Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 41
Nýjar lausnir
í heilbrigðis-
málum
Á UNDANFÖRNUM árum og
áratugum hafa útgjöld til heil-
brigðismála á Íslandi sem hlutfall
af vergri landsframleiðslu marg-
faldast. Nú er svo komið að ekkert
ríki innan OECD ver meira fé úr
opinberum sjóðum til heilbrigðis-
mála en Ísland. Í ljósi þessa er
með ólíkindum að stjórnarandstað-
an skuli ár eftir ár staglast á því
heilbrigðiskerfið skorti fé. Það
hlýtur að vera augljóst hverjum
manni að skortur á opinberum
framlögum er ekki vandamálið í ís-
lenska heilbrigðiskerfinu. Vanda-
málið er auðvitað hvernig farið er
með þá gríðarlegu fjármuni sem til
ráðstöfunar eru.
Í stað þess að halda áfram að
ausa hugsunarlaust meira fé í heil-
brigðismál legg ég til að stjórnvöld
ráðist í kerfisbreytingar sem miða
að því að nýta betur það fé sem nú
þegar er lagt til málaflokksins.
Hvati til hagræðingar
Til þess að tryggja bestu nýt-
ingu fjármuna innan heilbrigðis-
kerfisins er nauðsynlegt að lækn-
um og öðru heilbrigðisstarfsfólki
séu veittir sterkir hvatar til þess
að lækna á eins hagkvæman hátt
og kostur er. Slíkir hvatar eru
ekki fyrir hendi í núverandi heil-
brigðiskerfi. Ákjósanleg leið til
þess að veita slíkan hvata er að
tekið verði upp svokallað DRG-
greiðslukerfi.
Sparnaður gefur
aukna möguleika
DRG-kerfi byggjast á því að
sjúkrahús fái ákveðna upphæð fyr-
ir að lækna sjúkling með ákveðinn
sjúkdóm. DRG-kerfi eru notuð
víða um heim og hafa þau gegnt
mikilvægu hlutverki í að halda
niðri kostnaði í heilbrigðisgeiran-
um. Samkvæmt DRG-kerfi eru
sjúklingar flokkaðir eftir því hvað
amar að þeim, aldri og öðru sem
hefur áhrif á kostnað meðhöndl-
unar. Fyrir að meðhöndla sjúk-
linginn er sjúkrahúsum greitt fast
gjald sem byggist á flokknum sem
sjúklingurinn lendir í. Ef sjúkra-
húsin gætu læknað sjúklinginn
fyrir lægri upphæð en sem fjár-
framlögum nemur ætti sér stað
sparnaður sem hægt yrði að nýta
til annarra verkefna.
Fyrsta flokks
heilbrigðisþjónusta
Til að kostir DRG-kerfisins nýt-
ist sem best er nauðsynlegt að
sjúkrastofnanir hafi sterkan hvata
til þess að hagræða. Ríkisreknar
stofnanir hafa mun veikari hvata
til að hagræða en einkareknar.
Aukinn einkarekstur myndi því
auka líkurnar á að kostir DRG-
greiðslukerfis nýttust til fulls.
Aukinn einkarekstur kemur alls
ekki í veg fyrir að heilbrigðiskerfið
veiti öllum landsmönnum fyrsta
flokks heilbrigðisþjónustu án tillits
til efnahags. Ef ríkið sér öllum
landsmönnum fyrir sjúkratrygg-
ingu getur það tryggt að allir fái
heilbrigðisþjónustu án tillits til
efnahags og án tillits til þess hver
rekur sjúkrastofnanir.
Eftir Soffíu Kristínu
Þórðardóttur
Höfundur er hugbúnaðar-
sérfræðingur og sækist eftir 8.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík.
,,Ríkisrekn-
ar stofnanir
hafa mun
veikari
hvata til
þess að hagræða en
einkareknar.“
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 41
NÚ líður að prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins til Alþingiskosninga en þ.
á m. er í kjöri Guðmundur Hall-
varðsson, sjómaður, stýrimaður, for-
maður stjórnar Hrafnistu, alþing-
ismaður og formaður
samgöngunefndar.
Maður með mikla
reynslu, maður al-
þýðunnar til sjós og
lands. Að lokum hvet
ég ykkur til að
styðja Guðmund
Hallvarðsson í
öruggt sæti eða eins ofarlega eins og
ykkur finnst. Um leið og ég rita
þessi orð votta ég þér kæri vinur,
Guðmundur Hallvarðsson, frú,
elskulegu börnum ykkar og ætt-
ingjum, samúð mína v/fráfalls elsku-
lega bróður þíns Gylfa Hallvarðs-
sonar í miðri kosningabaráttu. Megi
Guð vera með ykkur.
Ágætu félagar!
Jóhann Páll Símonarson sjómaður skrifar:
VIÐ stuðningsmenn Katrínar
Fjeldsted finnum glöggt að þing-
maðurinn okkar fær jákvætt umtal
þegar prófkjörsumræðan nær nú
hámarki. Sem farsæll borgarfulltrúi
til margra ára og þingmaður þetta
kjörtímabil hefur
Katrín beitt sér
mjög fyrir málum
sem skipta heilsu og
hag almennings höf-
uðmáli.
Öflugar meng-
unarvarnir og lækk-
un hámarkshraða í íbúðarhverfum
eru verkefni sem Katrín Fjeldsted
hefur barist ötullega fyrir.
Baráttumál Katrínar horfa til
heilla fyrir framtíð okkar í þjóðfélagi
iðnvæðingar og velmegunar.
Tillögur Katrínar Fjeldsted eru
stundum mál sem vinstri menn
eigna sér. Hún fylgir ávallt sannfær-
ingu sinni og skynsemi, beitir rökum
og þekkingu en lætur ekki tilfinn-
ingar ráða eingöngu ferðinni. Fyrir
þetta nýtur Katrín mikillar virð-
ingar innan Sjálfstæðisflokksins og
nær árangri.
Ég vil að lokum skora á alla þá
sem taka þátt í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins hinn 23. nóvember að
láta reynslu Katrínar Fjeldsted í
stjórnmálum og starfi nýtast á Al-
þingi í næstu framtíð.
Styðjum Katrínu
Helgi Árnason skólastjóri skrifar:
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt.
oroblu@islensk-erlenda.is
Saumlaus undirföt
fyrir dömur
og herra
Þú sparar
kr. 6.590
Kynntu þér tilboðin!
Spennandi
bökunar-
tilboð!
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111