Morgunblaðið - 21.11.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 11
TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráð-
herra sagði á Alþingi í gær að sam-
kvæmt alþjóðlegum niðurstöðum um
ólæsi mætti gera ráð fyrir því að um
8% Íslendinga eða um 15.000 manns
á aldrinum 15 til 65 ára hér á landi
ættu við mjög mikla eða umtalsverða
lestrarörðugleika að stríða. Kom
þetta fram í máli ráðherra við fyr-
irspurn Svanfríðar Jónasdóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Svanfríður sagði að það væru
býsna margir sem tryðu því ekki að
það gæti verið um svo víðtækt ólæsi
að ræða meðal Íslendinga. Við vær-
um „jú bókaþjóð og læs“. Á því
byggðist sjálfsmynd Íslendinga.
„Þess vegna er það líka
enn þá erfiðara fyrir
þá sem stríða við ólæsi
að þurfa að horfast í
augu við sinn vanda.“
Sagði hún að stór hluti
þess hóps væri ekki á
vinnumarkaði. „Hann
hefur flæmst af vinnu-
markaði, hafi hann komist þangað,
vegna síaukinna krafna.“
Ráðherra skýrði frá því að ráðu-
neytið hefði skipað starfshóp hinn 8.
mars sl. sem hefði m.a. haft það verk-
efni að gera áætlun um hvernig
koma megi umræddum aðilum til að-
stoðar. Starfshópurinn hefði skilað
skýrslu til ráðuneytis-
ins í lok október sl. og í
ráðuneytinu væri verið
að fara yfir þá skýrslu.
Ráðherra sagði að
þar sem sérfræðingar,
sem ráðuneytið hefði
leitað til, hefðu sagt að
alþjóðlegar niðurstöð-
ur um ólæsi ættu við um Ísland teldi
hann ekki ástæðu til að ráðast í yf-
irgripsmikla og dýra könnun til að
athuga hvernig þessi mál stæðu hér
á landi. „Það er afstaða ráðuneytis-
ins að það sé brýnna að finna úrræði
og grípa til aðgerða en ráðast í könn-
un.“
Lestrarörðugleikar
15.000 Íslendinga
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra ítrekaði í fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær að hann vonaðist til
þess að málefni heilsugæslunnar á
Suðurnesjum leystist hið fyrsta.
Eins og kunnugt er sögðu allir
fastráðnir og lausráðnir heilsu-
gæslulæknar á Suðurnesjum upp
störfum sínum fyrr á árinu og tóku
þær uppsagnir gildi sl. mánaða-
mót.
Á Alþingi í gær minnti ráðherra
á að Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja hefði mætt því álagi sem
hefði skapast vegna uppsagnanna
eftir bestu getu. Ennfremur hefði
einn læknir tekið til starfa á
heilsugæslunni. „Ég hef lagt mig
fram um að leysa þetta mál,“ sagði
ráðherra og kvaðst vænta þess að
málið leystist hið fyrsta, eins og
áður sagði.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, hóf um-
ræðuna um málefni heilsugæslunn-
ar í fyrirspurnartíma og benti m.a.
á að í lögum um heilbrigðisþjón-
ustu segði að allir landsmenn ættu
að eiga kost á fullkomnustu heil-
brigðisþjónustu. „Síðustu þrjár
vikur hefur Heilsugæslan á Suð-
urnesjum verið án starfandi lækna
nema í bráðatilfellum,“ sagði hún
og taldi það óviðunandi ástand.
„Verst bitnar þetta auðvitað á
þeim sjúklingum sem þurfa á
reglubundinni læknishjálp að
halda; búa við erfiða langvarandi
sjúkdóma. En einnig bitnar þetta
á barnafjölskyldum sem þurfa oft
að leita til heilsugæslunnar.“ Sagði
hún að íbúar á Reykjanesi þyrftu
nú að sækja umrædda þjónustu
langt frá sinni heimabyggð. Því
fylgdi m.a. óþægindi og auka-
kostnaður. Spurði hún ráðherra
hvort hann myndi beita sér fyrir
því að sá aukakostnaður yrði
greiddur úr ríkissjóði.
