Morgunblaðið - 21.11.2002, Qupperneq 14
FRÉTTIR
14 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„STÓRIÐJUBRJÁLÆÐI“ og „Ál-
lendi Íslands“ var meðal þess sem
stóð á kröfuspjöldum áhugahóps um
náttúru Íslands sem mótmælti fyrir-
hugaðri Kárahnjúkavirkjun og Norð-
lingölduveitu fyrir utan höfuðstöðvar
Landsvirkjunar í hádeginu í gær.
„Við viljum vernda ósnortin víðerni
Íslands og virða friðlöndin í Þjórsár-
verum og Kringilsárrana,“ segir í yf-
irlýsingu frá hópnum. Hann vill skoða
minna umdeilda virkjunarkosti og að
hlúð verði að öðrum atvinnukostum
en álframleiðslu. Stóriðjustefna ógni
lífríki og landkostum og sé fjárhags-
og félagslega hættuleg. „Við mót-
mælum framkomu Landsvirkjunar í
garð vísindamanna sem felst í að
breyta samntekt á niðurstöðum án
samþykkis þeirra,“ segir loks í yfir-
lýsingunni.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, og Ragn-
heiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri,
veittu yfirlýsingunni móttöku. Í
ávarpi sem þau afhentu mótmælend-
um sagði að Landsvirkjun gerði sér
grein fyrir því að virkjunaráform á
hálendi Íslands væru umdeild.
„Einmitt þess vegna er mikilvægt
að opin og málefnaleg umfjöllun eigi
sér stað þar sem það sem menn vita
best um áhrif og afleiðingar fram-
kvæmda kemur til skoðunar,“ segir í
ávarpi Landsvirkjunar. Þá var um-
mælum um að Landsvirkjun hafi við-
haft óheiðarleg vinnubrögð í málinu
vísað á bug.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mótmæltu við höfuð-
stöðvar Landsvirkjunar
ana, til að gera vinnubrögð mark-
vissari og skilvirkari og forða börn-
um sem sætt hafa kynferðisofbeldi
frá því að þurfa að endurupplifa
erfiða lífsreynslu. Að koma börnum
til hjálpar og greiningar þegar þess
gerist þörf. Að safna saman á einn
stað þverfaglegri þekkingu mis-
munandi stofnana við rannsókn og
meðferð mála og miðla henni til
þeirra sem á þurfa að halda.“ Sagði
Guðbjörg að flestir gætu verið sam-
mála um að Barnahús hefði sannað
sig sem raunverulegt framfaraspor
í þágu barna og réttinda þeirra.
500 börn hafa heimsótt
Barnahús nú þegar
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, og Vigdís Er-
lendsdóttir, sálfræðingur og for-
stöðukona Barnahúss, tóku við við-
urkenningunni. „Barnahús hefur
fengið gífurlega góðar móttökur og
„MÉR er sérstök ánægja
að tilkynna þá ákvörðun
stjórnar Barnaheilla að
fyrstu viðurkenningu sam-
takanna fyrir sérstakt
framlag í þágu barna og
réttinda þeirra hlýtur
Barnahús,“
sagði Guðbjörg Björns-
dóttir, formaður Barna-
heilla, er viðurkenningin
var afhent forsvars-
mönnum Barnahúss við há-
tíðlega athöfn í Þjóðmenn-
ingarhúsi í gær. „Tilkoma
Barnahúss er einfaldlega
að mati Barnaheilla eitt
merkasta framfaraspor
sem stigið hefur verið á Ís-
landi til að uppfylla skyld-
ur okkar gagnvart börnum
sem grunur leikur á að hafi
verið beitt kynferðislegu
ofbeldi.“
Guðbjörg sagði ánægju-
legt að geta þess að Barna-
hús hefði vakið mikla at-
hygli í nýloknu
rannsóknarverkefni tíu
Save the Children-samtaka í Evr-
ópu, sambærilegum Barnaheill, um
kynferðislegt ofbeldi á börnum.
Börn þurftu áður að
segja mörgum sögu sína
Hugmyndafræðin að baki Barna-
húsi miðar að því að koma í veg fyr-
ir endurtekið áfall hjá barni, sagði
Guðbjörg. „Fyrir tíma Barnahúss
gátu börn þurft að margendurtaka
sögu sína á ólíkum stöðum fyrir
ólíka aðila með öllu því álagi sem
því fylgir.“
Barnahús hóf starfsemi sína fyrir
fjórum árum og er rekið af Barna-
verndarstofu. „Meginmarkmið
Barnahúss er að samræma eins og
unnt er hlutverk barnaverndar- og
félagsmálayfirvalda, saksóknara og
lækna við rannsóknir kynferð-
isbrota gagnvart börnum,“ sagði
Guðbjörg.
