Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 37
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 37
Dæmi um eldunartíma:
Silit hraðsuða Venjuleg eldun
Gúllas 15-20 mínútur 2 klst.
Roast beef 30 mínútur 2 klst.
Kartöflur 8 mínútur 20-25 mínútur
Hraðsuðupottar
Matur matreiddur í
hraðsuðupotti er bæði
bragðmeiri og hollari. Að auki er
eldunartíminn miklu styttri og
orkusparnaður verulegur.
Borgartúni 28 562 2901 og 562 2900
Hollustan í fyrirrúmi -
og stórkostlegur tímasparnaður!
Maturinn er gufusoðinn undir þrýstingi. Við venjulega suðu glat-
ast bragð, bæti- og næringarefni, en þetta gerist ekki þegar eld-
að er í hraðsuðupotti. Í flestum tilfellum er líka óþarft að salta
matinn sérstaklega. Ræddu við hússtjórnarkennara okkar, hana
Dröfn, um eldun í hraðsuðu pottum.
Lára Margrét áfram í 5. sæti
Kynntu flér stefnumálin á www.laramargret.is
e›a hringdu í síma 551 3339 og 861 3298
GUÐFINNA S. Bjarnadóttir, rektor
Háskólans í Reykjavík, og Finn
Junge-Jensen, rektor Viðskiptahá-
skólans í Kaupmannahöfn (CBS),
hafa undirritað samstarfssamning
um doktorsnám. Samningurinn fel-
ur í sér að Háskólinn í Reykjavík
getur boðið doktorsnám með sam-
starfi við CBS varðandi leiðbein-
endur og möguleika nemenda á að
sækja námskeið.
Samningurinn er liður í því að
auka námsframboð við skólann og
renna sterkari stoðum undir rann-
sóknarstarf. Doktorsnemarnir
munu stunda rannsóknir sínar við
Háskólann í Reykjavík en njóta til
þess leiðsagnar prófessora frá CBS,
auk þess sem þeir munu sækja nám-
skeið til Kaupmannahafnar.
Menntamálaráðuneytið hefur
þegar verið upplýst um gang mála
þar sem vel hefur verið tekið í
þessa þróun, en áður en fyrstu nem-
endurnir verða teknir inn í námið
liggur fyrir að semja um útvíkkun á
þjónustusamningi við ráðuneytið.
Á þeim fjórum árum sem Háskól-
inn í Reykjavík hefur starfað hafa
útskrifast frá honum á þriðja
hundrað nemendur með BS-próf í
viðskiptafræðum og tölvunar-
fræðum, auk kerfisfræðinga og í
september sl. luku fyrstu nemend-
urnir framhaldsháskólanámi við
skólann þegar 31 nemandi útskrif-
aðist með MBA-gráðu. Það hefur
verið stefna skólans frá upphafi að
auka vægi framhaldsháskólanáms í
starfsemi skólans og er samstarfs-
samningurinn við CBS mikilvægt
skref í þessari þróun.
Samið um doktorsnám
Ljósmynd/Jørn Albertus
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR, og Finn Junge-Jensen, rektor CBS,
undirrita samstarfssamning um doktorsnám.
EVRÓPUSAMBANDIÐ veitir rúm-
ar 53 milljónir í styrki til íslenskra
tilraunaverkefna á þessu ári í nafni
da Vinci-starfsmenntaáætlunarinn-
ar. Undir merkjum Sókratesar eða
menntaáætlunar ESB verða svo
veittar 60 milljónir í styrkveitingar
til íslenskra menntastofnana og
skólafólks. Nefna má að Opið Evr-
ópuhús verður í Perlunni í Reykjavík
núna um helgina eða dagana 22.-24.
nóvember.
Leonardó-styrkir
Tvö tilraunaverkefni undir ís-
lenskri verkefnastjórn hlutu styrk
að þessu sinni í starfsmenntaáætlun
Leonardó, alls
um 53 milljón-
ir. Annað verk-
efnið sem hlýt-
ur styrk er:
Protocol 2 – Programme and Mat-
erials for the Training of Language
and Communication Auditors of
European SME’s Stage 2.
Verkefnisstjórn þess er Útflutn-
ingsráð Íslands og InterAct Inter-
national. Samstarfslöndin eru Bret-
land, Írland og Portúgal.
Markmið verkefnisins er að auka
samkeppnishæfni lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja á alþjóðamarkaði
með því að aðstoða þau við að skil-
greina hindranir vegna tungumála
og ólíkrar menningar og finna sér-
tækar lausnir til að mæta þeim.
Heildarstyrkur til þessara þátttöku-
landa er 340.481 evrur eða
29.451.606 íslenskar krónur.
Hitt verkefnið heitir Total Couns-
elling – a comprehensive (holistic)
and immediate counselling for young
people og er undir verkefnisstjórn
Hins hússins sem er upplýsinga- og
menningarmiðstöð ungs fólks. Sam-
starfslönd þess eru Bretland, Ítalía
og Slóvenía.
Þetta verkefni miðar að því að
gera hefðbundna ráðgjöf fyrir ungt
fólk heildstæðari og aðgengilegri
fyrir einstaklinginn. Heildarstyrkur
til þessara þátttökulanda er 292.252
evra eða 25.279.798 krónur.
Leonardó-starfsmenntaáætlun
ESB skiptist í tvö svið, annars vegar
smærri mannaskiptaverkefni og
viðameiri tilraunaverkefni, fjölþjóð-
leg tilraunaverkefni sem þróa og/eða
staðfæra námsefni og náms- og
kennsluaðferðir tengdar starfs-
menntun.
Rannsóknaþjónusta Háskóla Ís-
lands starfrækir Landsskrifstofu
Leonardó. Verkefnisstjóri tilrauna-
verkefnanna er Hildur Svavarsdótt-
ir. Nánari upplýsingar er að finna á:
http://www.rthj.hi.is/.
Sókrates-styrkir
Sókrates, menntaáætlun ESB,
setur 60 milljónir í styrkveitingar til
íslenskra menntastofnana og skóla-
fólks. Mark-
miðið er að
tengja sam-
an mennta-
stofnanir og
skólafólk í Evrópu á öllum stigum
menntunar.
Landsskrifstofa Sókratesar/Al-
þjóðaskrifstofa háskólastigsins hef-
ur umsjón með styrkveitingum til
umsækjenda.
Á næsta skólaári verða um 200 ís-
lenskir háskólastúdentir styrktir til
að stunda hluta af sínu námi við evr-
ópska háskóla. Og um 50 skólar fá
styrki til evrópskra samstarfsverk-
efna, skólaþróunarverkefna og nem-
endaskiptaverkefna. Meðaltalsupp-
hæð styrks á skóla er um 400.000
íslenskra króna.
Þá verða um 50 kennarar á leik-,
grunn- og framhaldsskólastigi
styrktir til að fara utan og sækja evr-
ópsk námskeið í sínu fagi.
Síðan Sókrates, menntaáætlun
ESB, hóf göngu sína árið 1995 hafa
yfir 2.000 Íslendingar notið góðs af
styrkveitingum áætlunarinnar.
Stórir
styrkir
alltaf á föstudögum