Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 39
NÝTT:
SO INGENIOUS
MULTI-DIMENSION MAKEUP
Ný Quadra-Color™ tækni endurskilgreinir farða
og gæðir hann nýrri aðlögunarhæfni. Ljósnemar
fínstilla hann - við hvaða birtuskilyrði sem er -
þannig að áferðin helst alltaf eðlileg. So Ingen-
ious lagar sig frábærlega vel að húð þinni, gerir
hana fallegri og lætur henni líða vel um leið.
NÝ tveggja þrepa tækni:
Fljótandi farði og laust púður.
Bylting í
förðunartækni
Kringlunni, sími 568 9033
Vertu velkomin og láttu förðunarfræðinga frá Estée Lauder
aðstoða þig við litaval í dag og á morgun frá kl. 13-18 og
laugardag frá kl. 12-16.
www.esteelauder.com
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 39
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
Stuðningsmenn
Við hvetjum til þess að Katrín Fjeldsted
verði kjörin í 4. sæti listans í Reykjavík.
Kosningaskrifstofa hennar er í Pósthússtræti 13.
Opið frá kl. 16-19 virka daga og 13-18 laugardag.
Sími 594 7694.
Netfang: katrinf@althingi.is
Heimasíða: www.althingi.is/katrinf
Katrín Fjeldsted
4.
sæti
fylgir sannfæringu sinni
Rödd hins hófsama
sjálfstæðismanns
• Katrín hefur víðtæka þekkingu á heilbrigðismálum.
Hún vill aukið frelsi í rekstri heilsugæslunnar.
Hún er nú eini læknirinn á Alþingi.
• Hefur varað við of miklum ríkisafskiptum í virkjanamálum.
• Vill lækka skatta.
• Hefur lagt umhverfisvernd mikið lið.
• Hún vill efla sveitarstjórnarstigið.
Leiðsöguskóli Íslands
Menntaskólanum í Kópavogi, v. Digranesveg, 200 Kópavogur.
Sími 594 4025, netfang: lsk@ismennt.is.
Nám í gönguleiðsögn
Nám og kennsla
Innritun og inntökuskilyrði
Umsóknir
Nám í gönguleiðsögn hefst í byrjun janúar 2003. Kennt verður fram í maímánuð
og fer kennsla fram þrjú kvöld í viku frá kl. 17:30-22:00. Námsgreinar eru
svæðalýsingar, hópstjórn, veður og jöklar, ferðamennska og skyndihjálp. 6 daga
starfsþjálfun fer fram hjá ferðaþjónustufyrirtækjum sem sérhæfa sig í gönguferðum.
Leiðbeinendur eru úr hópi starfsmanna Íslenskra fjallaleiðsögumanna,
okkar reyndustu gönguleiðsögumenn.
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða annað sambærilegt nám sem skólinn
viðurkennir. Inntökupróf felst í því að taka þátt í tveggja daga
göngu með leiðbeinanda.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans eða á
heimasíðunni http://mk.ismennt.is/leidny/lsk.htm. Umsóknarfrestur er til 28. nóv. 2002.
ÞEGAR Landsvirkjun vill rétt-
læta náttúruspjöll í friðlandinu í
Þjórsárverum er gjarnan vitnað í
samkomulag sem gert var við
Náttúruverndarráð, nú Náttúru-
vernd ríkisins, þegar Þjórsárver
voru friðlýst árið 1981. Í sam-
komulaginu segir að virkja megi í
friðlandinu ef náttúruverndargildi
veranna rýrni ekki óhóflega að
mati Náttúruverndar ríkisins.
Náttúruvernd ríksins hefur stað-
fest að náttúruverndargildi frið-
landsins muni rýrna óhóflega
vegna fyrirhugaðra framkvæmda
Landsvirkjunar og leggst stofnun-
in eindregið gegn þeim. Sam-
kvæmt 38. gr. laga um náttúru-
vernd þarf leyfi Náttúruverndar
ríkisins til framkvæmda þar sem
hætta er á að spillt verði frið-
lýstum náttúruminjum.
Hlutverk
umhverfisráðherra
Í 60. gr. laga um náttúruvernd
segir m.a.: ,,Ef ætla má að fyr-
irhugaðar framkvæmdir á friðlýstu
svæði raski svo náttúrulegu um-
hverfi að hætta sé á að ákveðnar
lífverur, búsvæði þeirra og vist-
kerfi eyðist eða verði fyrir veruleg-
um skaða getur umhverfisráðherra
látið friðlýsingu taka til banns við
slíkum framkvæmdum, enda sé áð-
ur fengin umsögn Náttúruverndar
ríkisins og Náttúrufræðistofnunar
Íslands.“
Í matsskýrslu Landsvirkjunar
og umsögnum um hana kemur
ítrekað fram að ákveðnar lífverur,
búsvæði þeirra og vistkerfi verði
fyrir verulegum skaða vegna fram-
kvæmdanna.
Brot á lögum um
náttúruvernd
63. gr. laga um náttúruvernd
hljóðar svo: ,,Friðlýstum náttúru-
minjum má enginn granda, spilla
né breyta. Varðar röskun þeirra
refsingu skv. 76. gr, sbr. og 75.
gr.“
Í matsskýrslu Landsvirkjunar
um framkvæmdir í friðlandinu í
Þjórsárverum eru staðfest fyrir-
huguð brot á þessari lagagrein. Því
má ekki gleyma að leyfi Náttúru-
verndar ríkisins liggur ekki fyrir.
Í 75. gr. náttúruverndarlaga
segir: ,,Hver sá sem veldur á ólög-
mætan hátt spjöllum á náttúru
landsins, hvort heldur er af gáleysi
eða ásetningi, skal sæta refsingu
skv. 76. gr.“ Í 76. gr. segir m.a.:
,,Hver sá sem brýtur gegn ákvæð-
um laga þessara eða reglna settra
samkvæmt þeim skal sæta sektum
eða fangelsi allt að tveimur árum.“
Að virða lög
Að virða lög og fara eftir þeim
er eitt af undirstöðum þjóðfélags-
ins. Staðfesti heilbrigðisráðherra
úrskurð Skipulagsstofnunar um
mat á umhverfisáhrifum Norð-
lingaölduveita í friðlandinu í Þjórs-
árverum, sem gengur þvert á nið-
urstöðu Náttúruverndar ríkisins,
eru lögin um náttúruvernd í upp-
námi. Þá þarf annaðhvort að knýja
fram leyfi Náttúruverndar ríkisins,
sem gengur gegn faglegri niður-
stöðu stofnunarinnar, eða breyta
lögunum. Ef ráðherra í ríkisstjórn
Íslands hefur forystu um slík
vinnubrögð hlýtur það að teljast
mjög alvarlegt. Þá má spyrja hvort
Ísland sé ekki betur komið í
bandalagi ríkja sem vinna eftir
lögum í stað þess að breyta þeim
stöðugt þannig að umdeild verk-
efni ríkisstjórnarinnar nái fram að
ganga.
Með lögum skal
land byggja…
Eftir Ólöfu Guðnýju
Valdimarsdóttur
„Ef ráðherra
í ríkisstjórn
Íslands hef-
ur forystu
um slík
vinnubrögð hlýtur það
að teljast mjög alvar-
legt.“
Höfundur er arkitekt.
MÁLEFNI aldraðra eru í brenni-
depli um þessar mundir. Fulltrúar
ríkisstjórnarinnar og Landssam-
bands eldri borgara hafa skrifað
undir tímamótasamkomulag um
ýmsar aðgerðir til að bæta hag aldr-
aðra. Í samkomulaginu felst m.a. að
tekjur einstaklinga sem njóta trygg-
ingabóta hækka um 8–14 þúsund
krónur á mánuði en árlegur kostn-
aður ríkissjóðs verður um 5 milljarð-
ar þegar allar aðgerðir samkomu-
lagsins eru að fullu komnar til
framkvæmda.
Fulltrúar allra stjórnarandstöðu-
flokkanna fagna samkomulaginu.
Tveir þessara flokka, þ.e.a.s. Sam-
fylkingin og Vinstri grænir, ásamt
Framsóknarflokknum mynda kosn-
ingabandalag um R-listann í Reykja-
vík. Það er sami listinn og leggur nú
til að öllu skipulögðu félagsstarfi
verði hætt í 5 af 14 þjónustumið-
stöðvum aldraðra í borginni. Sá sami
listi hafnaði tillögu okkar borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins um stór-
lækkun fasteignaskatta á eldri borg-
ara og öryrkja sem við lögðum fram í
borgarstjórn 5. september sl. Já,
ólíkt hafast menn að.
Ólíkt hafast menn að
Eftir Guðrúnu Ebbu
Ólafsdóttur
„R-listinn
leggur nú til
að öllu
skipulögðu
félagsstarfi
verði hætt í 5 af 14
þjónustumiðstöðvum
aldraðra.“
Höfundur er borgarfulltrúi og
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
félagsmálaráði.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll