Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR
38 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Enn vegurinn hingað,
heilladrengur,
hann sem enginn
til baka gengur,
hann sem ávallt
á enda hér
og einmitt nú
undir fótum þér.
Lífshlaup Hjalta réðst af uppruna
hans af styrkum bændaættum, náms-
og starfsferli hans í þjónustu bænda.
Eitt leiðir af öðru. Hann laðaðist að
hestum og hestamennsku. Um hann
safnaðist hópur manna og kvenna
sama sinnis. Af því spruttu árlegar
hestaferðir. Minningar úr hesta-
ferðum og samverustundum voru
festar á filmur og búa í ánægjulegum
minningabanka hugans. Það kom eft-
irminnilega í ljós, þegar Hjalti á 79
ára afmælisdegi í fyrra kallaði saman
hóp af gömlum ferðafélögum til að
rifja upp þessar minningar með líf-
HJALTI
PÁLSSON
✝ Hjalti Pálssonfæddist á Hólum
í Hjaltadal 1. nóvem-
ber 1922. Hann lést í
Reykjavík 24. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Hallgrímskirkju
1. nóvember.
legri samverustund.
Vináttutengsl skap-
ast með margvíslegum
hætti. Kunningsskapur
Hjalta og Eggerts,
manns Bjargar, leiddi
til þess að þau hófu
hestamennsku með
Hjalta. Sá kunningja-
vinskapur þróaðist um
árabil í nána vináttu og
samvistir við Hjalta og
Ingu konu hans.
Með vináttuböndum
við Björgu hlaut Skúli
vináttutengsl við Hjalta
og Ingu.
Hér skal minnst síðasta sumars.
Hjalti og Inga dvöldu hjá okkur eina
helgi í sumarbústað á Flúðum. Þar
urðu minnisverðar samvistir. Hjalti
skýrði frá því, að hann væri að selja
gæðinga sína með eftirsjá og söknuði.
Því fylgdu sögur um fyrri samvistir
við þessa vini.
Á síðsumri nutum við helgardvalar
hjá þeim Hjalta og Ingu í sumarbú-
stað þeirra í Lundarreykjadal. Í
kvöldkyrrðinni við arineld var ljós hin
milda væntumþykja þeirra hjóna og
gagnkvæm umhyggja vegna veik-
leika þeirra beggja. Nýkomnum
kunningja var slíkt ljúf upplifun og
sannindi um mannkosti þeirra
beggja. Enn nutum við frásagnargáfu
Hjalta og heilbrigðs hugsunarháttar.
Í girðingu við sumarhúsið voru
tveir hestar, grár og rauður, eins og
fyrstu hestar Hjalta.
Þegar þetta er skrifað er sem mað-
ur heyri Hjalta hugsa með orðum Jó-
hannesar úr Kötlum:
Minn rauði vinur: Þig ég átti ungan
er æska söng í takti fóta þinna
þitt sæla tölt var sálar minnar vagga
og sviti þinn var lífdögg óska minna.
Við sendum ykkur börnum og
barnabörnum Hjalta hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Kæra Inga, með þér minnumst við
góðs drengs og tryggs vinar.
Björg Valgeirsdóttir,
Skúli H. Norðdahl.
Góður Guð. – Nú er aldavinur minn
Hjalti Pálsson kominn til þín undir
þinn verndarvæng. Ég veit að þú hef-
ur tekið vel á móti honum því hann á
það skilið. Ég treysti því einnig að þú
hafir til afnota fyrir hann töltgenginn
gæðafák sem förunaut í nýjum heim-
kynnum.
Allt frá því að leiðir okkar Hjalta
tengdust í Chicago árið 1946 og frá
því að við báðir hófum störf hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga 1948
hefur vinátta okkar haldist í traustum
böndum – og eflst með árunum þrátt
fyrir langa búsetu mína í Vestur-
heimi.
Hjalti og Ingigerður heimsóttu
okkur Sigríði konu mína oft þegar
Þegar hallar að
hausti og laufin taka að
falla af trjánum og
skuggarnir að lengjast,
berst okkur alveg að
óvörum að Steindór
Ágústsson, vinnufélagi til margra
ára, hafi kvatt þennan heim.
Það er eitt, sem við eigum öruggt í
þessu jarðlífi og það er að einhvern-
tímann verðum við að skila því aftur,
en þrátt fyrir þessa vissu kemur
dauðinn okkur alltaf jafnmikið á
óvart.
Steindór kom til starfa með okkur
árið 1976 og starfaði til ársins 1997
eða liðlega 20 ár. Á svo löngum tíma
er margt sem kemur uppá og margs
að minnast, sem menn geyma í minn-
ingunni hver fyrir sig.
Steindór kom sér alls staðar vel,
STEINDÓR
ÁGÚSTSSON
✝ Steindór Ágústs-son fæddist 26.
október 1933. Hann
lést á sjúkrahúsi í
Las Palmas á Kan-
aríeyjum 13. septem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
1. október í kyrrþey
að ósk hins látna.
var hress og málglaður
og sagði skemmtilega
frá og jafnvel lék fjöl-
margar sögur, sem
hann hafði á takteinum
af hinum ævintýralega
lífsferli sínum. Þó
Steindór væri sögu-
glaður og hefði kynnst
fjölda manna lagði
hann aldrei illt til nokk-
urs manns eða talaði
illa um samferðafólk
sitt.
Hann var mikill sól-
dýrkandi og fór um
langt árabil í sumarfrí í
sólina og vakti það hjá honum draum
að eyða ellinni í sólarparadís. Þegar
hann varð 64 ára lét hann drauminn
verða að veruleika og fluttist alfar-
inn til Kanaríeyja og bjó á Ensku
ströndinni þar til yfir lauk.
Því miður áttum við vinnufélagar
hans ekki kost á að fylga honum síð-
asta spölinn, en sendum dætrum
hans og öðrum ástvinum okkar sam-
úðarkveðjur og kveðjum eins og
hann kvaddi gjarnan. Guð blessi þig
bróðir.
Vinnufélagar á
Keflavíkurflugvelli.
Hann var leitandi og hugsandi allt
frá bernsku. Ein af mínum fyrstu
minningum um Helga bróður minn
var þegar hann var um það bil 5 ára
gamall. Hann sat á Kríukletti niðri í
fjöru, það flæddi allt í kring um hann
og það varð að koma bátur að sækja
hann. Þegar hann var spurður: Af
hverju gáðir þú ekki í kring um þig,
sástu ekki þegar sjórinn kom? þá
sagði hann: Ég var að horfa á Esjuna
og kindurnar hinum megin við sjó-
inn, mamma hvað er á bak við Esj-
una? Og ef þetta var ekki Kríuklett-
ur þá get ég engan spurt því þú ert
farinn. Þakka þér alla fallegu
munina sem ég á frá þér, kæri bróð-
ir, ég sakna þín.
Sólveig María.
HELGI
JÓNSSON
✝ Helgi Jónsson vélhönnuðurfæddist í Reykjavík 24. sept-
ember 1923. Hann varð bráð-
kvaddur á heimili sínu á Seltjarn-
arnesi 23. október síðastliðinn og
var útför hans gerð frá Fossvogs-
kirkju 29. október.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, sonur og bróðir,
GESTUR JÓNSSON
loftskeytamaður,
Ljósheimum 18a,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun,
föstudaginn 15. nóvember kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Þóra Þorgrímsdóttir,
Heiða Sigurrós Gestsdóttir, Stefán Þór Magnússon,
Svanur Þór Stefánsson, Gestur Magnús Stefánsson,
Inga Sigríður Gestsdóttir, Gerða S. Jónsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
KRISTINN Á. JÓHANNSSON,
Hólabraut 7,
Skagaströnd,
verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju föstu-
daginn 15. nóvember kl. 14.00.
Guðný Finnsdóttir,
Ingibjörg Kristinsdóttir, Jón B. Gunnarsson,
Óskar Þór Kristinsson,
Finnur Kristinsson, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Guðbjörg Kristinsdóttir, Þórarinn Grétarsson,
Guðrún Hrönn Kristinsdóttir, Magni Sigurhansson,
Guðrún Rebekka Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Borgarbraut 22,
Stykkishólmi,
andaðist á St. Fransicussjúkrahúsinu í Stykkishólmi þriðjudaginn
12. nóvember sl.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 16. nóvember
kl. 14.00.
Sigurður Ágúst Kristjánsson, Kristín Jeremíasdóttir,
Magnús Kristjánsson, Lucyana Dybka,
Lára Kristjánsdóttir, Duncan Gillies,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
BORGÞÓR H. JÓNSSON,
Háteigsvegi 38,
lést á Landspítala við Hringbraut þriðjudaginn
12. nóvember.
Rannveig Árnadóttir,
Erna Borgþórsdóttir, Óskar Alvarsson,
Rannveig, Borgþór Alex,
Margrét Birta og Huginn þór.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
frú ÞÓRNÝ ÞURÍÐUR TÓMASDÓTTIR,
Ofanleiti 9,
Reykjavík,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi, Fossvogi,
þriðjudaginn 12. nóvember.
Jarðsett verður frá Háteigskirkju fimmtudaginn
21. nóvember kl. 15.00.
Jónína Helga Jónsdóttir, Sigmundur Franz Kristjánsson,
Tómas Óli Jónsson, Matthildur Helgadóttir,
Kjartan Jónsson, Þórunn Elín Tómasdóttir,
Ólöf Guðrún Jónsdóttir, Sævar Sigurhansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
www.solsteinar.is sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi