Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 46

Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 46
DAGBÓK 46 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Kur- oshio Maru No.11 og Mánafoss koma í dag. Akureyrin og Dettifoss koma og fara í dag. Helgafell fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss fór til Reykjavíkur í gær. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 9– 12.30 bókband og öskju- gerð, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 mynd- list, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13 bókband, kl. 14–15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Laug- ard.: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10–13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9– 12 íkonagerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13–16 spilað, kl. 9.30 dans- kennsla. Félagsstarfið Furugerði 1. Kl. 9, aðstoð við böðun, smíðar og útskurður, leirmunagerð og alm. handavinna, kl. 13.30 boccia. Á morgun, föstu- dag, messa kl. 14. Prestur sr. Ólafur Jó- hannsson, Furugerð- iskórinn syngur undir stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 böð- un, kl. 9–16.30 gler- skurður, kl. 10 leikfimi, hárgreiðslustofan opin kl. 9–14, kl. 15.15 línu- dans o.fl., kl. 15.15 dans- kennsla. Félagsstarfið, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fóta- aðgerð, kl. 10 hársnyrt- ing, kl. 10.30 guðsþjón- usta sr. Kristín Pálsdóttir. Kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Fimmtudag- ur: Brids kl. 13. Fram- sögn kl. 16.15. Brids fyrir byrjendur kl. 19.30. Árshátíð FEB verður haldin í Ásgarði, Glæsibæ, föstudaginn 15. nóvember. Húsið opnað kl. 18, borðhald hefst kl. 19. Silfurlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofa fé- lagsins er í Faxafeni 12, s. 588 2111. Félagsstarfið er í Ásgarði, Glæsibæ. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Félagsvist á Álftanesi kl. 19. 30. Rútu- ferðir samkvæmt venju, kl. 13 leikfimi karla, bútasaumur, málun og keramik, kl. 17 spænska fyrir byrjendur. Fimmtud. 21. nóv. Fé- lagsvist í Holtsbúð kl. 19 í umsjá Rotary. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Púttað í Hraunseli kl.10, bingó kl. 13.30, glerskurður kl. 13. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofur og spilasalur opinn. Föstu- daginn 22. nóvember kl. 16 verður opnuð mynd- listarsýning Árna Sig- hvatssonar. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik- fimi, handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–15, kl. 9.30 keramik og leir- mótun, kl. 13 ramma- vefnaður, gler og postu- línsmálun, kl. 15 enska, kl. 17 myndlist, kl. 16. 15 og kl. 17.15 kínversk leik- fimi, kl. 20 gömlu dans- arnir, kl. 21 línudans. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulínsmálun, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna og keramik, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl.13 handa- vinna, 13.30 félagsvist. Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir velkomnir. Korpúlfarnir, eldri borg- arar í Grafarvogi. Fimmtud.: kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13–16.45 leir, kl. 10–11 ganga, kl. 14–15 jóga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir, og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 að- stoð við böðun, kl. 9.15– 15.30 alm. handavinna, kl. 10–11 boccia, kl.13–16 kóræfing og mósaik. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, körfugerð og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia, kl. 13 handmennt og spil- að. Félagsvist í kvöld kl. 20. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leikfimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Háteigskirkja, eldri borgarar. Kl. 14 í Setr- inu, samverustund „vina- fundur“, fólk hjálpast að við að vekja upp gamlar og góðar minningar, sr. Tómas og Þórdís þjón- ustufulltrúi sjá um stundina. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. 14. nóv. bæna- stund kl. 17. Allar konur velkomnar. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 spil hefst kl. 13. Minningarkort Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minning- argjöfum á skrifst. hjúkrunarforstjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Ut- an dagvinnutíma er tekið á móti minningargjöfum á deild 11-E í síma 560- 1225. Hrafnkelssjóður (stofn- að 1931) minningarkort afgreidd í símum 551- 4156 og 864-0427. Minningarkort Minning- arsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fá- anleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Hall- dórsdóttur, s. 552-2526. Minningarkort Minning- arsjóðs hjónanna Sigríð- ar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eft- irtöldum stöðum: Í Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487-8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafs- syni, Skeiðflöt, s. 487- 1299, í Reykjavík hjá Frí- merkjahúsinu, Laufás- vegi 2, s. 551-1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557-4977. Minningarkort Félags eldri borgara, Selfossi, eru afgreidd á skrifstof- unni Grænumörk 5, mið- vikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og verslunni Írisi í Miðgarði. Í dag er fimmtudagur 14. október, 317. dagur ársins 2002. Briktíus- messa. Orð dagsins: Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér. (Sálm. 4, 9.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 óhraust, 8 urg, 9 blóð- sugan, 10 greinir, 11 sigar, 13 hími, 15 kerru, 18 böðlast, 21 of lítið, 22 upplýsa, 23 fisks, 24 að- stoðar. LÓÐRÉTT: 2 bætir við, 3 blundar, 4 eyddur, 5 heldur, 6 ölv- un, 7 á höfði, 12 elska, 14 títt, 15 draugur, 16 hagnist, 17 álftar, 18 ilmur, 19 gamli, 20 muldur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gjóta, 4 sunna, 7 júlís, 8 afræð, 9 ugg, 11 taða, 13 áður, 14 karps, 15 þaka, 17 afar, 20 hik, 22 gildi, 23 örlát, 24 aðild, 25 dunar. Lóðrétt: 1 grjót, 2 óglöð, 3 ausu, 4 stag, 5 nýrað, 6 auður, 10 gerpi, 12 aka, 13 ása, 15 þagna, 16 kalli, 18 fælin, 19 rætur, 20 hind, 21 köld. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur satt að segjaekki verið til fyrirmyndar í umferðinni á þessu ári. Hann fékk sekt fyrir að aka gegn rauðu ljósi í vor og síðan fylgdi önnur sekt í kjölfarið fyrir að vera á óskoðuðum bíl. Það munaði minnstu að fyrra málið færi fyrir dóm, en dömurnar hjá sektarinnheimtu lögreglunnar í Reykjavík björguðu Víkverja frá því með einu símtali. Ekki upp í dómhús til að toga í spotta, heldur í Víkverja sjálfan sem hafði stein- gleymt að borga. Hann borgaði á stundinni og er kominn með fjóra punkta í ökuferilsskrá. Hvernig sem hann reynir að rifja upp hvernig það atvikaðist að hann ók yfir á rauðu fær hann engan botn í málið. Tekin var mynd af honum að morgni dags einn sólríkan maí- dag og allt stemmdi – nema hvað Víkverji man ekkert hvaða ljós log- aði. Hann man það helst að hann var mikið að hlusta á David Bowie í bílnum á þessu tímabili. Þetta er náttúrlega svo vítavert að það er vart hafandi eftir. Aðgæsluleysi var þetta og auðvitað almennur fá- vitaháttur en ekki einbeittur brota- vilji. Það er rétt að benda á að það er einmitt með þessum hætti sem svo mörg slys verða. Ekki síst á hinum alræmdu gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar, þar sem þetta gerðist ein- mitt. Hversu mikið sem menn geta fett fingur út í þessar eftirlits- myndavélar verður ekki framhjá því litið að þær geta gert gagn og látið menn læra af reynslunni án þess að valda slysi. x x x SÁLFRÆÐINGUR nokkur, semók á stúlku fyrir 10 árum, lýsti því á skyndihjálparþingi Rauða krossins fyrir nokkrum vikum hvaða áhrif það hefði haft á sig að slasa barnið. Sú lýsing var ekki fal- leg en ógleymanleg öllum sem á hlýddu. Hann var að flýta sér eitt- hvað á bílnum og skyndilega kom högg og barnið lá á regnblautri götunni. Hann viðurkenndi ekki þörfina hjá sér fyrir einhvers kon- ar áfallahjálp, enda sjálfur sálfræð- ingur. Það var reyndar vitleysa, sagði hann, því auðvitað var hann ekkert sterkari en aðrir þótt hann væri sálfræðingur. Það gæti hent hvern sem er að verða fyrir bíl eða aka á einhvern. Víkverji