Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 10

Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STEINÞÓR Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, segir að mikil framleiðsluaukning á kjúklingum sé að setja kjötmarkaðinn á annan end- ann. Hann segir að flest bendi til að bændur og afurðafyrirtæki eigi eftir að verða fyrir stórtjóni, ekki síst vegna þess að einn kjúklingafram- leiðandi sé á skömmum tíma að auka framleiðslu sína úr 1.000 tonnum í 3.000 tonn. Steinþór segist hafa miklar áhyggjur af því sem sé að gerast á kjötmarkaðinum. Ástandið sé slæmt en flest bendi til þess að það eigi enn eftir að versna. Mikið offramboð hafi verið á svínakjöti og framleiðslan hafi verið rekin með miklu tapi. Hann tel- ur að offramboð verði áfram á svína- kjöti og ljóst sé að margir bændur eigi eftir að verða gjaldþrota í vetur. Fjögur fyrirtæki eru ráðandi á kjúklingamarkaðinum. Steinþór seg- ir að Íslandsfugl hafi verið að koma inn á markaðinn með aukna fram- leiðslu. Reykjagarður sé að ná fyrri stöðu og lítilsháttar aukning hafi orð- ið hjá Ísfugli. Mjög mikil aukning hafi hins vegar orðið hjá Móum. „Móar eru á mjög stuttum tíma að þrefalda framleiðslu sína. Fram- leiðslan fer úr um 1.000 tonnum í um 3.000 tonn. Þetta og aukning á svína- kjötsframleiðslu er að setja þennan markað á annan endann.“ 13–17% verðlækkun Samkvæmt tölum Hagstofu Ís- lands hefur verð á svínakjöti lækkað um 17,7% á síðustu fjórum mánuðum og verð á kjúklingum hefur lækkað um 12,8%. Steinþór segir að flest bendi til þess að framundan sé enn meiri lækkun á verði kjúklinga. Hann segir að verðið sem kjúklingafram- leiðendur fái í dag dugi ekki einu sinni fyrir breytilegum kostnaði. „Það er verið að setja aðra fram- leiðendur meira og minna á hausinn, en um leið er verið að valda öllum öðrum kjötframleiðendum stórtjóni.“ Steinþór segir að mönnum sé að sjálfsögðu heimilt að stofna til skulda til að auka framleiðsluna og reka hana með tapi, en það sé alvarlegt áhyggjuefni hversu mikið tjón bænd- ur eigi eftir að verða fyrir vegna þess- arar framleiðsluaukningar. Íslandsfugl gekk í gegnum fjár- hagslega endurskipulagningu fyrr á þessu ári og miklar breytingar hafa verið gerðar á rekstri Reykjagarðs. Forstjóri SS segir offramboð og verð- lækkun framundan á kjötmarkaðinum Bændur eiga eftir að verða fyrir stórtjóni VERIÐ er að endurskipuleggja fjár- hag Móa hf. sem er annar stærsti kjúklingaframleiðandi á landinu. Fyrirtækið hefur sent kröfuhöfum bréf þar sem það óskar eftir 25% af- slætti á skuld- um en býðst til að greiða eftir- stöðvar á 24–36 mánuðum. Jafnframt er lánardrottnum boðið að breyta skuldum í hlutafé. Krist- inn Gylfi Jóns- son, stjórnar- formaður Móa, segir að erfið- leikar hafi verið í kjúklinga- ræktinni og fyrirtækið sé að bregð- ast við aðstæðum eins og þær hafi þróast á kjötmarkaðinum. Móar hafa fjárfest mjög mikið á síðustu mánuðum og árum. Fyrir- tækið tók á síðasta ári í notkun stóra afurðastöð í Mosfellsbæ og einnig hefur það á skömmum tíma byggt nokkur kjúklingaeldishús. Í bréfi sem Ólafur Jón Guðjóns- son, framkvæmdastjóri Móa, hefur sent kröfuhöfum segir: „Á síðast- liðnu ári urðu áföll í kjúklingarækt í landinu m.a. vegna sjúkdóma erlend- is, en það varð til þess að innflutn- ingur stofnfugla var bannaður um skeið. Urðu Móar hf. fyrir búsifjum af þessum ástæðum sem leiddi til þess að framleiðslan minnkaði mjög mikið og skortur varð á kjúklingum í landinu eins og alkunnugt er. Fjárhagsstaða félagsins versnaði mjög á þessum tíma. Er nú unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Hafa eigendur mikla trú á fyrirtækinu og eru þeir bjartsýnir á framtíð þess að henni lokinni. Fyrsta skrefið í hinni fjárhagslegu endur- skipulagningu var samruni Ferskra kjúklinga ehf. og Móa hf. og verður hið sameinaða félag Móar hf. Þá er unnið að því þessa dagana að fá nýtt hlutafé inn í félagið.