Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 6

Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ niðurstaðan á fundi ráðsins á mánu- dag. „Við getum ekki liðið fíkniefna- sölu í skólunum en við verðum að fá félagsmála- og barnaverndaryfir- völd í lið með okkur svo hægt sé að framfylgja þeirri stefnu,“ segir hann. Stefán Jón segir að skólayfirvöld í Reykjavík ráði ekki ein við þann vanda sem skapast af fíkniefna- neyslu og sölu nemenda. Það sé af- leitt að þurfa að vísa nemendum sem eigi í miklum fíkniefnavanda úr skóla án þess að þeim sé tryggð meðferð eða annað úrræði eins og reglugerð kveður á um. Staðan sé á hinn bóginn sú að fræðsluyfirvöld hafi engin úrræði fyrir þessa nem- endur og dæmi séu um margra mán- aða bið eftir meðferðarplássi. Til skamms tíma hafi fíkniefnaneytend- um í hópi nemenda verið kennt í sér- deildum og sérskólum en þar glími menn við mikil vandamál, m.a. fíkni- efnasölu og ekki komi til greina að vísa fíkniefnasölum úr hópi nem- enda þangað. Því eigi skólayfirvöld þann eina kost að vísa þeim úr skóla. Sá yfirgnæfandi meirihluti nemenda sem komi hvergi nærri fíkniefnum eigi rétt á því að vera í fíkniefnalaus- um skóla og vegi sá réttur þyngra en réttur barna til að stunda nám sem selji fíkniefni. Auk þess eigi fíkniefnaneytendur að vera í með- ferð en ekki að sitja á skólabekk. Stefán Jón segir að næsta skref fræðsluráðs sé að mynda starfshóp til að taka á vandanum og jafnframt verði þrýst á stjórnvöld að efla með- ferðarúrræði. Sölumenn einbeita sér að grunnskólum „Ég hef á tilfinningunni að sölu- menn fíkniefna séu farnir að ein- beita sér í ríkari mæli að grunnskól- unum. Hvort þetta sé tímabundið ástand eða hvort þetta verði var- anlegt veit ég ekki. Maður vonar að sú bylgja sem nú gengur yfir sé tímabundin og hægt verði að taka á henni af fullri hörku. Annars lendum STEFÁN Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, segir að fræðsluráð sé einhuga um að styðja starfsmenn grunnskóla borgarinnar í því að nemendum sem verða upp- vísir að fíkniefnasölu verði umsvifa- laust vísað úr skóla. Þetta hafi verið við í miklum vanda,“ segir Arthur Morthens, forstöðumaður þjónustu- sviðs Fræðslumiðstöðvar Reykja- víkur, um fíkniefnasölu í grunnskól- um borgarinnar. Það sem af er þessu hausti hefur verið staðfest að fíkniefnasala hafi átt sér stað í fimm grunnskólum í borginni en Arthur segir að tilvikin geti verið fleiri. Að- spurður segir Arthur að erfitt sé að segja til um hvort salan hafi farið fram innan veggja skólans, á skóla- lóðinni eða í frítíma nemenda. Ómögulegt að fara eftir reglugerð Arthur segir að skv. reglugerð um skólareglur og aga í grunnskólum hafi skólayfirvöld ekki heimild til þess að reka nemanda úr skóla nema að finna honum annað úrræði og það geti reynst þrautin þyngri. Í raun sé svo komið að ekki sé lengur hægt að fara eftir reglugerðinni. „Við gerum alltaf ráð fyrir því að skólaganga sé mannréttindi. En hvenær gengur nemandi svo langt að hann missir tímabundið þessi réttindi,“ spyr hann. Skólastjórar neiti að taka við nemendum úr öðr- um skólum sem hafa verið staðnir að fíkniefnasölu eða alvarlegu ofbeldi enda óttist þeir að nemendurnir haldi þessari iðju áfram. Til skamms tíma hafi nemendum verið vísað í sérdeildir. „Nú eru þessi sérúrræði í uppnámi