Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 35 sérsniðin innheimtulausn MEISTARINN.IS Borgartúni 28,  562 2901 www.ef.is OSO hitakútar úr ryðfríu stáli 30 ára frábær reynsla á þúsundum íslenskra heimila  30/50/100/120/200 eða 300 lítra  Blöndunar- og öryggisloki fylgir  20% orkusparnaður  Hagstætt verð ISO 90 02 Frábæ r endi ng! AÐ UNDANFÖRNU hafa fjöl- miðlar gert grein fyrir niðurstöðum þriggja kannana sem fræðsluyfir- völd í borginni létu framkvæma á síðasta skólaári. Í þeim koma m.a. fram þau gleðilegu tíðindi að for- eldrar eru almennt ánægðir með skóla barna sinna og viðmót kenn- ara. Þá mun stærstum hluta nem- enda í 5.-10. bekk líða vel í skól- anum og starfsfólk skólanna lýsir þeim vilja sínum að veita góða þjón- ustu og leggja sig fram í starfi. Átaksverkefni gegn einelti Könnun sem ber yfirskriftina „Börnin í borginni“ sýnir hins vegar einnig að nemendur hafa áhyggjur af einelti í skóla. Um fjórðungur nemenda á miðstigi og 17% nem- enda á unglingastigi telja það al- gengt að einhver sé tekinn fyrir inn- an bekkjarins og lagður í einelti. Í ljósi þessa hafa fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins í fræðsluráði óskað eftir ítarlegum upplýsingum um stöðu átaksverkefnis gegn einelti í skólum borgarinnar. Átaksverkefnið er samstarfsverkefni menntamála- ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Forsögu verkefnisins má rekja til niðurstöðu rannsóknar um umfang og eðli eineltis í íslenskum grunnskólum. Þar kom fram að ýmsu væri ábótavant í skólunum hvað varðaði boðleiðir og hvernig tekið væri á vandamálinu. Rann- sóknarstofnun uppeldis- og mennta- mála vann síðan framhaldsrann- sókn um úrræði skóla við lausn á eineltisvandamálum. Hún leiddi í ljós að kennarar finna til kvíða og óöryggis gagnvart einelti og þeir telji sig vanbúna til þess að takast á við vandamálið. Fyrst og fremst kenndu þeir um tímaskorti og van- þekkingu. Þeir bentu hins vegar á að auka þyrfti samvinnu starfsfólks innan skólanna og fræðslu til barna um skyldur þeirra hvert gagnvart öðru. Samráðsnefnd um grunnskóla ákvað í kjölfarið að skipa starfshóp um einelti og lagði hann til að tekn- ar yrðu upp hugmyndir og fram- kvæmdaáætlun sem kenndar eru við Dan Olweus en hann er sænskur og prófessor við Háskólann í Björg- vin. Aðferðir hans hafa þegar skilað góðum árangri í Noregi og fleiri löndum. Menntamálaráðuneytið efndi til málþings fyrir ári sem bar yfirskriftina „Aðgerðir gegn einelti í grunnskólum“ og var Dan Olweus aðalfyrirlesarinn. Þar talaði einnig Stefán Karl Stefánsson leikari sem hefur verið ötull talsmaður barátt- unnar gegn einelti og er óskandi að skólayfirvöld gangi til frekara sam- starfs við hann. Menntamálaráðu- neytið auglýsti síðan eftir skólum sem vildu vera móðurskólar í átaki gegn einelti en átakið hefst um næstu áramót og stendur í eitt og hálft ár. Í Reykjavík eru 5 móður- skólar sem síðan eru ráðgefandi fyrir tvo aðra skóla í nágrenni við sig. Hver skóli á að setja sér að- gerðaráætlun gegn einelti í skólan- um. Mikilvægt er að Reykjavíkur- borg og þá sérstaklega fræðsluráð og Fræðslumiðstöð veiti skólunum þann stuðning sem þeir þurfa til verkefnisins og fylgi því vel eftir. „Stressaðir kennarar“ Samkvæmt niðurstöðum vinnu- staðagreiningar meðal starfsfólks skólanna eru kennarar ánægðir með vinnustaðina sína en óánægðir með Reykjavíkurborg sem vinnu- veitanda. Niðurstöðurnar leiða í ljós að mikið álag er á kennurum og eru sífellt gerðar til þeirra auknar kröf- ur. Þess vegna hafa fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins í fræðsluráði farið fram á að starfsfólk Fræðslumið- stöðvar yfirfari vinnuskýrslur kenn- ara í grunnskólum Reykjavíkur með tilliti til vinnuálags og undir- búningstíma þeirra og skili færðslu- ráði greinargerð í kjölfarið. Vinnu- skýrslur kennara eru einu opinberu gögnin sem geta gefið þessar vís- bendingar en samkvæmt kjara- samningi fyrir grunnskóla er það skólastjóri sem ráðstafar vinnu kennara til þeirra faglegu starfa og verkefna sem grunnskólinn kallar á. Þó að niðurgreidd líkamsrækt sé góðra gjalda verð er nauðsynlegt að huga að fyrirkomulagi vinnunnar. Skólastjórar hafa nú aukið vald yfir vinnu kennara og það er t.a.m. í þeirra höndum að gæta þess að þeir hafi nægan undirbúningstíma. Hlutverk fræðsluráðs Fræðsluráð, sem er skólanefnd Reykjavíkurborgar, á samkvæmt 12. gr. laga nr. 66/1995 um grunn- skóla að fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í skólahverfinu/ Reykjavík. Samkvæmt starfsáætl- un á Fræðslumiðstöð m.a. að afla gagna til að meta afrakstur og gæði skólastarfs og undirbyggja stefnu- mótun. Þá á Fræðslumiðstöð að veita skólunum ráðgjöf um fjármál, kjarasamninga og vinnurétt. Eitt meginmarkmiða samninganefnda launanefndar sveitarfélaga og Kennarsambands Íslands var að draga úr miðstýringaráhrifum kjarasamningsins og auka mögu- leika sveitarfélags, skólastjórnenda og kennara til að skipuleggja skóla- starfið út frá forsendum hvers skóla í því skyni að auka fjölbreytni í skólastarfi. Það ætti því enginn að velkjast í vafa um það að pólitískt kjörnir fulltrúar í fræðsluráði Reykjavíkur hafa skyldum að gegna varðandi eftirlit við framkvæmd skólahaldsins og er því mikilvægt að þeir axli þá ábyrgð. Hins vegar má draga í efa að núverandi skipu- lag skólamála sé til þess fallið að auðvelda þeim yfirsýnina sem er samofin eftirlitshlutverkinu og rennir enn frekar stoðum undir það að Reykjavík verði skipt í skóla- hverfi. Átak gegn ein- elti og stressi Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur „Mikið álag er á kenn- urum og eru sífellt gerð- ar til þeirra auknar kröfur.“ Höfundur er borgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði. Á SELTJARNARNESI er starf- andi samráðshópur um áfengis- og vímuvarnir frá 1995 og var með í átakinu „Ísland án eiturlyfja 1998– 2002“ undir slagorðinu „Stillum okk- ur saman“. Nú þegar líður að lokum þessa átaks þykir við hæfi að líta yfir farinn veg og finna leiðir til að halda áfram í virkri baráttu um forvarnir. Átak var gert í skólanum sem borið hefur árangur. Það sýndi sig m.a. í könnun sem Rannsóknir og greining gerðu árið 1999 með því að spyrja um ölvun síðustu 30 daga hjá 10. bekk- ingum. Í ljós kom að 34,4% aðspurðra nemenda að meðaltali á landinu höfðu orðið ölvuð, miðað við 12% nemenda á Seltjarnarnesi. Í fyrra var 10. bekkur í Valhúsaskóla vel samstilltur hópur og fékk mikið lof frá kennurum og öðrum þeim sem þekktu hópinn og unnu með honum s.s. vinnuskóla, fé- lagsmiðstöð og íþróttaþjálfurum. Það er ánægjulegt að vera á fundum og heyra alla þá, sem unnu með þessum krökkum, keppast um að lofa þau hvert í kapp við annað. Sama er að segja um þá krakka sem hófu nám í 10. bekk nú í haust. Hafa þeir fengið hrós kennara og annarra. Mikil áhersla er lögð á að foreldrar standi saman um útivistarreglur. Útivistar- samningur Heimilis og skóla nýtist vel. Fyrir fimm árum var í gangi sér- stök umræða með kennurum Val- húsaskóla um að þeir létu foreldra vita ef þeir vissu um reykingar eða áfengisneyslu nemendanna. Mikið var rætt hvort kennarar misstu traust nemenda sinna ef þeir „kjöft- uðu“ frá. Umræðan var þörf og á fundi með foreldrum voru þeir spurð- ir hvort þeir vildu að kennarar segðu þeim ef þeir vissu eða þá grunaði að nemandi væri byrjaður að reykja eða drekka. Það kom í ljós að langflestir sögðust vilja fá að vita um grunsemd- ir eða vissu annarra um hvort barn þeirra væri e.t.v. í neyslu. Í dag vefst það lítið fyrir kennurum að láta vita. Valhúsaskóli