Morgunblaðið - 14.11.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.11.2002, Qupperneq 16
ERLENT 16 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ betri innheimtuárangur Ármúla 21, 108 Reykjavík Sími 533 2020 Fax 533 2022 www.vatnsvirkinn.is Hentugar t.d. fyrir framan bílskúra, í bílaplön, við vegi og á þeim stöðum þar sem vatnselgur getur myndast. GÖTURENNUR Húsi verslunarinnar og Glæsibæ Símar: 568 7305 - 568 5305 EMBÆTTISMENN í Washington sögðu í gær að frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga bentu til þess að röddin á nýlegri hljóðupp- töku, sem arabíska sjónvarpsstöðin al-Jazeera sendi út í fyrrakvöld, væri rödd Osama bin Ladens, leið- toga hryðjuverkasamtakanna al- Qaeda. Embættismennirnir bættu þó við að rannsóknum sérfræðinga bandarísku leyniþjónustunnar CIA, þjóðaröryggisstofnunarinnar NSA og fleiri stofnana væri ekki lokið. Staðfestu þeir að hljóðupptakan sé ekki fölsuð er hún fyrsta ótvíræða vísbendingin í tæpt ár um að bin Laden sé enn á lífi og staðráðinn í að halda áfram „heilögu stríði“ sínu gegn Bandaríkjunum. „Þetta er bin Laden,“ hafði bandaríska sjónvarpið NBC eftir tveimur embættismönnum tveggja öryggisstofnana í Bandaríkjunum. „Við teljum að þetta geti verið hann og það er engin ástæða til að ætla að þetta sé ekki hann,“ var haft eft- ir þriðja embættismanninum í bandaríska sjónvarpinu NBC. „Röddin á upptökunni hljómar eins og rödd bin Ladens,“ sagði embættismaður í stjórn George W. Bush forseta í viðtali við The Wash- ington Post. Heimildarmaður Los Angeles Times sagði þó að hugs- anlegt væri að bin Laden talaði á mestum hluta upptökunnar en aðr- ir hlutar hennar kynnu að vera fals- aðir til að láta líta út fyrir að hún væri nýleg. Nokkrir embættismenn sögðu að sérfræðingar hefðu meðal annars borið saman sveiflurit af röddinni á upptökunni og samskonar rit af rödd bin Ladens. Sérfræðingarnir væru enn að rannsaka upptökuna, meðal annars hrynjandina, þ.e. ris eða hnig raddarinnar, og orðaval. Viðvörunarbjöllur klingdu í Hvíta húsinu Embættismenn sögðu að viðvör- unarbjöllur hefðu klingt í Hvíta húsinu, höfuðstöðvum CIA, varn- armálaráðuneytinu og fleiri stofn- unum í Washington þegar fréttir bárust af upptökunni þar sem vitað er að bin Laden hefur gefið út slík- ar yfirlýsingar rétt áður en hryðju- verk eru framin, til að mynda skömmu áður en liðsmenn al-Qaeda urðu 224 manns að bana í sprengju- árásum á tvö bandarísk sendiráð í Afríku árið 1998. „Því miður gerist alltaf eitthvað mjög slæmt þegar hann lætur í sér heyra,“ sagði einn embættismann- anna. „Þetta verður til þess að við þurfum að vera enn varari um okk- ur, þótt það sé erfitt því viðbúnaður okkar er nú þegar mjög mikill.