Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 26
LISTIR
26 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Björg – Verk
Bjargar C. Þor-
láksson. Höf-
undar eru Annadís
Gréta Rúd-
ólfsdóttir, Bryndís
Birnir, Helga
Kress, Inga Þórs-
dóttir, Sigríður
Dúna Kristmunds-
dóttir, Sigríður Þorgeirsdóttir og
Steindór J. Erlingsson. Ritstjóri er
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.
Björg C. Þorláksson var fyrsta ís-
lenska konan sem lauk doktorsprófi.
Ævisaga Bjargar eftir Sigríði Dúnu
kom út í fyrrahaust og hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin í flokki fræði-
rita.
Hér eru það verk þessarar fyrstu
fræðikonu Íslendinga sem eru til um-
fjöllunar. Einnig er hér birt úrval úr rit-
um hennar sem lengi hafa verið óað-
gengileg og sumt aldrei birst á prenti
fyrr.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Verk Bjargar eru um margt ein-
stök. Þar er að finna glímu hennar við
grundvallarspurningar um uppruna og
þróun lífsins og samtvinnun líkama
og sálar. Þó að Björg teldi sig fyrst og
fremst heimspeking var hún í raun
fjölfræðingur. Hún ritaði töluvert um
næringarfræði og var brautryðjandi á
Íslandi á því sviði. Einnig fjallaði hún
um kvenréttindi og önnur þjóðfélags-
mál og reyndi með skrifum sínum að
stuðla að framförum og þróun ís-
lensks samfélags.“
Útgefandi er JPV-útgáfa. Bókin er
343 bls. Verð: 4.980 kr.
Lífsstarf
NÚTÍMADANSHÁTÍÐIN Reykja-
vík Dansfestival 2002 hefst í
kvöld og stendur yfir í Tjarn-
arbíói til 17. nóvember.
Þetta er í fyrsta skipti sem há-
tíðin er haldin en stefnt er að því
að hún verði árlegur viðburður.
Markmið Reykjavík Dansfestival
er að skapa vettvang þar sem
sjálfstætt starfandi danshöfundar
kynna verk sín. Þeir sem að há-
tíðinni standa eru meðal fremstu
dansara og danshöfunda á Ís-
landi, þ.e. þau Ástrós Gunn-
arsdóttir, Jóhann Freyr Björg-
vinsson, Cameron Corbett,
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Ólöf
Ingólfsdóttir og Nadia Banine.
Þau eru jafnframt höfundar
dansverkanna sem flutt verða á
hátíðinni, en í verkunum hafa
þau fengið fleiri dansara og lista-
fólk til liðs við sig.
„Upphaflega kom þessi hópur
saman til þess að ræða um stofn-
un nýs dansflokks. Okkur langaði
til að taka höndum saman um að
skapa hér mótvægi við Íslenska
dansflokkinn sem er eini starf-
andi dansflokkurinn hér á landi
og búa til atvinnulegan og list-
rænan vettvang fyrir aðra dans-
ara. Út frá þessu fæddist sú hug-
mynd að efna til þessarar
danshátíðar, vettvangs sem hægt
væri að koma að, dansa í eða
semja fyrir, á hverju ári. Við
sóttum víða um styrki fyrir verk-
efnið og eru stærstu styrktarað-
ilar hátíðarinnar menningar-
málanefnd Reykjavíkurborgar,
Menningarborgarsjóður og Ís-
landsbanki,“ segir Jóhann Freyr
Björgvinsson þegar blaðamaður
sest niður með honum og
Rebekku Sigurðardóttur fram-
kvæmdastjóra til þess að ræða
um tilurð og dagskrá hátíð-
arinnar.
Dagskráin hefst kl. 20.30 í
kvöld með sýningu þriggja frum-
samdra dansverka, en þau eru
Skin eftir Ástrósu Gunnarsdóttur,
Solo2 eftir Cameron Corbett og
Rokstelpan, dansleikhús eftir
Sveinbjörgu Þórhallsdóttur.
„Þetta eru alls sex verk eftir
ólíka danshöfunda. Öll verkin eru
frumsamin fyrir hátíðina, nema
dansverk þeirra Ólafar Ingólfs-
dóttur og Ismo-Pekko Heik-
inheimo, Bylting hinna miðaldra,
sem sýnt var í Borgarleikhúsinu
síðastliðið vor og hefur verið á
flakki um danshátíðir síðan. Sýn-
ingar verða kl. 20.30 í dag, föstu-
dag, laugardag og sunnudag, auk
þess sem sýningar verða kl. 17
um helgina,“ segir Rebekka.
Auk verkanna sem upp eru tal-
in eru á dagskrá dansverkin
Rosered eftir Jóhann Frey og Í
draumi eftir Nadiu Katrínu Ban-
ine, en 1–3 verk eru sýnd saman
á hverri sýningu. Í verkunum
hafa danshöfundar fengið lista-
fólk af ýmsum sviðum til liðs við
sig, m.a. tónlistarhöfunda, hönn-
uði, textahöfunda og leikhúsfólk.
