Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Bakhjarl Skráning stofnfélagastendur yfir í síma575 1550 -landssamtök gegn einelti AÐ BAKI glansmyndinni, sem birt- ist m.a. í tímaritum, kvikmyndum og tónlistarmyndböndum, er annar heimur sem sjaldan sést. Það útlit sem útlitshönnuðir og förð- unarfræðingar hafa skapað fyrir forsíðustúlkuna nær ekki til bak- hlutans þar sem raunveruleikinn blasir við. Á þetta vilja aðstand- endur átaksins EGÓ, sem hrundið var af stokkunum í gær, leggja áherslu, en átakið gengur út á að efla og styrkja sjálfsmynd ungs fólks. Í tengslum við átakið hefur tímaritið EGÓ verið gefið út en þar reyna aðstand- endur átaksins að sýna fram á að það sé óraun- hæft að reyna að líkjast fyrirmyndum sem blasa víða við. Á forsíðu EGÓ má sjá mynd sem prýddi forsíðu Undirtóna sem tók átta klukkutíma að taka og síðan hvernig fyr- irsætan, Sólveig Zophan- íasdóttir, leit út að aftan þegar myndin var tekin. Myndin sýnir þannig að uppstillt forsíðumynd sýnir ekki raunveruleik- ann eins og hann er held- ur glansmynd. Í tímaritinu er t.d. fjallað um þær afleið- ingar sem brjóstastækk- anir og aðrar fegrunar- aðgerðir geta haft í för með sér, ljósabekki, stera og húðflúr, auk þess sem þar er að finna sjálfsmatspróf þar sem unglingar, sem aðrir, geta séð hvernig þeir meta sjálfa sig. Einn- ig er þar að finna upplýsingar um hvar megi leita sér hjálpar. Á næstu mánuðum mun fólk á vegum EGÓ heimsækja efstu bekki grunnskóla og yngstu bekki fram- haldsskóla og ræða mikilvægi sjálfsmyndar. Í kvöld verður síðan heimildarmynd um sjálfsmynd unglinga sýnd í Ríkissjónvarpinu í tengslum við átakið. Þá mun Íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur í vetur halda námskeið fyrir ungt fólk sem vill efla sjálfsmynd sína. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Geðræktar, sagði á blaðamannafundi í gær að góð sjálfsmynd væri lykill að ham- ingju. Slæm sjálfsmynd hefði fylgni við geðheilsuvandamál eins og kvíða og þunglyndi. „Þannig getur einmitt slæm sjálfmynd leitt til geðheilsuvandamála. Ef við vilj- um styrkja geðheilsu og auka vel- líðan er mjög mikilvægt að vinna með sjálfsmyndina. Ungt fólk er sér ekki alltaf meðvitandi um að það getur breytt sjálfsmynd sinni, það er mikilvægt að opna þessa umræðu. […] Það hefur enginn rétt á að gera lítið úr okkur, við verðum að þora að vera við sjálf, vera stolt af því sem við erum og hafa metnað í því að bæta okkur og styrkja. Það er markmið þessa verkefnis,“ sagði Dóra Guðrún. Langþreyttir á staðlaðri ímynd Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir frá Jafningjafræðslunni sagði beina tengingu milli slæmrar sjálfsmyndar og ýmissar áhættu- hegðunar eins og fíkniefnanotk- unar. „Við höfum fundið mikla þörf fyrir þetta verkefni þegar við höfum rætt við ungt fólk und- anfarin ár. Það vill tala meira um sjálfsmyndina, þessa umræðu hef- ur vantað mjög mikið. Það hef- urítrekað óskað eftir því sjálft að fá meiri umræðu um þetta,“ sagði Ingibjörg Dögg og bætti við að unglingar væru orðnir lang- þreyttir á þeirri stöðluðu ímynd sem væri haldið að þeim, m.a. í fjölmiðlum og myndböndum. „Þeir hafa oft óskað eftir mótvægi við þessu.“ ÍTR mun eins og fyrr segir standa fyrir námskeiðum í fé- lagsmiðstöðvum borgarinnar fyrir unglinga þar sem fjallað verður um jákvæða og heilbrigða sjálfs- mynd. Námskeiðið verður fyrst um sinn prufukeyrt í félagsmiðstöð- inni 101 í Austurbæjarskóla og að því loknu farið í aðrar fé- lagsmiðstöðvar. „Markmiðið með þessu námskeiði er í raun að fá ungt fólk á skipulagðan hátt til að skoða þessar ímyndir, sjálft sig og þau áhrif sem ímyndir hafa á vel- líðan þess og sjálfsmynd,“ sagði Dagbjört Ásbjörnsdóttir frá ÍTR. Markmiðið væri að skapa gagnrýn- inn hugsunarhátt og gefa ungling- unum tól og tæki til að skapa sér sjálfstæðar skoðanir. Höfða til alls samfélagsins Ásta Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri verkefnisins, sagði markmiðið með átakinu að efla sjálfsmynd unglinganna og vekja þá til umhugsunar um mik- ilvægi sjálfsmyndarinnar. Margir unglingar vissu ekki hvað sjálfs- mynd væri. Hún sagði að hugsunin að baki verkefninu væri ekki að ráðast gegn tísku-, tónlistar- og kvikmyndagreinum heldur að hjálpa krökkunum að hugsa sjálf- stætt og velja fyrir sig. Vildi stelpa t.d. fara í brjóstastækkun ætti hún að gera það af því að hún vill það sjálf, en ekki af því að kærastinn hennar vill það eða vinkonur henn- ar hafa látið stækka á sér brjóstin. Dóra Guðrún sagði að strákar væru ekki síður í sjálfsmynd- arklemmu en stelpur, þótt margir héldu hið gagnstæða. Miklar út- litskröfur hefðu verið gerðar til stráka, eins og til stelpna. „Við getum öll bætt sjálfsmyndina,“ sagði hún. Anna Björg Aradóttir frá Land- læknisembættinu sagði að með átakinu væri reynt að höfða til alls samfélagsins, ekki bara til ung- linganna sjálfra. Uppeldisþátt- urinn væri mikilvægur og allt sam- félagið bæri ákveðna ábyrgð á sjálfsmynd ungs fólks. Anna Dagný Smith frá Heilsu- gæslunni sagði sjálfsmyndina leika stórt hlutverk hvað heilsuna varð- aði. Heilsugæslan væri meira en vottorð og hálsbólgur og ungling- ar gætu snúið sér til heilsugæsl- unnar vildu þeir leita hjálpar. Edda Hrafnhildur Björnsdóttir frá Rauða krossi Íslands sagði Rauða krossinn sinna sjálfsmyndarupp- byggingu allan sólarhringinn í símaþjónustu. Mikilvægt væri að hjálpa unglingunum að horfa gagnrýnum augum á það áreiti sem þeir yrðu fyrir allt í kringum sig. Þeir yrðu að þekkja sjálfa sig og vita hverjir þeir væru. Getum öll bætt sjálfsmyndina Þorðu að vera þú sjálfur er meginstefið í átakinu, sem kynnt var í gær. Hér eru frá vinstri: Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Geðrækt, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Jafningjafræðslunni, Ásta Sigríður Kristjáns- dóttir, framkvæmdastjóri EGÓ, Anna Björg Aradóttir, Landlæknis- embættinu, og Edda Hrafnhildur Björnsdóttir, Rauða krossi Íslands. TENGLAR ..................................................... www.ego.is Ekki er allt sem sýnist. Glans- myndaheimur tískublaðanna er ekki raunverulegur, vilja aðstandendur átaksins segja með þessari forsíðu. Morgunblaðið/Golli SAMKOMULAG var undirritað í gær um kaup Alcoa á öllu hlutafé Reyðaráls hf. af Norsk Hydro og Hæfi, félagi í eigu þriggja fjármála- fyrirtækja. Gengið var frá samnings- textanum í fyrrakvöld, eins og Morg- unblaðið greindi frá í gær. Alcoa er fyrst og fremst að kaupa þá vinnu sem Reyðarál lét inna af hendi í tengslum við mat á umhverfisáhrif- um álvers í Reyðarfirði. Aðilar málsins hafa ekki viljað gefa upp fjárhæðir í samkomulaginu en samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins keypti Alcoa Reyðarál fyrir um 600 milljónir króna. Áður hefur fyr- irtækið reitt fram 450 milljónir króna í undirbúningsframkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar, sem ætlað er að útvega álverinu raforku. Kostnað- ur Alcoa vegna verkefnisins á Íslandi er því nú þegar kominn í um einn milljarð króna. Eftirfarandi fréttatilkynning var send fjölmiðlum í gær vegna þessa og var ekki langorð: „Í dag, 13. nóvem- ber 2002, var gengið frá samningi milli Alcoa, Hydro Aluminium og Hæfi um sölu á öllu hlutafé í Reyð- aráli hf. til Alcoa.“ Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarfor- maður Reyðaráls og framkvæmda- stjóri Hæfis, vildi ekki greina frá því hve mikið eigendur Reyðaráls hefðu fengið fyrir samninginn við Alcoa. „Menn gera ekki samninga öðru- vísi en að þeir séu sáttir. Ég tel að það gildi um alla aðila málsins,“ sagði Geir. „Samningaviðræðurnar hafa tekið nokkuð langan tíma en nú er þeim lokið. Vonandi verður þetta til að álver rísi sem fyrst í Reyðarfirði.“ Geir vildi ekki greina frá því hve miklu Reyðarál hefði þurft að kosta til vegna umhverfismatsvinnunnar á sínum tíma. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun það vera um 800 milljónir króna, þar af hefur Hæfi varið hátt á þriðja hundrað milljónum króna til verksins. Eigendur Hæfis eru Þróunarfélag Íslands og Íslands- banki, sem hvor um sig eiga 40% hlut, og Landsbankinn, sem á 20%. Mikilvægt samkomulag „Verið er að kaupa Reyðarál með öllu því sem félaginu fylgir. Þróun verkefnisins hefur tekið töluverðan tíma og er komið á það stig að ákvarðanir er hægt að taka mjög hratt. Fyrir liggur umhverfismat sem Alcoa á að geta nýtt sér og flýtt þannig fyrir ákvörðunarferlinu,“ sagði Geir. Nú eftir að Alcoa hefur eignast Reyðarál er hlutverki Hæfis í raun lokið, að sögn Geirs. Hann sagðist nú þurfa að fara að leita sér að nýrri vinnu. „Vonandi rekur eitthvað á fjörur mínar,“ sagði hann að endingu við Morgunblaðið. Finnur Ingólfsson, formaður álvið- ræðunefndar stjórnvalda, segir sam- komulag Alcoa og Reyðaráls hafa grundvallarþýðingu fyrir framhald viðræðnanna í heild. „Þegar Alcoa hefur komið gögnum sínum til skipulagsstjóra þarf hann fjórar vikur til þess að ákveða hvort áform Alcoa þurfi að fara í mat á um- hverfisáhrifum eða ekki. Til að hægt yrði að koma þessum upplýsingum til skipulagsstjóra varð Alcoa að kaupa Reyðarál. Að því leyti til er þetta mjög mikilvægt,“ segir Finnur og bindur vonir við að hægt verði að leggja fram frumvarp á Alþingi fyrir jólafrí um byggingu álversins í Reyð- arfirði. Finnur segir samkomulagið ekki síður vera enn eina vísbendinguna um þá alvöru sem Alcoa sýni verkefn- inu á Íslandi. Fyrirtækið hafi greitt háar fjárhæðir fyrir Reyðarál, til við- bótar framlaginu til undirbúnings Kárahnjúkavirkjun. Vonast er eftir frumvarpi um Reyðarál fyrir jólafrí Alþingis Finnur Ingólfsson Geir A. Gunnlaugsson Talsmaður Alcoa Mikilvægt skref í átt að álveri Upplýsinga- fulltrúi Alcoa, Jake Siewert, segir að með samkomulaginu við eigendur Reyðaráls hafi fyrirtækið stigið mikilvægt skref í þá átt að reisa ál- ver í Reyðarfirði. Hann harðneitar að gefa upp hve mikið Alcoa þurfti að greiða fyrir Reyðarál og þá vinnu sem félagið hafði innt af hendi vegna sinna áforma. Sú upphæð hafi þó verið talin sanngjörn, annars hefði ekki verið skrifað undir. Mikil vinna eftir við umhverfisþættina Siewert segir að enn sé mikil vinna eftir í umhverfisþætti verk- efnisins þó að Alcoa geti nýtt sér töluvert af því sem Reyðarál hafi þegar gert. Alcoa muni fljótlega leggja inn gögn til Skipulagsstofn- unar og vonir séu bundnar við að ekki þurfi að vinna nýtt umhverf- ismat frá grunni. Hann segir aðrar samninga- viðræður ganga samkvæmt áætlun, þ.e. við Landsvirkjun um orkuverð, við fjármálafyrirtæki og við heima- menn á Austfjörðum um hafnar- gerð og fleiri atriði. Alcoa hafi lagt meiri áherslu á þessar viðræður en þær sem fram hafi farið við eigendur Reyðaráls, einkum viðræðurnar við Lands- virkjun. Jake Siewert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.