Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 47

Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 47 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú ert gæddur ríkum for- ystuhæfileikum og öðrum finnst gott að sækja til þín styrk og leiðsögn. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu við þegar deil- ur um viðkvæm málefni hafa farið úr böndunum. Vertu raunsær. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þér hættir til að láta tím- ann líða án þess að þú kom- ir miklu í verk. Það eru gömul sannindi að hver er sinnar gæfu smiður. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu ekki lítilfjörlegar deilur reita þig til reiði því reiðin gerir bara illt verra. Leggðu áherslu á jákvæð samskipti við fólk því það auðveldar allt samstarf. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú munt sjá að eitt er um að tala og annað í að kom- ast. Enginn er fullkominn og þú þarft líka á skilningi að halda. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Allir samningar byggjast fyrst og fremst á málamiðl- unum. Láttu flugeldasýn- ingar annarra sem vind um eyru þjóta því þeir eru síst betri menn en þú. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þér er það óvænt ánægja hvað þú uppskerð fljótt ár- angur erfiðis þíns. Sýndu öðrum þolinmæði og tillits- semi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Láttu ekki hugfallast þótt eitthvað sé á móti þér. Gerðu áætlun og láttu ótt- ann við hið óþekkta ekki ná tökum á þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú þarft að vera á varð- bergi svo þú missir ekki af tækifærum til að bæta að- stöðu þína. Þú finnur fyrir aðdáun úr óvæntri átt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Mundu að þú ert ekki einn í heiminum og það á ekki síst við um vinnustað þinn. Láttu þér ekki bregða þótt fleiri keppi að sama marki og þú. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ákveðni þín í að leiða hlut- ina til lykta vekur athygli yfirmanna þinna og þú munt hljóta umbun erfiðis þíns. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú sættir þig ekki við neina yfirborðsmennsku í dag. Þú gætir átt í viðræðum sem munu hafa mikil árhif á frama þinn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Til þess að ná árangri getur reynst nauðsynlegt að fela öðrum hluta verkefnisins. En þá reynir líka á að menn taki tillit hver til annars. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 14. nóvem- ber, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Kristrún Jónsdóttir og Valdimar Lárusson, leikari, Hamraborg 26, Kópavogi. Þau verða með opið hús kl. 16-20 að Skerjabraut 1, Seltjarn- arnesi (sal Allsherjar Samfrímúrarareglunnar á Íslandi). Vonast þau til að sjá sem flesta af vinum og vandamönnum á þessum tímamótum. Þeir sem vilja gleðja þau með gjöfum og blómum, vinsamlegast láti andvirði þess renna í sjóð sem stofnaður hefur verið til styrktar alþjóðlegri barnahjálp í Vestur-Afríku, númer reikningsins er: 1151-26-002200 hjá Spron á Seltjarnarnesi. 