Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 42
Burt með
eignaskattinn
EITT AF forgangsverkefnum
Sjálfstæðisflokksins á næsta kjör-
tímabili á að vera að gera skatta-
kerfið einfaldara og réttlátara
samhliða því sem skattar eru
lækkaðir. Lykilatriði í því sam-
bandi er að fella niður eignaskatta.
Bitnar harðast
á öldruðum
Eignaskattur er óréttlátur
skattur er bitnar hvað harðast á
þeim er síst skyldi, nefnilega eldra
fólki er býr í eigin húsnæði.
Þetta eru kynslóðirnar sem hafa
byggt upp það þjóðfélag velmeg-
unar og velferðar sem við búum
við. Vegna þróunar í efnahagsmál-
um þjóðarinnar á síðustu áratug-
um standa aldraðir frammi fyrir
því að lífeyrissparnaðurinn er að
stórum hluta bundinn í fasteign-
um.
Á meðan verðbólgan var í al-
gleymingi var það eina leið fólks
til að verja sparnað sinn að festa
hann í húsnæði sínu. Lífeyris-
sparnaður fólks brann upp á verð-
bólgubálinu en fasteignirnar sitja
eftir. Þúsundir Íslendinga eru nú í
þeirri stöðu að vera komnir á eft-
irlaun og fá litlar lífeyrisgreiðslur
en eiga skuldlausa eða skuldlitla
eign.
Öryggi ekki fjárfesting
Eigið húsnæði er ekki fjárfest-
ing heldur öryggi. Það er óverj-
andi að aldraðir þurfi að búa við
óöryggi og að þeim sé refsað fyrir
ráðdeild sína og sparsemi með
eignasköttum og háum fasteigna-
gjöldum, sem éta upp sparnaðinn.
Oftast hefur fólk varið stórum
hluta af ævitekjum sínum, tekjum
sem þegar hafa verið greiddir
skattar af, til að koma sér upp
fasteigninni. Með eignaskattinum
er smám saman verið að gera
þessa eign – þennan sparnað
– upptæka. Þuríður Pálsdóttir
hóf ásamt öðru góðu fólki baráttu
gegn þessum óréttláta skatti á sín-
um tíma en þá gekk hann undir
nafninu „ekknaskatturinn“. Við
sjálfstæðismenn höfum í ríkis-
stjórn haft forystu um að lækka
eignarskatta einstaklinga en betur
má ef duga skal.
Við sjálfstæðismenn eigum að
sjá sóma okkar í því að afnema
þennan óréttláta skatt á næsta
kjörtímabili.
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson
„Afnemum
þennan
óréttláta
skatt á
næsta kjör-
tímabili.“
Höfundur er í framboði í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og
sækist eftir 6. sæti.
UMRÆÐAN
42 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMUNDAN er prófkjör
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ég
hef ákveðið að sækjast eftir fjórða
sæti listans og fer því þess á leit
við þig, lesandi góður, að þú leggir
þitt af mörkum til að ég nái því
sæti.
Ég hef starfað sem heimilislækn-
ir í Reykjavík síðan 1980 og þekki
því hagi fólks í borginni náið. Þá
sat ég í borgarstjórn í 12 ár og
hafði á höndum formennsku í heil-
brigðisráði og heilbrigðisnefnd og
hef síðan verið alþingismaður í
fjögur ár, eini læknirinn á Alþingi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mót-
að sér stefnu í heilbrigðismálum og
landsfundir hans ítrekað lagt
áherzlu á að flokkurinn taki að sér
heilbrigðisráðuneytið. Tryggja þarf
að heilbrigðisþjónustan sé áfram
aðgengileg fyrir alla og tímabært
að um hana náist friður. Mikilvægt
er að auka frelsi í rekstri og fá fjöl-
breyttari rekstrarform í ljósi
breyttra tíma og ég álít að huga
verði að því að sveitarfélögin taki
aftur við heilbrigðisþjónustunni.
Einnig þarf að endurmeta það fyr-
irkomulag sem felst í föstum fjár-
lögum fyrir sjúkrastofnanir.
Með því, kjósandi góður, að veita
mér brautargengi í 4. sætið í próf-
kjörinu 22. og 23. nóvember nk.
getur þú stuðlað að því að reynsla
mín á sviði heilbrigðismála nýtist í
þágu velferðar fyrir sjúklinga og
friðar um heilbrigðisþjónustu
landsmanna.
