Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 33
Í GALLERÍI i8 – undir stiganum
sýnir Þuríður Sigurðardóttir vegg-
mynd gerða með olíulitum. Þuríður
útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands
árið 2001 úr málaradeild og hefur
unnið að listmálun síðan. Hún er ein
af sex umsjónarmönnum „Opna gall-
erísins“, en það er farandgallerí, sem
hingað til hefur einskorðast við
miðbæ Reykjavíkur, þar sem sýning-
ar eða réttara sagt sýningaropnanir
eru haldnar einu sinni í mánuði. Þær
eru aldrei í sama húsnæðinu heldur
finna aðstandendur nýtt rými sem
stendur autt til að hýsa hverja sýn-
ingu fyrir sig. Sýningarnar standa svo
í einn dag og er þátttaka opin öllum
listamönnum sem vilja koma verkum
sínum á framfæri. Opna galleríið er
því vettvangur sem listnemar og lista-
menn sem hafa nýlega lokið námi
leita gjarnan í. Svipað er að segja um
sýningarrýmið undir stiganum í i8, en
þar eru ungir og efnilegir myndlist-
armenn kynntir að vali Dorothée
Kirch, rekstrarstjóra gallerís i8.
Undir stiganum er lítið og þröngt
rými sem vandasamt er að vinna í.
Flestir sem þar hafa sýnt hafa þó
leyst verkefnið með prýði og er Þur-
íður engin undantekning á því. Þur-
íður málar veggina dökka eða myrka
og neðst á veggfletinum er sjálfs-
mynd listakonunnar þar sem hún príl-
ar vegg og er í þann mund að komast
yfir hann. Efnistökin eru í anda popp-
raunsæis, sem er frekar kaldlegt
raunsæi, sem listakonur á borð við
Karin Kneffel og Lisa Milnroy hafa
tileinkað sér með góðum árangri.
Myndefnið má túlka á margvíslegan
hátt og kýs ég að skoða það út frá til-
raunum listakonunnar til að skapa
vettvang fyrir sig og aðra myndlist-
armenn sem eru að hefja listferil sinn.
Út frá því sjónarhorni getur veggur-
inn verið táknmynd fyrir hindranir
sem ungir myndlistarmenn standa
frammi fyrir þegar þeir vilja komast
að í viðurkenndum sýningarsölum,
eins og t.d. aðalsýningarrými i8, þar
sem listamenn sem þegar hafa sannað
sig eiga greiðari aðgang. Veggurinn
getur líka táknað persónulegar hindr-
anir sem myndlistarmaður þarf að
klífa, svo sem vantraust á sjálfan sig
eða ótti við höfnun. Og ekki má
gleyma veggnum sem listamaðurinn
þarf að komast yfir, eða brjóta, til að
ná til listneytandans. Svo er auðvitað
sá möguleiki fyrir hendi að veggurinn
hafi ekkert með táknmyndir að gera
og sé einfaldlega niðurstaða listakon-
unnar á því hvernig hún geti best
unnið veggmynd í þröngt rýmið.
Þannig er það með myndlistina að
áhorfendunum er líka gefinn kostur á
að skapa listaverkið.
Táknrænn
veggur
Veggmynd Þuríðar Sigurðardóttur
undir stiganum í i8.
MYNDLIST
Gallerí i8 – undir stiganum
Opnunartími gallerísins er frá kl. 13–17
alla daga nema mánudaga. Sýningin er
til 23. nóvember.
VEGGMÁLVERK
ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Jón B. K. Ransu
LEIKDEILD Umf. Íslendings í
Borgarfirði frumsýnir leikritið
Taktu lagið Lóa annað kvöld,
föstudagskvöld, kl. 21 í Brún í
Bæjarsveit. Leikritið er eftir
Jim Cartwright.
Taktu lagið Lóa var sett upp í
Þjóðleikhúsinu árið 1994 en það
hefur ekki verið sett upp hjá ís-
lensku áhugaleikhúsi áður. „Það
má teljast mikil áskorun fyrir
lítið leikfélag á landsbyggðinni
að takast á við svo vandasamt
verk sem þetta. Verkið gerir
miklar kröfur til leikara, ljósa-
manna og annarra sem koma að
uppsetningu sýningarinnar. Þó
svo að leikritið sé ekki mann-
margt þá er ögrunin mikil að
takast á við svo krefjandi verk,“
segir Guðlaug Erla Gunnars-
dóttir einn aðstandenda sýning-
arinnar. Leikarar í sýningunni
eru sex og eru þeir flestir í
veigamiklum hlutverkum. Fjög-
urra manna hljómsveit spilar
undir á sýningum. Leikstjóri er
Guðmundur Ingi Þorvaldsson
og er þetta í fyrsta sinn sem
hann leikstýrir áhugamanna-
félagi á landsbyggðinni en áður
hefur hann sett upp þrjú verk
með framhaldsskólum á höfuð-
borgarsvæðinu. Guðmundur er
borinn og barnfæddur í Reyk-
holtsdal.
Næstu sýningar eru á sunnu-
dag, miðvikudag og föstudag kl.
21.
Taktu
lagið Lóa
sýnt í Brún
alltaf á föstudögum