Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 54

Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 54
DAGBÓK 54 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Venus og Akureyrin EA. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Örvar væntan- legur. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og jóga kl. 9.00. Myndlist kl. 13.00. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 9– 12.30 bókband og öskju- gerð, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 mynd- list, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13 bókband, kl. 14–15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bóka- safnið, kl. 15–16 bóka- spjall, kl. 17–19 æfing kórs eldri borgara í Damos. Laugard.: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10–13 verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9– 12 íkonagerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13–16 spilað, kl. 9.30 dans- kennsla. Kl. 10. 30 messa, umsjón sr. Krist- ín Pálsdóttir. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–12 böðun, kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 10 leikfimi, hár- greiðslustofan opin kl. 9–14, kl. 15.15 línudans o.fl., kl. 15.15 dans- kennsla. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- snyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Bingó kl. 15. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Félagsvist í Holtsbúð kl. 19 í umsjá Rotary. Allir velkomnir. Félag eldri borgara í Kópavogi. Bingó verður spilað í félagsheimilinu Gullsmára föstudaginn 22. nóv. kl. 14. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli á Flatahrauni 3. Í dag pútt í Hraunseli kl. 10, bingó kl. 13.30, gler- skurður kl. 13. Á morg- un, föstudag, tréút- skurður kl. 13, brids kl. 13.30 og pútt í Hraun- seli kl. 13.30. Námskeið í leirmótun fyrir byrj- endur kl. 13, vantar fleiri þátttakendur. Skráning í Hraunseli í síma 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði í Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Fimmtudagur: Brids kl. 13.00. Framsögn kl. 16.15. Brids fyrir byrj- endur kl. 19.30. Föstudagur: Félagsvist kl. 13.30. Heilsa og hamingja, fyr- irlestrar um fjármál aldraðra, í Ásgarði í Glæsibæ laugardaginn 23. nóvember og hefjast kl. 13.00. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofur og spilasalur opinn. Á morgun kl. 16 opnuð myndlistarsýning Árna Sighvatssonar. M.a. syngur Gerðubergskór- inn undir stjórn Kára Friðrikssonar. Allar upplýsingar um starf- semina í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik- fimi, handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–15, kl. 9.30 keramik og leir- mótun, kl. 13 ramma- vefnaður, gler og postu- línsmálun, kl. 15 enska, kl. 17 myndlist, kl. 16.15 og kl. 17.15 kínversk leikfimi, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Laugardagskvöldið 23. nóvember standa Nafn- lausi leikhópurinn og Smellarar fyrir gala- kvöldi í Gjábakka í Kópavogi. Þetta er ár- legur siður í Gjábakka. Fólk mætir í sínu fín- asta pússi og mætir til leiks í hátíðarskapi jafn- vel með blóm í hári og hatt á höfði. Gjábakki opnaður kl. 18.00 og sest er að veisluborðum kl. 18.30. Gala-gestur að þessu sinni er Rannveig Guðmundsdóttir alþing- ismaður, Sigríður Sörensdóttir er veislu- stjóri, Sigrún Eðvalds- dóttir leikur á fiðlu og Arngrímur og Ingibjörg leika fyrir dansi. Upp- boð verður á leikmunum úr Smelli 2. Veittar verða viðurkenningar fyrir „frumlegasta og töffasta“ gala-klæðnað- inn í Eddustílnum. Upplýsingar og miða- pantanir í Gjábakka, s. 554 3400, og Gullsmára, s. 564 5261. Allir velkomnir. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 13–16 handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna og keramik, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 14 félagsvist. Í dag verður kortagerð á vinnustofu kl. 9–16. Skráning á skrifstofu. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, 13.30 fé- lagsvist. Fótaaðgerð, hársnyrting. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13–16.45 leir, kl. 10–11 ganga, kl. 14–15 jóga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 að- stoð við böðun, kl. 9.15– 15.30 alm. handavinna, kl. 10–11 boccia, kl. 13– 16 kóræfing og mósaík. Í dag fyrirbænastund kl. 10.30. Allir velkomn- ir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, körfugerð og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia, kl. 13 handmennt og spilað. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi kl. 11 í Ásgarði, Glæsibæ. Aðalfundur fé- lagsins verður haldinn laug. 23. nóv. kl. 14 í Þjónustumiðstöðinni Bólstaðarhlíð 43. Háteigskirkja, eldri borgarar. Kl. 14 í Setr- inu, samverustund, „vinafundur“, fólk hjálp- ast að við að vekja upp gamlar og góðar minn- ingar. Sr. Tómas og Þórdís þjónustufulltrúi sjá um stundina. Kvenfélag Háteigs- sóknar. Jólafundurinn verður þri. 3. des. kl. 19 í safnaðarheimilinu. Til- kynnið þátttöku sem allra fyrst hjá Þórdísi í s. 511 5405, Guðnýju í s. 553 6697 og Snjólaugu í s. 561 2163. Nýir félagar velkomnir. Munum jóla- pakkana. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. Fundur í umsjá Dagnýjar Albertsdóttur. Fundurinn hefst kl. 17. Allar konur velkomnar. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Skaftfellingafélagið í Reykjavík heldur fyrra myndakvöld vetrarins í kvöld, 21. nóv., í Skaft- fellingabúð, Laugavegi 178, kl. 20:30. Þar sýnir Sigurður Gunnarsson á Hnappavöllum myndir úr Skaftafellssýslum. Aðgangur er ókeypis, en veitingar seldar. Félagsfundur SÍBS- deildarinnar á Vífils- stöðum verður haldinn í dag kl. 20 í Múlalundi, Hátúni 10c. Ath. breytt- an fundarstað. Kvenfélag Kópavogs. Fundur í kvöld. Í dag er fimmtudagur, 21. október, 325. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma. (Markús, 10,15) Sammála Pétri FATLAÐUR vinur minn kom að máli við mig og sagði mér frá stjórnmála- fundi sem alþingismaður- inn dr. Pétur H. Blöndal hélt á sunnudagskvöld sem leið. Þessi fatlaði vinur minn var mjög svo ánægð- ur með fundinn og fræddi mig um það sem þar fór fram. Hann ásamt öðrum fundarmönnum var sam- mála Pétri um lækkun eignaskatts á eldri borgara, afnám hátekjuskatts og umfram allt afnám erfða- fjárskatts sem rústað hefur mörgum fjölskyldum og er mjög svo ósanngjarn að hans mati. Pétur verður að koma sinni rödd á framfæri, þess óskum við sjálfstæðismenn frá 0 ára og til endaloka. Magnús Einarsson. Gruggug snilld UM miðja 17. öld keyptu hollenskir innflytjendur eyjuna Manhattan af inn- fæddum og staðgreiddu með önglum og glerperlum. Árið 1867 seldu Rússar Bandaríkjamönnum auðnir Alaska fyrir slikk. Hverjir græddu á þess- um viðskiptum og hverjir töpuðu veit öll heimsbyggð- in í dag nema, að því er virðist, söguþjóðin Íslend- ingar sem ætlar nú að bæta um betur og taka 100 millj- arða króna lán, borga er- lendum verktökum fyrir að byggja stíflur sem sökkva 900 ferkílómetrum af há- lendi Íslands í jökulleir og drullu, og virkjun sem á að framleiða ókeypis rafmagn fyrir bandarískt álver sem að stórum hluta verður mannað útlendingum. Hverjir skyldu vera að græða á því? Jón Rúnar Arason, Nürnberg. Tal-vinir VIÐ erum tvær vinkonur sem erum með GSM-síma hjá Tali og ákváðum við að nýta okkur svokallaða Tal- vini. Þegar við töluðum við starfsmann Tals til að fá þessa þjónustu var okkur sagt að við gætum talað og sent SMS frítt okkar á milli. En þegar við fórum að spyrja nánar út í þetta kom í ljós að það var ein- ungis frítt að tala í um 1 klst. á dag og senda 30 SMS á dag, en við þurftum að ganga á starfsmanninn til að fá þessar upplýsingar, Okkur var einnig sagt að nú væri þetta komið á og við fórum að senda SMS okkar á milli en þessi þjón- usta kom ekki á fyrr en sól- arhring seinna og við vor- um þá nokkur hundruð krónum fátækari. Erum við ekki ánægðar með þessa afgreiðslu og finnst okkur að starfsmað- urinn hefði átt að fræða okkur betur um þetta þeg- ar við gengum frá þessu. Tvær í Tali. Vikan óskast ER einhver sem getur út- vegað mér Vikuna, tölublöð nr. 48 og 49 1958, nr. 20 og 21 1959, nr. 34, 39, 40, 41, 45, 48, 51 og 52 1963? Þeir sem gætu liðsinnt mér vin- samlega hafið samband við Eggert í síma 588 9969. Tapað/fundið Bíllykill í óskilum BÍLLYKILL; BMW, fannst í Reykási í Reykja- vík. Upplýsingar í síma 567 6851. Dýrahald Lúsifer er týndur LÚSIFER er eins og hálfs árs, svartur með hvíta grímu, hvíta bringu og hvítar loppur. Hann er geldur og masar mikið. Hann er eyrnamerktur 561 og er með bleika ól, merkt- ur símanúmeri og Lauga- vegi 27 en það er úrelt því hann er fluttur þaðan í Þingholtin. Hann er mikið fyrir að smeygja sér inn í bíla og gæti því verið kom- inn í annan bæjarhluta. Hans er sárt saknað. Þeir sem gætu gefið upplýsing- ar vinsamlega hafið sam- band í síma 552 3014 eða 551 1717. Nala er týnd NALA er svört læða með rauða ól en ómerkt. Hún týndist frá Smáratorgi mið- vikudaginn 13. nóvember. Nala býr í Vogum á Vatns- leysuströnd en hafði laum- að sér með í bílnum og rat- ar því ekki heim. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 424 6633 eða 692 9080. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 vænlegur, 8 bein í fingri, 9 hljóðfæri, 10 sefi, 11 verða feitari, 13 tekur, 15 bifa, 18 við- bragðsfljót, 21 eykta- mark, 22 lítilfjörleg, 23 frek, 24 geðfelldur. LÓÐRÉTT: 2 viðmótsþýtt, 3 bik, 4 fjallsbrúnin, 5 rúlluðum, 6 dúsk, 7 þrjóskur, 12 nægilegt, 14 hress, 15 skott, 16 gljúfrið, 17 hrella, 18 drengs, 19 dá- in, 20 not. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 nepja, 4 kútur, 7 fullu, 8 úlfúð, 9 rós, 11 rýrt, 13 fann, 14 ýkjur, 15 flór, 17 álfs, 20 brá, 22 knæpa, 23 lykta, 24 nýtin, 25 auðna. Lóðrétt: 1 næfur, 2 pílár, 3 alur, 4 krús, 5 tafla, 6 ræðin, 10 ósjór, 12 Týr, 13 frá, 15 fíkin, 16 óhætt, 18 lokað, 19 skapa, 20 bann, 21 álka. K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 ÉG vildi þakka fyrir frá- bæra þjónustu hjá starfs- fólki Esso, Skógarseli, en ég fór með bílinn minn á þvottastöðina þar 14. nóv. sl. Eftir þvottinn setti ég bensín á bílinn og tók þá bensínafgreiðslumað- urinn, Tómas, eftir því að ekki hefðu farið öll óhreinindi af bílnum. Hann leyfði því bílnum að fara aftur í gegnum þvottastöðina, mér að kostnaðarlausu, auk þess sem hann lagði sig sjálfur fram um að ná síðustu óhreinindunum af með kústi og hreinsivökva. Þetta kalla ég frábæra þjónustu. Rut. Frábær þjónusta Víkverji skrifar... FYRSTA opinbera boxsýningin áÍslandi í um 50 ár var haldin í Laugardalshöll um helgina og tókst víst býsna vel. Um 2.000 áhorfendur komu í höllina og horfðu á hnefaleika- kappa spreyta sig á að berja hver annan og einhver fjöldi hefur sjálf- sagt litið herlegheitin í beinni sjón- varpsútsendingu. Þó aðeins væri um sýningu að ræða en ekki keppni fóru leikar þannig að íslenskir boxarar unnu þrjá sigra á bandarísku gest- unum og gestirnir svöruðu fyrir sig með því að vinna jafnmarga sigra á Íslendingum. Víkverji missti reyndar af sýningunni en sá nokkrum sinnum sýnt frá henni í sjónvarpsfréttum og íþróttaþætti. Greinilega var ekkert til sparað til að gera sýninguna sem glæsilegasta og var engu líkara en hún færi fram í frægri hnefaleikahöll í Bandaríkjunum. Enn styrktist hinn bandaríski bragur þegar fáklæddar meyjar tóku að ganga um boxhring- inn fyrir hverja lotu og héldu uppi spjöldum sem á voru rituð númer lot- unnar. Líklega er ástæðan fyrir þess- um miklu bandarísku áhrifum sú að hnefaleikar eru hvergi vinsælli en í Bandaríkjunum og þaðan koma jafn- framt helstu hnefaleikakappar heims. Fyrst í stað fannst Víkverja hnefa- leikasýningin heldur hallærisleg eft- iröpun bandarískrar hnefaleika- keppni en var ekki eins viss þegar hann hugsaði málið betur. Til þess að draga fólk á boxsýningar getur vel verið að það þurfi að bjóða upp á meira en bara box, ekki síst hér á landi þar sem er lítil hefð fyrir hnefa- leikum, og er þá auðvitað nærtækast að leita í smiðju Bandaríkjamanna. Sem betur fer þarf ekki að láta fá- klæddar meyjar eða pilta ganga um í hléi eða lofa glæsilegum skemmtiat- riðum á öðrum íþróttakappleikjum (eða sýningum) á Íslandi til þess að fá áhorfendur til að mæta. Það er líka hætt við því að fáklædda fólkinu yrði svolítið kalt, a.m.k. á fótboltaleikjun- um. x x x VÍKVERJI horfði með athygli ábreska sjónvarpsþáttinn Pan- orama: Saddam Hussein – Viðvörun úr fortíðinni, sem sýndur var í Rík- issjónvarpinu á sunnudag. Stór- merkilegt var að fylgjast með þýska vísindamanninum sem hafði grand- skoðað myndir af Saddam og komist að því að hann á sér hvorki meira né minna en þrjá tvífara. Saddam óttast greinilega mjög um líf sitt og ekki að ástæðulausu því vandfundinn er sá maður sem fleiri vilja feigan. Upphaf- lega hafa tvífararnir líklega aðeins átt að koma fram þegar hætta væri talin á að reynt yrði að ráða einræðisherr- ann af dögum. Þetta hlýtur vissulega að vera taugastrekkjandi starf en e.t.v. ekki mjög flókið þegar menn venjast því. Yfirleitt nægir að veifa aðeins til mannfjöldans úr fjarlægð og kannski hleypa nokkrum sinnum úr haglabyssu út í loftið ef maður er í þannig skapi. Einnig kom í ljós að Saddam lætur tvífara sína um að taka á móti minniháttar sendimönnum. Hélt þýski vísindamaðurinn því m.a. fram að Jörg Haider, formaður Frels- isflokksins austurríska, hefði hitt tví- fara Saddams þegar hann fór í heim- sókn til hans fyrir skömmu. Haider sagði að Saddam hefði fallist á að fara eftir ályktunum Sameinuðu þjóðanna. Nú er komið í ljós að þetta var bara tvífari hans þannig að það er auðvelt fyrir Saddam að segja sem svo: „Ha, ég? Nei, ég sagði þetta aldrei!“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.