Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla dagaSími 588 1200
SJÁLFSTÆÐISMENN í Norðvesturkjördæmi
slíðruðu sverðin á fundum stjórnar kjördæm-
isráðsins og kjörnefndar í kjördæminu á Stað-
arflöt í Hrútafirði í gær.
Til fundanna var boðað til að viðra öll sjón-
armið um meint brot á prófkjörsreglum í próf-
kjörinu á laugardag og fara vel í gegnum þau, að
sögn Þórólfs Halldórssonar, sýslumanns á Pat-
reksfirði og formanns kjördæmisráðsins. „Það
er mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn og fram-
boð hans í kjördæminu að menn nái góðri sam-
stöðu um hlutina, sérstaklega í ljósi þess sem á
undan er gengið.“
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu
samþykkti að atkvæði í prófkjörinu yrðu talin
aftur og farið yrði yfir öll kjörgögn, en jafnframt
var samþykkt að niðurstaða endurtalning-
arinnar yrði endanleg í sambandi við tillögu
kjörnefndar um framboðslistann í alþingiskosn-
ingunum í vor. „Við komumst að sameiginlegri
niðurstöðu og hún er ágreiningslaus,“ sagði Þór-
ólfur.
Jóhann Kjartansson, formaður kjörnefndar,
sagði að framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
yrði hafður með í ráðum varðandi yfirferð á öll-
um gögnum vegna prófkjörsins enda væru þau
hjá Sjálfstæðisflokknum. Hann sagði að menn
hefðu rætt málin af mikilli einlægni og nú væru
allir sáttir.
Ágúst Þór Bragason, kjördæmisráðsmaður
frá Blönduósi, fagnaði niðurstöðu kjörnefndar
og sagði mikilvægt að tekið hefði verið á vand-
anum heima fyrir./Miðopna
Morgunblaðið/RAXJóhann Kjartansson, Þórólfur Halldórsson og Gísli Gunnarsson á fundi kjörnefndar á Staðarflöt í Hrútafirði í gær.
Sjálfstæðismenn slíðruðu sverðin í Hrútafirði
HUGMYNDIR eru uppi um að
hætta við landfyllingar vestan við
Norðurbakka í Hafnarfirði og í
staðinn verði gert ráð fyrir minni
landfyllingum við bakkann framan
við verslunarmiðstöðina Fjörð við
Fjarðargötu. Verðlaunatillögur
hollensku teiknistofunnar Kuiper-
Compagnions, sem urðu hlutskarp-
astar í samkeppni um skipulag
byggðar á bakkanum í vor, gætu
áfram gengið upp að hluta, að sögn
formanns skipulags- og bygging-
arráðs.
Í desember í fyrra stofnuðu
Hafnarfjarðarbær, Þyrping hf. og
J&K eignarhaldsfélag ehf., sem
eiga fasteignir á norðurbakka
Hafnarfjarðarhafnar, eignarhalds-
félagið Norðurbakka og tók sam-
komulagið til uppbyggingar íbúð-
arhverfis þar og á landfyllingu
vestan við bakkann.
Að sögn Gunnars Svavarssonar,
formanns skipulags- og bygging-
arráðs, hafa hugmyndir um að
hverfa frá upphaflegum áætlunum
verið ræddar í nefndum og ráðum
bæjarins sem munu skila umsögn-
um sínum í þessari eða næstu viku
til skipulags- og byggingarráðs.
Rætt um
minni land-
fyllingar við
Fjarðargötu
Hætt verði/19
TILTRÚ almennings á íslenskum
fyrirtækjum er nokkuð önnur en
fagfjárfesta. Þetta kemur fram í
markaðsrannsókn IMG-Gallup fyr-
ir Landsbankann-Landsbréf, sem
greint verður frá á ráðstefnu sem
bankinn stendur fyrir í dag.
Bakkavör Group og Pharmaco
eru þau fyrirtæki sem fagfjárfest-
arnir, sem þátt tóku í rannsókninni,
nefndu oftast þegar þeir voru
spurðir í hvaða íslenskum fyrir-
tækjum þeir myndu kaupa hlut, ef
þeir ættu eina milljón króna. Um
26% fagfjárfestanna nefndu Bakka-
vör, en einungis um 2% almennings
nefndu það fyrirtæki sem svar við
sömu spurningu. Munurinn var
minni í tilfelli Pharmaco eða um
20% annars vegar og um 6% hins
vegar.
Össur var hins vegar það fyrir-
tæki sem almenningur tiltók oftast,
en um 15% nefndu það fyrirtæki
eins og um 11% fagfjárfestanna.
Athygli vekur að rúmlega 9% al-
mennings nefndi deCODE sem
fjárfestingarkost. Það gerðu hins
vegar engir fagfjárfestanna. Svipað
er upp á teningnum varðandi Flug-
leiðir. Fjárfestar nefndu það ekki
en um 4% almennings gerði það.
9% almenn-
ings til í að
fjárfesta
í deCODE
Mismunandi/C1
BANDARÍSKA álfyrirtækið Alcoa hefur keypt allt
hlutafé Reyðaráls hf. af Norsk Hydro og Hæfi fyrir
um 600 milljónir króna, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Samkomulag þessa efnis var undirritað í gær. Alcoa
er fyrst og fremst að kaupa þá vinnu sem Reyðarál lét
inna af hendi í tengslum við mat á umhverfisáhrifum
álvers í Reyðarfirði. Alcoa hefur áður reitt fram 450
milljónir króna í undirbúningsframkvæmdir vegna
Kárahnjúkavirkjunar, sem ætlað er að útvega álverinu
raforku. Kostnaður Alcoa vegna verkefnisins er því nú
þegar kominn í um einn milljarð króna.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun
Reyðarál hafa þurft að kosta til 800 milljónum króna
vegna umhverfismatsvinnunnar, þar af hefur Hæfi
varið hátt á þriðja hundrað milljónum króna til verks-
ins.
Finnur Ingólfsson, formaður álviðræðunefndar,
segir samkomulag Alcoa og Reyðaráls hafa grundvall-
arþýðingu fyrir framhald viðræðnanna í heild. Vonast
Finnur til að unnt verði að leggja fram frumvarp á Al-
þingi um byggingu Reyðaráls fyrir jólafrí, svo fremi
sem skipulagsstjóri heimili að fyrra umhverfismat fyr-
ir álverksmiðjuna standi.
Alcoa keypti Reyðarál
fyrir 600 milljónir
SIGURÐUR Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir að stofnun Hauk-
þings og kaup þess á hlutabréfum í
Skeljungi hafi engin áhrif á Kaup-
þing eða hlutabréfaeign þess í Skelj-
ungi. Haukþing á yfir 10% hlut í
Skeljungi og Kaupþing hefur á síð-
ustu mánuðum aukið hlut sinn í
Skeljungi og á meira en fimmtungs-
hlut í félaginu.
Sigurður segir frá því í viðtali í
viðskiptablaðinu í dag að líklegt sé
að Kaupþing muni setja upp starfs-
stöð í Noregi í framtíðinni, en Nor-
egur er eina landið á Norðurlöndum
þar sem Kaupþing hefur ekki starf-
semi. Þá segir Sigurður að nauðsyn-
legt sé fyrir Kaupþing að vera einnig
með starfsemi í London.
Haukþing
engin áhrif
á Kaupþing
Vöxturinn/C6–7
Innherji/C2
♦ ♦ ♦
REKTORAR við nokkra háskóla
gagnrýna tillögur nefndar sem Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands,
hefur sent menntamálaráðherra um
breytingu á lögum um skóla á há-
skólastigi. Vísa þeir því á bug að
Háskóli Íslands sé eini eiginlegi
rannsóknaháskólinn á Íslandi og
segja m.a. að með engu móti sé
hægt að skilja rannsóknastarfsemi í
háskólum frá kennslu í háskólum,
sem standa undir nafni.
„Mér fannst mjög sorglegt að
lesa fréttina um þessar tillögur og
tel að þar sé kröftum Háskóla Ís-
lands beint á rangar brautir. Svona
skotgrafahernaður er háskóla-
menntun á Íslandi alls ekki til fram-
dráttar,“ segir Guðfinna S. Bjarna-
dóttir, rektor Háskólans í
Reykjavík. „Mér er í raun alveg
sérlega misboðið fyrir hönd þeirra
stúdenta og starfsmanna sem hér
starfa,“ segir hún.
Í tillögunum er lagt til að gerður
verði skýrari greinarmunur á rann-
sóknaháskólum og öðrum háskólum.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands, kvaðst ekkert
hafa heyrt um þessar tillögur fyrr
en hann las um þær í frétt Morg-
unblaðsins í gær. „Eins og þetta
kemur þar fram er þetta ekkert
annað en stríðsyfirlýsing,“ segir
hann.
Fráleitur málflutningur
Runólfur Ágústsson, rektor Við-
skiptaháskólans á Bifröst, segir það
algerlega fráleitan málflutning að
leggja til að gerður verði greinar-
munur á rannsóknaháskólum og
öðrum háskólum. Þorsteinn Gunn-
arsson, rektor Háskólans á Akur-
eyri, segir að komast þurfi að sam-
komulagi um hvaða skilyrði
háskólar þurfi að uppfylla til að fá
fjármagn til rannsókna. Með fullri
virðingu fyrir Háskóla Íslands efist
hann um að HÍ myndi teljast til
rannsóknaháskóla á alþjóðlegan
mælikvarða. Íslensku háskólarnir
séu hins vegar á þeirri leið að verða
rannsóknaháskólar. Ólafur Proppé,
rektor Kennaraháskóla Íslands,
segist vera ósammála því að Há-
skóli Íslands sé eini rannsóknahá-
skólinn á Íslandi.
Ekki fengust upplýsingar í
menntamálaráðuneytinu í gær um
hvaða meðferð tillögur Háskóla Ís-
lands fá í ráðuneytinu.
Tillögur HÍ sagðar
stríðsyfirlýsing og
skotgrafahernaður
Hörð viðbrögð
annarra rektora
Fráleitt/12
Vonast/4