Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 17
skrefi framar
fyrir fjölskylduna
KRINGLAN SMÁRALIND AKUREYRI EGILSSTAÐIR
HALLÓ
KRAK
KAR
- ÉG H
EITI
BOMM
SI
ÞEIR SEM EIGA EFTIRFARANDI SKÍRTEINI
FÁ GEFINS LAUS JÓLASKÓ
120, 408, 37, 736 OG 212.
HALLÓ KRAKKAR
DAGANA 14.-18. NÓVEMBER
VERÐUR BOMMSI Í JÓLASKAPI OG
GEFUR KRÖKKUNUM 30% AFSLÁTT
AF JÓLASKÓM FRÁ LAUS.
MUNIÐ SKÝRTEININ YKKAR!
Kringlunni 8-12 - www.olympia.is - sími 553 3600i l i . l i .i í i
Hvergi meira úrval af
Triumph undirfatnaði
Heimsþekkt gæði og hönnun
„FEMIN CURVES“
110 fm skrifstofuhúsnæði
120 fm vinnustofa/stúdíó
Bílastæði fylgja
Húsið er á rólegum stað
en steinsnar frá kjarna
miðborgarinnar
Húseignin Klapparstígur 16 ehf.,
símar 896 2470 eða 551 3333.
Til leigu
Klapparstígur 16, 101 R.
Í YFIRLÝSINGU, sem Osama bin
Laden er sagður hafa lesið á nýrri
upptöku, er nýlegum hryðjuverkum
fagnað og fleiri árásum hótað ráðist
Bandaríkjamenn á Írak. Ennfremur
er þar haft í hótunum við ríki sem
stutt hafa Bandaríkin í baráttunni
gegn hryðjuverkastarfsemi í heimin-
um.
Talið er að yfirlýsingin hafi verið
tekin upp einhvern tíma á síðustu
tveimur vikum því skírskotað er til
hryðjuverka sem framin voru í síð-
asta mánuði og gíslatökunnar í
Moskvu 23. október.
Hér er birt þýðing á yfirlýsingunni
í heild.
„Mestu morðingjar
aldarinnar“
„Til íbúa þeirra ríkja sem hafa
myndað bandalag með ranglátri
stjórn Bandaríkjanna:
Ferðin til frelsis hefst með enda-
lokum yfirgangsins. Réttlætið felst
aðeins í því að svara í sömu mynt.
Það sem hefur gerst til þessa eftir
sigurinn í New York og Washington –
svo sem aðgerðirnar gegn Þjóðverj-
um í Túnis, sprengjuárásin á franska
olíuskipið í Jemen, árásin á Frakka í
Karachi, aðgerðirnar gegn [banda-
rísku] sjóliðunum í Failaka [Kúveit],
sprengjuárásirnar á Ástrala og Breta
á Balí, auk nýlegrar gíslatöku í
Moskvu og annarra aðgerða hér og
þar – var ekkert annað en svar músl-
íma sem eru ákafir í að verja trú sína
og fara að fyrirmælum Guðs og Spá-
mannsins.
Það sem Bush, faraó aldarinnar,
gerði með því að myrða börn okkar í
Írak og það sem Ísraelar gerðu, með
því að varpa sprengjum á hús aldraðs
fólks, kvenna og barna í Palestínu úr
bandarískum flugvélum var nóg til að
hinir vitru meðal leiðtoga ykkar
héldu sig í hæfilegri fjarlægð frá
þessu glæpahyski.
Fólkið okkar í Palestínu hefur ver-
ið strádrepið og hefur mátt þola ólýs-
anlegar þjáningar í tæpa öld.
Ef við verjum fólkið okkar í Palest-
ínu kemst umheimurinn í mikla geðs-
hræringu og sameinast gegn múslím-
um undir því yfirskini að verið sé að
berjast gegn hryðjuverkum, á rang-
látan og óheiðarlegan hátt.
Vita ráðamenn ykkar ekki að í klík-
unni í Hvíta húsinu eru mestu morð-
ingjar aldarinnar?
Rumsfeld [varnarmálaráðherra] er
morðinginn í Víetnam sem hefur
drepið meira en tvær milljónir
manna.
Cheney [varaforseti] og Powell [ut-
anríkisráðherra] hafa myrt fleiri og
valdið meiri eyðileggingu í Bagdad en
Houlagou [mongóli sem sigraði borg-
ina á 13. öld].
Hvers vegna mynduðu ráðamenn
ykkar bandalag með Bandaríkjunum
til að ráðast á okkur í Afganistan? Og
ég nefni sérstaklega Bretland,
Frakkland, Ítalíu, Kanada, Þýska-
land og Ástralíu.
Ástralar voru varaðir við þátttöku í
stríðinu í Afganistan og auvirðilegu
framlagi til aðskilnaðar Austur-Tím-
or [frá Indónesíu]. En þeir hunsuðu
þessar viðvaranir þar til þeir vöknuðu
við bergmálið frá sprengingunum á
Balí. Seinna hélt stjórn Ástralíu því
ranglega fram að árásin hefði ekki
beinst gegn áströlskum borgurum.
Ef þið þjáist vegna fólksins ykkar
og bandamanna ykkar sem drepnir
voru í Túnis, Karachi, Failaka, Balí
og Amman, skulið þið minnast okkar
fólks sem drepið var ásamt börnun-
um í Palestínu og Írak. Minnist okkar
fólks sem féll í Afganistan.
Þegar þið talið um ykkar fólk sem
dó í Moskvu ættuð þið að minnast
okkar fólks í Tétsníu.
Hversu lengi á ótti, fjöldamorð,
eyðilegging, útlegð, munaðarleysi og
ekkjudómur að vera hlutskipti okkar
á meðan þið eruð þau einu sem fá að
njóta öryggis, friðar og gleði?
Það er kominn tími til að jöfnuður
náist í þessu sambandi.
Eins og þið myrðið, þannig verðið
þið myrt og eins og þið sprengið,
þannig verðið þið sprengd.“
„Múslímaþjóðin
ræðst á ykkur“
„Þannig að múslímaþjóðin er byrj-
uð að ráðast á ykkur með börnum sín-
um, sem hafa lofað Guði að halda
áfram heilagri baráttu okkar með
orði og sverði, til að koma á réttlæti
og uppræta óréttlæti, eins lengi og
hjörtu þeirra slá.
Að lokum biðjum við Guð að hjálpa
okkur til að fylgismenn hans megi
sigra og halda heilögu baráttunni
áfram fram í dauðann til að verð-
skulda miskunn hans.“
Í yfirlýsingunni er skírskotað til
sprengjutilræðisins á Balí sem varð
yfir 190 manns að aldurtila 12. októ-
ber.
Fjórum dögum áður beið banda-
rískur sjóliði bana og annar særðist í
skotárás á kúveisku eyjunni Failaka.
Búlgarskur sjómaður beið bana 6.
október í sprengjuárásinni á franska
olíuskipið í Jemen sem skírskotað er
til í yfirlýsingunni. Ennfremur er þar
minnst á árás á strætisvagn í Karachi
8. maí, sem kostaði 14 menn lífið, m.a.
11 Frakka. Þá er skírskotað til árásar
á samkunduhús gyðinga í Túnis 11.
apríl, en þá lét 21 lífið, þeirra á meðal
14 Þjóðverjar.
Hafði í hótunum við
bandamenn Bush
Nýlegum hryðjuverkum fagnað í yfirlýsingu sem
bin Laden er sagður hafa lesið inn á segulband
Doha. AFP.
’ Eins og þið myrð-ið, þannig verðið þið
myrt. ‘
alltaf á föstudögum