Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 46
MINNINGAR
46 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gylfi Hallvarðs-son fæddist á
Litlu-Vegamótum á
Seltjarnarnesi 13.
ágúst 1937. Hann
andaðist í Landspít-
alanum við Hring-
braut 12. nóvember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Guð-
finna Lýðsdóttir, f. í
Litla-Langadal á
Skógarströnd 4. maí
1904, d. 9. maí 1991,
og Hallvarður Hans
Rósinkarsson vél-
stjóri, f. á Breiðaból-
stað á Skógarströnd 14. maí 1904,
d. 6. mars 1975. Gylfi var fimmti
sonur þeirra hjóna, en þeir eru í
aldursröð. Agnar, fyrrv. vélstj.og
verktaki, f. 4. nóvember 1929,
kvæntur Magnúsínu Ólafsdóttur
frá Ísafirði, f. 30. júlí 1931, þau
eiga tvo syni, níu barnabörn og
þrjú barnabarnabörn. Helgi, fyrrv.
skipherra, f. 12. júní 1931, kvænt-
ur Þuríði Erlu Erlingsdóttur, f. 3.
d. 12. júlí 1987, og Bjarni Bjarna-
son skipstjóri, f. 5. júlí 1901, d. 23.
júlí 1972. Börn Öldu og Gylfa eru:
1) Linda Hrönn, f. 30. júní 1969,
sambýlismaður Magnús Sævar
Pálsson, f. 16. apríl 1970, d. 23.
ágúst 1998, börn þeirra: Alda
Hrönn, Gylfi Þór og Anna Rósa
Ósk, 2) Bjarni Þór, f. 29. október
1972, kona hans er Sonja Hafdís
Poulsen, 3) Hallvarður Hans, f. 7.
ágúst 1975, unnusta Álfheiður Elín
Bjarnadóttir, 4) Magna Ósk, f. 26.
september 1977, sambýlismaður
Þórður Helgi Þórðarson, og 5)
Ægir Már, f. 30. ágúst 1982.
Gylfi fór fljótlega eftir barna-
skóla á sjóinn, fyrst á varðskipum,
síðar á olíuskipinu Hamrafelli. Þau
Alda bjuggu tæp tvö ár í Bandarík-
unum og starfaði Gylfi á skipi í
eigu Ford á vötnunum miklu. Eftir
heimkomuna keypti hann í sam-
vinnu við Hilmar bróður sinn trak-
torsgröfu og vann með henni ýmis
storf, mokstur í húsgrunna o.fl.
Síðar starfaði hann hjá Vitamála-
stofnun sem bílstjóri og tækjamað-
ur, einnig við Búrfellsvirkjun. Síð-
ustu 25 árin starfaði hann sem
tækjamaður hjá Reykjavíkurhöfn.
Útför Gylfa verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
mars 1930, þau eiga
tvær dætur, einn son
og níu barnabörn.
Birgir, ræðismaður og
fyrrv. fulltrúi, f. 20.
mars 1934, kvæntur
Sigfríði Stellu Ólafs-
dóttur, f. 26. júní 1941,
þau eiga son og dóttur
og tvö barnabörn,
Hilmar, fyrrv. yfir-
verkstjóri, f. 3. júlí
1935, d. 9. júlí 2000,
kvæntur Hafdísi
Ólafsdóttur, f. 22. maí
1936, þau eiga þrjár
dætur, átta barnabörn
og eitt barnabarnabarn, Gylfi sem
nú er kvaddur og yngstur er Guð-
mundur alþingismaður, f. 7. des-
ember 1942, kvæntur Hólmfríði
Maríu Óladóttur, f. 19. september
1946, þau eiga tvo syni, eina dóttur
og þrjú barnabörn.
Gylfi kvæntist 12. ágúst 1967
Öldu Björgu Bjarnadóttur, f. 1.
mars 1942. Foreldrar hennar voru
Magna Ólafsdóttir, f. 27. júní 1898,
Elsku pabbi, það er með miklum
trega sem ég sest niður til að rita
þessi orð. Mig langar samt að fá að
setja nokkur orð á blað, þó svo að ég
viti að við séum ekki búnir að skilja
til framtíðar því ég veit að þú ert á
vaktinni og fylgist með. Ég veit í
raun ekki hvar ég á að byrja, það er
af svo miklu að taka, svo margar
gleðistundir á móti fáum sorgar-
stundum. Þegar við vorum að tala
við prestinn og hann spurði okkur
systkinin hvernig faðir þú hefðir
verið var því fljótsvarað; besti pabbi
í heimi. Alltaf gengum við systkinin
fyrir, sama hversu þröngt var í búi.
Þið mamma létuð þetta smella eins
og færiband, samt með fimm brjál-
aða grislinga, hvern öðrum erfiðari.
Það bíttaði engu hvort maður steig
út af sporinu og gerði einhvern
óskunda af sér, maður var alltaf vel-
kominn í faðm fjölskyldunnar.
