Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 18
ERLENT
18 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sé að meta hversu alvarleg áhrif
mengunin geti haft á sjávarlífið.
Það fari eftir ýmsum flóknum þátt-
um, meðal annars veðri á næstu
vikum og því hvort nálægar líf-
verur eru á viðkvæmu stigi í lífs-
ferlinum. Umhverfisáhrifin ráðist
ennfremur af því hvort olían
þykkni og haldist í tönkunum, eða
streymi út úr tönkunum þegar þeir
falla saman vegna þrýstingsins. Því
hægar sem olían leki úr skipinu
þeim mun minni verði skaðinn.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, hvatti til stórherts eftirlits
með skipum, sem sigla í lögsögu
ríkja Evrópusambandsins, til að
koma í veg fyrir slík umhverfisslys.
Hann lýsti Prestige, sem var smíð-
að fyrir 26 árum, sem „ryðkláfi“ og
sakaði eigendur skipsins um að
hafa sneitt hjá öryggisreglum Evr-
ópusambandsins.
Olíuskipið sigldi undir fána Bah-
amaeyja, var í eigu grísks fyrirtæk-
is sem skráð er í Líberíu.
Bresk stjórnvöld neituðu í gær
ásökunum Spánverja um að yfir-
völd á Gíbraltar bæru ábyrgð á
slysinu vegna þess að olíuskipið
hefði ekki verið skoðað þegar það
hefði komið þar til hafnar. Sir Nig-
el Sheinwald, sendiherra Bret-
lands, sendi framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins bréf og sagði
að Prestige hefði aðeins komið einu
sinni til Gíbraltar á síðustu fimm
árum, 13. júní síðastliðinn. „Skipið
fór þangað aðeins til að taka elds-
neyti og sigldi ekki einu sinni inn í
höfnina,“ sagði breski sendiherr-
ann.
Reynt að hindra að olíu-
brák berist að ströndinni
AP
Starfsmaður við hreinsun olíunnar úr tönkum Prestige þrífur sig eftir að hafa komið dæluröri fyrir í leðjunni.
Sérfræðingar
vona að megnið
af olíunni hald-
ist í skipinu
La Coruna. AP, AFP.
SPÁNVERJAR og Portúgalar
reyndu í gær að koma í veg fyrir
að olíubrák frá olíuskipinu Prest-
ige, sem sökk undan norðvestur-
strönd Spánar í fyrradag, bærist
upp að ströndinni og skaðaði líf-
ríkið. Liðsmenn spænska og portú-
galska sjóhersins og umhverfis-
verndarhreyfinga settu upp fleiri
flotgirðingar til að vernda fiskimið
og fugla.
„Baráttan verður háð á landi,“
sagði umhverfisráðherra Portúgals,
Isaltino Morais, og bætti við að lík-
lega yrði ekki hægt að dæla miklu
of olíunni úr sjónum vegna hvass-
viðris á þessum slóðum.
Talið er að allt að 6.000 tonn af
olíu hafi lekið í sjóinn þegar olíu-
skipið liðaðist í sundur áður en það
sökk í fyrradag. Um 4.000 tonn
láku úr skipinu fyrir viku og nær
70.000 tonn voru enn í skipinu þeg-
ar það sökk.
Olíubrák, sem er 36 km að lengd
og 500 metrar að breidd, var enn
langt frá ströndinni en talið var að
hún myndi berast nær landi með
hafstraumnum.
„Við þurfum að bíða og sýna fyr-
irhyggju því við vitum ekki enn
hvort hættan er afstaðin,“ sagði
umhverfisráðherra Spánar, Jaume
Matas. „Við verðum að fylgjast
grannt með því hvort mengunin
aukist og hvaða áhrif hún hefur,“
sagði hann.
Vona að olían þykkni
og leki hægt
Sjávarlíffræðingar vona að
megnið af olíunni haldist í tönkum
skipsins og þykkni vegna kuldans
og þrýstingsins á sjávarbotninum,
þannig að tjónið verði sem minnst.
Þeir sögðust þó enn hafa áhyggjur
af áhrifum mengunarinnar á sjáv-
arlífið og nálægar strendur.
„Þótt olían sé nú langt frá landi
getur hún valdið verulegum skaða,“
sagði Richard Steiner, sjávarlíf-
fræðingur sem tók þátt í strand-
hreinsuninni í Alaska eftir að olía
lak úr olíuskipinu Exxon Valdez ár-
ið 1989.
Olían í Prestige er nær tvöfalt
meiri en olían sem lak úr Exxon
Valdez. Í Prestige er brennsluolía
sem nokkrir sérfræðingar segja að
geti valdið enn meiri skaða en hrá-
olían úr Exxon Valdez.
Sérfræðingarnir segja að erfitt
VERKAMENN í Sofiu, höfuðborg
Búlgaríu, koma fyrir stórri stjörnu,
merki Atlantshafsbandalagsins
(NATO), við húsakynni forseta
landsins og ríkisstjórnarinnar í
gær. Gert er ráð fyrir að Búlgörum
og fleiri þjóðum í fyrrverandi
kommúnistaríkjum verði boðin að-
ild að bandalaginu á fundi þess sem
hefst í Prag í Tékklandi í dag.
