Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
betri innheimtuárangur
Fyrir jólin bjóðum við upp á glæsilegt
mini-hlaðborð
Rjómalöguð súpa með nýbökuðu brauði, hangikjöt,
ávaxtafyllt lambalæri, hamborgarhryggur, kalkúnn, villipate,
hreindýrapate, kartöflusalat, hrásalat, rauðkál, grænar baunir,
4 tegundir af síld, sjávarrétta- gratín, sykurbrúnaðar kartöflur,
fiskipate, tartarsósa, rauðvínssósa, sveppasósa
og ýmislegt fleira sem og eftirréttir.
Jólahlaðborð á aðeins
2.100 kr.
(Munið að panta strax)
Pantanasími 568 0098
eða hjá Siggu í síma 699 1070
Fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga frá og með
28. nóvember
ÞAÐ verður líf og fjör á Skóla-
vörðustígnum í dag því þar verður
haldinn handverksdagur sem mun
verða opinn langt fram á kvöld.
Tilefnið er opnun vestnorrænu
handverkssýningarinnar Arts and
crafts sem hefst í Laugardalshöll í
dag.
„Okkur langar til að endurvekja
þessa hugmynd um Skólavörðu-
stíginn sem lista- og handverks-
götu,“ segir Eggert Jóhannsson
feldskeri sem rekur verslun sína
við Skólavörðustíginn. „Við höfum
verið mjög dugleg að halda fram
listum, menningu og handverki
þannig að við ákváðum að nota
þetta tækifæri.“
Dagurinn mun einkennast af
ýmiss konar uppákomum í versl-
unum og galleríum við götuna. Má
þar nefna sérstakar sýningar á
munum, tónlistaratriði, bókakynn-
ingar og matarkynningar svo eitt-
hvað sé nefnt. Eggert segir að
dagskráin muni hefjast um fjög-
urleytið og standa fram eftir
kvöldi en allar verslanir við göt-
una verða opnar til klukkan 22.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
við gerum eitthvað svona því fólk
hefur verið með alls kyns uppá-
komur hvert fyrir sig en nú höfum
við ákveðið að sameina þetta og
gera einn svona handverksdag,“
segir hann og bætir því við að
ekki sé ósennilegt leikurinn verði
endurtekinn síðar ef vel takist til.
Langsterkasti fulltrúinn
fyrir íslenskan listiðnað
Að sögn Eggerts er áhuginn fyr-
ir þessari uppákomu mikill meðal
kaupmanna. „Þarna er líka verið
að gefa þeim sem koma erlendis
frá og eru að sýna á sýningunni í
Laugardagshöll tækifæri til að sjá
það sem er helst að gerast í hand-
verki á Íslandi. Það er engin gata
hérlendis með svona mikið af gall-
eríum og handverkshlutum þótt
hún sé svo sem ekki tæmandi fyrir
íslenskan listiðnað. En það er
óhætt að segja að hún sé lang-
sterkasti fulltrúinn fyrir hann.“
Hann segir að kaupmenn við
Skólavörðustíg hafi verið að reyna
að koma af stað annars konar eða
„mýkri verslun“ eins og hann
orðar það þar sem þjónustan er
höfð í fyrirrúmi. „Það virðist sem
venjulegar verslanir hafi ekki haft
nein sérstök uppgrip hérna heldur
séu Laugavegurinn og Kringlan
talsvert hentugri fyrir þá sem ætla
að vera með þannig verslun.
Menningartengd eða listatengd
verslun virðist virka betur fyrir
Skólavörðustíginn og þess vegna
erum við að hlú að þess konar
verslun líka. Og við höfum kannski
skemmt okkur eilítið betur en aðr-
ir í leiðinni.“
En verður stemningin á Skóla-
vörðustígnum eitthvað í anda
menningarnæturinnar í Reykjavík
í sumar? „Við getum sagt að þetta
sé okkar eigin menningar- og
handverksdagur,“ segir Eggert að
lokum.
„Okkar eigin menningar-
og handverksdagur“
Morgunblaðið/RAX
Eggert feldskeri var upptekinn í gær við að skreyta verslun sína fyrir handverksdaginn í dag.
Miðborg
EKKI er útlit fyrir að samningar
náist milli bæjaryfirvalda í Garða-
bæ og eigenda Héðinslóðarinnar
svokölluðu um kaup þeirra fyrr-
nefndu á lóðinni en kaupverð henn-
ar ásamt mannvirkjum yrði að lág-
marki 450 milljónir króna.
Bæjarstjórn samþykkti fyrr í mán-
uðinum að falast eftir lóðinni undir
grunnskóla fyrir Ása- og Strand-
hverfi.
Að sögn Ásdísar Höllu Braga-
dóttur bæjarstjóra kom fram á
íbúaþingi, sem nýlega var haldið í
Garðabæ, að þrjár lóðir í bænum
þóttu heppilegastar undir grunn-
skóla fyrir umrædd hverfi og var
Héðinslóðin ein þeirra en hún er
um 30 þúsund fermetrar að stærð.
„Eftir það fannst okkur ástæða til
þess að fara í viðræður við Héðin
og kanna hvort það væru forsendur
fyrir því að Garðabær keypti af
þeim fasteignirnar og lóðarréttind-
in,“ segir Ásdís.
Á fundi bæjarráðs á þriðjudag
kom fram að þær viðræður hefðu
leitt í ljós að kaupverð lóðarinnar
með mannvirkjum yrði eflaust að
lágmarki 450 milljónir króna.
„Þetta kaupverð er því miður of
hátt fyrir lóð undir grunnskóla,“
segir Ásdís aðspurð.
Fyrirtækið ánægt með
staðsetninguna
„Við höfðum gert okkur vonir um
að hægt væri að ná samningi um
mun lægra verð fyrir lóðina en fyr-
irtækið er mjög vel staðsett, það er
mjög ánægt með þessa staðsetn-
ingu og lóðina sem það hefur og
húsnæðið nýtist þeim ákaflega vel.
Þannig að kostnaður fyrir fyrirtæk-
ið við að flytja og koma sér fyrir
annars staðar er það hár að mér
sýnist á öllu að við munum ekki ná
saman.“
Að hennar sögn verður málið
rætt á bæjarstjórnarfundi í dag þar
sem næstu skref varðandi lóðarmál-
in verða ákveðin.
*+,-./0
+*-+*-1.
+
Verð Héðinslóð-
arinnar of hátt
Garðabær
ÞESSI hvutti þeystist áfram með eiganda
sinn í eftirdragi á dögunum enda sjálfsagt
fátt betra fyrir hund en að fá að hreyfa skrokkinn und-
ir berum himni. Líklega hefði þeim fjórfætta þó þótt
betra að vera laus við ólina og bandið en
þar sem slíkt er langt í frá leyfilegt á Rauð-
arárstígnum hefur hinum mennska vini hans þótt ráð-
legra að halda fast um tauminn.
Morgunblaðið/Kristinn
Sprett úr spori á Rauðarárstíg
Miðborg
NIÐURSTÖÐUR íbúaþings sem
haldið var í Grafarvogi þann 19.
október verða kynntar á almenn-
um fundi þriðjudaginn 26. nóvem-
ber.
Til stóð að kynna niðurstöðurn-
ar á fundi 7. nóvember en því var
frestað.
Kynningarfundurinn næstkom-
andi þriðjudag verður haldinn í
Rimaskóla og hefst hann klukkan
20:00.
Niðurstöður íbúa-
þings kynntar
Grafarvogur