Heilbrigðisráðherra svaraði því
hins vegar til að hann teldi ekki
ástæðu til að breyta reglum um
sjúklingagjöld, að svo stöddu, til
að mæta fyrrgreindum aukakostn-
aði. Ítrekaði hann að hann vænti
þess að deilan myndi leysast hið
fyrsta. Hann tók þó fram að sér
væri ljóst að ástandið á Suðurnesj-
um hefði valdið mörgum íbúum
óþægindum.
Vonast til að læknadeil-
an leysist hið fyrsta
KOLBRÚN Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar-
græns framboðs, gæti verið að
búa sig undir svokallaða nefnda-
daga, en á nefndadögum fara
ekki fram reglubundnir þing-
fundir.
Þingmenn fá því tækifæri til að
sinna eingöngu nefndastörfum.
Mörg mál bíða þess að verða af-
greidd úr þingnefnd.
Venjulegur þingfundur verður
því ekki haldinn fyrr en nk.
þriðjudag.
Morgunblaðið/Kristinn
Nefndadagar á Alþingi
ÞRÍR menn hafa verið yfirheyrðir
með réttarstöðu grunaðra manna
vegna rannsóknar á misferli með
eigur varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, tveir Íslendingar og einn
bandarískur varnarliðsmaður. Fleiri
hafa verið yfirheyrðir vegna máls-
ins. Annar Íslendingurinn var
starfsmaður Umsýslustofnunar
varnarliðseigna (áður Sölunefnd
varnarliðseigna) en var sagt upp
þegar grunur féll á hann í október
sl.
Rannsóknin er á frumstigi og
ekki er enn ljóst hversu umfangs-
mikið málið er, en svikin eru a.m.k.
talin nema milljónum króna.
Verði mennirnir ákærðir er enn
ekki ljóst hvort réttarhöld yfir
Bandaríkjamanninum fari fram fyr-
ir íslenskum dómstólum eða banda-
rískum herdómstól. Að sögn Jó-
hanns R. Benediktssonar,
sýslumanns á Keflavíkurflugvelli,
skiptist lögsaga á flugvellinum al-
mennt þannig að sýslumannsemb-
ættið hefur lögsögu yfir Íslending-
um sem þar vinna en
rannsóknardeild sjóhersins (NCIS)
yfir bandarískum varnarliðsmönn-
um. Rannsóknin er í höndum lög-
reglunnar á Keflavíkurflugvelli en
hún er unnin í náinni samvinnu við
rannsóknardeildina. Samkvæmt
reglum er fulltrúi varnarliðsins
ávallt viðstaddur þegar lögreglan
yfirheyrir varnarliðsmenn.
Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
forstjóra Umsýslustofnunar varnar-
liðseigna, vaknaði grunur um mis-
ferli í haust og bárust böndin fljót-
lega að einum starfsmanni
stofnunarinnar. Í byrjun október
hafi honum verið vikið úr starfi og í
kjölfarið hafi sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli verið beðinn um
að rannsaka málið. Um sex manns
hafa starfað hjá stofnuninni undan-
farin ár, þar af nokkrir í hlutastarfi.
Segir Alfreð að smám saman hafi
dregið úr starfseminni og á síðustu
árum hafi veltan numið 100–200
milljónum árlega.
Í Morgunblaðinu á þriðjudag var
ranghermt að skrifstofu Umsýslu-
stofnunar á Keflavíkurflugvelli hefði
verið lokað. Hið rétta er að skrif-
stofu varnarliðsins, sem annast sölu
varnarliðseigna, var lokað tíma-
bundið vegna rannsóknar málsins.
Rannsókn á misferli með eignir varnarliðsins
Umfang brota ekki ljóst
Helgartilboð
20% afsláttur af kvenpeysum
úr ull og bómull
Kringlunni - Sími 568 1822
Allt fyrir
jólabarnið!
Skeifan 8, sími: 568 2200
www.babysam.is
Í BabySam fær›u
á litlu krílin
jólafötin
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
BS
1
93
94
11
/2
00
2
Laugavegi 84, sími 551 0756
20% afsláttur af síðum kápum