Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 29

Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 29 MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yf- irlýsing: „Við undirrituð sem störfuðum í kjörstjórn á Akranesi vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vísum ásökunum Vilhjálms Egilssonar á bug þar sem hann sakar okkur um kosningasvindl. Í viðtali við Morgunblaðið í gær segir Vilhjálmur m.a.: „Svo gerðist það að þegar utankjörstaða- atkvæðagreiðslunni var lokið á Akranesi rifu þeir upp alla atkvæðaseðlana og sturtuðu öllum at- kvæðunum í pott, sem er aldrei gert og þrátt fyr- ir skýr fyrirmæli um annað.“ Þetta eru hrein ósannindi í Vilhjálmi. Þegar kjörstað var lokað fórum við í að stemma af þann fjölda sem kaus og bera saman við fjölda kjör- seðla sem við fengum. Þegar ljóst var að allt stemmdi og búið var að ógilda þau atkvæði sem beðið var um opnuðum við ytra umslagið og sett- um ómerkta umslagið með atkvæðaseðlinum í kjörkassann eins og lög og reglur kveða á um og gert er í öllum kosningum, til alþingis og sveit- arstjórna. Það má einnig geta þess að það var mál þeirra sem stóðu að talningunni í Borgarnesi að Akra- nes hefði verið eini staðurinn í kjördæminu sem skilaði inn kjörgögnun og kjörskrá með fullnægj- andi hætti. Það kom fram í fréttum Stöðvar 2 á sunnudag að ekki hefði verið hægt að byrja að telja strax vegna atkvæða frá Akranesi. Þetta er líka lygi þar sem kjörgögn frá Bolungarvík og Ísafirði voru þannig að ekki stemmdi. Ekki hafði verið merkt við í kjörskrá og í ljós kom að þar hafði fólk kosið sem ekki hafði til þess heimild. Því hefði átt að ógilda þau atkvæði en það var hins vegar ekki gert. Við getum ekki setið undir þessum ásökunum öllu lengur. Upp kom ágreiningur um fram- kvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar og Akurnesingar voru þeir einu sem viðurkenndu mistök og leiðréttu þau. Síðan var haldinn fundur með fulltrúum allra frambjóðenda og gert sam- komulag um að málinu væri þar með lokið. Fram- bjóðendur hafa ekki staðið við það samkomulag. Í viðtali við Vilhjálm á mbl.is á fimmtudaginn kem- ur m.a. eftirfarandi fram: „Að hans sögn verða engin eftirmál af hans hálfu vegna þessa máls: „Þetta var leiðrétt. Ég er ekki að álasa mönnum og reikna með því að þeir hafi gert þetta í góðri trú en það verða að gilda sömu reglur fyrir alla …““ Eins og Vilhjálmur viðurkenndi í fréttum í gær og fram kemur í Fréttablaðinu í dag var utan- kjörfundaratkvæðagreiðslan framkvæmd með sama hætti og á Akranesi um allt kjördæmið án þess að atkvæði hefðu verið gerð ógild annars staðar. Því er ljóst að ekki gilda sömu reglur fyr- ir alla. Auk þess má benda á ýmsa aðra annmarka á framkvæmd prófkjörsins. M.a. ófullnægjandi kjörskrár þar sem erlendir ríkisborgarar, sem væntanlega hafa ekki kosningarétt í vor, voru á skránum. Ekki hefur verið gerð athugun á því hvort þeim var heimilt að kjósa né hversu margir þeirra kusu. Kjörstjórn Akraness vísar því algerlega á bug að hún hafi staðið óeðlilega að meðferð kjörgagna og framkvæmd kosninganna eins og Vilhjálmur heldur fram. Akranesi 13. nóvember 2002. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir Axel Axelsson Valdimar Axelsson Benedikt Jónmundarson Herdís Þórðardóttir.“ Yfirlýsing frá undirkjörstjórn á Akranesi Morgunblaðið/RAX ikt na í Jóhann Kjartansson, formaður kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, lokar að fundarmönnum, sem samþykktu ein- róma yfirlýsingu um þremur klukkustundum síðar. Kjörnefndarmennirnir Jónas Guðmundsson, Grétar Pálsson og Gunnar Sigurðsson voru alvarlegir eins og aðrir á fundum dagsins og höfðu um nóg að hugsa enda þurfti að leysa erfiða deilu. Það tókst með sameiginlegri og ágreiningslausri nið- urstöðu, en til fundanna var boðað til að viðra öll sjónarmið og fara vel í gegnum þau. Valgarð Halldórsson, framkvæmdastjóri prófkjörsins, og áréttaði að fundurinn hefði verið góður. Niðurstöður prófkjörsins standa Þórólfur Halldórsson, formaður kjördæm- isráðsins, sagði að niðurstaðan væri afskap- lega ánægjuleg. „Við komumst að sameig- inlegri niðurstöðu og hún er ágreiningslaus.“ Með hliðsjón af því að farið hefði verið yfir málið í heild sinni taldi Þórólfur að ekki hefði farið mikill tími í fundi dagsins. „Til fund- arins var boðað til að viðra öll sjónarmið og fara vel í gegnum þau. Það er mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn og framboð hans í kjör- dæminu að menn nái góðri samstöðu um hlutina, sérstaklega í ljósi þess sem á undan er gengið.“ Þórólfur sagðist ekkert hafa um yfirlýs- ingu frá undirkjörstjórn á Akranesi að segja. Hún hefði verið lesin upp áður en samþykkt fundarins hefði verið gerð og ekki breytt neinu í því sambandi. Hann segist vona að prófkjörsdeilan hafi ekki neikvæðar afleið- ingar, en nauðsynlegt hafi verið talið að end- urtelja atkvæðin í prófkjörinu í ljósi allra að- stæðna til að eyða þeirri tortryggni sem kunni að hafa verið til staðar. „Við erum að reyna að draga úr þeim neikvæðu áhrifum sem þetta kann að hafa haft á framboð Sjálf- stæðisflokksins í kjördæminu. Nú blasir ekk- ert annað við en að taka kúrsinn á kosning- arnar í vor.“ Hefði komið upp ágreiningur í kjörstjórn- inni hefði þurft að vísa honum til stjórnar kjördæmisráðsins, en til þess kom ekki. „Þetta er þannig í Sjálfstæðisflokknum að þar eru menn óhræddir við að skiptast á skoðunum en menn bera líka gæfu til þess að komast að niðurstöðu. Það er mergurinn málsins,“ segir Þórólfur og leggur áherslu á að í lok janúar verði síðan tekin endanleg ákvörðun um framboðslistann. Hann segir að það standi óbreytt að Vilhjálmur Egilsson al- þingismaður hafi áunnið sér 5. sætið í próf- kjörinu og eigi rétt á því, kjósi hann að taka það. „Það er á hans valdi,“ segir hann og bætir við: „Aðalatriðið er það að við látum niðurstöður prófkjörsins standa.“ gögnum og kjörskrá með fullnægjandi hætti væri ekki rétt. „Ég hef ekki verið með neinar ásakanir á hendur mönnum en geri þá kröfu að framkvæmdin sé rétt og það sé rétt að henni staðið,“ sagði hann og bætti við að ver- ið væri að vinna eftir ákveðinni sáttaleið í málinu. „Við leggjum okkur að sjálfsögðu fram í því.“ Þriðja lotan var sameiginlegur fundur stjórnar kjördæmisráðsins og kjörnefndar, þar sem yfirlýsing kjörnefndar var kynnt, og virtust menn koma ánægðir út af þeim fundi. „Ég styð yfirlýsingu kjörnefndar heilshugar,“ sagði nblaðið að mikilvægt væri að taka á vand- num heima fyrir frekar en að vísa deilunni l miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins og gaf til ynna að hugsanlega þyrfti að kjósa aftur. Hann sagðist virða niðurstöðu kjörnefndar og ótt farið yrði yfir málið heima í héraði væri að tillaga kjörnefndar sem yrði lögð fyrir jördæmisráðsþingið í janúar. Ágúst Þór sagði að yfirlýsing undirkjör- tjórnar á Akranesi væri afar klaufaleg egna þess að atriði í henni væru ekki sann- eikanum samkvæmt og nefndi í því sambandi ð sú staðhæfing að Akranes hefði verið eini taður kjördæmisins sem skilaði inn kjör- á kosningarnar prófkjörinu í næstu 1–3 vikum fyrir fyrsta prófkjörsdag, eftir nánari ákvörðun kjör- nefndar, og þá á sérstökum kjörstað (kjör- stöðum) innan eða utan kjördæmis, sem hún hefur opinn í þessu skyni.“ Fram hefur komið í fjölmiðlum að „mis- skilningur“ hafi orðið milli manna og að menn hafi talið að heimilt væri að fara með kjör- gögn af kjörstað. Í prófkjörsreglunum er að finna ákvæði sem virðist sett beinlínis til að koma í veg fyrir misskilning um hvaða reglur gildi, en í 4.gr. segir: „Frambjóðendum til prófkjörs skulu afhentar prófkjörsreglur og starfsreglur þingflokks Sjálfstæðisflokksins og undirrita yfirlýsingu þess efnis, að þeir hafi kynnt sér reglurnar og muni fara eftir þeim.“ Ekki er tekið sérstaklega fram að kjör- stjórn og þeir sem sjá um utankjörstaða- atkvæðagreiðslu eigi að kynna sér reglurnar, en ganga verður út frá því að það beri þeim að gera. atkvæði. Samkvæmt mannfjöldatölum Hag- stofu Íslands virðist íbúafjöldi í Norðvest- urkjördæminu vera svipaður núna og hann var árið 1999 þegar síðustu alþingiskosningar fóru fram. Fækkað hefur á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, en aftur á móti hefur fjölgað á Vesturlandi. Skýrar prófkjörsreglur hjá Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðisflokkurinn hefur mjög skýrar prófkjörsreglur sem eru samræmdar fyrir öll kjördæmi landsins. Reglurnar má m.a. finna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins. Ekki er í reglunum að finna heimild fyrir því að farið sé með kjörgögn í fyrirtæki eða á heimili manna. Þvert á móti verður ekki ann- að skilið af 6. gr. en þetta sé bannað. Þar seg- r: „Heimilt er kjörnefnd að ákveða, að þeim, sem atkvæðisrétt eiga í prófkjöri og gera ráð fyrir að verða að heiman auglýsta próf- kjörsdaga, sé leyfilegt að greiða atkvæði í eiddu atkvæði kosningum „Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi harmar þá ágalla sem fram komu við fram- kvæmd prófkjörs flokksins í kjör- dæminu og samþykkir að kjör- gögn verði yfirfarin og atkvæði endurtalin. Kjörnefnd samþykkir að leggja niðurstöðu prófkjörsins til grund- vallar við gerð tillögu til kjördæm- isráðs um framboðslista flokksins til næstu alþingiskosninga.“ Yfirlýsing kjörnefndar Morgunblaðið/RAX Kjartansson og Kristinn Jónasson koma að Staðarflöt í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.