Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ránfuglar meðal flækinga
Ránfuglar hafa líka sést í haust, s.s. eyrugla,
sem er árviss flækingur, og gráheiðir, sem er
öllu sjaldgæfari hér á landi. Í haust kom einn
slíkur og lenti á Eskifirði, en gráheiðar hafa
aðeins tvisvar komið hingar áður svo vitað sé.
Gráheiðirinn er gerðarlegur fugl, nokkuð
stærri en smyrill en minni en fálki. Hann er
fimur á flugi og lifir á músum sem hann veiðir
á ökrum og beitir svipuðum veiðiaðferðum og
brandugla. Hann kom til Eskifjarðar í lok
september, slæptur og slappur og var tekinn í
fóstur af Hjálmari Rafnssyni. Hjálmar fóðraði
fuglinn á lifur og mávum og útskrifaði sjúk-
linginn um miðjan október. Eftir það hefur
hann sést í bænum, síðast í byrjun nóvember.
Af fleiri sjaldgæfum flækingum má nefna
húmgala, lítinn spörfugl sem fannst dauður í
Reykjavík. Þetta var í fyrsta skipti sem fugl af
þessari tegund fannst hérlendis, þótt það hafi
ekki komið mjög á óvart.
SJALDAN hafa jafnmargar tegundir fugla
flækst hingað til lands eins og á nýliðnu
hausti, en í september og okóber komu ríf-
lega 100 tegundir flækingsfugla, sem hrökt-
ust af leið sinni frá varpstöðvum í Skandinav-
íu, að talið er, til vetrarstöðva í fjarlægum og
hlýrri heimshlutum. „Það fer mjög eftir vind-
átt, hvaðan fuglarnir koma,“ segir Gunnar
Þór Hallgrímsson fuglaskoðari. „Við fáum
mest af þeim á haustin því þá er mest í stofn-
unum, t.d. eru spörfuglastofnarnir þrefaldir
eða fjórfaldir að stærð eftir fjölgun sumars-
ins.“
Stærsti flækingur haustsins er eflaust hvít-
storkurinn sem líklega var á leið til Afríku
þegar vindar feyktu honum á allt annan stað,
nefnilega Breiðdalsvík á Austurlandi. Þótt
nokkrar vikur séu liðnar frá komu hans, er
hann enn á lífi. Þegar hefur hann lifað af erf-
iða prófraun í kuldakastinu fyrir skömmu og
harkaði af sér 12 stiga frost.
Þetta er í fjórða skipti sem storkur kemur
til landsins á 33 árum, svo vitað sé. Í gær var
hellirigning fyrir austan og er storkurinn
orðinn skítugur og hrakinn. Hann heldur til í
nágrenni Ásunnarstaða og er bara spakur að
sögn Rúnars Ásgeirssonar bónda. Storkurinn
ætti að geta lifað á meðan hann nær sér í æti í
lækjum en framundan er vissulega erfiður
tími fyrir hann.
Öðrum fuglum eru hins vegar allar bjargir
bannaðar þegar þeir lenda á Íslandi, t.d. fugl-
ar sem lifa á skordýrum og þeirra bíður ekk-
ert annað en dauðinn. Undir þá sök eru svo-
kallaðir söngvarar seldir, en þetta eru litlir
spörfuglar, s.s. tálsöngvari og elrisöngvari.
Mikill fengur er að komu hins fyrrnefnda,
enda hefur fugl af þessari tegund aldrei kom-
ið áður hingað svo vitað sé, auk þess sem eng-
an grunaði að hann gæti borist hingað.
Flækingsþrestir sem hingað koma eiga
betri lífsvon, enda harðir af sér og ættu að
geta lifað af íslenska veturinn og sömuleiðis
finkur ef heppnin er með þeim.
Ljósmynd/Gunnar Þór Hallgrímsson
Tálsöngvari. Hann á sér enga lífsvon hér á landi.
Ljósmynd/Heiðrún Arnþórsdóttir
Gráheiðir á Eskifirði. Sjaldgæfur hér en á sér nokkrar lífslíkur.
Ljósmynd/Gunnar Þór Hallgrímsson
Elrisöngvari. Líkt og tálsöngvarinn á hann sér enga lífsvon.
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson
Hvítstorkur á Breiðdalsvík. Ætti að vera í Afr-
íku, en harkaði af sér 12 stiga gadd á Íslandi.
Sumir fuglanna gætu lifað af veturinn
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt framkvæmdastjóra véla-
leigu í sex mánaða skilorðsbundið
fangelsi og til að greiða 19,1 milljón
króna í sekt, fyrir að standa ekki skil á
virðisaukaskattskýrslum fyrir einka-
hlutafélag sitt eða skila röngum
skýrslum á árunum 1992 til 1999.
Samtals stóð hann ekki skil á virð-
isaukaskatti að upphæð 13,6 milljónir
króna. Einnig lét hann undir höfuð
leggjast að standa skil á staðgreiðslu
opinberra gjalda á árunum 1997-1999,
samtals tæpar 840 þúsund krónur.
Maðurinn játaði skýlaust brot sitt.
Haldi maðurinn skilorð í tvö ár fell-
ur refsingin niður en greiði hann ekki
sektina innan fjögurra vikna kemur
10 mánaða fangelsi í staðinn. Verjandi
mannsins var Gunnar Guðmundsson
hdl. en Helgi Magnús Gunnarsson
flutti málið af hálfu efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra. Guðjón
St. Marteinsson kvað upp dóminn.
Dæmdur til að greiða
19,1 milljón í sekt
ÚTHLUTUNARNEFND Kvik-
myndasjóðs mun heyra sögunni til,
verði tillögur að reglugerð um Kvik-
myndasjóð Íslands að veruleika, sem
nú eru til umfjöllunar fagfélaga, sjón-
varpsstöðva og Kvikmyndasjóðs.
