- um félagsins í Íslandsbanka og nú verði hugað að þeim. Að sögn Bjarna Ármannssonar, forstjóra Íslandsbanka, mun bankinn nýta þá stöðu sem upp er komin til þess að auka breiddina í hluthafahópi bankans. Viðræður við fagfjárfesta hafa farið fram á undanförnum dög- um og leitast verður við að ná fram samningum um endursölu á hluta- bréfunum á næstu vikum. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segist aðspurð ekki sjá að viðskiptin með hlutabréf Íslandsbanka hafi áhrif á einkavæð- ingarferli ríkisbankanna. Ekki náðist í Jón Ásgeir Jóhann- esson í gær, en hann er erlendis. Orca-hópurinn selur hlut sinn í Íslandsbanka  Íslandsbanki/27–28 HANN brosti blítt til ljósmynd- arans, þessi fallegi hundur sem sat þolinmóður og beið eiganda síns í bíl á Laugaveginum. Ljóst er að eigandinn er mikill hunda- vinur en á bílrúðuna er límd mynd af hundi, sem er líklega sömu tegundar og sá í bílnum. Þessi á rúðunni er vel til hafður, snyrtur, greiddur og tilbúinn á sýningu. Er hundurinn inni í bíln- um þó engu verri fyrirsæta. Mikilvægt er að tryggja öryggi allra í umferðinni, tví- og fer- fættra, enda er þessi prúðbúni hundur spenntur í öryggisbelti. Morgunblaðið/Jim Smart Brosmild- ur hundur á Lauga- vegi SLYS varð á Hellisheiði eystri í gær- dag þegar starfsmaður RARIK féll um 14 metra niður úr staurasam- stæðu. Maðurinn var við vinnu sína þegar slysið varð og var hann fyrst fluttur á heilsugæslustöðina á Vopnafirði en síðan með sjúkraflugi á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Að sögn lögreglunnar á Vopnafirði er maðurinn ekki talinn alvarlega slasaður. Sagði Björgvin Hreinsson, lögreglumaður á Vopnafirði, að mað- urinn hefði verið að vinna, ásamt flokki manna, við lagfæringar á raf- línu sem liggur yfir Búrið á Hellis- heiði eystri þegar hann féll 12–14 metra niður á jörðina. Það þykir kraftaverki næst að hann slasaðist ekki alvarlega. Lögregla, sjúkrabíll, og björgun- arsveitin Vopni komu á slysstað. Féll 14 metra niður úr staura- samstæðu Í sumar hafa 64 leitað hér hælis FRÁ 1. maí sl. hafa 64 einstaklingar sótt um hæli á Íslandi. Af þessum 64 hælisleitendum komu 38 til landsins með ferjunni Norrænu en 26 komu um Keflavíkurflugvöll. Langflestir komu frá Danmörku eða 48. Um 7–8.000 manns koma til lands- ins á hverju sumri með Norrænu en farþegar um Keflavíkurflugvöll skipta hundruðum þúsunda árlega. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Út- lendingaeftirlitsins, segir að þessi þróun hljóti að vekja menn til um- hugsunar. „Þó ber að hafa í huga að fjölgun hælisleitenda er í samræmi við það sem er að gerast annars stað- ar í Evrópu þar sem straumur fólks liggur frá austri til vesturs,“ segir hann. Á þessu ári hafa 76 sótt um hæli á Íslandi en til samanburðar voru hæl- isleitendur 53 allt árið í fyrra en 24 á árinu 2000. Flestir koma frá Austur- Evrópu eða 65. Þar af eru flestir frá Rúmeníu, 28, og 15 Rússar sóttu um hæli. Aðspurður hvort hann telji að straumur hælisleitenda til landsins muni enn aukast á næstu árum segir Georg að allt bendi til þess að straum- ur fólks í leit að meiri lífsgæðum á Vesturlöndum haldi áfram að aukast. „Það er líklegt að Ísland fái sinn skerf af því eins og önnur lönd,“ segir hann. Fjöldinn sé þó lítill miðað við það sem gerist í nágrannalöndunum. ♦ ♦ ♦ Teknir með kannabisefni LÖGREGLAN í Reykjavík hefur að undanförnu lagt hald á hátt í eitt kg af kannabisefnum í tveimur málum og handtekið sex manns í tengslum við þau. Í stærra málinu var karlmaður handtekinn með smáræði af hassi, en við húsleit fundust 760 grömm af heimaræktuðu maríjúana. Tveir menn til viðbótar voru handteknir vegna meintrar aðildar að málinu. Í hinu málinu voru þrír menn hand- teknir í tengslum við húsleit þar sem lagt var hald á 60 grömm af hassi auk skotfæra. Enginn hinna handteknu var með byssuleyfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.