hefur verið með í Maríta-prógramminu með lögregl- unni og foreldrafélagið hefur verið duglegt að fá fræðslu um uppeldismál og forvarnir. Fyrir nokkrum árum var rætt um hvort foreldrar ættu að kaupa áfengi fyrir unglingana sína og sumum fannst það skárra en að ung- lingarnir keyptu einhverja ólyfjan. Nú heyrast ekki þær vangaveltur. Við verðum að vera samkvæm sjálfum okkur ef við viljum ekki að börnin okkar verði vímuefnaneyslu að bráð. Við leyfum þeim ekki að drekka áfengi. Í október sl. var haldin vímuvarn- arvika með ýmsum uppákomum og bar þar hæst útvarp EBBI, en nem- endur í Valhúsaskóla önnuðust út- sendingarnar með miklum ágætum. Þar útvörpuðu þeir m.a. ýmsum fróð- leik um vímuvarnarmál sem bar þekkingu þeirra á málefninu gott vitni. Nú þegar átakinu Ísland án eitur- lyfja er lokið er mikilvægt að sofna ekki á verðinum. Á meðan til eru ung- lingar sem neyta vímuefna verðum við að finna leiðir til að sporna við því. E.t.v. eru einhverjir orðnir þreyttir á áróðrinum og vilja heyra eitthvað nýtt um forvarnir. Finnum leið til að halda áfram, allt er gott sem virkar í baráttunni gegn unglingadrykkju. Árangur vímu- varnarátaks Eftir Sigrúnu Hvanndal Magnúsdóttur Höfundur er félagsráðgjafi og forvarnarfulltrúi Seltjarnarness. „Nú þegar átakinu Ís- land án eit- urlyfja er lokið er mik- ilvægt að sofna ekki á verðinum.“ SMÁGREIN mín í Morgun- blaðinu laugardaginn 9. nóvember undir fyrirsögninni „Víst var hún sviðsett“ virðist hafa komið við kaun Magnúsar Hafsteinssonar fréttamanns ef marka má svar frá honum í blaðinu í gær. Það var þó ekki ætlun mín. Ég var einfaldlega að benda á augljós atriði sem koma við sögu dómsmáls Magnús- ar gegn sjávarútvegsráðherra og snerta notkun ráðherrans á orðinu „sviðsett“ um frétt Magnúsar og sjónvarpsmynd af brottkasti afla um borð í fiskiskipi. Hafa verður örfá orð um grein Magnúsar. Magnús telur mig ekki hafa kynnt mér gögnin sem lágu fyrir í dóminum. Það er rétt hjá honum. Ég las bara dóminn sjálfan. Ég var líka bara að fjalla um forsendur hans. Staðreyndirnar sem grein- arkorn mitt byggðist á koma skýrt fram í þeim. Þessar staðreyndir voru ekki einu sinni umdeildar í málinu. Þær eru: 1. Magnús fór í sjóferðina í því skyni að mynda ólöglegt brottkast afla (hann eyðir reyndar nokkru rými svargreinar sinnar í að staðfesta þetta) og 2. skipstjóranum og áhöfninni var kunnugt um nærveru myndavélar- innar, þegar lögbrotið var framið. Svo notaði ég lögfræðihugtakið ásetningur og sagði að ásetningur þeirra hefði lotið að því að láta taka af sér mynd við iðju sína. Til þess að fullyrða þetta er nóg að vita að áhöfnin vissi af upptökuvél- unum þegar aflanum var kastað fyrir borð. Á þessum einföldu og óum- deildu staðreyndum byggðist ályktun greinar minnar um að vel hafi mátt nota orðið sviðsett um frétt sem svona háttaði um. Skýrði ég það með dæmi af manni sem æki gegn rauðu ljósi yfir gatna- mót. Magnús fréttamaður velur sér stóryrði til afnota í málsvörn sinni gegn hinu sakleysislega greinar- korni mínu. Hann segir mig meðal annars saka sig um fréttafölsun og les inn í orð mín ásökun um að hann hafi látið tíu menn, sem hann þekki ekki, fara með leikrit fyrir myndavélina. Hann segir mig svo hafa vegið að dómara málsins með órökstuddum dylgjum! Af þessu tilefnislausa orðfæri fréttamanns- ins dreg ég þá ályktun, að greinin mín litla hafi hitt naglann beint á höfuðið. Kannski eiga stóryrði hans líka skýringu í því, að hann segist nú hyggja á framboð til Al- þingis fyrir Frjálslynda flokkinn. Ef marka má grein hans verður ekki betur séð en hann uppfylli öll þekkt skilyrði fyrir því, að sá draumur geti orðið að veruleika. Jón Steinar Gunnlaugsson Kaun fréttamanns Höfundur er prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.