70 og 65 ÁRA afmæli. Á morgun, föstudaginn 15. nóv-ember, verður sjötugur Kristinn Fr. Ásgeirsson, Hringbraut 128, Keflavík. Eiginkona Kristins, Lína Þóra Gestsdóttir, varð 65 ára 9. ágúst síðstliðinn. Í tilefni afmæl- anna verður opið hús á morgun, föstudaginn 15. nóvember, í Kiwanishúsi Eldeyjar, Smiðjuvegi 13a, Kópavogi frá kl. 16– 20 og vonast þau til að sjá sem flesta ættingja og vini. LJÓÐABROT GAMAN OG ALVARA Um undrageim í himinveldi háu, nú hverfur sól og kveður jarðar glaum; á fegra landi gróa blómin bláu í bjartri dögg við lífsins helgan straum. Þar dvelur mey hjá dimmu fossa tali og drauma vekur purpurans í blæ, og norðurljósið hylur helga sali, þar hnígur máninn aldrei niðr í sæ. Þar rísa bjartar hallir, sem ei hrynja, og hreimur sætur fyllir bogagöng, en langt í fjarska foldar þrumur drynja með fimbulbassa undir helgum söng. Og gullinn strengur gígju veldur hljóði og glitrar títt um eilíft sumarkvöld þar roðnar aldrei sverð af banablóði, þar byggir gyðjan mín sín himintjöld. – – – Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal BRÆÐURNIR Hrólfur og Oddur Hjaltasynir unnu Kauphallartvímenning Bridsfélags Reykjavíkur – þriggja kvölda keppni með 54 pörum sem lauk á þriðjudaginn. Þeir bræður skutust upp í efsta sætið í síðustu umferð og léku þar sama leikinn og í hausttví- menningi félagsins. Í öðru sæti urðu Þröstur Ingi- marsson og Bjarni H. Ein- arsson, en þeir leiddu mót- ið lengst af og höfðu umtalsverða forystu á tímabili. Þriðju urðu Ragn- ar Magnússon og Jónas P. Erlingsson. Lítum á spil úr næst síðustu umferð: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 62 ♥ G10943 ♦ ÁD1042 ♣8 Vestur Austur ♠ ÁKG1093 ♠ D874 ♥ D8762 ♥ K ♦ -- ♦ G873 ♣K7 ♣9642 Suður ♠ 5 ♥ Á5 ♦ K965 ♣ÁDG1053 Á flestum borðum spiluðu AV fjóra spaða doblaða, sem vinnast auð- veldlega þrátt fyrir stung- una í laufi. Í þeim hópi voru sigurvegararnir, Hrólfur og Oddur. Nokkur pör í NS neituðu að gefast upp við fjórum spöðum. Fimm lauf vinnast í suður ef vörnin brýtur ekki hjartaslaginn, og sama má segja um fimm tígla, þó svo að liturinn brotni illa. Feðginin Örn Arnþórsson og Dagmar Arnardóttir gerðu þó gott betur og sögðu sex tígla yf- ir fimm spöðum. Í andstöð- unni voru Stefán Jóhanns- son og Daníel Már Sigurðsson: Vestur Norður Austur Suður Daníel Dagmar Stefán Örn -- -- -- 1 lauf 2 tíglar *Pass 2 spaðar 3 tíglar 4 tíglar Dobl 4 spaðar 5 lauf Pass 5 tíglar 5 spaðar 6 tíglar Pass Pass Innákoma Daníels á tveimur tíglum sýndi hálit- ina. Stefán tók rólega á móti með tveimur spöðum og Örn harkaði sér í þrjá tígla. Daníel kom við í fjór- um tíglum á leiðinni í fjóra spaða til að búa makker undir komandi sagnbar- áttu, sem síðan endaði í sex tíglum. Útspilið var spaðaás og síðan kóngur. Örn tromp- aði, spilaði laufás og drottningu og trompaði kónginn. Spilaði svo litlum tígli úr borði og svínaði strax níunni! Það var nauð- synlegt, því samgangurinn leyfir ekki að ásinn sé tek- inn fyrst. En nú átti Örn tólf slagi og tók fyrir 920 í spili þar sem algengasta talan var 590 í hina áttina. Örn og Dagmar enduðu í fimmta sæti í keppninni, næst á eftir Jóni Baldurs- syni og Þorláki Jónssyni, sem urðu fjórðu. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 40 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 14. nóvember, er fertug Mar- grét G. Scheving og þann 16. nóvember verður eigin- maður hennar, Ásbjörn Ótt- arsson, fertugur. Í tilefni af því hafa þau ákveðið að bjóða ættingjum og vinum til veislu í Félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík, laugardaginn 16. nóvember kl. 20. 