Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 15
Medifact er fyrirtæki í Ósló
sem miðlar störfum innan heilbrigðiskerfisins.
Okkur bráðvantar heimilislækni til starfa á heilsugæslustöð
í Svíþjóð frá 25. nóvember til 6. desember.
Mjög góð laun í boði. Fríar ferðir og húsnæði. Ekki krafist
sérfræðimenntunar. Sænskukunnátta nauðsynleg.
Við höfum einnig mikla þörf fyrir
lækna í öðrum sérgreinum
til starfa á sjúkrahúsum.
Áhugasamir hafi samband sem fyrst
við Ulf Söderberg eða Gerd Wenche Frilseth.
Medifact AS, Bjørnerudveien 12b, 1266 Oslo, Norge.
Sími +47 22629850, fax +47 22629851.
Tölvupóstur: medifact@medifact.no
Læknar óskast
til Skandinavíu!
...ein fyrir mig
...ein fyrir vinnuna
...ein fyrir tengdó
Fullt verð 2.997 kr.
kr.
kr.
Ísinn á 50 kr.
í Sigtúni og
á Akureyri
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
94
44
1
1/
20
02
25 jólakort
499 kr.
VEGNA fyrirhugaðra framkvæmda
við Kárahnjúkavirkjun hefur Lands-
virkjun óskað eftir verktökum til að
taka þátt í forvali fyrir útboð á af-
hendingu og uppsetningu á sex véla-
samstæðum. Hámarksafl virkjunar-
innar verður 630 MW og er reiknað
með að væntanlegur verktaki hanni,
framleiði og setji upp samstæðurnar,
sem hver um sig er 105 MW að
stærð.
Gert er ráð fyrir undirritun verk-
samnings í ágúst 2003 og verklok eru
áætluð síðla árs 2007. Verktakar
þurfa að hafa skilað forvalsumsókn
til Landsvirkjunar í síðasta lagi 16.
desember nk.
Forval á
sex véla-
samstæðum
RUNÓLFUR Ágústsson, rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst, hef-
ur af stjórn háskólans verið end-
urráðinn rektor
til næstu fjög-
urra ára. Rektor
Viðskiptaháskól-
ans er ráðinn til
fögurra ára í
senn og má
samkvæmt
reglum háskól-
ans mest sitja
átta ár samfellt
í starfi.
Runólfur hefur gegnt stöðu
rektors Viðskiptaháskólans frá
árinu 1999. Hann er lögfræðingur
að mennt og útskrifaðist frá laga-
deild Háskóla Íslands árið 1992.
Runólfur var leikhúsritari Leik-
félags Reykjavíkur árin 1985–
1986, framkvæmdastjóri Stúd-
entaráðs Háskóla Íslands árið
1988, fulltrúi sýslumanns Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu 1992 og
fulltrúi sýslumannsins í Borg-
arnesi 1992–1998. Hann hóf störf
á Bifröst sem stundakennari
haustið 1992, var ráðinn lektor
árið 1994 og aðstoðarrektor
1998. Runólfur öðlaðist málflutn-
ingsréttindi fyrir héraðsdómi árið
1998.
Hann er kvæntur Ásu Björk
Stefánsdóttur kennara og eiga
þau þrjá drengi, Skarphéðin Án,
Stefán Bjart og Eyvind Ágúst.
Endurráð-
inn rektor
á Bifröst
Runólfur
Ágústsson
FYRRVERANDI umboðsmenn
Tupperware hafa verið dæmdir til að
greiða Tupperware Nordic um 20
milljónir vegna óuppgerðrar við-
skiptaskuldar.
Umboðsmennirnir, karlmaður og
kona, höfnuðu því að greiða skuldina
og bentu á að þegar þau tóku við um-
boðinu hefði þeim verið gert að greiða
500.000 danskar krónur, jafnvirði um
sex milljóna íslenskra króna, fyrir við-
skiptavild fyrri umboðsmanns. Sá
hefði aðeins selt vörurnar í tvö ár og
staðið sig illa. Þau hefðu á hinn bóginn
selt Tupperware-vörur fyrir einn
milljarð íslenskra króna á 12 árum.
Því ætti viðskiptavild þeirra að nema
margfaldri þeirri fjárhæð sem danska
fyrirtækið krefði þau nú um. Danska
fyrirtækið hélt því á hinn bóginn fram
að þau hefðu samið við fyrri umboðs-
menn um að greiða fyrir viðskiptavild
þegar þau sóttust eftir umboðinu.
Héraðsdómur féllst ekki á að þau
ættu að fá nokkra endurgreiðslu
vegna viðskiptavildar enda hefði ekki
verið samið um slíkt og dæmdi þau til
að greiða sektina. Skúli J. Pálmason,
héraðsdómari, kvað upp dóminn.
Hróbjartur Jónatansson hrl. flutti
málið f.h. danska fyrirtækisins en
Bergur Guðnason hdl. var til varnar.
Tupper-ware fyrir
milljarð á 12 árum
♦ ♦ ♦