4. sætið
Eftir Katrínu
Fjeldsted
„Tryggja
þarf að heil-
brigðisþjón-
ustan sé
áfram að-
gengileg fyrir alla.“
Höfundur er læknir og
alþingismaður.
STEFANÍA Óskarsdóttir stjórn-
málafræðingur hefur gefið kost á sér
í 6. sæti framboðslista sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. Stefanía hefur
í starfi sínu innan
Sjálfstæðisflokksins
beitt sér fyrir auk-
inni þátttöku kvenna
í stjórnmálum í
starfi sínu sem for-
maður sjálfstæð-
iskvennafélagsins
Hvatar. Í starfi sínu þar hefur Stef-
anía lagt áherslu á að fjölga ungum
konum í félagsstarfi og m.a. byggt
upp stjórnmálaskóla fyrir konur.
Stefanía er einnig ötull málsvari
einstaklingsfrelsis og þess að stjórn-
málamenn setji hagsmuni almenn-
ings og heimilanna í landinu, þ.e.a.s.
skattgreiðendanna og neytendanna,
ofar öllu í störfum sínum og hafni því
að ganga erinda háværra sérhags-
muna. Sjálfstæðismönnum í Reykja-
vík er mikill fengur að fá sem þing-
mann sinn kjarkmikla, vel menntaða
konu eins og Stefaníu Óskarsdóttur,
sem hefur mikla reynslu af stjórn-
málastarfi. Kjósum Stefaníu í sjötta
sætið.
Stefaníu í 6. sæti
á lista Sjálfstæð-
isflokksins
Gísli Jensson sjómaður skrifar:
BJÖRN Bjarnason er óþreytandi
í greinaskrifum sínum um málefni
líðandi stundar á Netinu og víðar.
Það er óvenjulegt að
ráðherra fjalli eins
skýrt og skil-
merkilega um við-
horf sín og Björn
gerði á meðan hann
var mennta-
málaráðherra. Þetta
kunna stuðningsmenn hans að meta.
Það er einsdæmi að geta ávallt
vænst skjótra svara við erindi sem
stjórnmálamanni er sent á Netinu,
hvort sem hann gegnir ráðherra-
embætti eða situr á þingi. Þetta
kunna kjósendur að meta.
Að frumkvæði Björns Bjarnason-
ar var grunnur lagður að stórstígum
framförum á öllum stigum skóla-
kerfisins frá leikskólum til háskóla.
Djörf stefnumótun sem hann hóf
fyrir tveimur árum í málefnum vís-
indarannsókna og þróunar mun
setja svip sinn á nýsköpun og nú-
tímavæðingu atvinnulífs þjóðarinnar
um langa framtíð. Björn Bjarnason
er öflugur þingmaður með framtíð-
arsýn sem skiptir alla máli. Tryggj-
um honum glæsilega kosningu í
þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
Verk Björns
Bjarnasonar tala
Hafliði Pétur
Gíslason skrifar:
ÉG kynntist Birgi Ármannssyni
fyrst þegar leiðir okkar lágu saman í
Menntaskólanum í Reykjavík. Strax
á þessum árum tókst traust og góð
vinátta með okkur og ég get fullyrt
að leitun sé að vand-
aðri og heilsteyptari
manni.
Leiðir okkar hafa
eftir þetta legið sam-
an innan Sjálfstæð-
isflokksins og þar
hafa kynni mín af
Birgi ekki verið síðri. Birgir hefur
þá eiginleika sem allir góðir ein-
staklingar og stjórnmálamenn þurfa
að hafa til að ná árangri fyrir hönd
umbjóðenda sinna; heiðarleika, rök-
festu og vandaðan málflutning í hví-
vetna. Að auki er hann einlægur í
stuðningi sínum við frelsi ein-
staklingsins og einkaframtakið og
setur þau sjónarmið sín fram á mál-
efnalegan og uppbyggilegan hátt.
Að mínu áliti yrði Birgir góður
málsvari sjálfstæðisstefnunnar á Al-
þingi. Bæði af þeirri ástæðu og
vegna þess að þingmenn Sjalfstæð-
isflokksins í Reykjavík eru um leið
málsvarar okkar á landsvísu eins og
aðrir þingmenn ákvað ég að stinga
niður penna og hvetja flokksfélaga
mína í Reykjavík til að styðja Birgi í
það sæti sem hann óskar eftir, sjötta
sætið.
Birgi á þing
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi, skrifar:
SIGURÐUR Kári Kristjánsson
hefur ekki aðeins getið sér gott orð í
starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
heldur er hann líka öflugur málsvari
sjálfstæðisstefn-
unnar á opinberum
vettvangi og virtur
og vel metinn lög-
fræðingur, þótt ung-
ur sé að árum. Hann
er manna samvisku-
samastur og gengur
að hverju því verkefni, sem hann
tekur að sér, af stökustu kostgæfni.
Hann er glöggskyggn og góð-
gjarn, og honum er áskapaður
drengskapur í samskiptum við fólk,
án þess að hann sé sneyddur kappi
eða baráttuvilja.
Hann er hófsamur í skoðunum og
þó fastur fyrir. Ég kynntist honum
fyrst, þegar ég kenndi í Versl-
unarskólanum, og sá strax, að þar
fór efnilegur forystumaður, enda
hefur hann síðan gegnt mörgum
trúnaðarstörfum við vaxandi traust
og vinsældir. Ég veit, að ég er ekki
einn um það að vona, að hann fái
brautargengi í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna nú um helgina.
Til stuðnings
Sigurði Kára
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, pró-
fessor í stjórnmálafræði, skrifar:
ÞRÁTT fyrir ungan aldur hefur
Birgir Ármannsson aðstoð-
arframkvæmdastjóri valist til marg-
víslegra trúnaðarstarfa á vettvangi
Sjálfstæðisflokksins
en einnig á vettvangi
atvinnulífsins. Öll
þessi störf hefur
hann innt vel af
hendi og sýnt að
hann er vel til for-
ystu fallinn.
Birgir er ekki einn af þeim sem
telja að stjórnmálamenn geti leyst
allan vanda í mannlífinu með því að
auka greiðslur úr ríkissjóði eða bæta
við laga- og reglugerðaflóðið. Hann
telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda
síbatnandi efnahags þjóðarinnar. En
Birgir vill enga lognmollu og hefur
skýrar hugmyndir um það hvernig
kraftar atvinnulífsins verði best
nýttir til frekari ávinnings fyrir alla,
ekki síst þá sem minna mega sín,
með því að skjóta styrkari stoðum
undir velferðarkerfið.
Við sjálfstæðismenn eigum að
grípa tækifærið þegar yfirburða-
maður eins og Birgir gefur kost á
sér til löggjafarstarfa í þágu flokks
og þjóðar og styðja hann í öruggt
sæti á framboðslista flokksins í próf-
kjörinu.
Kjósum Birgi
Ármannsson
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi skrifar:
ÞÁ er prófkjör hjá sjálfstæð-
ismönnum næstu helgi. Margir eru
kallaðir en fáir útvaldir.
Einn þeirra frambjóðenda sem nú
hafa hellt sér í slag-
inn er Guðlaugur
Þór Þórðarson borg-
arfulltrúi. Þar fer
ungur maður sem
hefur verið áberandi
í borgarmálunum,
ekki síst þegar mál-
efni okkar Grafarvogsbúa eru ann-
ars vegar. Ekki spillir heldur að
hann er fjölskyldumaður sem vill
stuðla að fjölskylduvænna þjóð-
félagi en er, og veitir ekki af.
Kæru Grafarvogsbúar, við þurf-
um á skeleggum málsvörum að
halda á löggjafarþingi okkar og því
er mikilvægt að þar sitji fólk sem
skilur og þekkir aðstæður í fjöl-
mennasta hverfi höfuðborgarinnar.
Guðlaugur Þór hefur sýnt og sann-
að að hann lætur sér annt um mál-
efni hverfisins okkar í borgarstjórn.
Nú er ég sjálfur óflokksbundinn
maður en ég leyfi mér að hvetja þá
sem tök hafa á að styðja Guðlaug
Þór í prófkjörsbaráttu hans og
stuðla þannig að því að á Alþingi Ís-
lendinga sitji maður sem þekkir
þarfir og aðstæður okkar Graf-
arvogsbúa.
Okkar mann
á þing!
Emil Örn Kristjánsson skrifar:
ÉG VIL hvetja alla þá sem ætla að
taka þátt í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins 22. og 23. nóvember næst-
komandi að styðja Soffíu Kristínu
Þórðardóttur í 8. sæti. Soffía sat í 14.
sæti á lista flokksins
fyrir síðustu alþing-
iskosningar og býr
yfir mikilli reynslu af
margs konar fé-
lagsstörfum. Hún
hefur m.a. verið for-
maður Vöku, vara-
formaður Heimdallar og bæði forseti
og framkvæmdastjóri NKSU, sam-
taka lýðræðissinnaðra stúdenta á
Norðurlöndum. Soffía hefur þá jafn-
framt gegnt embætti forseta Fram-
tíðarinnar í MR. Á framboðsvefnum
www.soffia.is má finna ítarlegar upp-
lýsingar um Soffíu og helstu áherslur
hennar. Af kynnum mínum við Soffíu
veit ég að hún er sterk persóna og
óhrædd við að segja sínar skoðanir.