Ég minnist þeirra stunda sem við
áttum saman uppi á Esju, eins og
húsið var réttilega kallað, það er
eins og það hafi verið í gær. Þegar
þú varst að innrétta og ganga frá,
þegar einn Land Roverinn var í bút-
um og ég fékk að skrúfa gólfið í á
milli þess sem ég rúntaði um sveita-
vegina á kassabílnum sem þú hjálp-
aðir mér við að smíða. Þegar við fór-
um austur, og við bræðurnir lágum
aftur í Oldsmobílnum, með hvell-
hettubyssur og skutum allar roll-
urnar sem við sáum á leiðinni. Þeir
voru margir vélahlutirnir sem mað-
ur fékk að fikta í og fræðast um með
þér, grúska í bílum og smíða hina og
þessa hluti úr járni og tré, sem ann-
aðhvort voru endurnýttir eða not-
aðir sem skúlptúrar.
Sunnudagsbíltúrarnir með Guð-
finnu ömmu, sem voru fastir liðir
með tilheyrandi góðgæti eins og
pylsu frá Nesti í Fossvoginum. Eitt
af því sem ekki er hægt að gleyma
er þegar þú hringdir í ömmu á
hverju kvöldi, eins og sannur
mömmustrákur.
Engu skipti á hvaða tíma sólar-
hrings fólk hringdi eða hvaða dag
vinir og vandamenn þurftu aðstoð,
þú varst alltaf þar, tilbúinn í slaginn.
Veiðiferðin okkar í Veiðivötn í
fyrra er mér í fersku minni. Al-
mennt var lítið af fiski á svæðinu á
þessum tíma, en við áttum þó góða
stund saman, bræðurnir og þú.
Síðastu mánuðir hafa verið erfiðir
fyrir okkur öll, en erfiðastir fyrir
þig, þó svo að þú létir engan bilbug
á þér finna. Alltaf jafn glaður og
tilbúinn til að takast á við verkefni
dagsins, sama hversu erfið þau
reyndust vera. Ég veit að þú hugsar
hlýlega til stúlknanna hjá Karitas og
stúlknanna sem eru á 11-E, enda
leið þér vel þar síðustu dagana.
Styrkur til okkar er mikið til kom-
inn frá þér, enda brosandi og að
segja brandara fram á síðustu
stundu.
Elsku pabbi, það er erfitt að
reyna að koma öllu á blað, minn-
ingin lifir, enda ótal minnisbrot sem
þjóta í gegnum hugann. Ég ætla
ekki að kveðja þig alfarið, heldur
segi; heyrumst og sjáumst.
Bjarni Þór.
Í dag er borinn til grafar Gylfi
Hallvarðsson, en hann lést 12. þessa
mánaðar á Landspítalanum við
Hringbraut, eftir tæplega árs bar-
áttu við illvígan sjúkdóm.
Mér er þungt fyrir brjósti er ég
tek mér penna í hönd til að minnast
bróður og vinar sem alltaf átti von-
ina um rólegt og ánægjulegt ævi-
kvöld í faðmi fjölskyldu sinnar.
Gylfi fæddist á Vegamótum á Sel-
tjarnarnesi 13. ágúst, 1937 og var
því rúmlega 65 ára er hann lést.
Hann var næst yngstur okkar sex
bræðra og er annar er yfirgefur
hópinn, en Hilmar lést fyrir rúm-
lega tveimur árum.
Snemma byrjaði Gylfi að vinna og
þá fyrst sem sendisveinn í Lands-
smiðjunni, en seinna fór hann á sjó-
inn og var bæði á fiski- og flutn-
ingaskipum í nokkur ár. Er hann
kom í land var hann við stjórnun
jarðvinnuvéla, en starfaði seinustu
árin hjá Reykjavíkurhöfn. Þar varð
hann fyrir því slysi að lenda í sjón-
um með bílkrana sem hann var að
færa til á hafnarsvæðinu er bremsur
tækisins biluðu. Þetta slys hefur
markað hann nokkuð síðan.
Það var kátt hjá okkur bræðrum
er við náðum því að hittast og eiga
saman kvöldstund með mökum okk-
ar. Alltaf kom að því að rifja upp
æsku okkar og árin sem við áttum
saman í foreldrahúsum inni á Hrísa-
teig, þar sem margt var brallað.
Gylfi hafði frábært minni. Hann
GYLFI
HALLVARÐSSON
Hvort skiljast leiðir fyrir
fullt og allt,
í fjarlægð er þú burtu
hverfur skjótt?
En allar stundir mun ég
minnast þín,
jafnt morgun, kvöld og dag sem rauða
nótt.
Ég á ei neitt, sem gefið þér ég get,
er gleðisól á vonarhimni dvín.
Í leit að hnossum lífsins er þú ferð,
– eitt lítið tár er gjöfin mín til þín.
Ég get ei rétt þér hlýja vinar hönd,
né heldur flutt þér kærleik þrunginn
brag.
Eitt lítið tár er lokakveðjan mín,
er lætur skipið þitt úr höfn í dag.
(Bragi Jónsson frá Hoftúnum.)
