Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 53

Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 53
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 53 Kringlan 4-12, sími 568 6211. Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420. Mikið úrval af inniskóm á alla fjölskylduna Disney Verð 2.490 st. 24-34 Verð 2.990 st. 36-40 Ponny Verð 1.990 rauðir/bláir st. 23-29 Ponny Verð 2.490 rauðir/bláir st. 19-27 Fly Flot Verð 1.990 svartir st. 40-46 Rhode Verð 4.990 svart leður st. 41-46 Fly Flot Verð 1.990 svartir st. 36-42 Rhode Verð 4.490 vínrauðir st. 36-42 Í FRÉTTUM um daginn var sagt frá því að lögreglan tók mikið magn af heimaslátruðu kjöti og lét urða það. Lögregluþjónn sem rætt var við af þessu tilefni lét þau orð falla að þetta væri náttúrulega sýkt kjöt! Þetta er látið standa og enginn segir neitt. Hvað á maðurinn við? Er hann að segja að kjötið sé sýkt frá náttúr- unnar hendi og þar sem það er heimaslátrað þá sé það hættulegt? Er hann að segja að ef kjötið fer í sláturhús þá sé það með einhverjum aðferðum af-sýkt og þar með hæft til átu? Ég hef unnið á sláturhúsi og get ég ekki sagt að ég viti til þess að þar sé öðruvísi farið með kjötið en heima á bæjunum þar sem bændur vanda sig að sjálfsögðu við slátrun á sínum gripum þar sem þeir ætla að borða þetta kjöt sjálfir. Ég hef nánast alla mína ævi borð- að heimaslátrað kjöt og ekki orðið meint af. En ég má borða heimaslátrað þar sem ég bý í sveit. En eins og lögin eru í dag þá má ég ekki gera skyld- fólki mínu gott og senda þeim kjöt í bæinn vegna þess að um leið og kjöt- ið fer frá lögbýlinu telst það sýkt kjöt. Ef ég tek með mér kjöt af heimaslátruðu í nesti og gef öðrum með mér þá er ég að dreifa sýktu kjöti. Hvernig er með villibráðina sem skotin er og sótt af hundum? Svo er bráðinni hent upp á bílpall eða í skottið. Þetta kjöt má selja á veit- ingahús og í verslanir og það má gefa ættingjum að vild! Þarf ekki að skoða þessi lög og gera þau a.m.k. þannig að hægt sé að fylgja þeim? Eitthvað yrði sagt ef ég yrði stoppuð með lamb í skottinu á bílnum og segði við lögregluna: „Nei, þetta er ekki heimaslátrað þetta er villibráð, ég skaut það á færi eins og hreindýr, er það þá ekki ósýkt?“ Hvað gerðu þeir svo við hvalkjötið um daginn? Menn voru búnir að leggja á sig mikla vinnu við að vinna þetta kjöt eins og best var á kosið miðað við aðstæður en allt kom fyrir ekki, yfirdýralæknir gat ekki lagt blessun sína yfir þetta vegna þess að hér á landi er engin lögleg aðstaða til að vinna hval. Og þar með var kjötið urðað. Að sjálfsögðu hefði hann get- að leyft þetta ef hann hefði viljað. Þarna var farið eins rétt og vel að öllu og hægt var. Og við skulum athuga eitt, á með- an á þessu stendur er seldur í búð- um, með leyfi yfirdýralæknis, sýktur kjúklingur sem er sannarlega sýktur en það er allt í lagi, við eigum bara að sjóða hann vel. HEIÐBJÖRT H. STEFÁNSDÓTTIR, Efra-Ási, Hjaltadal. Náttúrulega sýkt kjöt? Heiðbjört H. Stefánsdóttir skrifar: RONI Horn, myndlistarmaður og aðdáandi íslenskra auðna, hefur far- ið mikinn í Morgunblaðinu að und- anförnu, nú síðast í miðopnugrein 9. nóv. 2002. Þar er veðrunin hér hafin upp til skýjanna, en þess ekki getið að Ísland mun vera eitt af þremur vindasömustu byggðu bólum jarðar. Hin eru Aleutaeyjar í norðanverðu Kyrrahafi og Falklandseyjar í sunn- anverðu Atlantshafi. Hér hleypir gróðurleysið vindin- um víða lausum á síminnkandi jarð- veginn en þó segist höfundur mæla með aukinni nærveru trjáa hvar sem er annars staðar en hér á landi, þar sem trjám sé hreinlega ofaukið. Skipulögð skógrækt á Íslandi mundi veita svipaða upplifun og ferð um Manhattan. Þetta er skáldlega mælt hvað sem segja má um innihaldið. Þá fáum við að vita að sveitasæla sé hugmynd sem aldrei hafi átt við á Ís- landi og því sé löngunin til að um- breyta sér í annars mynd brjóstum- kennanleg og afar truflandi. En hvort þetta á einnig við um þá sem koma úr landslagi skóga og stór- borga og umbreytast í auðninni hér fáum við ekki að vita. Þetta minnir nokkuð á viðhorf sumra Norðurlandabúa sem komu hingað til lands um miðja síðustu öld. Þeir höfðu lesið bækur íslenskra höf- unda sem lýstu einni fátækustu þjóð veraldar, en hittu fyrir fólk sem að drjúgum hluta var orðið bjargálna og gátu ekki leynt vonbrigðum sín- um. Ekki skulum við þó kenna mannvonsku um heldur var ferðin ekki lengur spennandi. Niðurlagsorð höfundar í títt- nefndri grein eru eftirfarandi: „Sem áhorfandi að þessu stríði við feg- urðina rennur upp fyrir mér að hin illræmda íslenska veðrátta var í rauninni dulbúin blessun – sem verndaði Ísland fyrir Íslendingum í öll þessi ár.“ Draga verður í efa að ís- lenska þjóðin hafi í annan tíma feng- ið kaldari kveðju. Landnámsmennirnir munu hafa komið að vel grónu landi og veðrun því ekki áberandi á láglendi. Síðan tók búpeningur að saxa á gróðurinn og það reyndist alvarlegt eftir að loftslag kólnaði. Ísaár urðu tíðari og einu sinni var talað um sumarið sem aldrei kom. Öldum saman áttu lands- menn ekki annarra kosta völ en vinna með eyðingaröflunum og ættu aðdáendur auðnanna að vera þeim þakklátir fyrir. Ekki má heldur gleyma jarðfræðinni. Eldgosin eirðu engu, hvorki gróðri né lifandi verum þessa lands, en alvarlegust urðu Móðuharðindin fyrir rúmum 200 ár- um. Brennisteini rigndi yfir sveitirn- ar næst Lakagígum og óhollustan barst um allt land. Gras spilltist, yfir helmingur nautgripa féll, yfir 4⁄5 sauðfjár og nær þriðjungur hrossa. Fjöldi manna komst á vonarvöl, flakkaði sveit úr sveit í leit að ein- hverju til að seðja bráðasta hungrið. Allt var étið sem tönn á festi þar á meðal horket af hrossum og hundar. (Sjá Íslendingasögu Arnórs Sigur- jónssonar.) Á sama tíma og Norðurálfubúum fór ört fjölgandi á 18. öld fækkaði Ís- lendingum töluvert niður fyrir 40 þúsund. Mörgum sýndist landið orð- ið óbyggilegt. Ef þær fáu hræður sem eftir voru hefðu safnast til feðra sinna eða á Jótlandsheiðar hefði veðrun ekki verið lengi að afmá þau fáu, lágu mannanna verk sem á land- inu voru. Hvílík dásemd. Hingað kæmu taugatrekktir íbúar úr myrkviðum milljónaborganna og gætu virt fyrir sér „tilgerðarlaust útsýnið“ og „gróðursnautt yfirborðið“. Matinn hefðu þeir með sér að heiman eins og hverjir aðrir tunglfarar. Helst þyrftu þó að vera nokkrir íbúar til að leita þeirra sem týndust. Einn hængur er þó á þessari dýrð- arsýn – það er hve fáir nytu dásemd- arinnar. Í yfirfullum heimi eru ekki margir sem mættu koma hingað áð- ur en ferðamenn færu að troða hver öðrum um tær. Hið besta annar aldr- ei eftirspurn. VALDIMAR KRISTINSSON, Kirkjusandi 1, Reykjavík. Köld kveðja Frá Valdimar Kristinssyni: ÞRÁTT fyrir síaukna fræðslu um umferðarmál virðist það ekki skila árangri til fækkunar slysum. Náms- kröfur hafa verið auknar fyrir öku- próf, Sjóvá-Almennar verið með fræðslunámskeið fyrir unga öku- menn, Umferðarráð með viðvörun- arþætti í útvarpi og sjónvarpi, viðtöl við fólk sem lent hefur í slysum og fjöldi blaðagreina skrifaður af mörg- um aðilum um umferðarmál. Þrátt fyrir alla þessa fræðslu og umfjöllun hefur slysum ekki fækkað. Hvað hægt er að gera til að breyta yfirdrifnu sjálfsáliti ökumanna yfir í skynsemi, sem byggist á öryggi í akstri og virðingu fyrir lífinu, virðist ekki vera í sjónmáli á næstunni. Það hefur sýnt sig að þá daga sem lögreglan er með sérstaka átaksdaga í umferðinni hefur umferðarhraðinn minnkað verulega. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur ekki verið talin ástæða til að auka löggæsluna, spara með því milljarða og verja líf fjölda manna. Annars virðist líf þeirra sem deyja í umferðarslysum ekki vera mikils virði, samkvæmt nýlegum dómi þar um. Þegar lögregla er kölluð til vegna árekstrar ökutækja finnst mér ekki rétt að vinnu hennar staðið. Þegar lögregluþjónn hefur skráð frásögn tjónsaðila fær hvorugur aðilinn afrit af því sem lögreglan skrifaði og hann les ekki upp fyrir þá það sem skrifað var, þannig að hvorugur aðilinn veit hvað var skrifað. Það er heldur ekki gerð vettvangsteikning, en slíka teikningu ætti að gera og sýna hana báðum aðilum. Helst ættu menn að fá afrit af slíkri teikningu, en þess eru dæmi að vettvangsteikning sem gerð var eftir á sýndi annað en það sem gerðist. Íþróttafélög fara oft með ung- lingalið í keppnisferðir um landið og þá eru stundum leigðir bílar án öku- manns eða farið á einkabílum með hinum og þessum. Fyrir þetta unga íþróttafólk skiptir það verulegu máli að sá ökumaður sem valinn er hafi öryggi í akstri að leiðarljósi. Í byrjun október fóru körfuboltalið vestur í Tálknafjörð að keppa. Ábyrgur ökumaður ekur frá Reykjavík til Tálknafjarðar á sex og hálfum til sjö tímum. Sagt var að eitt liðið sem fór frá Reykjavík um hálf- átta um morguninn hefði verið komið í Tálknafjörð klukkan hálfeitt. Ef þetta er rétt hefur ökumaðurinn þurft að fara nokkuð oft vel yfir há- markshraðann. Það hlýtur því að hafa verið töluvert að, bæði hjá öku- manni og þjálfara, sé þetta rétt. Mér finnst full ástæða til að þjálf- arar eða fararstjórar í svona ferðum séu áminntir um að láta ekki glanna- akstur líðast í þessum ferðum. Á þessari leið voru vegaframkvæmdir í innsta hluta Kollafjarðar og á Kletts- hálsi. Svona vegarkafla er ekki hægt að aka mjög hratt, en í þeim er oft töluvert af egghvössu grjóti sem get- ur skorið dekk mjög illa og þau orðið hættuleg, þótt ný séu. Mér finnst ekki líklegt að þessi ákveðni öku- maður hafi gáð að því hvort dekk hafi skaddast og orðið varasöm til hraðaksturs eftir aksturinn yfir þetta svæði. Rétt er að taka fram að þetta um- rædda keppnislið var ekki af Reykjavíkursvæðinu. Bíllinn mun hafa dregið kerru. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5. Hraðinn ofar lífinu Frá Guðvarði Jónssyni: Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.