Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
„Á ÍSLANDI er alltaf til hópur
manna sem berjast hatrammlega
gegn því að Vesturlönd snúist til
varnar, hvað sem á gengur. Þessi
hópur hefur nú enn risið upp á aft-
urlappirnar til þess að fordæma
hugsanlegar aðgerðir gegn vini vor-
um Saddam … “
Þetta mátti lesa í aðsendri grein
Óla Tynes fréttamanns hér í blaðinu
6. nóv. Er ég kannski í umræddum
hópi, þ.s. ég hef undanfarið verið að
skrifa greinar í Moggann til að
vekja m.a. athygli á því að helstu
glæpir Saddams Husseins voru
framdir þegar hann var bandamað-
ur Bretlands- og Bandaríkjastjórn-
ar? Ef Óli Tynes á að einhverju leyti
við mín skrif (hef ekki séð mörg
önnur af svipuðum toga), kallar
hann það að berjast hatrammlega
gegn því að Vesturlönd snúist til
varnar, fjalli maður um tímasetn-
ingar glæpa Saddams Hussein og
byggi málflutning sinn á vitnisburði
fyrrverandi starfsmanna Sameinuðu
þjóðanna sem hafa sagt störfum sín-
um lausum í mótmælaskyni við það
sem er að gerast í Írak? Starfs-
mennirnir eru þeir Denis Halliday,
Hans von Sponeck og Scott Ritter,
fyrrum vopnaeftirlitsmaður SÞ.
Þeir eiga það allir sameiginlegt að
þekkja vel ástandið í Írak og hafa
ýmislegt til málanna að leggja. Eng-
inn vill þó hlusta á þá því í augum
ríkisstjórna Bretlands og Banda-
ríkjanna eru þeir „svikarar“. („Ef
þið eruð ekki með okkur þá eruð þið
með þeim“, George Bush 11. sept.
2001.)
Markmiðið með málflutningi sem
þessum er ekki „að berjast hat-
rammlega gegn varnarstarfi Vest-
urlanda“, heldur að fjalla um aðra
hlið málsins, þá hlið sem helstu fjöl-
miðlar skipta sér lítið af. Af því að
það er bara rugl, ekki satt?
(Ef ég er ekki í umræddum hópi
geri ég mér grein fyrir að um til-
viljun gæti verið að ræða enda að-
eins tvífætt.)
ÞÓRDÍS B.
SIGURÞÓRSDÓTTIR,
viðskiptafræðingur,
Dofrabergi 9, Hf.
-------------------------
Bréfið er endurbirt þar sem upp-
haf þess féll niður.
Hvaða fjórfætlinga
á hann við?
Frá Þórdísi B. Sigurþórsdóttur:
EFTIR þessa prófkjörshelgi kemst
ég ekki hjá því að hugleiða hversu
sauðheimskar prófkjörsreglur eru
sem flokkarnir hafa nú í gangi.
Vitanlega eiga menn ekki að fá að
velja sér sæti á listum eins og við-
gengst hjá þessum flokksapparötum.
Þegar hlaupið er fram hjá einfaldleik-
anum er ekki að sökum að spyrja.
Allir eiga að ganga jafnir til leiks.
Stillt upp í stafrósröð þeim sem ætla
að vera með í viðkomandi kosningu.
Ákveðið sé fyrirfram við hve mörg
nöfn á að krossa og svo talið á einfald-
an hátt þegar kosningu er lokið.
Efsti maður fær flesta krossa og
svo koll af kolli raðast listi upp. Ein-
falt, réttlátt og sannfærandi. Aðrar
aðferðir eru skapaðar til þess að valda
ójöfnuði, vandræðum og hvers kyns
tortryggni, sárindum og sundrung.
Flokksforingjarnir vilja víst flestir
deila og drottna?
Nú eftir helgina má búast við að at-
kvæðum Sjálfstæðisflokksins norðan
Holtavörðuheiðar stórfækki allt að
Tröllaskaga. Siglufjarðargöngin
sukksömu verða þá líka fyrst og
fremst fyrir Kristján L. Möller. Héð-
insfjörðinn væri gott að varðveita eins
og hann er, en hleypa ekki á hann um-
ferð sem kæmi með göngunum. Ég
hef ekki hitt einn einasta mann sem
finnst það réttlætanlegt að eiða stór-
fjármunum í þessi fyrirhuguðu göng.
Nær væri að að nota peningana þar
sem þeir kæmu betur að notum fyrir
fleiri og meiri umferð.
Ætli að það kosti nema örlítið
meira að gera uppbyggðan veg yfir
Sprengisand. Sá vegur mundi spara
mest af þeim kostum sem nú eru nær-
tækir í umræðu vegagerðarinnar í
landinu.
MATTHÍAS Ó. GESTSSON,
myndatökumaður,
Hamarstíg 2, Akureyri.
Sauðheimskar
prófkjörsreglur
Frá Matthíasi Ó. Gestssyni:
Mörkinni 3, sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14
Peysuefni
Margar gerðir
og litir
Mörkinni 3, sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14
Bútasaumsefni
frá MODA
nýkomin!