Með söknuði og sárum trega
kveðjum við kæra vinkonu, hana
Mummu, en svo var hún ætíð köll-
uð. Stundum í gáska skvísuáranna –
Mumma Loren – hálfsystir Soffíu
Loren leikkonu, eða frænka, sögð-
um við öllum sem heyra vildu. Að
eiga samleið og vináttu í 40 ár er
dýrmætt og gleymist aldrei, heldur
verður geymt í sjóði minninganna.
Minningar frá síldarsöltun á
Siglufirði, stöllurnar Mumma, Svala
GUÐMUNDÍNA
ÞÓRUNN
SAMÚELSDÓTTIR
✝ GuðmundínaÞórunn Sam-
úelsdóttir fæddist á
Ísafirði 30. nóvem-
ber 1940. Hún lést á
heimili sínu 4. nóv-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Akranes-
kirkju 8. nóvember.
og Dídí náðu í skottið á
síldarævintýrinu.
Mumma og Dídí í Nor-
egi, síðar Mumma og
Svala í Noregi. For-
framaðar Skagaskvís-
ur í norskum lífshátt-
um og tungu. Síðar, við
allar að skemmta okk-
ur með Dúmbó og
Steina, ævintýri æsk-
unnar í þá daga. Svo
fæddust börnin okkar
á svipuðum tíma, lífið
tók annan farveg,
þrjár einstæðar, ein
gift. Vináttan hélst
óbreytt. Við, þær einstæðu, héldum
þorrablót með börnum okkar.
Skemmtidagskrá að hætti Mummu,
gleði og húmor réðu ríkjum.
Mumma hafði þann góða eiginleika
að hafa gott skopskyn, hún var
mannvinur og mannréttindamál
voru henni hugleikin. Og þessir eig-
inleikar hjálpuðu vinkonu okkar í
erfiðu veikindastríði síðastliðin 5 ár.
Ávallt var kjarkurinn og dugnaður-
inn sá sami og lundin jafnlétt. Sem
betur fer hefur hún Selma einka-
dóttir hennar erft þessa eiginleika
móður sinnar.
Við þökkum vinkonu okkar sam-
fylgdina, vináttu og gleðigjöf í gegn-
um árin. Elsku Selma, Hafþór og
Albert, innilegar samúðarkveður frá
okkur. Systkinum og öðrum ástvin-
um vottum við samúð. Við öll verð-
um að lifa áfram og halda merki og
hugðarefnum hennar Mummu á
lofti.
Með þökk og virðingu.
Bjarndís, Anna Kristín,
Þóra Elísabet og Svala.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUNNAR A. AÐALSTEINSSON
frá Brautarholti,
Kveldúlfsgötu 1,
Borgarnesi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness laugar-
daginn 16. nóvember, verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju laugardaginn 23. nóvember og hefst athöfnin kl. 14.00.
Steinunn Árnadóttir,
Sólrún Gunnarsdóttir, Gylfi Már Guðjónsson,
Hafdís Gunnarsdóttir, Nikulás Á. Halldórsson,
Trausti Gunnarsson, Ástríður Gunnarsdóttir,
Tryggvi Gunnarsson, Elsa Friðriksdóttir,
Ingileif Aðalheiður Gunnarsdóttir, Magnús Valsson,
Árný Guðrún Gunnarsdóttir, Guðjón Bjarnason,
afa- og langafabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir
og mágur,
INGÓLFUR ARNARSON,
Hellisgötu 27,
Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn
19. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Friðrikka Sigfúsdóttir,
Þorsteinn R. Ingólfsson,
Hallgerður Jónsdóttir,
Jón Arnarson,
Anna Vala Arnardóttir, Sigurjón Friðjónsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HERDÍS SÍMONARDÓTTIR,
Miklubraut 88,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Kópavogi aðfara-
nótt miðvikudagsins 20. nóvember.
Ása Kristjánsdóttir, Sigurður Hauksson,
Margrét Kristjánsdóttir, Þorsteinn J. Stefánsson,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Sverrir Ingólfsson,
Símon Kristjánsson, Sigríður Guðbergsdóttir,
Kristinn Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL ÓLAFSSON,
Hringbraut 48,
Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
aðfaranótt þriðjudagsins 19. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
María Erla Pálsdóttir, Hrafn Árnason,
Svala K. Pálsdóttir, Randver R. Randversson,
Guðný Pálsdóttir,
Rannveig Kristín, Jón Einar og Karen Ösp Randversbörn,
Benedikt Hjalti og Grétar Már Sveinssynir,
Sindri Páll Benediktsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
JÓHANNES EGGERTSSON
hljómlistarmaður,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur að morgni miðvikudagsins
20. nóvember.
Eggert Jóhannesson, Gabriele Jóhannesson,
Halldóra Jóhannesdóttir,
Þorvaldur Jóhannesson, Guðfinna Hjálmarsdóttir,
Pétur Jóhannesson,
Guðbjörg Jóhannesdóttir, Jón Tryggvason,
Guðbjörg Jóhannesdóttir, Árni Björnsson,
Margrét Eggertsdóttir,
Einar Eggertsson.