Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 2

Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍRAKAR HLÝÐA SÞ Stjórnvöld í Írak ákváðu í gær að hlíta ályktun Sameinuðu þjóðanna um að leyfa vopnaeftirlit í landinu. Írakar segja ályktunina þó ósann- gjarna og ólöglega og þeir eigi engin gereyðingarvopn. Bush Bandaríkja- forseti segir að engin undanbrögð Íraka verði liðin. Kjúklingar í framboði Forstjóri Sláturfélags Suðurlands segir að kjötmarkaðurinn sé að fara á annan endann vegna snaraukins framboðs á kjúklingakjöti. Margir bændur muni verða gjaldþrota í vet- ur. Kjúklingaframleiðandinn Móar hefur þrefaldað framleiðslu á skömmum tíma en sækir nú um af- slátt af skuldum sínum. Endurtalning í prófkjöri Sjálfstæðismenn í Norðvest- urkjördæmi ætla að fara aftur yfir kjörgögn úr prófkjörinu um síðustu helgi og telja upp á nýtt. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar kjördæm- isráðs og kjörnefndar í Hrútafirði í gær. Maður á mann gegn ESB Utanríkisþjónustan sendir á næstunni hátt setta embættismenn til allra aðildarríkja Evrópusam- bandsins til að vinna gegn tillögum framkvæmdastjórnar þess um stór- aukin framlög Íslands og Noregs í þróunarsjóði ESB. Rektorar í skotgrafirnar Tillögur nefndar á vegum Háskóla Íslands, um að gera eigi greinarmun á rannsóknaháskólum og öðrum há- skólum og að HÍ sé sá eini sem standi undir fyrrnefndu nafngiftinni vekja hörð viðbrögð hjá rektorum annarra háskóla. Þeir kalla tillög- urnar „skotgrafahernað“ og „stríðs- yfirlýsingu“. Fíkniefnasalar reknir Formaður fræðslunefndar Reykjavíkur segir að barnungum fíkniefnasölum í grunnskólum sé umsvifalaust vísað úr skóla. Því mið- ur sé ekki hægt að útvega þeim með- ferð eða önnur úrrræði. Stofna á starfshóp um vandamálið. Álfrumvarp fyrir jól? Álfyrirtækið Alcoa hefur keypt Reyðarál af Norsk Hydro og Hæfi fyrir um 600 milljónir króna. For- maður álviðræðunefndar vonar að frumvarp um byggingu álvers í Reyðarfirði verði lagt fram á Alþingi fyrir jól. PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ C  VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F KAUPHÖLL VIÐTAL FISKAFLINN „Fækka þarf félögum í Kauphöll Íslands.“ Kaupþing hefur vaxið hratt á síðustu árum og er nú að yfirtaka banka í Svíþjóð. Fiskaflinn var orðinn tæpar tvær milljónir tonna í lok október, 9% meiri en fyrir ári. FÆKKA/4 VÖXTURINN/6 9% MEIRI/12 ÍSLAND hefur hækkað um fjögur sæti á lista, sem The World Economic Forum gefur út um samkeppnishæfni landa. Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu er Ísland nú í 12. sæti en lenti í 16. sæti í fyrra. Fyrir fimm árum var Ís- land í 38. sæti listans. Bandaríkin og Finnland skipta á sætum og nú verma Bandaríkin toppsæt- ið og Finnland er í öðru sæti. Listinn um sam- keppnishæfni á að sýna hlutfallslega möguleika landa til viðvarandi hagvaxtar. Í skýrslu The World Economic Forum eru upplýsingar um hagvöxt landa á árunum 1997–2001 og þar er Ísland í 10. sæti með 4,4% hag- vöxt að meðaltali. Írland er í efsta sæti með 9,5% hagvöxt. Í skýrslunni kemur fram að útlitið í efnahagsmálum heimsins sé enn fremur dökkt og mikil óvissa ríki þó að hún sé minni en þegar skýrsla stofnunarinnar kom út fyrir ári, skömmu eftir hryðju- verkaárásirnar í Bandaríkjunum. Þróun- in hafi ekki orðið jafn neikvæð síðasta árið og búast hefði mátt við miðað við þau áföll sem dunið hafi yfir og sam- drátturinn í heiminum hafi verið tiltölu- lega lítill. Könnun stofnunarinnar meðal stjórnenda fyrirtækja sýnir að þeir reikna yfirleitt ekki með samdrætti í stóru iðnríkjunum á næsta ári. The World Economic Forum er al- þjóðleg stofnun og yfirlýst markmið hennar er að bæta ástandið í heiminum. Við niðurröðun ríkjanna á lista stofn- unarinnar er bæði notast við opinber talnagögn og könnun meðal 4.800 stjórn- enda fyrirtækja í heiminum. V I Ð S K I P T I Samkeppn- ishæfni Íslands eykst Bandaríkin á toppnum og Ísland hækkar úr 16. sæti í það 12.                         ! "#  $  %& '& (& )& *& '+& +& ,& -& ')& '%& '-& %'& '(& .&     %//'     UM 37% almennings telja væn- legast að fjárfesta á íslenska hluta- bréfamarkaðinum en rúmt 21% fagfjárfesta telur íslenska mark- aðinn vænlegastan. Hlutabréfa- markaðir í Evrópu eru vænlegast- ir að mati um 36% almennings en rúmlega 15% fagfjárfesta telja þá vænlegasta. Að mati 13% almenn- ings er vænlegast að fjárfesta í Bandaríkjunum en rúm 55% fag- fjárfesta telja hins vegar að hluta- bréfamarkaðurinn þar í landi sé sá vænlegasti. Þetta er ein af niðurstöðum markaðsrannsóknar IMG-Gallup fyrir Landsbankann-Landsbréf, sem greint verður frá á ráðstefnu í dag. Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að í þessum mánuði eru fimm ár liðin frá því Landsbank- inn-Landsbréf opnaði Íslending- um leið að verðbréfaviðskiptum á vefnum. Á ráðstefnunni verður rætt um framtíð hlutabréfamark- aðarins. Úrtakið í markaðsrannsókn IMG-Gallup var annars vegar 600 manns á aldrinum 16–75 ára af landinu öllu, og hins vegar rúm- lega 100 fagfjárfestar. Ólík viðhorf til deCODE Samkvæmt rannsókn IMG-Gallup er tiltrú á íslenskum fyrirtækjum nokkuð önnur meðal almennings, annars vegar, og fagfjárfesta, hins vegar. Spurt var í rannsókninni um það í hvaða fyrirtæki viðkom- andi myndi kaupa hlut, ef hann eða hún ætti eina milljón króna. Meðal fagfjárfestanna voru Bakkavör og Pharmaco oftast nefnd, en um 26% tiltóku Bakkavör og um 20% Pharmaco. Einungis um 2% al- mennings vildu hins vegar kaupa hlut í Bakkavör en um 6% þeirra nefndu Pharmaco. Össur kom best út meðal almennings og tiltóku um 15% það fyrirtæki en um 11% fag- fjárfestanna nefndu það. Afstaða almennings til de- CODE og Flugleiða er nokkuð önnur en fagfjárfestanna. Engir af fagfjárfestunum nefndu að þeir myndu fjárfesta í þessum fyrir- tækjum. Hins vegar nefndu um 9% almennings að þeir myndu fjárfesta í deCODE og um 4% nefndu Flugleiðir. Í rannsókninni voru könnuð við- horf til lífeyrissjóða og fjárfestinga þeirra. Ein spurningin sem lögð var fyrir þátttakendur var um hvað almenningur veit mikið um það hvernig lífeyrissjóðir ávaxti sjóði sína. Niðurstaðan er þannig að um 3% sögðust vita mikið, um 26% nokkuð, um 49% lítið og um 22% ekkert. Athyglisverðar niðurstöður Sigurður Atli Jónsson, fram- kvæmdastjóri Landsbréfa, segir niðurstöðurnar athyglisverðar. Fagfjárfestar virðist nokkuð sam- mála um mat sitt á tiltölulega fáum fyrirtækjum en dreifingin sé meiri meðal almennings. Í heildina sé það þó tiltölulega þröngur hópur fyrirtækja sem nefndur sé. Úr niðurstöðum um viðhorf til einstakra markaðssvæða segir hann að hugsanlega megi draga ályktanir um hvert fjármunir fjár- festa munu leita á næstunni. Sér- staklega sé áhugavert að sjá hve mikið fagfjárfestar hallist að fjár- festingum í Bandaríkjunum. Að sögn Sigurðar Atla eru við- horf til lífeyrissparnaðar áhuga- verð og nokkuð sláandi að einungis um 3% almennings telji sig vita mikið um það hvernig lífeyrissjóð- ir ávaxti sjóði sína. Fyrir flesta sé lífeyrissparnaður meginstofn fjár- sparnaðar á lífsleiðinni og slæmt sé ef menn telji sig þekkja lítið til þess hvernig hann er ávaxtaður. Rætt um þróun markaða Ýmsar fleiri upplýsingar um hluta- bréfamarkaðinn og lífeyrissjóðina og fjárfestingar þeirra koma fram í þessari markaðsrannsókn IMG- Gallup fyrir Landsbankann- Landsbréf. Þorlákur Karlsson, framkvæmdastjóri hjá IMG-Gall- up, mun kynna þessar niðurstöður á ráðstefnunni í dag. Auk þess verða flutt erindi um þróun og horfur á íslenska hlutabréfamark- aðinum, á hlutabréfamörkuðum í Evrópu og í Bandaríkjunum, sem og erindi um framtíð Kauphallar Íslands. Mismunandi mat á hlutabréfamörkuðum Almenningur telur vænlegast að fjárfesta á íslenska hlutabréfamarkaðinum og í Evrópu en fagfjárfestar telja markaðinn í Bandaríkjunum heppilegastan                                     ! "  # $ #%&"     '  '               ! " # !$ %   &' ()  *+  Miðopna: Vöxturinn verður erlendis Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 34/36 Erlent 15/18 Minningar 37/41 Höfuðborgin 19 Staksteinar 42 Akureyri 22 Bréf 44 Suðurnes 23 Kirkjustarf 45 Landið 24 Dagbók 46/47 Neytendur 25 Fólk 50/53 Listir 26/33 Bíó 50/53 Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54 Viðhorf 32 Veður 55 * * * FJÖLMARGIR Íslend- ingar sem lokið hafa námi í flugvirkjun í Bandaríkjunum fá ekki gild skírteini til að kom- ast í vinnu vegna nýrra evrópskra flugörygg- isreglna, svonefndra JAR-reglna, sem tóku gildi um mitt síðasta ár. Fram hefur komið í Morgunblaðinu að um 100 flugvirkjar sem ekki eru starfandi í iðngrein- inni hafa sett sig í sam- band við Flugvirkjafélag Íslands. Flestir hafa þeir numið í Bandaríkjunum og meðal þeirra er Bald- vin Árnason, 26 ára Reykvíkingur. Í samtali við Morgunblaðið segir Baldvin að flugvirkjar í hans stöðu séu í raun á milli steins og sleggju, skuldum vafnir eftir dýrt nám. Hann bendir á að til að geta fengið gilt JAR-skírteini þurfi viðkomandi flugvirkjar að hafa lokið sveins- prófi eða tveggja og hálfs árs starfsþjálfun. Hvorki sveinspróf né slíka starfsþjálfun fái þeir hér á landi eða annars staðar í Evrópu sem fengu svonefnd FAA-skírteini að námi loknu. Þetta segir Baldvin ekki hafa komið fram í máli for- manns Flugvirkjafélags Íslands í blaðinu sl. laugardag. Það hafi heldur ekki komið fram í auglýs- ingu félagsins að FAA-skírteini yrðu ekki tekin gild. Félagið hafi aðallega verið að auglýsa vegna þess að það sjái fram á betri tíð fyr- ir flugvirkja í atvinnumálum al- mennt. Baldvin hóf nám í flugvirkjun við Spartan School of Aeronautics í Tulsa í Bandaríkjunum í nóvember árið 1998. Hann lauk hefðbundnu námi um mitt ár 2000 og fékk þá í hendur FAA-skírteinið sem gaf rétt á atvinnu í Bandaríkjunum. Það var sömuleiðis tekið gilt hér þar til um mitt síðasta ár þegar JAR- reglurnar voru innleiddar. Baldvin bætti við sig sérnámi í málm- þreytuskoðunum, sem hann lauk í desember 2001 við sama skóla. Með tárin í augunum Hann gagnrýnir einnig for- ráðamenn flugvirkjaskólans í Tulsa. Þeir hafi haldið kynning- arfundi hér á landi án þess að hafa getið yfirvofandi gildistöku JAR- reglna. Fjöldi fólks hafi í raun farið í þetta nám á fölskum forsendum. Síðan hafi skólinn boðað til fundar í fyrra til að kynna breyttar reglur og margir hafi komið af þeim fundi með tárin í augunum, sumir fjöl- skyldumenn í miðju námi. „Okkur finnst mjög skrítið að ís- lenska ríkið skuli tryggja flug- félögin fyrir marga milljarða króna um leið og ekkert er gert til að hjálpa því fólki sem fór í þetta flug- virkjanám og skuldar stórar fjár- hæðir í námslán,“ segir Baldvin, sem að loknu sínu námi skuldar LÍN rúmar níu milljónir króna og tvær milljónir til viðbótar í banka vegna námsins. Hann segir mjög al- gengt að eftirstöðvar námslána nemi 9–10 milljónum króna hjá flugvirkjum. Vonast eftir aðstoð Fyrstu níu mánuðina að loknu náminu var Baldvin atvinnulaus en í dag starfar hann sem örygg- isvörður. Hann segir launin rétt duga fyrir afborgunum námslána og framfærslukostnaði. Aðspurður hvort unnt sé að koma til móts við flugvirkja í hans stöðu vonast Bald- vin til að Flugmálastjórn geri eitt- hvað í málinu. Fyrsta skrefið sé að fá FAA-skírteinunum breytt sam- kvæmt evrópsku JAR-reglunum. Flugvirkjafélagið hefur farið fram á það við LÍN að fresta afborgunum á lánum í fjögur ár að námi loknu í stað tveggja. Ekki hafi verið