Ég veit að Soffía yrði glæsilegur
fulltrúi yngri kynslóðarinnar á þingi
og að með henni blása ferskir vindar.
Ég styð framboð Soffíu Kristínar
heilshugar og hvet alla sjálfstæð-
ismenn í Reykjavík að fylkja sér um
framboð Soffíu og tryggja ungri og
kraftmikilli konu öruggt sæti á Al-
þingi Íslendinga.
Soffía er málið
Guðfinnur Sigurvinsson, stjórnmála-
fræðinemi, skrifar:
KATRÍN hefur víðtæka þekk-
ingu á heilbrigðismálum og er eini
læknirinn sem setið hefur á Al-
þingi sl. 4 ár og gefur kost á sér í
næstkomandi al-
þingiskosningum.
Á Alþingi á Katr-
ín frumkvæði að og
hefur unnið öt-
ullega að bættri
þjónustu við þá
sem eiga við át-
raskanir að stríða. Hún hefur
staðið fyrir þingsályktun, þeirri
fyrstu sinnar tegundar, hér á
landi til að bæta þjónustu við
sjúklinga á landsplani með lang-
varandi átraskanir, lystarstol og
lotugræðgi. Sú þjónusta mun
væntanlega spara umtalsverða
fjárupphæð í heilbrigðiskerfinu í
framtíðinni þegar til lengri tíma
er litið. Katrín hefur jafnframt
varað við of miklum ríkisaf-
skiptum í virkjanamálum. Hún
hefur lagt umhverfisvernd mikið
lið og hefur viljað efla sveit-
arstjórnarstigið. Hún hefur tekið
þátt í mörgum mannréttinda-
málum eins og málefnum nýbúa,
mengunarvarnarmálum og end-
urnýtingu og endurvinnslu ýmissa
efna. Katrín er mikilvægur mál-
svari heilbrigðis, jafnréttis og
jafnaðar á Alþingi. Veitum henni
áframhaldandi brautargengi á Al-
þingi. Ég hvet þátttakendur í
prófkjörinu til að tryggja Katrínu
4. sæti.
Tryggjum
Katrínu Fjeldsted
4. sætið
Helga Hannesdóttir læknir skrifar:
ÉG hef þekkt Guðlaug Þór frá
æskuárum hans. Hann er í senn
hugkvæmur og ódeigur bar-
áttumaður fyrir velfarnaðarmálum
Íslendinga. Því var
hann valinn í for-
ystusveit sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík.
Þar hefur hann
starfað af þreki og
hyggindum og er
honum því vel
treystandi til starfa að farsælum
framgangi þjóðmála á Alþingi.
Guðlaug í
forystusveit
Ásgeir Pétursson lögmaður skrifar:
Í KOMANDI prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík er margt ungt
og glæsilegt fólk í
framboði. Einn
þeirra er Sigurður
Kári Kristjánsson.
Þar er á ferð ungur
frambjóðandi með
mikla reynslu. Hann
hefur herjað á
vinstrimennina í háskólapóltíkinni
með Vöku, félagi lýðræðissinnaðra
stúdenta og á vettvangi Sjálfstæð-
isflokksins hefur hann eflst í eldi
baráttunnar. Sem stjórnarmaður og
síðar formaður SUS var hann ötull
við að vekja athygli á málstað ungra
sjálfstæðismanna og var í góðu sam-
bandi við forystumenn flokksins og
þingmenn. Hann hefur nú hellt sér
af fullum krafti í prófkjörsbaráttuna
og stefnir á 7. sætið. Sigurstrangleg-
ur listi verður að sameina reynslu
sitjandi þingmanna og ferskleika og
drifkraft nýrra frambjóðenda. List-
inn okkar verður einnig að end-
urspegla vídd flokksmanna og kjós-
enda en enginn þingmaður undir
þrítugu situr nú á Alþingi. Sigurður
Kári er verðugur fulltrúi okkar.
Sigurð Kára
í 7. sætið
Magnús Þór Gylfason, formaður Heimdall-
ar, skrifar: