Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 43
VINUR minn
Björn Bjarnason
leggur nú út í kosn-
ingabaráttu. Ég kýs
að láta þetta erindi
skáldsins frá Fagra-
skógi fylgja honum:
Gakk þú heill að hollu verki,
heimta allt af sjálfum þér.
Vaxa skal sá viljasterki,
visna hinn sem hlífir sér.
Gyrð þig mætti orðs og anda,
efldu miskunn þinna handa,
veit þeim hrjáðu vörn og líkn.
Aldrei skyldi löggjöf landa
lúta valdafíkn.
Ég geri þetta í tvíþættum til-
gangi. Ég er annars vegar að lýsa
hugarfari Björns, því hvert ein-
asta orð ljóðsins er eins og frá
hjarta hans komið. En ég er einn-
ig að hvetja hann til að gefa okkur
Reykvíkingum og íslensku þjóð-
inni, enn sem fyrr, allt það besta
sem í hug hans býr. Styrkjum
hann til baráttu í anda þessa ljóðs.
Tryggjum honum þriðja sætið.
Ætíð heill í
hollu verki
Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi dóm-
kirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey,
skrifar:
í desember
Pantið tímanlega! Sími: 569 1111. Netfang: augl@mbl.is
Fjölgun útgáfudaga
Útgáfudögum fjölgar enn.
Í desember gefast auglýsendum aukin
tækifæri til að koma skilaboðum
til lesenda Morgunblaðsins.
Dagurinn sem bætist við nú
er föstudagurinn 27. desember.
Desember
1
2 4 5 6 7 8
9 10
3
11 12 13
20
28 29
14 15
16 1817
25
19
26
21 22
23 24
30 31
M Þ M F F L S
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
19
21
5
1
1/
20
02
27
Kringlunni 8-12 - www.olympia.is - sími 553 3600
Vetur 2002
Undirfatalínan hefur aldrei verið glæsilegri en nú
SÉRSTÖK ástæða er til að gleðj-
ast yfir því að Björn Bjarnason skuli
áfram gefa kost á sér til forystu-
hlutverks á Alþingi samhliða því að
vera leiðtogi sjálf-
stæðismanna í borg-
arstjórn.
Björn nýtur al-
mennrar virðingar
fyrir stjórnmálastörf
sín. Víðtæk þekking
hans, rökfastur mál-
flutningur og skipuleg og markviss
vinnubrögð hafa aflað honum álits
langt út fyrir raðir sinna eigin
flokksmanna. Hann er maður sem
Sjálfstæðisflokkurinn þarf nauðsyn-
lega á að halda í fremstu víglínu.
Veitum heiðarleika, ábyrgð og
réttsýni brautargengi í íslenskum
stjórnmálum – og tryggjum Birni
Bjarnasyni glæsilega kosningu í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Björn áfram
til forystu
Jakob F. Ásgeirsson skrifar:
ÞAÐ ríður á að sá framboðslisti
sem sjálfstæðismenn í Reykjavík
velja sér í prófkjörinu 22. og 23.
nóvember hafi á að skipa sem
mestri breidd. Á
honum þurfa að
vera hæfir fram-
bjóðendur sem eru í
senn traustir sjálf-
stæðismenn og fær-
ir um að skírskota
til nýrra kjósenda
með málflutningi sínum og sækja
inn á miðju stjórnmálanna eftir
fylgi við flokkinn. Það er mér því
fagnaðarefni að Stefanía Ósk-
arsdóttir skuli gefa kost á sér í
prófkjörinu og ég styð hana heils
hugar í sjötta sæti listans.
Stefanía hefur menntun og
reynslu sem þingflokk Sjálfstæð-
isflokksins munar um. Hún varð
fyrst íslenskra kvenna til að ljúka
doktorsnámi í stjórnmálafræði og
lagði í námi sínu áherslu á al-
þjóðastjórnmál. Í pólitísku starfi,
bæði sem formaður Hvatar, vara-
þingmaður, formaður jafnrétt-
isnefndar Sjálfstæðisflokksins og á
öðrum vettvangi, hefur Stefanía
lagt áherslu á jafnréttismál. Má
með sanni segja að hún sé einn öfl-
ugasti baráttumaður fyrir jafnrétti
í reynd, sem kvatt hefur sér hljóðs
hér á landi á liðnum árum.