varð reyndar einu sinni fyrir bíl þegar hann var sex ára. Hann hljóp út á gangbraut og stangaði jeppa sem ók framhjá á 60 km hraða. Þetta var fyrir tíma hraðahindrana. Vík- verji slapp með brotna tönn og lófastórt mar í andliti en ólýsanleg- ar voru þær kvalir sem bílstjórinn leið, skiljanlega. Víkverji viður- kennir að það stafar alltaf af hon- um ákveðin hætta í hvert skipti sem hann sest undir stýri. Gildir einu hversu nákvæmlega hann fylgir umferðarlögunum. Hann gæti slasað einhvern sem ekki ger- ir það og það vill hann ekki. Hann getur ekki afstýrt þessari hættu nema hætta að keyra, en minnkað hana talsvert með skilyrðislausri aðgæslu. Og honum er alveg sama þótt það sé flautað á hann á stöðv- unarskyldu, þar sem er ekki „sjá- anleg“ umferð. Sömuleiðis þótt hann aki „bara“ á 90 km úti á veg- um og næsti bíll á eftir byrji að blikka ljósunum og reka á eftir silakeppnum. Það hefur líka lengi verið vandamál hjá Víkverja að halda sér vakandi við akstur úti á vegum. Það tók nokkurn tíma að venja sig á að leggja úti í kanti og fá sér kríu um leið og syfjan gerir vart við sig, en það borgar sig. Textaleysi KONA hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri kvörtun vegna textaleysis á Bíórásinni. Spyr hún hvort ekki sé hægt að þýða myndirnar, því það sé fullt af fólki sem ekki skilji ensku og eigi erf- itt með að fylgjast með. Geirmundarball ER ekki einhver dansstað- ur með stórt dansgólf sem vill halda Geirmundarball? Það er enginn sem kemur fólki jafnhratt út á dans- gólfið og hann. Það fá allir fiðring í fæturna og fólk getur ekki hamið sig þegar Geirmundur er annars veg- ar. Sigríður. Tapað/fundið Gleraugu töpuðust SVÖRT kvengleraugu í Calvin Klein-gleraugna- hulstri töpuðust í lok októ- ber, líklegast á Laugarvatni við Esso-bensínstöðina. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 697 9229 eða 565 6236. GSM-sími týndist GRÁHVÍTUR Nokia 3330 týndist 26. okt. líklega við Select á Bústaðavegi eða í leigubíl upp í Árbæ. Fund- arlaun. Upplýsingar í síma 866 5644. Frakki týndist FLAUELSFRAKKI, ljós- brúnn, týndist á Sólon að- faranótt sunnudagsins. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 869 9749. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is FÓLKINU, sem vinsæl- asti ráðherra ríkisstjórn- arinnar rétti skel til að lepja dauðann úr, fer nú sífjölgandi. Sauðsvartur almúginn er ekki til neins annars betur nýtur en að greiða m.a. niður skuldir ríkissjóðs. Það virðist vera stefna og ásetningur fjár- málaráðherra að hlífa breiðu bökunum við íþyngjandi álögum en veikari og bognari bök annarra borgara, eða komlega samstiga í því að traðka sem mest á lít- ilmagnanum. Auðsætt er að þeir eru hvorki fylgj- andi jöfnuði né réttlæti heldur forréttindum svo- kallaðra betri borgara og annarra burgeisa. Það er ekki að kynja að Margaret Thatcher, sú gamla afturhaldsrófa og kaldrifjaði kapítalisti, hrósi ríkisstjórn Davíðs Oddssonar uppí hástert. Halldór Þorsteinsson, Rauðalæk 7. réttara sagt annars flokks borgara, eru hins vegar að hans dómi hreint ekki of góð til þess að bera þær flestar ef ekki allar. Háleitar eru hugsjónir þínar og mikil er þín manngæska, Geir Haarde, eða hitt þó heldur. Raunalegt er til þess að vita hversu alvarlegri blindu, já siðblindu, stuðningsmenn þínir eru slegnir. Þeir virðast því miður vera þér full- Að lepja dauðann úr skel e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Bc4 Bg7 7. O-O O-O 8. He1 a6 9. h3 b6 10. Rd5 Bb7 11. Rxf6+ Bxf6 12. Bh6 Bg7 13. Dd2 Dc8 14. Rf5 Bf6 Staðan kom upp í Áskor- endaflokki Mjólkurskák- mótsins sem fram fór á Hótel Selfossi. Jan Votava (2517) hafði hvítt gegn Þorsteini Þorsteinssyni (2297). 15. Rxe7+! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 15...Bxe7 16. Dd4. Markaðsstjóri RÚV hef- ur á undanförnum mánuð- um átt erfitt uppdráttar á skáksviðinu en él styttir upp um síðir og mun bar- áttujaxlinn sterki án efa spýta nú í lófanna og mæta galvaskur til leiks á nýju ári. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.