vegna þess að þar er bæði fíkniefnaneysla og jafnvel fíkniefna- sala. Reglugerðin tekur alls ekki á þessum vanda. Þá sitjum við uppi með nemendur sem eru á þriggja til fimm vikna biðlista eftir því að kom- ast á Stuðla eða í aðra meðferð,“ segir Arthur. Þannig muni nemandi sem varð uppvís að fíkniefnasölu fyrir um 10 dögum ekki komast inn á Stuðla fyrr en í fyrsta lagi í desem- ber. Samkvæmt nýrri könnun sem nefnist Börnin í borginni dregur úr fíkniefnaneyslu nemenda í grunn- skólum en Arthur segir að vandræði þeirra verst settu aukist. Enn sé al- gengast að nemendur neyti kannab- isefna en einnig er þekkt að þau taki rítalín sem inniheldur amfetamín. Arthur segir að verði ekki spyrnt við fótum sé augljóst að neysla sterkari fíkniefna teygi sig í auknum mæli inn í grunnskólana. Arthur segir að talið sé að á þriðja tug grunnskóla- nemenda í Reykjavík neyti fíkniefna og um 5–6 af þeim selji fíkniefni. „Þetta er bara það sem við vitum um og kannski er þetta bara toppurinn á ísjakanum, ég veit það ekki.“ ÍSLAND gæti orðið fyrst Evrópu- landa til að hafa heyrnarlausan þingmann, en Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, 38 ára táknmáls- kennari, sem er í læri hjá Mar- gréti Sverrisdóttur, fram- kvæmdastjóra Frjálslynda flokksins, íhugar nú að bjóða sig fram til Alþingis. Sigurlín Margrét segist hafa mikinn áhuga á stjórn- málum og þá sérstaklega velferð- armálum og málefnum fatlaðra. „Heyrnarlausir eiga ekki marga talsmenn á Alþingi, við erum hóp- ur sem er auðvelt að gleyma. Fólk sér hreyfihamlaða t.d. en heyrn- arleysið er ekki sýnilegt í sam- félaginu,“ segir Sigurlín Margrét sem er ein 115 kvenna sem taka þátt í verkefni á vegum nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórn- málum sem nefnist „Konur í læri“. Sigurlín mun fylgja Margréti, lærimóður sinni, eins og skugginn næsta mánuðinn á nefndarfundi og í öðru pólitísku starfi en alls eru 44 lærimæður að störfum um allt land. „Þetta er mjög skemmtilegt. Ég er búin að læra afskaplega mikið,“ segir Sigurlín. Það hafi helst kom- ið henni á óvart hvað þing- mennska sé mikil og ströng vinna. Múrar umlykja heyrnarlausa Margrét segir að hún hafi einn- ig lært mikið af Sigurlín Margréti. „Hún er svakalega dugleg, við get- um talað saman því hún les vara- mál. Það hefur hjálpað okkur svo- lítið en svo er hún frábær í íslensku og við höfum átt mikil samskipti í gegnum tölvupóst, þar ræðum við málin vítt og breitt. Sigurlín hefur ákveðnar skoðanir og er dugleg að tjá þær. Það sem ég hef lært mest af henni er að sjá hversu mikil einangrun tilheyrir samfélagi heyrnarlausra á Íslandi. Maður verður að kynnast þessu til að átta sig á þeim múrum sem um- lykja heyrnarlausa.“ Sigurlín hefur óskað eftir því að félagsmálaráðuneytið greiði fyrir túlkaþjónustu sem hún þarf í tengslum við verkefnið „Konur í læri“, auk þess sem hún hefur lagt inn fyrirspurn um hvort ráðu- neytið myndi greiða túlkakostnað færi hún í framboð. Frestur ráðu- neytisins til að svara fyrirspurn- inni rann formlega út í gær, en Sigurlín hefur enn ekkert heyrt frá ráðuneytinu. Hún segist þó ekki trúa því að hún fái neitun, þar sem þetta sé stórt hagsmuna- mál fyrir heyrnarlausa. „Mér finnst ekki réttlátt að stjórnmálaflokkurinn greiði túlka- þjónustu, fari ég í framboð. Ef það gerist er mikill möguleiki á að ég gæti ekki tekið þátt í starfi innan flokksins því þetta er dýr þjón- usta. Ef ég fengi túlk væri ekki einungis gata mín greidd, heldur einnig þeirra heyrnarlausu sem kæmu á fundina og hafa áhuga á því sama,“ segir Sigurlín. Margrét er áheyrnarfulltrúi í fé- lagsmálanefnd Reykjavíkurborgar og segir hún ánægjulegt að Fé- lagsþjónustan skuli að fyrra bragði hafa boðist til að greiða túlkaþjónustu á fundi nefnd- arinnar, þegar Margrét óskaði eft- ir því að Sigurlín fengi að sitja fundinn. „Þetta gladdi okkur nöfnurnar, eins og við köllum okkur, mikið. Það var mjög ánægjulegt að það skyldi einhvers staðar vera skiln- ing að finna,“ segir Margrét. Litríkan hóp á Alþingi Sigurlín Margrét segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á pólitík. Hún hafi setið í stjórn Félags heyrnarlausra í yfir 20 ár. Að- spurð hvort hún íhugi framboð í alþingiskosningum í vor játar Sig- urlín. „Það væri mjög gaman og gott ef það gæti gerst. Ég er mjög áhugasöm og held að ég gæti gert góða hluti, ekki bara í málefnum heyrnarlausra heldur líka al- mennt. Við Íslendingar erum oft í fararbroddi og það væri mjög flott ef við gætum státað af heyrnar- lausum þingmanni. Það hefur að því er ég best veit aldrei neinn heyrnarlaus komist á þing í Evr- ópu. Á Alþingi þarf að vera litrík- ur hópur.“ Innt eftir því hvort hún hefði áhuga á að bjóða sig fram með Frjálslynda flokknum segist Sig- urlín myndu skella sér í slaginn byðist henni sæti á listanum. „Frá- bært,“ segir Margrét þá og því er aldrei að vita nema Sigurlín eigi eftir að verða einn frambjóðenda flokksins í kosningunum í vor. Vill verða fyrsti heyrnarlausi þingmaðurinn Morgunblaðið/Sverrir Nöfnurnar Sigurlín Margrét og Margrét Sverrisdóttir skoðuðu Alþingis- húsið og nýju tengibygginguna í gær. BÖRN sem höfðu verið orðuð við fíkniefnaneyslu eða sölu voru í haust boðuð á fund með lögreglumönnum úr forvarna- og fíkniefnadeildum lögregl- unnar í Reykjavík. Samtals var rætt við 88 ungmenni á aldr- inum frá 13 til 17 ára og ríflega 100 forráðamenn voru við- staddir viðtölin. Upplýsingar um að börnin væru í tengslum við fíkniefni voru borin undir börnin. Mörg barnanna viðurkenndu þá í fyrsta sinn fyrir foreldrum sín- um að hafa neytt fíkniefna. Þau fíkniefni sem auðveldast var fyrir börnin að útvega voru kannabisefni en auk þess virt- ust e-töflur og amfetamín nokkuð aðgengileg. Á heimasíðu lögreglunnar í Reykjavík kemur fram að að- eins eitt foreldri neitaði að koma í viðtal á lögreglustöð með þeim orðum að „á sínum bæ væru ekki vandamál og barnið hans hefði ábyggilega aldrei verið í neinni neyslu“ og vildi því ekki kynna sér þær upplýsingar sem lögregla hafði um hið gagnstæða. Sölumönnum fíkniefna um- svifalaust vísað úr skóla Ekki hægt að fara eftir reglu- gerð varðandi brottvísanir Ekkert vandamál á mínum bæ ELDUR kviknaði á iðnaðar- svæði við Óseyrarbraut í Hafnarfirði um kl. tvö í fyrri- nótt. Eldurinn læsti sig m.a. í vörubíl, tvo gáma og plastbát, sem var á lóðinni. Tjón er töluvert að sögn slökkviliðsins, sem var um klukkustund að ráða niðurlög- um eldsins. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Þá var einnig kveikt í rusla- gámi á Strandgötu í Hafnar- firði í fyrrinótt. Eldur á iðn- aðarlóð í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.