Misjafn bakgrunnur
„Verkin sem flutt eru á hátíð-
inni eru mjög fjölbreytt og hvert
öðru ólík. Það helgast af því að
danshöfundarnir eru menntaðir í
ólíkum löndum og hafa misjafnan
bakgrunn í dansinum. Jóhann
hefur t.d. bakgrunn í klassískum
Ný og fjölbreytt nútímadanshátíð haldin í Tjarnarbíói
Samspil
milli
listforma
Dansverk Sveinbjargar Þórhallsdóttur, Rokstelpan, verður meðal verka
á dagskrá danshátíðarinnar Reykjavík Dansfestival 2002.
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur gerði ný-
verið samning um útgáfu á bók Þor-
valdar Þorsteinssonar, Ert þú Blíð-
finnur, ég er með
mikilvæg skila-
boð, við spænska
bókaforlagið Sir-
uela. „Bókina
kemur út í flokkn-
um „Tres Edad-
es“ eða „Þrjú
ríki“ eins og
fyrsta bókin Ég
heiti Blíðfinnur
en þú mátt kalla
mig Bóbó, en það er afar vinsæll
bókaflokkur á Spáni hugsaður fyrir
aldurshópinn 8–88 ára. Í þessum
bókaflokki hafa verið gefnir út fjöl-
margir heimsþekktir höfundar og
mun Þorvaldur vera þar í fríðu föru-
neyti Josteins Gaarders, Magnusar
Enzensbergers og Carol Hughes svo
fáeinir séu nefndir,“ segir Snæbjörn
Arngrímsson hjá Bjarti.
Réttindastofa Bjarts gekk einnig
frá samningi við ungverska forlagið
Korna Kiato um útgáfu á fyrstu bók-
inni um Blíðfinn. Kemur bókin út í
desember á ungversku.
Nú hafa bækurnar um Blíðfinn
verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Mun þýski útgáfurisinn Bertels-
mann stefna á að selja fyrstu bókina
um Blíðfinn í 100.000 eintökum í
kiljuútgáfunni sem kemur út í mars
á næsta ári. En harðspjaldaútgáfa
bókarinnar seldist í um 10.000 ein-
tökum á fimm mánuðum á þessu ári.
Blíðfinnur
til Spánar
Þorvaldur
Þorsteinsson
veturinn ætti ég að vera í píanó-
tímum daglega allt sumarið og
það gerði ég í þrjú ár. Hann lagði
mikla áherslu á að kenna mér að
vinna vel, og lét mig æfa strax
átján Chopin-etýður. Þær hafa
hver sinn karakter og hver þeirra
krefst sinnar aðferðar í vinnslu
og æfingu. Ég get ekki sagt að ég
hafi notið Chopins þá, því kenn-
arinn var mjög harður við mig og
lét mig vinna mikið. Ég æfði ekki
bara etýðurnar, því hann lét mig
líka æfa konsertinn, sónöturnar,
prelúdíurnar, skertsóin, masúrk-
ana og ballöðurnar, auk tónlistar
eftir önnur tónskáld. Hann vék
ekki frá mér allan daginn og
hlustaði á mig æfa þetta; – og næsta morgun var
hann mættur aftur. En þegar ég lít til baka
þakka ég honum þótt þetta hafi verið erfitt.
Hann sagði að markmið sitt væri að gera mig að
píanóleikara fyrir lífstíð; – ég átti semsagt að
læra að vinna vel og þetta var mikil reynsla.“
Chopin átti eftir að rata til Ann Schein eftir
fleiri leiðum, því hún vann mikið með tveimur
þekktum píanóleikurum af pólskum ættum sem
báðir höfðu dálæti á þessu mikla tónskáldi föð-
urlands þeirra. Annar þeirra var Artur Rub-
instein, sem var bæði lærimeistari hennar og
vinur. Þegar hún var að æfa fyrir Chopin-
tónleikaröðina árið 1980 var Rubinstein henni til
aðstoðar allan tímann.
Í kvöld er Chopin enn í höndum Ann Schein,
og þrátt fyrir harðar æfingarnar á unglings-
árum segist hún elska verkið og elska að spila
það. Þegar hljómsveitarstjóri kvöldsins, Stan-
islaw Skrowaczewski, var að leggja til hvaða pí-
anókonsertar færu vel með níundu sinfóníu
Bruckners, sem verður líka spiluð á tónleik-
unum í kvöld, fékk Ann Schein lista yfir þau
verk sem komu til greina. Chopin-konsertinn
var þar, og hún ákvað strax að spila hann.
Merkilegt nokk, – leiðir Ann Schein og
Skrowaczewskis lágu saman í þessu verki á tón-
ANN Schein leikur einleik íPíanókonsert nr. 2 í f-mollop. 21 eftir Chopin á Sin-fóníutónleikum í kvöld. Ann
Schein kom hingað fyrst árið 1958 á
leið í tónleikaferð til Evrópu. Reykja-
vík var fyrsti staðurinn í heiminum
sem hún heimsótti utan Bandaríkj-
anna, og hér lék hún einmitt verkið
sem hún leikur í kvöld, annan píanó-
konsert Chopins. Hún kom hingað
nokkrum sinnum á árunum um 1960.
Ann Schein kom ekki aftur fyrr en í
hitteðfyrra. Síðan þá hefur hún kom-
ið nokkrum sinnum.
Ann Schein var orðin þekkt strax á
unglingsaldri, og ferðaðist víða um
heim til tónleikahalds og var mikils
metin. Það þótti því mörgum súrt í broti þegar
hún lagði einleikaraferilinn á hilluna til að sinna
fjölskyldu sinni í lok áttunda áratugarins. En
hún kvaddi tónleikasviðið með stæl, því árið
1980 vann hún það afrek að spila öll píanóverk
Chopins í Alice Tully Hall í New York, í tón-
leikaröð sem stóð í nokkra mánuði. Með Chopin-
tónleikunum vann Ann mikinn listrænan sigur
og vakti ómælda hrifningu jafnt gagnrýnenda
sem áheyrenda. En Ann Schein var ekki horfin
af sjónarsviðinu. Árið 1995 sneri hún aftur og
hafði engu gleymt. En hvernig voru kynnin af
Chopin?
„Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera alla
tíð hjá góðum kennurum. Ég byrjaði að læra
fjögurra ára og kennari minn þá lét mig aldrei
æfa neitt annað en úrvalstónlist; þar á meðal
prelúdíur Chopins. Ég man ekki til þess að hún
hafi lagt meiri áherslu á Chopin en önnur tón-
skáld, en hann var vissulega þarna á sínum stað.
Eiginmaður kennara míns var tónlistargagnrýn-
andi og þau gáfu mér fyrstu plötuna sem ég
eignaðist. Það voru Chopin-etýður sem ég varð
mjög spennt fyrir. Þegar ég kom til næsta kenn-
ara, þrettán ára gömul, lét hann mig strax byrja
að æfa konsertinn sem ég spila í kvöld. Hann
sannfærði foreldra mína um að auk námsins yfir
leikum í Minneapolis á sjöunda áratugnum, þar
sem hann stjórnaði og hún lék, – eins og í kvöld.
„Ég held að Skrowaczewski sé einn mesti lista-
maður sem við eigum í dag. Ég á erfitt með að
koma orðum að því hvaða þýðingu það hefur
fyrir mig að fá þetta tækifæri til að vinna með
honum.“
Stanislaw Skrowaczewski fæddist í Póllandi
árið 1923 og hóf fiðlu- og píanónám fjögurra ára.
Hann samdi fyrsta sinfóníska verk sitt sjö ára
gamall, hélt opinbera píanótónleika ellefu ára og
stjórnaði þriðja píanókonsert Beethovens frá
hljómborðinu tveimur árum síðar. Vegna hand-
meiðsla lagði hann píanóleik á hilluna á stríðs-
árunum, og hefur síðan einbeitt sér að hljóm-
sveitarstjórn og tónsmíðum. Eftir seinni
heimsstyrjöldina lærði Skrowaczewski hjá Nad-
iu Boulanger í París og sigraði í Alþjóðlegu
hljómsveitarstjórakeppninni í Rómaborg 1956.
Eftir sigurinn þar hefur ferill hans verið óslitin
frægðarför.
Skrowaczewski og Ann Schein verða gestir
Vinafélags Sinfóníuhljómsveitarinnar eftir tón-
leikana í Sunnusal Hótels Sögu. Að sögn Guð-
rúnar Nordal, formanns Vinafélagsins, er fé-
lagsskapurinn öllum opinn, en markmið hans er
að efla tengsl milli hljómsveitarinnar og áheyr-
enda hennar. „Þetta er fyrsta starfsár félagsins;
við erum að móta starfsemina og reyna að skapa
lifandi samfélag kringum starf hljómsveit-
arinnar og vettvang þar sem listamennirnir
mæta áheyrendum.“ Í fyrsta lagi býður Vina-
félagið upp á opnar æfingar þar sem félagar
geta komið og hlustað á hljómsveitina undirbúa
tónleika. Í öðru lagi er boðið upp á kynningu
fyrir tónleika, þar sem gestur er fenginn til að
tala um eitthvað sem tengist tónleikastarfinu.
Fyrr í vetur kom Sigrún Eðvaldsdóttir á slíkan
fund og kynnti starf konsertmeistarans. Í þriðja
lagi er boðið upp á dagskrá eins og í kvöld, þar
sem tónleikagestir eiga þess kost að hitta og
ræða við listamenn kvöldsins. Starfsemi Vina-
félagsins er kynnt á heimasíðu hljómsveit-
arinnar: www.sinfonia.is.
Tónleikarnir í kvöld hefjast að vanda kl. 19.30.
Með Chopin í fingrunum
frá fjögurra ára aldri
Ann Schein
♦ ♦ ♦