Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 16
FRÉTTIR
16 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKVÆMT ársskýrslu umboðs-
manns Alþingis fyrir árið 2001 eru
sex mál enn til meðferðar hjá stjórn-
völdum eftir að umboðsmaður skil-
aði áliti í umræddum málum á síð-
asta ári og beindi þar ákveðnum
tilmælum til stjórnvalda. Meðferð
þessara mála skiptist jafnt milli
dómsmálaráðuneytisins og ríkislög-
reglustjóra, landbúnaðarráðuneytis-
ins og kjaranefndar.
Afgreiðsla þeirra hefur dregist af
mismunandi ástæðum en ef tíminn
er skoðaður frá því að fyrst var
kvartað til umboðsmanns Alþingis
kemur í ljós að sum málanna hafa
verið til meðferðar í kerfinu í rúm
þrjú ár.
Kvartað yfir bónstöð
og rokktónlist
Greint var frá einu þessara mála í
Morgunblaðinu fyrir nokkru, þ.e.
frumkvæðisathugun umboðsmanns
á réttarstöðu fanga og málsmeðferð
fangelsisyfirvalda. Fram kom að
nefnd á vegum dómsmálaráðherra
hefur tekið til starfa sem ætlað er að
vinna að nýju lagafrumvarpi þar
sem m.a. verður tekið á þeim úrbót-
um sem umboðsmaður lagði til. Álit-
inu skilaði hann í nóvember á síðasta
ári og að lokinni eftirgrennslan fékk
hann þau svör frá ráðuneytinu í apríl
sl. að semja ætti nýtt lagafrumvarp.
Hitt málið sem er til meðferðar í
dómsmálaráðuneytinu, sem og hjá
ríkislögreglustjóraembættinu, teng-
ist kvörtun sem umboðsmanni barst
í ágúst 1999 yfir lögreglunni í
Reykjavík. Þrír nágrannar atvinnu-
húsnæðis kvörtuðu yfir hávaða og
ónæði sem barst frá bónstöð í húsinu
og æfingum rokkhljómsveita. Um-
boðsmaður komst m.a. að þeirri nið-
urstöðu í áliti, sem skilað var í mars
2001, að lögreglan hefði ekki sinnt
lögboðnu hlutverki sínu. Einnig var
talin þörf á verklagsreglum fyrir
lögreglu og vakti umboðsmaður at-
hygli ríkislögreglustjóra og dóms-
málaráðuneytisins á álitinu.
Í febrúar á þessu ári fékk um-
boðsmaður bréf frá dómsmálaráðu-
neytinu þar sem kynnt voru drög að
verklagsreglum ríkislögreglustjóra
um viðbrögð lögreglu þegar hávaði
og ónæði hlýst af starfsemi í hús-
næði í einkaeigu. Þegar ársskýrsla
umboðsmanns fór í prentun í sept-
ember sl. höfðu þessar verklagsregl-
ur ekki enn verið gefnar út. Morg-
unblaðið fékk þær upplýsingar í
dómsmálaráðuneytinu að drögin
hefðu verið að fara á milli ráðuneyt-
isins og ríkislögreglustjóra síðustu
mánuði en von væri á verklagsregl-
unum frá embætti ríkislögreglu-
stjóra á næstunni.
Ríkisjörð og gæludýr
Málin sem tengjast landbúnaðar-
ráðuneytinu eru annars vegar út af
sölu á ríkisjörð og hins vegar vegna
einangrunarstöðvar fyrir gæludýr. Í
ágúst 1999 kvartaði ábúandi á rík-
isjörð yfir því til umboðsmanns að
ráðuneytið hefði synjað honum um
kaup á jörðinni. Hafði ráðuneytið
auglýst jörðina til sölu samkvæmt
breyttum vinnureglum, þrátt fyrir
að hafa vitað um kaupáhuga ábúand-
ans. Í áliti sínu gagnrýnir umboðs-
maður ráðuneytið fyrir framkvæmd
breyttra vinnureglna og fyrir að
hafa ekki auglýst þær opinberlega.
Álitinu var skilað í júní árið 2001 og í
bréfi til ráðuneytisins í upphafi
þessa árs óskaði umboðsmaður eftir
upplýsingum um hvort vinnuregl-
urnar hefðu verið birtar samkvæmt
settum reglum. Einnig spurði hann
hvort ábúandinn hefði leitað til ráðu-
neytisins á ný.
Umboðsmaður fékk þau svör að
reglurnar hefðu verið settar í kjölfar
athugasemda Ríkisendurskoðunar
og m.a. verið birtar á vef ráðuneyt-
isins. Ráðuneytið upplýsti ennfrem-
ur að ábúandinn hefði óskað á ný eft-
ir því að kaupa jörðina en erindinu
hefði verið hafnað. Ábúandinn leitaði
á ný til umboðsmanns í febrúar sl. og
hann átti fund með ráðuneytismönn-
um í byrjun apríl sl. Í ársskýrslunni
segir að á þeim fundi hafi komið
fram vilji ráðuneytisins til að taka
málið aftur til úrlausnar. Samkvæmt
upplýsingum frá Guðmundi B.
Helgasyni ráðuneytisstjóra er það
enn til athugunar en niðurstaðna að
vænta á næstu dögum eða vikum.
Þá segir Guðmundur að málið
vegna einangrunarstöðvar fyrir
gæludýr sé enn á vinnslustigi. Fram
fari áhættugreining á innflutningi
gæludýra til landsins. Hann segir
þetta mál hafa tekið lengri tíma en
ætlað hafi verið. Fyrst var kvartað
yfir því til umboðsmanns Alþingis í
maí árið 2000. Þá hafði ráðuneytið
synjað umsækjanda um leyfi fyrir
einangrunarstöð. Umboðsmaður
skilaði áliti í júní á síðasta ári og
taldi að ráðuneytið hefði ekki fært
fullnægjandi rök fyrir synjuninni.
Sagði hann lagaákvæði um takmark-
anir á innflutningi dýra og fram-
kvæmd sóttvarna fela í sér takmark-
anir á atvinnufrelsi. Beindi hann
þeim tilmælum til landbúnaðarráðu-
neytisins að taka mál umsækjand-
ans fyrir að nýju. Í nóvember 2001
sendi hann ráðuneytinu bréf og
kannaði hvort málið hefði verið tekið
upp. Ráðuneytið svaraði umboðs-
manni í byrjun þessa árs með þeim
orðum að málið væri komið til með-
ferðar að nýju. Er svo enn, sam-
kvæmt framansögðu.
Þá hefur kjaranefnd tvö mál til
meðferðar eftir að umboðsmaður
beindi til hennar tilmælum í fyrra.
Bæði málin tengjast úrskurði nefnd-
arinnar frá miðju ári 1998 um launa-
kjör prófessora við Háskóla Íslands
og mati á störfum þeirra. Kvörtuðu
tveir prófessorar til umboðsmanns í
desember 1999 og apríl 2000 yfir
málsmeðferð og niðurstöðu kjara-
nefndar. Skilaði settur umboðsmað-
ur álitum í þessum málum í sept-
ember á síðasta ári þar sem hann
gagnrýndi m.a. matsreglur nefndar-
innar og vildi að hún skoðaði málin
betur. Í janúar á þessu ári spurðist
umboðsmaður fyrir hjá kjaranefnd
hvort prófessorarnir hefðu leitað til
hennar aftur og hvort brugðist hefði
verið við tilmælunum. Umboðs-
manni var svarað í mars sl. þar sem
fram kemur að kjaranefnd brást við
með ýmsum aðgerðum en málunum
væri ekki lokið. Í ársskýrslu segir
umboðsmaður m.a. að nefndin hafi
ekki enn svarað svarað þessum pró-
fessorum formlega. Morgunblaðið
fékk þau svör hjá lögfræðingi kjara-
nefndar að málin væru enn til með-
ferðar.
)
( #)!!
*+! ( !&)! (
,"!(
()
./)
-
()
.
!$"
&
$%&
$
./)
()
$
0
!) # (!
)
)
!!
% -
%1)!(
$ (
&!$
) (%)
( 3/!1) +
!
"!)
%
#
#3$"!%
1)
4 ( !
"
!!#
!
%) (!" 5!!
$ (
!)
16
4 ( !
"
!!#
!
%) (!" 5!!
$"
% 4(
%
1
%
) 3
!
7
! 8
-
! #)!-
9
#)
)
6!
7/!
7/!
'
,
!'
*
&
4
:"%'
;/&
4
!
'
'
;/&
<
3
(
!
;'
;'
;'
:"%'
*
&
*
&
<
'
4
!
4
!
;'
:
!
%
6!
%
:)
!) ) %1
3$(
()
=
) %1
(
1
&!
!$"
> 3
$
> 3
()
> 3
$
2 ?
1
!
) ( 6
()
!!
+) !$) 3#
)
0 & (/! # #' '
*
%
) #)!! #
) 3# &
& 30
()
) +%& ) !#) () ( 6'
Allt að þrjú ár
liðin frá því að
fyrst var kvartað
Sex mál enn til meðferðar stjórn-
valda að fengnu áliti umboðsmanns