60 ÁRA afmæli. Þann16. nóvember nk. verður sextugur Ólafur Guðmundsson, Þinghóls- braut 22, Kópavogi. Eigin- kona hans er Lilja Ólafs- dóttir. Í tilefni afmælisins taka þau á móti gestum í Fé- lagsheimili Kópavogs milli kl. 20-23 laugardaginn 16. nóvember. Viltu skilja? Getur það ekki beðið þangað til eftir leikinn? Bridsfélag Siglufjarðar Siglufjarðarmót í tvímenningi hófst 14. október, spilaður var „barómeter“ allir við alla. Til leiks mættu 14 pör og því spilaðar 13 um- ferðir á þremur kvöldum. Eftir jafna og tvísýna lokabaráttu urðu úrslit þau að Siglufjarðarmeistarar í tví- menningi árið 2002 urðu þeir Sigurð- ur Hafliðason og Gottskálk Rögn- valdsson. Úrslit efstu para urðu annars þessi: Sig. Hafliðas. – Gottskálk Rögnvaldss. 73 Anton Sigurbjss. – Bogi Sigurbjss. 72 Guðlaug Márusdóttir – Ólafur Jónsson 56 Stefán Benediktss. – Þorsteinn Jóhannss. 19 Nú stendur yfir hraðsveitakeppni þar sem efsta og neðsta par úr tví- menningnum mynda sveit og par nr. 2 og næstneðsta par og svo fram- vegis. Að loknum 2 kvöldum af þremur er staða efstu sveita þessi: Sveit Birgis Björnssonar: Birgir – Þorsteinn, Friðfinnur – Hreinn 919 Sveit Vilhelms Friðrikssonar: Vilhelm – Elsa, Anton – Bogi 911 Sveit Jóhanns Jónssonar: Jóhann – Ásbjörn, Kristín – Guðrún J. 889 Þá er meistarastigsbaráttan einn- ig komin á fullt, en sá sem flest meistarastig hlýtur á starfsárinu fær nafnbótina besti spilari félags- ins, auk þess að fá góð peningaverð- laun nái hann tilteknum stigafjölda, sem að vísu er nokkuð erfitt að ná, en verðlaunastigsfjöldinn er 645 stig. Staða efstu spilara er nú: Anton Sigurbjörnsson 91 Bogi Sigurbjörnsson 91 Sigurður Hafliðason 74 Guðlaug Márusdóttir 67 Ólafur Jónsson 63 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Íslandsmót í parasveitakeppni Íslandsmót í parasveitakeppni verður haldið helgina 23.-24. nóvem- ber. Fyrirkomulag verður með sama sniði og undanfarin ár. Spilaðar eru 7 umferðir með 16 spila leikjum og raðað í umferðir með Monrad fyr- irkomulagi. Spilamennska hefst kl. 11.00 báða dagana. Skráning er haf- in í s. 587 9360 eða www.bridge.is Spariskór Bankastræti 11 • sími 551 3930 Pantaðu jólamynda- tökuna tímanlega Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar myndirnar sem þú færð í myndatökunni stækkaðar og fullunnar. Innifalið í myndatökunni: 12 stækkanir 13x18 cm, 2 stækkanir 20x25 cm og ein stækkun 30x40 cm í ramma. Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. Passamyndatökur alla virka daga. Verðdæmi: 20 stk. (rúmf. ,handkl.) kr. 2.200. 30 stk. (rúmf., handkl.) kr. 2.880. 10 stk. (skyrtur) kr. 2.400. Innifalið: Sótt - skilað, til kl. 22.00. Ummæli: „Vönduð vinna, ómetanleg hjálp.“ Frú Bergljót Halldórsdóttir, meinatæknir, Dunhaga 19. Sími 897 2943 Sækjum - Þvoum - Straujum - Skilum Fljót, ódýr og góð þjónusta HEIMILISÞVOTTAÞJÓNUSTA Dekraðu við þig, þú átt það skilið! Augustsilk Augustsilk Opið í dag kl. 16-19 í Síðumúla 35 3. hæð Heildsöluverð 100% Silki Stutterma og langerma silkipeysur, náttfatnaður, perlusaumaðir dúkar, pashminur o.fl. Engin kort - lægra verð   Lára Margrét áfram í 5. sæti Kynntu flér stefnumálin á www.laramargret.is e›a hringdu í síma 551 3339 og 861 3298

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.