“ Bandaríska sjónvarpið CBS sagði að bandarískir sérfræðingar teldu það enga tilviljun að upptak- an skyldi vera send út nú þegar Saddam Hussein er að gera það upp við sig hvort hann eigi að sam- þykkja ályktun öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna um vopnaeftirlit í Írak. Nokkrir sérfræðingar í barátt- unni gegn hryðjuverkastarfsemi sögðu að bin Laden kynni að hafa gefið yfirlýsinguna út vegna hugs- anlegra árása Bandaríkjahers á Írak. „Deilan við Íraka er vatn á myllu íslamskra stríðsæsinga- manna,“ sagði Daniel Benjamin, höfundur bókar um al-Qaeda og fyrrverandi sérfræðingur Þjóðarör- yggisráðs Bandaríkjanna í barátt- unni gegn hryðjuverkastarfsemi. „Þótt hann hafi enga samúð með Saddam Hussein og stjórn hans hefur bin Laden alltaf lýst deilun- um við Íraka sem enn einu dæmi um baráttuna milli trúleysingja og íslömsku stríðsmannanna.“ Reynist bin Laden vera á lífi rennir það stoðum undir röksemdir þeirra sem hafa lagst gegn hugs- anlegum árásum á Írak og sagt að baráttunni gegn hryðjuverkastarf- semi sé ekki lokið og hernaður í Írak myndi torvelda hana enn frek- ar. Kyndir undir gagnrýni á Bandaríkjaher Reynist upptakan vera ófölsuð kyndir hún einnig undir gagnrýn- inni á Bandaríkjaher vegna mis- heppnaðra tilrauna hans til að kló- festa bin Laden í Afganistan. Bandarískar hersveitir og afgansk- ir hermenn virtust hafa króað bin Laden af á Tora Bora-fjallasvæðinu í Austur-Afganistan í desember í fyrra og Bandaríkjamenn héldu uppi hörðum loftárásum á svæðið í hálfan mánuð. Þegar þeim lauk fundust engin merki um bin Laden og ljóst var að hundruð fylgis- manna hans höfðu komist undan. Margir líta á það sem mikið klúð- ur að herinn skyldi hafa látið þetta tækifæri sér úr greipum ganga. Tommy Franks hershöfðingi, sem stjórnaði hernaðinum, hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa ekki látið bandarísku hersveitirnar loka flóttaleiðunum og þess í stað reitt sig á afganska hermenn sem eftir á að hyggja virtust ekki valda þessu verkefni. Viðkvæmt mál fyrir stjórn Bush Spurningin um hvort bin Laden sé enn á lífi er einnig mjög við- kvæm fyrir stjórn Bush. Eftir hryðjuverkin 11. september í fyrra talaði forsetinn um að hann væri staðráðinn í því að ná bin Laden „lifandi eða dauðum“. Eftir hern- aðinn í Afganistan lagði hann hins vegar áherslu á að meginmarkmið- ið með stríðinu væri ekki að kló- festa „einn mann“. Háttsettir emb- ættismenn í Hvíta húsinu hafa ygglt sig þegar þeir hafa verið spurðir síðustu mánuðina hvort bin Laden sé á lífi og Bush sagði 14. október að hann vissi ekki hvort hryðjuverkaforinginn væri „dauður eða lifandi“. „Við töldum aldrei að hann væri dauður“ Ronald Noble, yfirmaður Inter- pol, sagði í viðtali við franskt dag- blað á föstudaginn var, að bin Lad- en væri „örugglega á lífi“. CIA og aðrar leyniþjónustustofn- anir Bandaríkjanna hafa gert ráð fyrir því að bin Laden sé á lífi og leynilegar her- og leyniþjónustu- sveitir leita hans enn við landamæri Afganistans og Pakistans þar sem talið er líklegast að hann sé í felum, að sögn bandarísks embættis- manns. „Þetta ætti ekki að koma á óvart,“ sagði hann. „Við töldum aldrei að hann væri dauður.