AP
Búlgarar
fagna
NATO
ÞÝSKI læknaprófessorinn Gunther
von Hagens sagðist í gær staðráðinn
í að láta af því verða að kryfja lík lið-
lega sjötugs karlmanns frammi fyrir
500 áhorfendum og myndavélum
sjónvarpsmanna. Margir hafa gagn-
rýnt hugmyndina harkalega og hefur
von Hagens jafnvel verið hótað mál-
sókn þar sem hann brjóti gegn lög-
um og siðferðisreglum samfélagsins.
Krufningin á að fara fram í lista-
galleríi á Brick Lane í London. Op-
inberar krufningar voru mjög vin-
sælar í landinu á 16. öld en síðast
mun hafa verið efnt til slíkrar sýn-
ingar fyrir 170 árum. Sjálfur segir
von Hagens að hann hafi fengið sam-
þykki aðstandenda hins látna og tel-
ur sig ekki munu brjóta nein lög. Að-
gangseyririnn muni aðeins duga til
að greiða um tíunda hluta kostnaðar-
ins við hugmyndina og sé því ekki um
gróðabrall að ræða. Markmið sitt sé
að fræða almenning um líkamann.
Á móti „einkarétti“ lækna
„Valinn hópur fólks í læknastétt
ætti ekki að hafa einkarétt á að fylgj-
ast með slíkum aðgerðum,“ sagði
hann. „Á hverjum degi er fólk í þessu
landi spurt hvort það samþykki að lík
sé krufið. Hvernig á það að geta það
þegar því er meinað að sjá hvað fram
fer?“
Jeremy Metters, opinber embætt-
ismaður sem hefur umsjón með mál-
efnum á sviði líffærafræði, hefur var-
að von Hagens við því að krufningin
geti verið úrskurðuð glæpsamleg
vegna þess að hann hafi ekki tilskilin
leyfi til að annast hana. Lögregla
mun verða viðstödd krufninguna en
óljóst er hvort hún muni reyna að
hindra von Hagens.
Von Hagens er 57 ára gamall, frá
austurhéruðum Þýskalands og hefur
kennt svæfingalækningar og líffæra-
fræði við háskóla þar í landi. Von
Hagens olli fyrr á árinu uppnámi í
Bretlandi er hann efndi til sýningar á
líkum sem hann hefur meðhöndlað
með efni er hann að sögn BBC fann
sjálfur upp fyrir allmörgum árum.
Efnið kemur í stað vökva í líkinu og
tryggir að holdið rotnar ekki. Mun
von Hagens hafa sýnt líkin árum
saman í Japan þar sem milljónir
manna hafa flykkst á staðinn til að
skoða þau.
Rúmlega hálf milljón manna í
Bretlandi hefur þegar séð sýningu
prófessorsins er hann nefnir Body-
world. Mun hann vera orðinn auð-
ugur maður á sýningahaldinu. Segist
hann ekki vita hvort rétt sé að kalla
þessa iðju sína list en fólk heillist
greinilega af því að skoða líkin. Hann
hyggst láta meðhöndla sitt eigið lík
með efninu þegar skapadægrið renn-
ur upp.
Nýmæli prófessors
Krufning
fyrir al-
menning?
London. AFP.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti með 90 atkvæðum
gegn 9 tillögur George W. Bush for-
seta um stofnun ráðuneytisins á
þriðjudagskvöld með þorra atkvæða
en áður hafði fulltrúadeildin sam-
þykkt tillöguna. Er samþykktin talin
mikill sigur fyrir forsetann sem
sagði að um „vatnaskil“ væri að
ræða. „Ég hlakka til þess að und-
irrita þessi mikilvægu lög,“ sagði
Bush. Um 170.000 manns munu
starfa hjá ráðuneytinu og er bent á
að starf svo stórrar stofnunar geti
orðið þungt í vöfum.
Hugmyndin um nýtt ráðuneyti er
tæki yfir störf allmargra stofnana og
samræmdi aðgerðir til að stemma
stigu við hryðjuverkum kom fram
hjá demókratanum Joe Lieberman
eftir árásirnar á Bandaríkin 11. sept-
ember í fyrra. Breytingin sem verð-
ur á stjórnsýslunni er sögð verða hin
mesta í hálfa öld en nýja ráðuneytið
mun þó ekki verða með leyniþjón-
ustuna, CIA, á sinni könnu og ekki
heldur alríkislögregluna, FBI.
Bush var í fyrstu mótfallinn hug-
mynd Liebermans en ákvað síðan að
styðja hana. Lögðu repúblikanar
fram útfærslu sem sumir demókrat-
ar gagnrýndu hart. Töldu þeir m.a.
að starfsréttindi opinberra starfs-
manna væru skert um of.
Nýtt ráðuneyti
heimavarna
Bush vinnur mikinn sigur á þingi
Washington. AFP.DAGSKRÁ:
1. Formaður Atvinnulífsnefndar Sjálfsbjargar, lsf. setur fundinn.
2. Árni M. Björnsson segir frá starfseminni „Atvinna með stuðningi“ (AMS).
3. Kristján Valdimarsson segir frá mati sem gert var á starfi AMS.
4. Einstaklingur sem nýtir sér þjónustu AMS segir frá reynslu sinni.
Við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á málefninu að mæta!
Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Sjálfsbjargar lsf.
í síma 552 9133.
Atvinnulífsnefnd Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.
Fundur um atvinnumál fatlaðra verður haldinn laugardaginn 23. nóv.
frá kl. 14.00-16:00 í félagsheimili Sjálfsbjargar
á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.