Stefanía
breikkar hópinn
Baldvin Einarsson rannsóknarlög-
reglumaður skrifar:
SOFFÍA Kristín Þórðardóttir er
yngst þeirra frambjóðenda sem ósk-
að hafa eftir stuðningi í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins. Hún býr engu
að síður yfir marg-
víslegri reynslu sem
Sjálfstæðisflokk-
urinn myndi njóta
góðs af bæði í kosn-
ingabaráttunni og á
þingi. Soffía skipaði
14. sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síð-
ustu kosningar og hefur auk þess set-
ið í stjórn SUS og verið varaformaður
Heimdallar. Soffía var formaður
Vöku 2000–2001 og í stjórn félagsins
árið á undan. Hún hefur verið einn af
máttarstólpunum í því uppbygging-
arstarfi sem átt hefur sér stað innan
félagsins undanfarin ár og skilaði sér
í langþráðum sigri nú í vor. Ég hef
lengi starfað með Soffíu og mæli
óhikað með því að sjálfstæðismenn
styðji hana í þessu prófkjöri.
Styðjum Soffíu
í 8. sætið
Andri Óttarsson héraðsdómslögmaður
skrifar:
ÉG hef heyrt ótal ummæli um
dugnað og atorku Björns Bjarnason-
ar, bæði úr munni samherja sem og
andstæðinga úr pólitík. Síðast heyrði
ég hann kallaðan
„mulningsvél“ og var
það með vísan til
heimasíðu hans sem
ruddi brautina fyrir
fleiri og er löngu orð-
in þjóðþekkt.
Ég þekki til starfa
Björns Bjarnasonar frá þeim tíma
sem hann gegndi embætti mennta-
málaráðherra en ekki síður núna
sem oddviti okkar sjálfstæðismanna
í borgarstjórn. Ég veit að þar fer
maður sem ég treysti, hann er heið-
arlegur, samviskusamur og með
ótrúlega starfsorku. Þeir eru ekki
margir sem ég lýsi á þennan hátt,
hvorki úr félagsmálum né stjórn-
málum. Þetta eru eiginleikar sem
þjóðin öll hefur þörf fyrir ekki síður
en við borgarbúar. Björn Bjarnason
fær því mitt atkvæði.
Traustur
dugnaðarforkur
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og fv. formaður Fé-
lags grunnskólakennara, skrifar:
STJÓRNMÁL snúast um baráttu
fyrir hugsjónum. Störf þeirra sem
setjast á Alþingi mótast af því hvaða
hugsjónir þeir hafa í
lífinu. Birgir Ár-
mannsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri
Verslunarráðs Ís-
lands, hefur um
langt árabil barist
fyrir hugmyndum
frjálslyndra manna um frelsi ein-
staklinga til að ráða sínum málum
(þar með fjármálum) sjálfir.
Það er nú sem áður vöntun á þing-
mönnum sem hafa frelsi ein-
staklingsins að leiðarljósi. Á næstu
árum mun gefast einstakt tækifæri
til að draga úr höftum, tollum og
sköttum og mikilvægt að á Alþingi
veljist menn sem gæta þess að svig-
rúmið sé notað í þágu einstakling-
anna en ekki í samneyslu.
Mikið fagnaðarefni er að Birgir
skuli hafa gefið kost á sér í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Styðjum hann í 6. sæti listans.
Birgir Ármanns-
son – maður ein-
staklingsfrelsis
Óttar Guðjónsson hagfræðingur skrifar:
SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, býður sig fram í
þriðja sæti lista sjálfstæðismanna í
prófkjörinu í Reykjavík um næstu
helgi. Hún er atorkumikill stjórn-
málamaður sem stjórnað hefur um-
fangsmiklum málaflokkum ráðu-
neytis síns með
mikilli eftirfylgni og
af röggsemi. Í ráð-
herratíð hennar hef-
ur réttarstaða brota-
þola verið bætt,
refsingar hafa verið
þyngdar við fíkni-
efnabrotum og grenndar-, fíkniefna-
og umferðarlöggæsla hefur verið
aukin. Alþjóðlegt samstarf á sviði lög-
gæslu, sem verður æ mikilvægara,
hefur verið aukið til mikilla muna. Ný
lög hafa verið sett um málefni útlend-
inga, persónuvernd og fasteignakaup
svo örfá dæmi séu nefnd. Það er
grundvallaratriði fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn að forystusveit hans sé vel
skipuð. Þar á reynd atorkukona svo
sannarlega heima. Sólveigu Péturs-
dóttur verður að tryggja þriðja sætið
í prófkjörinu um næstu helgi!
Sólveigu í 3. sæti
Júlíus Vífill Ingvarsson skrifar: