Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 27
ballett á meðan Ástrós kemur úr fimleikum og djassballett,“ segir Rebekka. „Ólöf er upprunalega menntuð sem myndlistarkona og kemur því með allt aðra sýn á dansinn,“ bætir Jóhann við. „Nadia er í ná- inni samvinnu við leikhúsfólk í sínu verki og er mikið samspil leikhúss og dans í því verki. Í öll- um verkunum er að finna ein- hvers konar samspil milli list- forma, eins og t.d. tónlistar sem er ákaflega mikilvægur hluti af hverju dansverki. Það eru líka ólíkir stílar milli landa. Cameron er t.d. Bandaríkjamaður og er hans verk talsvert ólíkt hinum, þar er mikil áhersla á spor, líkt og reyndar hjá Ástrósu en hún er líka menntuð í Bandaríkjunum. En einn af kostum hátíðarinnar er einmitt þessi breidd verkanna, og er hugmyndin sú að bæði dansáhugafólk og almenningur geti fengið innsýn í ólík verk, allt frá einföldum verkum, sem fólk á auðvelt með að túlka, til óræðari verka sem höfða e.t.v. meira til skynjunar áhorfandans,“ segir Jóhann. Aðstandendur Reykjavík Dans- festivals 2002 segjast vonast til þess að hátíðin geti orðið fastur liður í menningarlífi borgarinnar. „Með hátíðinni vildum við sýna fram á að hér á landi er nóg af atvinnufólki í dansi til að standa svona verkefni. Vonandi heppn- ast þessi frumraun vel því mark- miðið er að hátíðin fái að vaxa á næstu árum. Við leggjum áherslu á að komast í tengsl við aðrar danshátíðir og vonumst til þess að erlendir danshópar geti tekið þátt næsta ár. Vettvangur á borð við þennan ætti einnig að skapa möguleika fyrir íslenska dansara til að koma sér á framfæri á er- lendum danshátíðum. Þannig að hátíðin í ár er vonandi bara fyrsta skrefið í stærra ferli,“ seg- ir Jóhann að lokum. LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 27 ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. HALLVEIG Rúnarsdóttir sópr- ansöngkona hélt sína fyrstu op- inberu einsöngstónleika í Karla- kórshúsinu Ými í Skógarhlíð á sunnudagskvöld við allgóða að- sókn. Með henni á píanó lék Árni Heimir Ingólfsson. Hallveig ætti að vera skínandi dæmi um gildi tónlistaruppeldis hjá söngelskri fjölskyldu. Viðbótarreynslu hlaut hún m.a. í Hamrahlíðarkórnum og Hljómeyki áður en hún hóf söng- nám hjá Sigurði Demetz og síðar hjá Rut L. Magnússon í Tónlistar- skólanum í Reykjavík, en útskrif- aðist með láði 2001 eftir þriggja ára framhaldsnám í Guildhall í London. Ýtt var úr vör með einum fræg- asta sönglagabálki Roberts Schu- mann, hinum átta laga Frauen- liebe und -leben frá 1840 við ljóð Adelberts von Chamisso. Miðað við eldri sönglög vínarklassíska skeiðsins fyrir „rödd og undirleik“ hefur píanóið hér öðlazt stærra hlutverk og sönglínan orðin sam- ofnari spilinu. Unga stúlkan, sem í kvæðabálki Chamissos upplifir fyrstu ástina, er feimin og hlédræg í fyrsta ljóðinu. Henni eykst þó dirfska og gleði þegar í „Er, der herrlichste von allen“ (2.) en verð- ur í lokin að meðtaka svik og sárs- auka, napurri reynslu ríkari. Stelpan er orðin full- veðja kona. Hallveig fór með þessi meistaralegu lög af viðkvæmri nær- gætni sem átti vel við í byrjun, en hefði kannski mátt gefa sér lausari taum þegar á leið. Auk þess verk- uðu sumar hendingar fullafmarkaðar, að maður segi ekki and- stuttar, líkt og sungn- ar væru með of mikl- um stuðningi, og hefðu þurft að flæða aðeins breiðar. Texta- túlkunin var samt inn- lifuð og þýzki framburðurinn yf- irleitt skýr, þótt betur hefði mátt gæla við endasamhljóðin. Slétta raddbeitingin í lokakvæðinu var í fallegu samræmi við textann (t.d. „Die Welt ist leer“) og hefði mátt heyrast töluvert oftar til tilbreyt- ingar. Þá virtist í sama tilgangi mega stefna að aukinni fyllingu á neðra tónsviði, því þótt fáar hér- lendar söngkonur skáki birtu og tærleika Hallveigar í hæðinni, lifir enginn á henni einni saman. Árni Heimir lék með af mikilli lipurð og syngjandi mýkt er minnt gat á fyrrverandi læriföður hans Jónas Ingimundarson, sérstaklega í Du Ring an meinem Finger (4.). Síðari verkin virtust liggja hlut- fallslega betur fyrir núverandi rödd Hallveigar en Frauenliebe- lögin sem eru jöfnum höndum sungin af sópran og mezzo, jafnvel alt. Fyrst var þriggja laga flokkur, Stemningar, eftir systur söngkon- unnar Hildigunni Rúnarsdóttur og samin við ljóð eftir Þuríði Guð- mundsdóttur. Þetta voru fíngerð og falleg lög, að mestu á tónölum grunni en án þess að verka gamaldags. „Í ást sólar“ var að hluta byggt ofan á þrástefi, sérlega tært samið og sungið. Nokkru dimmara var yfir „Líf og ljóð“ er leitt gat hugann að n.k. Balk- anþjóðlagaskotnum impressjónisma í ósamhverfum taktteg- undum. „Klippimynd“ sveif lengst af yfir kyrrlægum orgel- punkti í stöðugt ítrek- uðum áttundarstökkv- um, framan af í e.k. moll en í lokin í seið- andi þokkafullum dúr. Þau Hall- veig túlkuðu þessa ljóðrænt gegn- sæju tónlist af næmri alúð og barnslegu hrifnæmi í nánu sam- ræmi við textann. Eftir hlé kom fyrst að þrem bráðfallegum lögum frá fyrra flokki Debussys úr Fêtes galantes sem hljómuðu ekki síður fallega í meðförum Hallveigar, ugglaust bæði þökk sé frekar hárri legu og undangenginni upphitun. En sourdine var fágað sem kínverskt postulín, Fantoches iðaði af próv- ensölskum sumarfuna og vantaði bara tambúrínið, og í Clair de lune (ólíku samnefndu píanólagi en ekki síður heillandi) skartaði söngkon- an meiri fjölbreytni í meðferð tónalita en áður gat að heyra í einu og sama lagi. Berlioz-lögin þrjú úr „Sumar- nóttum“ voru að vonum róman- tískari í stíl en samt gædd svipaðri suðrænni hlýju, með dillandi hljómborðs„mandólín“ í Villanelle en lygnri líðandi melódík í Le Spectre de la Rose og L’Île in- connue, og tókust prýðilega. Loks voru þrjú söngleikslög eftir Kurt Weill. Fyrst Alabama Song úr Mahagonny (1929) sem opinberaði brumandi hæfileika Hallveigar til gamansöngs, en að endingu tvö lög úr Lady in the Dark. Nánar til tekin hin eftirminnilega ballaða My Ship (með fallega sléttum lokabrjósttóni a la Kim Criswell) og „burlesque“-gamanperlan The Saga of Jenny sem Hallveig tók með kersknu togarajaxlatrompi við fjaðurmagnaðan píanómeðleik Árna Heimis og glimrandi góðar undirtektir áheyrenda. TÓNLIST Ýmir „Debút“-tónleikar Hallveigar Rúnars- dóttur sóprans. Schumann: Frauenliebe und -Leben. Hildigunnur Rúnarsdótt: Stemningar. Debussy: Fêtes Galantes. 3 lög úr Les Nuits d’Été eftir Berlioz. Weill: Alabama Song, My Ship & The Saga of Jenny. Píanóleikur: Árni Heimir Ingólfs- son. Sunnudaginn 10. nóvember kl. 19:30. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Hallveig Rúnarsdóttir Víðfeðm frumraun Hátíðarfatnaður íslenskra karlmanna Hátíðarfatnaður íslenskra karlmanna hefur notið mikilla vinsælda frá því farið var að framleiða hann. Færst hefur í vöxt að íslenskir karlmenn óski að klæðast búningnum á tyllidögum, svo sem við útskriftir, giftingar, á 17. júní, þorrablót, við opinberar athafnir hérlendis og erlendis og við öll önnur hátíðleg tækifæri. Nýtt kortatímabil Pantanir óskast sóttar Herradeild Laugavegi, sími 511 1718. Herradeild Kringlunni, sími 568 9017. P ó st se n d u m Hátíðarföt með vesti 100% ull skyrta, klútur og næla kr. 36.900 Allar stærðir til 46— 64 98—114 25— 28 RÉTTINDASTOFA Eddu – miðlun- ar og útgáfu hefur gengið frá samn- ingi við Bastei-Lübbe um útgáfu á Röddinni eftir Arnald Indriða- son í Þýskalandi. Bastei-Lübbe hefur áður tryggt sér réttinn á þremur öðrum bókum Arnaldar, Mýrinni, Sonum duftsins og Graf- arþögn og mun fyrsta bók hans á þýskum bókamarkaði líta dagsins ljós í febrúar á næsta ári. Bastei- Lübbe tilheyrir einni stærstu út- gáfusamsteypu Þýskalands og hefur á sínum snærum höfunda á borð við Stephen King og Ken Follett. Verk Arnaldar hafa vakið mikla athygli erlendis að undanförnu og er þess skemmst að minnast að stærsta út- gáfufyrirtæki heims, Random House, keypti réttinn á Grafarþögn og Mýrinni í Bretlandi nú í haust. Þá eru bækur hans væntanlegar á sænsku, dönsku, finnsku og hol- lensku. Röddin hljóm- ar í Þýskalandi Arnaldur Indriðason ELSA Waage kontraaltsöngkona hélt einsöngs- tónleika í Cinema Nuovo í Sovico á Ítalíu á dög- unum. Meðleikari hennar á tónleikunum var Giulio Zappa. Efnisskráin samanstóð af skandinavískum söng- lögum; allt frá vel þekktum lögum eins og Var det en dröm eftir Sibelius og lagi Atla Heimis Sveins- sonar, Það kom söngfugl að sunnan, til laga á borð við Tonerne eftir Sjöberg og drykkjuvísu Carls Nielsens, Vise af Mogens. Elsa blandar gjarnan saman klassík og kabar- ettlögum á tónleikum sínum og fyrir jólin mun hún halda tónleika í Como þar sem hún flytur Wesend- onkljóð Wagners með hljómsveit fyrir hlé og Kurt Weill-slagara eftir hlé. Elsa Waage syngur á Ítalíu Elsa Waage og Giulio Zappa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.