“ Bandarískir embættismenn töldu að markmiðið með nýju yfirlýsing- unni væri að hvetja liðsmenn al- Qaeda til dáða og þar væri ef til vill að finna dulin skilaboð til þeirra fylgismanna bin Ladens sem væru að skipuleggja fleiri árásir. Síðasta ótvíræða vísbendin um að bin Laden væri á lífi kom seint á síðasta ári. Á myndbandi, sem bandarískir hermenn fundu í Afg- anistan, sást hann snæða kvöldverð með nokkrum af samstarfsmönnum sínum. Talið er að myndbandsupp- takan sé frá 9. nóvember í fyrra og bandaríska varnarmálaráðuneytið gerði hana opinbera í desember. Seint í desember var birt önnur myndbandsupptaka þar sem bin Laden sást gefa út yfirlýsingu. Hann virtist horaður og hugsanlega særður. Talið var að yfirlýsingin hafi verið tekin upp seint í nóv- ember eða í byrjun desember en embættismenn sögðu að það væri ekki vitað með vissu. Bandarískir hermenn á Tora Bora-svæðinu hleruðu talstöðvar- skilaboð, sem talin voru koma frá bin Laden, 10. desember. Skila- boðin voru ekki tekin upp og ekki var hægt að bera þau saman við upptökur á yfirlýsingum bin Lad- ens. Bandarískir leyniþjónustumenn hafa staðfest að nokkrar aðrar upp- tökur, sem al-Jazeera hefur sent út á þessu ári, hafi komið frá bin Lad- en. Hann talaði þá ekkert um ný- lega atburði og upptökurnar sönn- uðu því ekki að hann væri enn á lífi. Washington. Los Angeles Times, The Washington Post, AP, AFP. „Þetta er bin Laden,“ sögðu bandarískir embættismenn eftir fyrstu rannsóknir sér- fræðinga á nýrri hljóð- upptöku á yfirlýsingu sem hryðjuverkaforing- inn er sagður hafa lesið. Upptakan sögð benda til þess að bin Laden sé á lífi Reuters Sjónvarpsstöðin CNN sýndi fyrr á þessu ári myndir sem hún sagði sýna Osama bin Laden ásamt lífvörðum sínum. Sagði stöðin myndirnar hafa verið teknar áður en hryðjuverkin voru unnin í Bandaríkjunum í fyrra. ’ Það gerist alltafeitthvað mjög slæmt þegar bin Laden lætur í sér heyra. ‘ FYRRVERANDI danskur þing- maður, sem ákærður hefur verið í Bandaríkjunum fyrir að hafa haft milligöngu um verslun með fíkni- efni og vopn við kólumbíska stríðs- herra, segist hafa verið njósnari Bandaríkjastjórnar í landinu, að því er lögmaður hans sagði á þriðjudaginn. Daninn, Uwe Jensen, afsalaði sér réttinum til að verða látinn laus gegn tryggingu og verður því í fangelsi þar til mál hans verður tekið fyrir, sem verður að líkindum í næsta mánuði. Lögmaður hans, Erik Sunde, sagðist þurfa meiri tíma til að athuga hvað sé hæft í fullyrðingum Jensens. Stuart Burns aðstoðarsaksóknari kveðst ekki hafa séð neinar vísbendingar sem renni stoðum undir þá fullyrð- ingu Jensens að hann hafi verið út- sendari bandarískra stjórnvalda. Jensen er búsettur í Bandaríkjun- um og var handtekinn í síðustu viku ásamt þremur Kólumbíu- mönnum í Kosta Ríka. Allir hafa verið ákærðir um samsæri um að dreifa kókaíni og áætlanir um að veita erlendum hryðjuverkasam- tökum aðstoð. Bandarísk yfirvöld segja að Jen- sen hafi hitt útsendara alríkislög- reglunnar, sem þóst hafi vera vopnasali, og kynnt hann fyrir ein- um Kólumbíumannanna, Carlos Ali Romero Varela. Hefði samist um, að leynilögreglumaðurinn útvegaði rússnesk vopn og fengi í skiptum fyrir þau kókaín og reiðufé. Hefðu samtöl Jensens og Romeros við leynilögreglumanninn verið tekin upp á segulband. Segist hafa verið njósn- ari Bandaríkjamanna Houston. AP. Fyrrverandi danskur þing- maður ákærður í Bandaríkjunum GENGI GJALDMIÐLA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.