Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 21
UNGIR Bandaríkjamenn kunna
innan skamms að þurfa að halda í
stríð til Íraks, en fæstir þeirra geta
þó staðsett það land á korti, að því
er Bandaríska landafræðifélagið
(National Geographic Society)
greindi frá í gær.
Könnun er gerð var á vegum fé-
lagsins leiddi í ljós, að einungis
einn af hverjum sjö, eða um 13%,
Bandaríkjamanna á aldrinum 18–
24 ára, kjöraldri fyrir hermenn,
gat bent á Írak. Niðurstaðan var sú
sama varðandi nágrannaríki Íraks,
Íran.
Þótt meirihluti þeirra er tóku
þátt í könnuninni, 58%, vissi að tal-
ibanahreyfingin hefði verið við
völd í Afganistan gátu aðeins
sautján prósent fundið það land á
heimskorti.
Í könnuninni voru 56 spurningar
um landafræði og fréttir líðandi
stundar lagðar fyrir ungt fólk í níu
löndum og voru gefnar hefð-
bundnar einkunnir fyrir svörin.
Bandaríkjamenn fengu einkunnina
D, og svöruðu að meðaltali aðeins
23 spurningum rétt. Mexíkó kom
verst út, með aðeins 21 rétt svar að
meðaltali.
Hæstu einkunnina fengu Svíar,
sem svöruðu að meðaltali 40 spurn-
ingum rétt, og í kjölfar þeirra
komu Þjóðverjar og Ítalir. Ekkert
land fékk einkunnina A, en til að fá
hana þurfti að svara að meðaltali
42 spurningum eða fleiri rétt.
„Ef unga fólkið okkar getur ekki
fundið staði á kortum og er illa að
sér um það sem er að gerast í
heiminum, hvernig getur það þá
skilið þau málefni sem við stöndum
frammi fyrir í menningu, efna-
hagslífi og nýtingu náttúru-
auðlinda?“ spurði John Fahey, for-
seti Bandaríska landafræðifélags-
ins, í tilkynningu.
Í könnuninni kom ennfremur í
ljós, að 34 prósent ungra Banda-
ríkjamanna vissu að eyjan, sem
notuð var við gerð nýjustu sjón-
varpsþáttaraðarinnar „Survivor“,
er í Kyrrahafi sunnanverðu, en að-
eins 30 af hundraði gátu bent á
New Jersey-ríki á korti. Sjónvarps-
þættirnir „Survivor“ voru teknir
upp á Marquesas-eyjum í
Suður-Kyrrahafi austanverðu.
Þegar bandarísku þátttakend-
urnir í könnuninni voru beðnir að
staðsetja tíu tiltekin ríki Banda-
ríkjanna á korti gat mikill meiri-
hluti þeirra einungis bent á Kali-
forníu og Texas. Aðeins 51% gat
fundið New York, þriðja fjölmenn-
asta ríki Bandaríkjanna.
Bandaríkjamennirnir gátu að
meðaltali aðeins fundið sjö af 16
tilteknum ríkjum á heimskorti. Að-
eins 89% Bandaríkjamannanna
gátu fundið heimaland sitt á heims-
kortinu. Svíarnir gátu að meðaltali
fundið 13 af ríkjunum 16 á heims-
kortinu, Þjóðverjarnir og Ítalirnir
gátu hvorir um sig fundið 12.
Ungir Banda-
ríkjamenn vita
ekki hvar Írak er
Aðeins 89% gátu
fundið heimaland
sitt á heimskorti
Washington. AP.
SJÚKDÓMAR er lagðir hafa verið að
velli gætu tekið sig upp á ný verði
ekki meira fjármagni varið til bólu-
setninga, að því er fram kom í við-
vörun frá Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni (WHO), Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og
Alþjóðabankanum í gær.
Þótt bólusetningar hafi bjargað
mörgum milljörðum mannslífa á und-
anförnum hundrað árum, fá þeir sem
helst þurfa á þeim að halda þær ekki
ennþá, sögðu stofnanirnar þrjár í
sameiginlegri skýrslu um stöðu bólu-
setninga og ónæmisaðgerða í heim-
inum.
Hátt í þrjú af hverjum fjórum börn-
um í heiminum fá nú þær bólusetn-
ingar sem þau þurfa nauðsynlega á að
halda, en í skýrslunni er kvartað yfir
því að mikill munur sé þarna á milli
norður- og suðurhvels jarðar.
Börn í ríkum löndum hafi aðgang
að nýjum bóluefnum gegn sjúkdóm-
um á borð við lifrarbólgu, auk þess að
fá bólusetningu við algengum sjúk-
dómum. En í Afríku sunnan Sahara
hafi aðeins annað hvert barn aðgang
að bólusetningum gegn algengustu
sjúkdómunum, þ. á m. berklum, misl-
ingum, stífkrampa og kíghósta.
Í skýrslunni er lög áhersla á að þörf
sé fyrir nýtt bóluefni gegn berklum
og einnig gegn malaríu, sem árlega
verður um einni milljón manna að
bana og flestir eru afrísk börn. Árið
2000 lést 1,7 milljón manna úr berkl-
um, sem eru nú að taka sig upp að
nýju, einkum í tengslum við HIV-
smit, og eru flest tilfellin í Afríku.
Hátt í þrjár milljónir manna, þar af
tvær milljónir á barnsaldri, deyja ár-
lega úr algengum sjúkdómum sem
hægt er að fyrirbyggja með bólusetn-
ingum. Yrði 250 milljónum dollara til
viðbótar varið til bólusetninga yrði
hægt að bólusetja 10 milljónum fleiri
börn en nú er gert og 100 milljónir
dollara til viðbótar myndu greiða fyr-
ir kostnaðinn við þróun nýrra bólu-
efna, segir m.a. í skýrslunni.
Varað við skorti
á fjármagni
til bólusetninga
Genf. AFP.
PALESTÍNSKA þingkonan
Hanan Ashrawi hlaut í gær Olof
Palme-verðlaunin fyrir störf sín
að sjálfstæðisbar-
áttu Palestínu-
manna og samn-
ingsvilja sem
„hefur áunnið
henni virðingu
hvarvetna“, að því
er segir í tilkynn-
ingunni um verð-
launin, sem nema 50 þúsund
Bandaríkjadollurum.
Palme-verðlaunin eru veitt
árlega af fjölskyldu Olofs Palm-
es, fyrrverandi forsætisráð-
herra Svíþjóðar, sem var myrt-
ur 1986, og sænska jafnaðar-
mannaflokknum, í því augna-
miði að stuðla að auknum
skilningi á alþjóðavettvangi.
Ashrawi var fulltrúi Palest-
ínumanna í friðarviðræðum í
byrjun tíunda áratugarins og
var ráðherra framhaldsmennta-
mála í heimastjórn Yassers Ara-
fats 1996–98. Hún hefur verið
þingmaður síðan 1996.
Ashrawi
verðlaunuð
Stokkhólmi. AP.
Ashrawi
. s æ t i ð3
Sólveig Pétursdóttir
dóms- og kirkjumálaráðherra
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
22. og 23. nóvember 2002.
Stuðningsmenn Sólveigar eru með opna
kosningaskrifstofu að Suðurlandsbraut 8.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Skrifstofan verður opin virka daga frá
kl. 10:00 til 21:00 og um helgina frá
kl. 13:00 til 18:00.
Símar 568 0582 og 568 0584
Faxnúmer 568 0584