orðið við þeirri beiðni ennþá. Við erum á milli steins og sleggju Morgunblaðið/Jim Smart Baldvin Árnason flugvirki með skólaskírteini og FAA-skírteini. Eftir margra milljóna króna námskostnað eru skírteinin marklaus plögg í dag og gefa engin starfsréttindi. Skuldar 11 milljónir eftir nám í flugvirkjun sem ekki er tekið gilt HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra hefur ákveðið að senda embættismenn til höfuð- borga allra 15 aðildarríkja Evr- ópusambandsins, ESB, til að tala máli Íslands. Er þeim ætl- að að skýra frá því hvers vegna Íslendingar geti ekki sætt sig við tillögur framkvæmda- stjórnar ESB, m.a. um aukin framlög Íslands í þróunarsjóð EFTA vegna framlaga til fá- tækari ríkja ESB. Verða embættismennirnar á ferðinni næstu daga. Að sögn Sverris Hauks Gunnlaugssonar, fráfar- andi ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu og verðandi sendiherra í London, sem lagður er af stað til nokkurra aðildarríkjanna, verður einnig komið á framfæri mótmælum við þau áform fram- kvæmdastjórnarinnar að Ísland, Noregur og Liechtenstein leggi fram fjármagn í uppbygging- arsjóði ESB. „Við höfum sagt að þessar tillögur um stóraukn- ar álögur samrýmist ekki okkar aðild að EES. Þær eiga sér enga stoð í þeim raunveruleika sem við búum við í dag. Tillögurnar eru hápólitískar og geta leitt til mikils samningsþófs. Allan þann tíma sem stækkunarferlið hjá ESB hefur átt sér stað höfum við reynt að fá framkvæmdastjórnina til viðræðna um þá þætti sem lúta að stækkun EES- svæðisins. Stöðugt hefur okkur verið sagt að um væri að ræða tæknilega þætti sem auðvelt yrði að ljúka á skömmum tíma. Það hefur hins vegar ekki orðið reyndin. Þess vegna grípum við til þess ráðs að tala beint við aðildarríkin til að koma sjón- armiðum okkar á framfæri,“ segir Sverrir Hauk- ur, sem mun fara til Grikklands, Ítalíu og Spánar. Auk Sverris Hauks fer Gunnar Snorri Gunn- arsson, verðandi ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins, til Bretlands, Svíþjóðar og Finnlands, Grétar Már Sigurðsson, sendiherra og skrifstofu- stjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fer til Þýskalands og Kjartan Jóhannsson, sendi- herra hjá ESB, og Þórir Ibsen, varafastafulltrúi í Brussel, fara til annarra aðildarríkja. Sendiherrar Íslands í viðkomandi ríkjum munu einnig taka þátt í viðræðunum. „Maður á mann“-aðferðin „Ætlunin er að koma í veg fyrir að samstaða myndist um tillögur framkvæmdastjórnarinnar. Í raun má kalla þetta nokkurs konar forvarnir eða „maður á mann“-aðferðina. Það er hið eina sem dugir í bili. Þetta er fyrsta útspil okkar,“ segir Sverrir Haukur og minnir á að formlegar samn- ingaviðræður við ESB vegna stækkunar EES- svæðisins hafi átt að hefjast eftir áramót. Næstu vikur skipti því öllu máli til að fá fram skilning Evrópusambandsríkjanna á afstöðu Íslands. Embættismenn fara til allra aðildarríkja ESB Utanríkisráðuneytið bregst við tillögum ESB um aukin framlög Sverrir Haukur Gunnlaugsson MIKIL hálka myndaðist á Reykja- nesbraut við Vífilsstaði í gærkvöld þegar 100 lítrar af glussavökva eða smurolíu dreifðust á allt að 400 metra langan kafla á veg- inum. Talið er að efnið hafi lekið af stórum bíl sem átti þarna leið um. Slökkvilið höfuðborgarsvæð- isins var kallað til hreinsunar með sérhæfðum búnaði ásamt starfs- mönnum Vegagerðarinnar. Veg- inum var lokað suður í Hafn- arfjörð meðan brautin var hreinsuð og reyndist starfinn tímafrekur þar sem frost var úti. Salta þurfti brautina eftir að hreinsiefnin frusu við malbikið og tók því á aðra klukkustund að ljúka hreinsuninni. Umferð bíla var hleypt á klukkan 19.07 en þá hafði verið unnið að hreinsun síð- an klukkan 17.44. Morgunblaðið/Kristinn Hálka vegna olíu á vegi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.