“ Kristinn Gylfi sagði að Móar hefðu verið í mikilli uppbyggingu en samhliða hefði kjúklinga- ræktin gengið í gegnum tals- verða erfið- leika. Fjárhag- ur Íslandsfugls á Davík hefði verið endur- skipulagður og verulegir erfið- leikar hefðu verið í rekstri Reykja- garðs, en Búnaðarbankinn seldi Sláturfélagi Suðurlands fyrirtækið fyrr á þessu ári. Bregðast við aðstæðum „Við höfum að undanförnu verið að endurskipuleggja fjárhag félags- ins. Það hafa verið erfiðleikar í kjúk- lingaræktinni og við erum að semja okkur frá þeim málum. Fyrirtækið er ekki að fara í gjaldþrot eða greiðslustöðvun og engar uppsagnir eru fyrirhugaðar. Við erum einfald- lega að bregðast við aðstæðum eins og þær hafa þróast á kjötmarkaðin- um,“ sagði Kristinn Gylfi. Hann vildi ekki gefa upp hvað skuldir fyrirtækisins væru miklar, en staðfesti að skuldir væru í van- skilum. Kristinn Gylfi sagði að uppbygg- ing Móa væri að skila sér í mikilli framleiðsluaukningu. Aðspurður sagði hann að það kynni að leiða til einhverrar verðlækkunar en að hafa yrði í huga að markaður fyrir kjúk- linga væri að stækka. Móar hf. óska eftir niðurfell- ingu skulda Morgunblaðið/Kristján ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Stjórnsýslulög 348. mál, laga- frumvarp forsrh. 1. umræða. 2. Fyrirtækjaskrá 351. mál, laga- frumvarp forsrh. 1. umræða. 3. Hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög og sjálfseign- arstofnanir 350. mál, lagafrum- varp forsrh. 1. umræða. 4. Birting laga og stjórnvalda- erinda 352. mál, lagafrumvarp dómsmrh. 1. umræða. 5. Almenn hegningarlög 353. mál, lagafrumvarp dómsmrh. 1. um- ræða. 6. Verðbréfaviðskipti 347. mál, lagafrumvarp viðskrh. 1. um- ræða. 7. Stofnlánadeild verslunarfyrir- tækja 344. mál, lagafrumvarp viðskrh. 1. umræða. 8. Félagamerki 346. mál, laga- frumvarp iðnrh. 1. umræða. 9. Löggilding starfsheita sérfræð- inga í tækni- og hönnunar- greinum 354. mál, lagafrum- varp iðnrh. 1. umræða. 10. Textun íslensks sjónvarpsefnis 339. mál, þingsályktunartillaga PBj. Fyrri umræða. 11. Aðstaða til hestamennsku. SÚ niðurstaða varð á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur í gær, um túlkun laga um OR, að bera þurfi uppsafnaðar fjárskuldbindingar yfir 5% af eigin fé fyrirtækisins undir eigendur. Þá var samþykkt að fela forstjóra OR að taka upp viðræður við Garðabæ vegna beiðni bæjarins um sölu á 0,47% hlut sínum í OR. Einnig var samþykkt tillaga um breytingu á 7. gr. sameignarsamn- ings um OR, sem felur í sér að ýmiss konar skuldbindingar þurfi ekki að bera undir eigendur, þar á meðal skammtímalán og lán til lengri tíma á sömu vaxtakjörum og áður. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar- stjóri í Garðabæ, sagði fundinn hafa verið afar gagnlegan með því að skýrt hefði verið á hvaða hátt túlka beri samninga og lögin um Orkuveit- una. „Ég fagna því sérstaklega að á fundinum túlkaði borgarlögmaður skuldbindingar OR með sama hætti og lögmaður Garðabæjar hefur gert fram til þessa,“ segir Ásdís Halla. Hún greiddi atkvæði gegn fyrr- nefndri breytingartillögu enda telur hún óeðlilegt að breyta samningnum eftir á. „Garðabær gekk inn í sam- eignarfélagið á ákveðnum forsend- um, með ákveðnum skilningi á því hvað bæri að bera undir eigendur. Við teljum að með þessari samþykkt sé verið að breyta því og að samning- urinn sé ekki lengur í samræmi við lögin um Orkuveituna sem sameign- arfyrirtæki. Við væntum þess að hlutur Garðabæjar í félaginu verði brátt keyptur og þar með losni bær- inn undan þeim ábyrgðum sem felast í aðild að OR og í framhaldi af því þurfum við ekki að hafa áhyggjur af þeim samningum sem gilda um fyr- irtækið.“ Fagnar niðurstöðu Á fundinum var sem fyrr segir komist að niðurstöðu um þá túlkun laga um OR að bera þurfi uppsafn- aðar fjárskuldbindingar yfir 5% af eigin fé fyrirtækisins undir eigendur OR. Björn Bjarnason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og stjórnarmaður í OR, fagnar þessari niðurstöðu, hún sé í samræmi við þá skoðun, sem hann hafi kynnt, að ekki nægi að ein- stakar skuldbindingar séu undir 5% mörkunum, líta eigi á uppsafnaðar skuldbindingar innan fjárhagsárs- ins. „Ég tel að með þessari niðurstöðu komi í ljós að það er nauðsynlegt að bera ákvarðanir varðandi Línu.Net undir eigendurna, með því að 5% reglan er túlkuð á þann veg að tekið sé tillit til allra uppsafnaðra skuld- bindinga á árinu. Þær eru komnar langt fram yfir 5% af eigin fé Orku- veitunnar í ár og þess vegna þarf að taka málefni Línu.Nets upp við eig- endur OR, það er sveitarstjórnirnar sex,“ segir Björn. Bindingin ekki yfir 5% „Fjárbindingin í Línu.Net fer ekki yfir þessi 5% að okkar mati, þótt það sé jafnvel horft á hana sem uppsafn- aða,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri. Hún vísar því jafnframt algerlega á bug að um- rædd samþykkt á breytingartillög- unni fari á nokkurn hátt á svig við lögin og segir alla eigendur hafa mótmælt þeirri túlkun Ásdísar Höllu. „Textinn sem við lögðum fram er saminn af borgarlögmanni í samráði við tvo lögfræðinga Landsvirkjunar og ég ætla að leyfa mér að halda því fram að þeir menn séu ekki að semja eitthvað sem gengur á svig við lög,“ segir Ingibjörg Sólrún. Skuldbindingar OR yfir 5% bornar undir eigendur OFT er heilmikill handagangur í öskjunni við Reykjavíkurtjörn þegar ungir og aldnir mæta með brauðið sitt og gefa öndum, gæsum og svön- um. Á öðrum dögum, þegar hungrið segir til sín, taka fuglarnir sig til og koma upp á bakkann og hrifsa brauðið frá mannfólkinu eins og þessi maður fékk að reyna. Þá má reyna að tala til fuglanna: „Alveg róleg … biðja fallega“ og kannski halda fuglarnir sig á mottunni. Morgunblaðið/Golli „Alveg róleg, biðja fallega“ ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, varpaði fram þeirri hugmynd á Al- þingi í gær að húsnæði fyrir Listahá- skóla Íslands yrði reist á lóð Kenn- araháskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík. Hún sagði að styrkja þyrfti listaháskólann með því að koma yfir hann sómasamlegu hús- næði. Þorgerður sagði ennfremur að með því að reisa húsnæði fyrir listaháskólann á lóðinni væri hægt að koma á ákveðinni samvinnu milli skólanna, sem og Sjómannaskóla Ís- lands, sem er í næsta nágrenni. Þorgerður spurði menntamálaráð- herra, Tómas Inga Olrich, í fyrir- spurnartíma hvort kannaðir hefðu verið möguleikar á því að reisa hús- næði yfir listaháskólann í Stakkahlíð. Fram kom í máli Tómasar Inga Ol- rich að forsvarsmenn Listaháskóla Íslands, sem væri einkaskóli, hefðu undanfarin ár leitað eftir lóðum og aðstöðu fyrir framtíðarhúsnæði skól- ans. Í því sambandi hefðu þeir átt í viðræðum við Reykjavíkurborg og Hafnafjarðarbæ. „Skólinn hefur ekki leitað eftir aðstöðu á lóð kennarahá- skólans við Stakkahlíð,“ sagði ráð- herra, „en eðli málsins samkvæmt hefur ráðuneytið ekki haft frum- kvæði að slíku þar sem hér er um einkaskóla að ræða.“ Ráðherra minnti á að nú væri verið að meta húsnæðisþörf Listaháskóla Íslands og sagði að niðurstaða þeirr- ar vinnu myndi liggja fyrir um ára- mótin næstu. Þá væru forsendur fyr- ir því að ræða húsnæðismál skólans enn frekar. Hús listaháskólans verði við Stakkahlíð TÍÐNI keisaraskurða hefur farið hægt vaxandi á Íslandi á undanförn- um árum, að því er fram kemur í skriflegu svari Jóns Kristjánssonar, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur og Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingmanna Sam- fylkingarinnar. Keisaraskurðir voru þó færri á síðasta ári en árið á undan. Í svarinu kemur fram að 686 keis- araskurðir hafi verið framkvæmdir á síðasta ári, sem er um 17% af heild- arfjölda fæðinga það árið, en 763 árið á undan, sem er um 17,9% af heild- arfjölda fæðinga það árið. Þá voru þeir 710 árið1999 sem er um 17,6% af heildarfjölda fæðinga á árinu. Keisaraskurð- um fjölgar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.