Í staðinn verður tekið upp tvöfalt
úthlutunarkerfi. Annars vegar svo-
kallað verkefnastjórakerfi þar sem
verkefnastjóri leggur til hvaða mynd-
ir fái styrk eða vilyrði fyrir styrk.
Hins vegar geta reyndir leikstjórar
og framleiðendur, sem hafa náð að
fjármagna 60% af heildarframleiðslu-
kostnaði mynda, sem kosta að
minnsta kosti 50 milljónir króna, sent
umsókn um styrk beint til forstöðu-
manns Kvikmyndamiðstöðvar, sem
metur verkið og tekur ákvörðun um
styrkveitingu.
Styrkurinn verði að hámarki 40%
af heildarframleiðslukostnaði, en
nemi þó aldrei hærri upphæð en 40
milljónum króna.
Talsverð framför
Þorfinnur Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, segir tillög-
urnar hafa talsverða framför í för með
sér. Síðar nefnda kerfið hafi verið við
lýði í Danmörku í nokkur ár, fyrst
50% fjármögnun kvikmyndargerðar-
manna á móti 50% framlagi ríkis, en
nú sé hlutfall ríkisins orðið 60% á móti
40% fjármögnun kvikmyndagerðar-
manna.
Hann segir tilganginn við verk-
efnastjórakerfið vera að auka fag-
mennsku við úthlutun styrkja. Verk-
efnastjóri muni starfa allt árið um
kring að því að lesa handrit og kynna
sér umsóknir, en til þessa hafi starfs-
menn úthlutunarnefndar einungis
starfað hjá sjóðnum í um þrjá mánuði
á ári. „Þetta er orðið svo stórt, nú
styrkjum við 5–6 bíómyndir á ári og
umsóknirnar fara á annað hundrað
þannig að það verður ærið starf að
sinna því.“
Þorfinnur segir það einnig gott fyr-
ir kvikmyndagerðarmenn að geta
rætt við verkefnastjórann á hvaða
vinnslustigi sem er. „Það er kannski
óþarfi að eyða vikum í umsókn fyrir
mynd sem vitað er fyrirfram að ekki
verði hljómgrunnur til að styrkja. Það
er því hægt að koma, ræða málin og
kanna viðbrögðin. Kvikmyndagerðar-
menn hafa í seinni tíð bent á þörfina
fyrir þetta,“ segir Þorfinnur.
Hann segir að þetta þýði að verk-
efnastjóri verði ráðinn við stofnunina,
en segir að það hafi þó ekki mikinn
kostnað til viðbótar í för með sér, þar
sem hann komi í stað þriggja manna
úthlutunarnefndar sem starfaði í
nokkra mánuði á hverju ári.
Þá verður ekki lengur ákveðinn
umsóknarfrestur um styrk úr sjóðn-
um, heldur verður hægt að sækja um
styrk allt árið um kring.
Þorfinnur segir að kvikmyndagerð-
armönnum lítist ágætlega á þær
breytingar sem reglugerðin hafi í för
með sér. Einhverjir hafi þó viljað að
eingöngu síðara kerfið væri við lýði,
þannig að þeir sem hafi náð að fjár-
magna 60% mynda sinna geti sótt um
40% framlag frá Kvikmyndasjóði.
Þannig sæi markaðurinn um hvaða
myndir yrðu gerðar, en ekki smekkur
eins manns.
Kemur í veg fyrir vangaveltur
um hver tengist hverjum
„Kosturinn við það er að það kemur
í veg fyrir vangaveltur um hver sé
tengdur hverjum í okkar litla sam-
félagi. Gallinn er þó að væri þetta
kerfi eingöngu við lýði væri erfitt fyr-
ir nýliða að hasla sér völl í greininni.
Það var ein af mörgum röksemdum
fyrir því að þessi nefnd ákvað að hafa
bæði kerfin,“ segir Þorfinnur.
Reglugerðin er sett í kjölfar kvik-
myndalaga sem taka gildi um næstu
áramót. Þau skulu vera að fullu komin
til framkvæmda 1. mars 2003.
Tvöfalt úthlutunar-
kerfi fyrir kvikmyndir
Úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs heyrir sögunni til
Úr Hafinu eftir Baltasar Kormák.
LÖGMENN í þeim sex málum sem
þingfest voru í Héraðsdómi Suður-
lands í gær vegna úrskurða óbyggða-
nefndar fengu frest hjá Ingveldi Ein-
arsdóttur héraðsdómara til 5. febrúar
nk. til að skila inn greinargerðum.
Gríðarlegt magn dómsskjala var lagt
fram, sem fyllti marga pappakassa.
Er dæmi þess að einn lögmannanna
hafi þurfti að ljósrita 14 þúsund síður í
prentsmiðju fyrir þingfestinguna.
Greint var frá þessum sex dóms-
málum í Morgunblaðinu í gær en
krafist er ógildingar á úrskurðum
óbyggðanefndar frá því í mars sl. um
þjóðlendumörk í uppsveitum Árnes-
sýslu, bæði að því er varðar tiltekin
landsvæði og málskostnað.
Ríkið stefnir eigendum 15 jarða í
Bláskógabyggð og ríkinu er svo stefnt
af Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi, Hrunamannahreppi,
Prestsetrasjóði, Afréttarfélagi Flóa-
og Skeiðamanna og Grímsnes- og
Grafningshreppi. Stefna þeirra síð-
asttöldu hafði áður verið þingfest í
héraðsdómi.
Lögmenn fá frest fram í febrúar