„Að efla samstarf þessara stofn-
hróður þess hefur borist víða um
lönd,“ sagði Bragi af þessu tilefni.
„En vindar hafa blásið um húsið
en það er eðlilegt að menn greini á
um það hvernig best sé að standa að
þessum málum, því allir vilja leggja
sig fram eins og mögulegt er.“
Bragi sagði að frá upphafi hafi ráð-
ist til starfa í húsið einstaklega gott
starfsfólk. Sagði hann að þegar
hefðu sálfræðingur og félagsráð-
gjafi hússins tekið viðtöl við 200
börn en um 500 börn hefðu heimsótt
húsið frá því það var stofnað.
Barnaheill voru stofnuð 24. októ-
ber árið 1989 og 20. nóvember sama
ár samþykkti allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna Barnasáttmálann.
„Barnasáttmálinn og Barnaheill eru
eitt að mínu mati,“ sagði Kristín
Jónasdóttir, framkvæmdastjóri
Barnaheilla, í gær. „Sáttmálinn er
órjúfanlegur hluti af starfsemi sam-
takanna.“
Raunverulegt fram-
faraspor í þágu barna
Guðbjörg Björnsdóttir, formaður Barnaheilla, afhendir Vigdísi Erlendsdóttur,
forstöðukonu Barnahúss, og Braga Guðbrandssyni, forstjóra Barnaverndarstofu,
viðurkenninguna í gær.
Barnahús hlaut viðurkenningu Barnaheilla sem veitt var í gær
Morgunblaðið/Þorkell
RE/MAX fasteignasölurnar og ráð-
gjafarfyrirtækið Pricewaterhouse-
Coopers (PwC) hafa gert með sér
samning um að PwC sjái um innra
eftirlit með fasteignasölum sem
nota RE/MAX sölukerfið. Eftirlitið
er komið til framkvæmda að nokkru
leyti en tekur að fullu gildi um ára-
mót.
„Við höfum hugsað okkur að
koma á verklagsreglum sem
tryggja alla meðferð fjármuna sem
eru hjá fasteignasölunum, bæði
þeirra fjármuna sem eru þar vegna
starfsemi fyrirtækisins sem og
vörslufjár. Síðan munum við hafa
reglulegt eftirlit með því að þessum
reglum sé fylgt,“ segir Þórir Ólafs-
son, löggiltur endurskoðandi hjá
PwC. Aðspurður segist hann gera
fastlega ráð fyrir að aðrar fast-
eignasölur geti samið um slíkt innra
eftirlit.
Meðal helstu þátta í samkomu-
laginu er að PwC sjái til þess að
fjármunir viðskiptavina fara inn á
sérstakan vörslureikning, sá sem
tekur við fjármununum sjái ekki
um að ráðstafa þeim, hægt verði að
rekja hvernig fjármunum er ráð-
stafað og haldið verður uppi fyr-
irbyggjandi eftirliti. Engar undan-
tekningar verði leyfðar frá
samþykktu vinnuskipulagi.
Skilvirkara en opinbert eftirlit
Gísli Gíslason, lögfræðingur RE/
MAX á Íslandi, segir að skv. siða-
reglum RE/MAX eigi óháður aðili
að hafi eftirlit með starfsemi fast-
eignasala sem starfa undir þeirra
merkjum. Samningaviðræður við
PwC um að fyrirtækið tæki að sér
eftirlitið hér á landi hefðu staðið yf-
ir um nokkurt skeið en undirbún-
ingi hefði verið hraðað í kjölfar þess
að fasteignasali í Kópavogi játaði á
sig stórfelld fjársvik.
„Við höfum orðið varir við það að
viðskiptavinir fasteignasala hafa
verið mjög uggandi í kjölfarið á
þessu máli og við viljum gera það að
verkum að fólk geti sofið rótt þó
það eigi í fasteignaviðskiptum.“
Gísli segir lög og reglugerðir um
eftirlit með fasteignasölum hér á
landi ófullnægjandi. RE/MAX hafi
ákveðið að taka frumkvæðið og ekki
bíða eftir aðgerðum stjórnvalda.
Með samningnum við PWC sé ekki
þörf fyrir frekara eftirlit af hálfu
opinberra aðila og í raun sé eftirlit-
ið mun skilvirkara en nokkurn tíma
væri að vænta frá stjórnvöldum.
Samningur um
innra eftirlit
Morgunblaðið/Þorkell
Þórir Ólafsson hjá PwC, Hrafnhildur Bridde, RE/MAX á Suðurlandsbraut,
og Geir Þorsteinsson, RE/MAX í Þingholtum, við undirritun samningsins.
RE/MAX fasteignasölurnar og PwC
3ja rétta hádegisverðartilboð
kr. 1700