Morgunblaðið - 14.11.2002, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.11.2002, Qupperneq 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 19 heimsæktu www.lancome.com TRÚÐU Á FEGURÐ Lancôme gerir meira fyrir augnhárin en nokkru sinni áður. Einstakur burstinn hefur ótrúlega sveigjandi áhrif. Þétt, fallega löguð og gríðarlega löng augn- hár sem virðast endalaus..... Gífurleg lengd - hrífandi sveigja N ý t t Lancôme útsölustaðir um land allt verið að velta því upp að færa Fjarð- argötuna, sem liggur fyrir framan Fjörð, ofurlítið niður þannig að svæðið frá miðbænum opnist alveg út að sjónum.“ Segir hann að talað sé um að landfyllingarnar yrðu á bilinu 10–14 þúsund fermetrar að flatar- máli. Hann segir þessar hugmyndir til skoðunar í miðbæjarnefnd, hafnar- stjórn og atvinnu- og þróunarráði og þær nefndir muni skila umsögnum sínum í þessari eða næstu viku. Í framhaldinu fari málið til skipulags- og byggingaráðs. „Það á hins vegar eftir að reikna upp fjárhagslegar for- sendur fyrir Norðurbakka ehf. og síðan þarf bæjarfélagið að taka af- stöðu gagnvart þessum landfylling- um.“ Haldið í verðlauna- tillöguna að hluta En þýðir þetta þá að fallið sé frá verðlaunatillögunni frá í vor? „Nei, það má segja að sá hluti verðlauna- tillögunnar sem snýr að núverandi bakkasvæði geti alveg gengið upp,“ segir Gunnar. „Þar var gert ráð fyrir nokkuð lágreistri byggð og byggða- kjörnum sem féllu til samræmis við Vesturbæinn og það var ekki mikil óánægja með það. En það var óánægja með háhýsin á landfylling- unni þarna vestur úr.“ Hann segir því að gangi þessar nýju hugmyndir eftir verði slíkt úr sögunni en bendir þó á að stofn- samningur Norðurbakka ehf. kveði á um að bæjarfélagið skuli gera land- fyllingar vestan við Norðurbakka. Engar ákvarðanir hafi verið teknar og staða málsins nú sé sú að það sé til skoðunar innan bæjarins. HUGMYNDIR, sem lúta að því að hætta við landfyllingar vestan við Norðurbakka í Hafnarfirði, hafa ver- ið kynntar í ráðum og nefndum bæj- arins að undanförnu. Að sögn Gunn- ars Svavarssonar, formanns skipu- lags- og byggingaráðs, er í staðinn gert ráð fyrir minni landfyllingum við bakkann framan við verslunar- miðstöðina Fjörð við Fjarðargötu. Í desember í fyrra stofnuðu Hafn- arfjarðarbær, Þyrping hf. og J&K eignarhaldsfélag ehf., sem eiga fast- eignir á norðurbakka Hafnarfjarðar- hafnar, með sér eignarhaldsfélagið Norðurbakka. Tók samkomulag þessara aðila til skipulagningar og uppbyggingar íbúðarhverfis á norð- urbakkanum og á landfyllingu vest- an við hafnarbakkann. Í byrjun ársins var svo efnt til lok- aðrar hönnunarsamkeppni um skipulag byggðar á bakkanum og í vor var tilkynnt að hollenska teikni- stofan KuiperCompagnions hefði orðið hlutskörpust. Tillaga hennar gerði ráð fyrir um 17 þúsund fer- metra landfyllingu þar sem byggðar yrðu 571 íbúðir í 1–7 hæða háum byggingum. Gunnar bendir þó á að í stofnsamningi Norðurbakka hafi verið gert ráð fyrir allt að 25 þúsund fermetra landfyllingum. Miðbærinn opnaður út að sjó Að hans sögn hefur Norðurbakki ehf. nú kynnt nýjar hugmyndir sem ganga út á að hætta við fyllingar vestan við Norðurbakka. „Núna er verið að skoða hugmyndir um minni landfyllingar framan við verslunar- miðstöðina Fjörð og sömuleiðis er Hætt verði við landfyllingar vestan við Norðurbakka , -. () " . */' (* "  " )) " &$')010 )       . */'   20'0 -.0013'.' Hafnarfjörður Í LITLU fundarherbergi á þriðju hæð á Laugavegi 7 í Reykjavík sit- ur um 10 manna hópur fólks sem á það sameiginlegt að eiga börn í grunnskólum Grafarvogs. Auk þeirra er fræðslustjórinn í Reykja- vík og formaður fræðsluráðs við- staddir en fundarefnið er starfs- áætlun fræðslumála í Reykjavík fyrir árið 2003. Þessi fundur er einn af fimm sem fræðslustjóri á með foreldraráðum grunnskólanna í borginni nú í nóv- ember til að ræða áætlunina en að auki eru sambærilegir fundir haldnir með kennararáðum skól- anna. Það er ýmislegt sem brennur á foreldrunum varðandi starfsáætl- unina og líflegar umræður sem spinnast um hin og þessi atriði. Einstaklingsmiðað nám, sem stefnt er að í starfsáætluninni, er rætt af ákafa og flestir sammála um að það sé jákvætt. En þó vakna spurn- ingar: Krefjast slíkar kennsluað- ferðir ekki þess að færri krakkar séu í bekk en nú tíðkast? Eru kenn- arar tilbúnir fyrir slíkar breyt- ingar? Þurfa skólabyggingarnar ekki að vera stærri til að sinna slíku námi? Afskaplega dýrmætir fundir Fleira ber á góma á borð við lengingu skóladagsins hjá yngstu nemendunum, mataraðstöðu í skól- um, heimanám barnanna og svo mætti lengi telja. Gerður G. Ósk- arsdóttir fræðslustjóri svarar spurningum foreldranna og tekur niður ábendingar um það sem þeim finnst að betur megi fara í starfs- áætluninni og skólastarfinu. „Mér finnst þessir fundir afskaplega dýr- mætir,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið að fundi loknum. „Tilgangurinn er að fá sem víðtæk- ustu viðhorf og sjónarhorn á þróun grunnskólanna í Reykjavík frá ólíkum aðilum og hópum.“ Hún segir að á fundunum sé áhersla lögð á að verið sé að fjalla um stefnu Reykjavíkurborgar í fræðslumálum. „Þarna erum við að gefa þessum hópum tækifæri til að hafa áhrif á stefnuna. Við getum aldrei talað við alla starfsmenn Grunnskóla Reykjavíkur enda eru þeir 2.400 talsins og við getum heldur ekki talað við 30 þúsund foreldra en við lítum svo á að þetta fólk sé fulltrúar þeirra. Þannig að við erum að reyna að fara eins ná- lægt grasrótinni og við getum.“ Gerður bendir á að einhvers kon- ar samráð hafi verið haft við for- eldra og kennara við gerð starfs- áætlana fræðslumála í borginni frá upphafi en fyrsta starfsáætlunin var gerð árið 1997. „Nú er ég búin að gera þetta það oft að það sem brennur á fólki hefur síast mjög vel inn í mig og maður mótast af þessu. Þannig að ég trúi því að það sem er komið núna sem stefna til einhvers tíma byggist á þessu öllu, á gras- rótinni.“ Hún segir þó áhrif koma víðar að, frá útlöndum, fyrir- lestrum, bókum og tímaritum svo eitthvað sé nefnt. Matarmálin ofarlega í huga foreldra Aðspurð segir Gerður mikið til sömu mál brenna á fólki ár frá ári en þó hafi orðið ákveðin breyting þar á. „Fyrir nokkrum árum, þegar þetta var að byrja, brann einsetn- ingin mjög á fólki og ég hafði á til- finningunni að það biði eftir henni og væri mjög óþolinmótt. Núna er einsetningin gengin yfir og þá eru fleiri mál sem koma upp. Núna finnst mér meira talað um kennslu- aðferðir og annað slíkt.“ Hún segist finna fyrir miklum stuðningi foreldra við stefnunna sem sé ákaflega hvetjandi. „Óánægjuraddirnar þarna voru að það væru ekki til nægilega miklir peningar í byggingamál og sömu- leiðis finn ég að matarmálin liggja mjög þungt á fólki. Maður skilur það mjög vel því nú er skóladag- urinn orðinn svo langur og fólk er upptekið af því að börnin þurfi góðan mat í hádeginu. Þessu var fólk ekki eins upptekið af þegar við vorum að byrja enda var skóladag- urinn þá styttri.“ Í framhaldi þessara funda verða athugasemdir við áætlunina rædd- ar í fræðsluráði en að sögn Gerðar má búast við að áætlunin komi út í endanlegu formi á fyrstu dögum næsta árs. Foreldrar gefa sig lítið að skólamálum Björg Bjarnadóttir, sem á sæti í foreldraráði Húsaskóla, er meðal fundargesta þennan eftirmiðdag. Hún telur fundina ákaflega jákvætt tiltak af hálfu fræðsluyfirvalda en hefði þó óskað eftir að lengri tími gæfist til umræða um málefni hvers skóla fyrir sig auk hinnar al- mennu umræðu um starfs- áætlunina sjálfa. Hún segist finna fyrir ákveðnum framförum í áætlun næsta árs. „Það er margt þarna sem er mjög jákvætt og hvað mér viðvíkur þá finnst mér virkilega spennandi að sjá hvernig grunnskólanum tekst að þróa einstaklings- miðaða námið. Það krefst ákveðinnar þolinmæði og þetta tekur langan tíma en maður finnur að það er vilji hjá fræðsluyfirvöldum til að breyta grunnskólanum. Og mér finnst kominn tími til þess.“ Opnar nýja vídd Að hennar mati gefa for- eldrar sig almennt lítið að skólamálum nema eitthvað sér- stakt knýi á varðandi þeirra eigið barn. Hún segir aðspurð freistandi að álykta að þetta þýði að foreldrar séu almennt sáttir. „Sem foreldri finnst mér það opna alveg nýja vídd og nýja sýn á skólann að taka þátt í skólastarfinu á þennan hátt og maður græðir svo mikið á því að gefa sér tíma í þetta. En obbinn af foreldrunum gerir það ekki og stendur því miður fyrir utan þessa umræðu.“ En heldur Björg að þær hug- myndir sem koma fram á fund- unum skili sér inn í starfsáætl- unina? „Já, ég er nokkuð sannfærð um að þær hugmyndir sem koma þarna fram eru skoðaðar. Ég er al- veg viss um að þetta er ekki bara leikur – það er ákveðinn vilji þarna á bak við til að heyra sjónarmið foreldra og þeir sem veljast í þessi foreldraráð eiga auðvitað að vera talsmenn. Það er þó líka erfitt því það er aldrei hægt að tala einni rödd fyrir svona stóran hóp enda er fólk sem betur fer með mis- jafnar skoðanir á málunum.“ Fræðslustjóri fundar með foreldrum grunnskólabarna „Fólk er sem betur fer með misjafnar skoðanir“ Grafarvogur Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri í hópi foreldra í Grafarvogi. Morgunblaðið/Kristinn EINUM nemanda í hverjum grunnskóla í Reykjavík verða veitt hvatningarverðlaun á næsta ári en fræðsluráð Reykjavíkur samþykkti þetta á fundi sínum á mánudag. Segir í fréttatilkynningu að leit- að verði eftir tilnefningum og rök- stuðningi innan skólasamfélags- ins og dómnefnd sett á laggirnar innan hvers skóla. Þeir sem geta tilnefnt nemanda til verðlaunanna eru hins vegar starfsmenn, kenn- arar, foreldrafélög, foreldraráð, nemendaráð og aðrir sem koma að skólastarfinu. Góður námsárangur, framfarir, virkni í félagsstarfi, listsköpun, fé- lagsleg færni, nýsköpun og hönn- un eru dæmi um þá þætti sem hægt er að tilnefna nemendur fyr- ir en stefnt er að því að veita verð- launin samtímis ráðstefnu og sýn- ingu í byrjun næsta árs þar sem nýsköpun og þróun í skólastarfi verður í brennipunkti. Nemendur fá hvatn- ingarverðlaun Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.