Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 13
HRAFN Grétarsson lögreglumað-
ur sem starfar sem hópstjóri í ör-
yggisgæslusveitum sérsveita al-
þjóðalögregluliðs Sameinuðu
þjóðanna í Pristina í Kosovo fékk
í vikunni afhenta þjónustuorðu
fyrir störf sín á vegum SÞ.
Orðuveitingarathöfnin var fyrir
íslenska og danska lögreglumenn.
Við þetta tækifæri afhenti Har-
aldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri Stefan Feller, lög-
reglustjóra alþjóðalögregluliðs-
ins, veggskjöld frá sérsveit
ríkislögreglustjórans, en íslenskir
lögreglumenn, sem sendir hafa
verið til starfa í Kosovo, hafa all-
ir starfað í sérsveitinni. Þeir
gegna störfum með fullt lög-
regluvald og ganga vopnaðir
dags daglega við störf sín í Kos-
ovo, en alls hafa níu íslenskir lög-
reglumenn starfað í Kosovo.
Nú eru þeir tveir, Hrafn og Ás-
geir Þór Ásgeirsson, sem hefur
starfað sem yfirmaður sérsveita
alþjóðalögregluliðsins og verið í
Kosovo í rúm tvö ár. Auk fyrr-
nefndra voru viðstaddir athöfnina
Thom Hacker, varalögreglustjóri
alþjóðaliðsins, Jón Bjartmarz yf-
irlögregluþjónn og háttsettir yf-
irmenn frá danska ríkislög-
reglustjóranum og úr
alþjóðalögregluliðunum. Einnig
var viðstaddur hópur íslenskra
flugumferðarstjóra sem eru við
störf á flugvellinum í Pristina.
Í Kosovo starfa um 4.700 lög-
reglumenn frá 53 löndum.
Fékk þjónustuorðu
Sameinuðu þjóðanna
Að athöfninni lokinni. Frá vinstri: Ásgeir Þór Ásgeirsson lögreglumaður,
Thom Hacker, varalögreglustjóri alþjóðaliðsins, Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri, Stefan Feller, lögreglustjóri alþjóðaliðsins, Jón Friðrik
Bjartmarz yfirlögregluþjónn og Hrafn Grétarsson lögreglumaður.
KJARTAN Jóhannsson sendiherra
hefur afhent Per Stig Møller, utan-
ríkisráðherra Dana og sitjandi for-
seta ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Íslands hjá sambandinu.
Afhenti
trúnaðarbréf
sérsniðin innheimtulausn
40% a
fslát
tur
af in
nimá
lning
u!
Allt a
ð
MÁLNINGARTILBOÐ
í verslunum Hörpu Sjafnar
419kr. á lítrann
Norðan tíu í 10 lítra dósum
KARLMANNI, sem setið hefur
í gæsluvarðhaldi vegna gruns
um að hann hafi framið kynferð-
isbrot gegn tveimur unglings-
stúlkum, var sleppt úr haldi í
fyrrakvöld.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir að
maðurinn, sem er á fertugsaldri,
hafi verið handtekinn og úr-
skurðaður í 10 daga gæsluvarð-
hald í kjölfar kæru um að hann
hefði ráðist að 14 ára stúlku sem
var gestkomandi á heimili hans í
Reykjavík. Brotið er talið alvar-
legt en ekki er þó um fullframda
nauðgun að ræða. Maðurinn var
ölvaður þegar atvikið átti sér
stað. Eftir að hann var handtek-
inn kærði önnur 14 ára gömul
stúlka hann fyrir svipað brot.
Gæsluvarðhaldið yfir mannin-
um átti að renna út í gær en í
ljósi þess að rannsókn málsins
miðar ágætlega þótti ekki
ástæða til að fara fram á áfram-
haldandi gæsluvarðhald.
Tvær stúlkur
kærðu kyn-
ferðisbrot
alltaf á föstudögum
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.