Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 41
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 41
Í dag er Sigurður Örn
Steingrímsson prófessor
sjötugur að aldri. Hann
er fæddur á Hólum í
Hjaltadal, sonur Stein-
gríms Steinþórssonar
fyrrum búnaðarmála-
stjóra, alþingismanns og
forsætisráðherra Íslands
og Guðnýjar Theódóru
Sigurðardóttir húsmóð-
ur. Sigurður er giftur
Guðrúnu Blöndal geð-
hjúkrunarfræðingi og
eiga þau tvær dætur,
Theódóru Jónu og Elsu
Maríu. Áður átti Sigurð-
ur Guðrúnu Theódóru, Laufeyju og
Sigurð. Að loknu stúdentsprófi frá
MR og tónlistarnámi í Reykjavík og
Vínarborg, meðal annars hjá Ricardo
Odnoposoff, hóf Sigurður nám við
guðfræðideild Háskóla Íslands.
Hann tók kandídatspróf 1969 og hélt
til Svíþjóðar til framhaldsnáms í
gamlatestamentisfræðum hjá dr.
Helmer Ringgren í Uppsala. Þar að
auki stundaði hann nám í assýrískum
fræðum, semítískum málum og
trúarbragðafræðum. Árið 1977 varði
hann doktorsritgerð sína um
plágufrásagnirnar í 2. Mósebók. Rit-
gerðin var gefin út í Lundi og ber tit-
ilinn Vom Zeichen zur Geschichte.
Eine literar- und formkritische Unt-
ersuchung von Ex 6,28-11,10:
CB.OTS 14, Lund [CWK Gleerup]
1979.
Á námsárunum í Svíþjóð komst
Sigurður Örn í kynni við nýútgefna
bók Wolfgangs Richters (1971) um
bókmenntafræðilega aðferð við rit-
skýringu Biblíunnar. Það er óhætt að
fullyrða að Sigurður Örn hafi orðið
fyrir miklum áhrifum af sjónarmið-
um Richters, enda má greina þau í
öllu sem Sigurður hefur skrifað um
Gamla testamentið síðan. Sigurður
hefur sinnt margskonar rannsóknum
á Gamla testamentinu. Það eru ekki
síst bókmenntafræðilegar greiningar
hans á nokkrum Dav-
íðssálmum og spá-
mannatextum sem
vakið hafa mesta at-
hygli. Tvær bækur
hafa komið út eftir
hann í Þýskalandi,
annars vegar rann-
sókn á svokallaðri
inngangslítúrgíu í
Gamla testamentinu
(Tor der Gerechtig-
keit. Eine literatur-
wissenschaftliche
Untersuchung der
sogenannten Ein-
zugsliturgien im Alt-
en Testament: Ps 15; 24,3-5; Jes
33,14-16: ATS 22, St. Ottilien [EOS-
Verlag] 1984), hins vegar fyrsti hluti
rannsókna hans á svonefndri Jes-
ajaapókalýpsu (Gottesmahl und Leb-
ensspende. Eine literaturwissen-
schaftliche Untersuchung von Jes
24,21-23; 25,6-10a: ATS 43, St. Ottil-
ien [EOS-Verlag] 1994). Fyrri bókin
er það verk Sigurðar sem oftast hef-
ur verið vitnað til af gamlatestament-
isfræðingum. Óhætt er að fullyrða að
þau nýju sjónarmið sem sett eru
fram í verkinu hafi verið tekin upp
nánast óbreytt í fjölmörgum yngri
ritum um efnið. Þar að auki hefur
hann skrifað fjölmargar greinar sem
birtar hafa verið í virtum fagtímarit-
um víðsvegar í Evrópu. Eru þá
ónefndar þær fjölmörgu greinar sem
birst hafa eftir hann í Orðinu og
Kirkjuritinu á Íslandi og allt kennslu-
efnið sem ætlað var nemendum. Í
gegn um árin hefur hann sótt til Evr-
ópu margar ráðstefnur í faginu og
haldið fyrirlestra við fjölmarga há-
skóla.
Sigurður kenndi við nokkra há-
skóla í Svíþjóð á námsárunum, meðal
annars ritskýringu og hebresku við
Uppsalaháskóla (1973–1982) þar sem
hann var settur aðjúnkt 1975 og lekt-
or 1979. Auk þess kenndi hann trúar-
bragðafræði við háskólann í Stokk-
hólmi (1979–1985) og Trúarbragða-
fræðiskólann í Linköping (1980–
1983). Veturinn 1980–1981 var Sig-
urður settur lektor við háskólann í
Lundi. Hann var settur prófessor í
Gamlatestamentisfræðum við Há-
skóla Íslands frá 1985 til 1988. Síðan
1985 hefur hann kennt hebresku við
guðfræðideildina á Íslandi, en frá
1996 var hann settur prófessor við
deildina. Sigurður Örn var aðalþýð-
andi nýrrar útgáfu Hins íslenska
Biblíufélags á Gamla testamentinu
frá upphafi eða 1988, en þýðingar
hans hafa komið út í áföngum í Bibl-
íuritum Biblíufélagsins frá 1993.
Í tilefni af sjötugsafmæli Sigurðar
Arnar var ákveðið að gefa út afmæl-
isrit honum til heiðurs hér í Þýska-
landi. Það er til marks um þá virð-
ingu sem Sigurður nýtur meðal
starfsbræðra sinna í Evrópu hversu
stór hópur fræðimanna var tilbúinn
að leggja sitt af mörkum til að gera
ritið að veruleika. Meðal þeirra sem
skrifa greinar í afmælisritið eru
fulltrúar allra Norðurlandanna, þeir
Kåre Berge prófessor við Kenn-
araháskólann í Bergen, Knud Jeppe-
sen prófessor í Aarhus, Stig Norin
prófessor í Uppsala, Martti Nissinen
lektor við Háskólann í Helsinki, und-
irritaður og Jón Ásgeir Sigurvinsson
sem fulltrúar nemenda Sigurðar
Arnar við Háskóla Íslands. Þá skrifa
fjölmargir Þjóðverjar, samferða-
menn og vinir Sigurðar, í ritið. Meðal
annarra nefni ég Johannes Peter
Floss prófessor við Tækniháskólann í
Aachen, Walter Gross prófessor í
Tübingen, Hubert Irsigler prófessor
í Freiburg, Wolfgang Richter pró-
fessor í München, Theodor Seidl pró-
fessor í Würzburg, Hermann-Josef
Stipp prófessor í Mainz auk Gott-
frieds Vanonis, prófessor við St.
Gabríelháskólann í St. Mödling,
Austurríki. Allar greinarnar eru til-
einkaðar fræðasviðum afmælis-
barnsins.
Hinn 26. september sl. var haldin
afmælishátíð Sigurði Erni til heiðurs
í hátíðarsal Georgianum í München.
Hubert Irsigler og undirritaður
fluttu ávörp, tónlistarflutning önnuð-
ust Rúnar Emilsson píanóleikari, Iv-
ana Ivancevic fiðluleikari og Harpa
Hallgrímsdóttir, sem söng nokkur ís-
lensk lög í tilefni dagsins. Í máli Hu-
berts Irsiglers kom meðal annars
fram hversu ánægjulegt var að vinna
að undirbúningi bókar sem Sigurður
hefði sannarlega unnið til. Eftir að
honum hafði verið afhent afmælisrit-
ið var gengið til veislu í boði sendi-
herrans í Berlín, Jóns Egils Egils-
sonar. Óhætt er að fullyrða að hátíðin
hafi tekist vel í alla staði, í öllu falli
kom hún afmælisbarninu skemmti-
lega á óvart.
Titill afmælisritsins var valinn úr
texta sem Sigurður Örn hefur rann-
sakað: „Hver fær að stíga á fjall
Drottins?“ Davíðssálmur 24.3. (H.
Irsigler [Hrsg.], unter Mitarbeit von
K. Ólason: Wer darf hinaufsteigen
zum Berg JHWHs? Beiträge zu
Prophetie und Poesie des Alten
Testaments. Festschrift für Sigurður
Örn Steingrímsson zum 70. Geburts-
tag: ATS 72, St. Ottilien [EOS-Ver-
lag] 2002). Verkið var fjármagnað af
menntamálaráðherra Íslands, rektor
Háskóla Íslands og Hinu íslenska
biblíufélagi.
Kæri Sigurður. Um leið og ég
þakka þér fyrir hönd fjölmargra
nemenda þinna, sem skipta þúsund-
um í Svíþjóð og hundruðum á Íslandi,
fyrir allt það sem við máttum læra af
þér vil ég óska þér innilega til ham-
ingju með daginn. Við urðum flest
fyrir miklum áhrifum af því hversu
hugfanginn þú ávallt varst af við-
fangsefni þínu og af ástríðunni sem
einkenndi alla framsetningu efnisins.
Það er margs að minnast þegar litið
er yfir farinn veg. Ég og Harpa þökk-
um þér og fjölskyldu þinni fyrir
ánægjuleg kynni og trausta vináttu
sem vaxið hefur með hverju ári. Megi
Guð gefa þér starfskrafta til að sinna
um ókomin ár rannsóknum þínum,
áhugamálum og námi(!) af sömu
kostgæfni og hingað til.
Kristinn Ólason,
Freiburg í Breisgau.
SIGURÐUR ÖRN
STEINGRÍMSSON
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
93
56
11
/2
00
2
NÁTTÚRULEG
FEGUR‹
Verið velkomin á Dior viku
í Debenhams frá 14.- 21. nóvember
Kynntar verða nýjungar haustsins:
• Nýju haustlitirnir • Maximeyes maskarinn
• Dior Addict ilmurinn • No-Age kremið
Með hverjum DIORSKIN farða fylgir gjöf.
DIORSKIN
Fallegir kaupaukar.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Borgarbraut 2, lög-
regluvarðstofunni, Stykkishólmi, föstudaginn 22. nóvember
2002 kl. 15.00:
AX-103 FI-981 GJ-346 KO-539 LV-353 ML-569
P 1070 P 2070 R 2420 R 7424 RS 385 SN-789
Ö 2431
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaður Snæfellinga,
13. nóvember 2002.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir og Garðar Björgvins-
son michael-miðill starfa hjá
félaginu og bjóða félagsmönn-
um og öðrum upp á einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—
18. Utan þess tíma er einnig
hægt að skilja eftir skilaboð á
símsvara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
Dáleiðsla
Heilsa - hamingja - velgengni
Lærðu að „endur-
forrita“ undir-
meðvitund þína,
henda út gömlum
gildum og taka
inn ný. Árangurs-
rík aðferð.
Birna Smith,
MP. NLP. ráðgjöf,
sími 566 7732.
FÉLAGSLÍF
Landsst. 6002111419 VIII
I.O.O.F. 11 18311148½ Fr.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: G. Theodór Birgisson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
UPPBOÐ
Í kvöld kl. 20.00:
Lofgjörðarsamkoma
í umsjón Áslaugar Haugland.
Allir hjartanlega velkomnir.
AFMÆLIS- og minningargreinum er hægt að skila í tölvupósti (net-
fangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein
hefur borist), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höf-
undar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími
fyrir minningargreinar er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum
greinum.
Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd
á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með
bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og
votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Frágangur afmælis-
og minningargreina