Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 55
DAGBÓK
Síðir samkvæmis-
kjólar og -pils
Toppar og skart
Bankastræti 11 • sími 551 3930
LAGERÚTSALA
til verslana eða einstaklinga
Nýjar vörur
Jólakjólar 4.990, 12.990 • Jóladress 6.990, 14.990
Strets-buxur 1.500, 3.990 • Stakir jakkar 2.990, 6.500
Pelsar • Skart • Leikföng
Takmarkað magn • Sími 661 4153
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hugmyndaríkur og
smekkvís, ástríðufullur og
uppreisnargjarn. Á komandi
ári muntu ganga frá lausum
endum og rýma til fyrir
nýjum hlutum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að ganga frá smá-
atriðum varðandi styrki eða
lántökur og hnýta lausa
enda varðandi sameiginleg
peningamál.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er einhver spenna í loft-
inu. Líttu í eigin barm og
íhugaðu hvað veldur afstöðu
þinni. Við endurspeglum oft
þau viðhorf sem við erum
alin upp við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú færð mikið út úr því að
leysa starfi þitt vel af hendi.
Þú hefur mun meiri áhuga á
árangri en hrósi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þig langar til að vera með
fólki sem fær þig til að
brosa. Njóttu þess að gleðj-
ast og gleðja aðra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt þú sért félagslyndur
ættirðu að vera heima í ró-
legheitum í dag. Þú hefur
þörf fyrir að vera í kunn-
uglegu umhverfi, þar sem
þú finnur til öryggis.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hikaðu ekki við að koma
skoðunum þínum á framfæri
í dag. Þú átt auðvelt með að
koma hugsunum þínum í
orð og fá fólk til að hlusta á
þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert veikur fyrir fallegum
hlutum og það leiðir til þess
að þú átt oft erfitt með að
láta launin endast til mán-
aðamóta.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Áhrifa Venusar gætir í
merki þínu og því áttu auð-
velt með að heilla fólk. Not-
aðu tækifærið til að koma
hugmyndum þínum á fram-
færi. Árangurinn gæti kom-
ið þér á óvart.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur unnið mikið að
undanförnu og þarft því á
einveru og hvíld að halda.
Reyndu að sýna umburðar-
lyndi þótt einhver komi illa
fram við þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Mars hefur mikil áhrif á
merki þitt og því er metn-
aður þinn vakinn. Þú þarft
engu að síður á viðurkenn-
ingu annarra að halda.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú nýtur þess að leika við
börn og fullorðna í dag og
gætir jafnvel átt það til að
daðra. Leyfðu þér að njóta
lífsins.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú gætir haft gott af því að
fara í ferðalag með fjöl-
skyldunni. Þú þarft á til-
breytingu að halda.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞAÐ nær auðvitað engri átt
að enda í hálfslemmu þar
sem trompliturinn er ásinn
smátt fjórði á móti G9x.
Norður
♠ G96
♥ ÁKG9
♦ 6
♣ÁDG102
Vestur Austur
♠ KD10 ♠ 875
♥ 732 ♥ D1086
♦ G987 ♦ 543
♣K94 ♣765
Suður
♠ Á432
♥ 54
♦ ÁKD102
♣83
En sagnvísindi eru ekki til
umræðu í dag og við sláum
því einfaldlega föstu að suð-
ur spili sex spaða og fái út
hjarta. Getur hann fengið
tólf slagi? (Þú verður að gefa
þér góðan tíma í þetta.)
Útlitið er ekki par gott við
fyrstu sýn, en þetta er þraut
á opnu borði og með ná-
kvæmri spilamennsku er
hægt að svíða annan tromp-
slaginn af vestri. Það fer
þannig fram: Til að byrja
með drepur sagnhafi á
hjartaás, spilar tígli á ásinn
og svínar laufdrottningu.
Hann tekur laufás og tromp-
ar lauf. Spilar svo KD í tígli
og trompar tígul með níunni.
Nú er hjartakóngur tekinn
og hjarta trompað:
Norður
♠ G6
♥ G
♦ –
♣–
Vestur Austur
♠ KD10 ♠ 875
♥ – ♥ –
♦ – ♦ –
♣– ♣–
Suður
♠ Á4
♥ –
♦ 10
♣–
Suður er inni í þessari
stöðu og spilar tígultíu.
Ótrúlegt en satt, en vestur
fær aðeins einn slag á
tromp.
E.S. Tímasetningin er
mikilvæg. Það verður að
byrja á því að spila laufinu
áður en fjórði tígullinn er
trompaður í borði með ní-
unni, því annars getur aust-
ur hent laufi í fjórða tígulinn
og stungið í þriðja laufið. Og
það myndi kosta ásinn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5
4. c4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Rf3
Bb4 7. cxd5 Rxd5 8. Dc2
Rc6 9. a3 Ba5 10. b4 Bb6 11.
Bb2 O-O 12. Hd1 Rce7 13.
Re4 h6 14. Dd2 a5 15. Bd3
axb4 16. axb4 Rxb4 17. Bb1
Red5 18. O-O Bc7 19. Re5
b6 20. f4 f5 21. Rg3 Bxe5 22.
dxe5 Ba6 23. Hf3 Bc4 24.
Ba3 Ha4 25. Bc2 Rxc2 26.
Dxc2 b5 27. Bxf8 Ha2 28.
Db1 Dxf8 29. Hc1 Dc5+
30. Kh1 Hf2
Staðan kom upp á Ól-
ympíuskákmótinu sem
lauk fyrir skömmu í Bled.
Stefán Kristjánsson
(2431) hafði hvítt gegn
Ashot Anastasjan (2555)
og hefði með snjallri fléttu
getað snúið taflinu sér í
vil. 31. Hc2? Svartur er
varnarlaus eftir 31. Hxc4!
bxc4 [31... Dxc4 32. Hxf2
og hvítur er hróki yfir] 32.
Dg1! og hvítur verður a.m.k.
hróki yfir. Í framhaldinu
tapaði hvítt fljótt. 31...Hxf3
32. gxf3 De3 33. Dd1 Rxf4
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 21.
nóvember, er áttræð Ásta
Ólafsdóttir, Brúnavegi 3,
Reykjavík. Hún tekur á
móti gestum í safnaðarheim-
ili Áskirkju laugardaginn 23.
nóvember kl. 16–19.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 21.
nóvember, er fimmtugur
Hörður Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍT-ferða,
Akraseli 25, Reykjavík.
Eiginkona hans er Rita
Kárason.
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 21.
nóvember, er áttræð frú
Guðbjörg Ásgeirsdóttir,
Aðalstræti 8, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á
Kaffi Nauthóli á morgun,
föstudag, milli kl. 17 og 19.
70 ÁRA afmæli. Á morgun, föstudaginn 22. nóvember,er sjötugur Halldór A. Brynjólfsson, skipstjóri og
útgerðarmaður, Tjarnargötu 33, Keflavík. Eiginkona hans,
Elísabet Ólafsdóttir, varð 65 ára 19. júlí sl. Þeim verður
haldin vegleg afmælisveisla föstudaginn 22. nóvember frá kl.
20 til 22 í félagsheimili hestamanna við Mánagrund í Kefla-
vík. Vonast er til að sem flestir ættingjar, vinir, kunningjar
og fyrrverandi samstarfsfólk sjái sér fært að líta inn, þiggja
veitingar og gleðjast með þeim.
Nefndi þessi prests-
ekkja sem þú keyptir
bílinn af eitthvað um
rallakstur á honum?
LJÓÐABROT
ÍSLAND
Ó! fögur er vor fósturjörð
um fríða sumardaga,
er laufin grænu litka börð,
og leikur hjörð í haga;
en dalur lyftir blárri brún
mót blíðum sólar loga,
og glitrar flötur, glóir tún,
og gyllir sunna voga.
Og vegleg jörð vor áa er
með ísi þakta tinda,
um heiðrík kvöld að höfði sér
nær hnýtir gullna linda,
og logagneistum stjörnur strá
um strindi hulið svellum,
en hoppa álfar hjarni á,
svo heyrist dun í fellum.
Þú fósturjörðin fríð og kær,
sem feðra hlúar beinum,
og lífið ungu frjóvi fær
hjá fornum bautasteinum,
ó, blessuð vertu, fagra fold,
og fjöldinn þinna barna,
á meðan gróa grös í mold
og glóir nokkur stjarna!
Jón Thoroddsen
Parasveitakeppnin
Íslandsmót í parasveitakeppni
verður haldið helgina 23.–24. nóvem-
ber í Síðumúla 37. Fyrirkomulag
verður með sama sniði og undanfarin
ár. Spilaðar eru 7 umferðir með 16
spila leikjum og raðað í umferðir
með Monrad-fyrirkomulagi.
Spilamennska hefst kl. 11.00 báða
dagana. Keppnisstjóri er Björgvin
Már. Skráning er hafin í s. 587 9360
eða www.bridge.is.
Bridsfélagið Muninn Sandgerði
Fimmtudaginn 14. nóv. var spilað
fjórða og síðasta kvöld í firmakeppni
Bridgefélagsins Munins í Sandgerði,
en spilað var með hraðsveitarfyrir-
komulagi, þ.e. allar við allar á hverju
kvöldi.
Lokastaðan í mótinu:
1. sæti: sveit Sjóvár-Almennra með 1919
Í sveitinni spiluðu:
Guðjóns Svavar Jensen - Karl Hermanns-
son/Arnór Ragnarsson
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson
2. sæti: sveit Stuðlabergs með 1875
Í sveitinni spiluðu:
Randver Ragnarss. - Gunnar Guðbjörnss.
Kjartan Ólason - Óli Kjartansson.
3. sæti: sveit Toyotu með 1810
Í sveitinni spiluðu:
Garðar Garðarsson - Þorgeir Ver Halldórs-
son/Kristján Kristjánsson
Úlfar Kristinsson - Vignir Sigursveinsson
Efstu sveitir síðasta spilakvöld:
1. sæti: sveit Toyotu með 505
2. sæti: sveit Heklu með 468
3. sæti: sveit VÍS með 447
Í sveitinni spiluðu:
Sigfús Ingvarsson - Karl Sigurbergsson
Sigurður Davíðsson - Þorvaldur Finnsson
Stjórn Munins vill þakka fyrir-
tækjum stuðninginn.
Fimmtudaginn 22. nóv. kl. 19:30,
verður byrjað á þriggja kvölda tví-
menningi.
Spilað er á Mánagrund (við hest-
húsin, milli Garðs, Sandgerðis og
Keflavíkur), í félagsheimili brids-
félaga á Suðurnesjum og hesta-
manna.
Það er alltaf heitt kaffi á könn-
unni.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Nú stendur yfir fjögurra kvölda
hraðsveitakeppni. 9 sveitir taka þátt.
32 spil eru spiluð á kvöldi. Meðalskor
á kvöldi er 574 stig.
Þegar keppnin er hálfnuð er stað-
an eftirfarandi:
Sveit Jóns Stefánssonar 1.253
Sveit Birkis Jónssonar 1.211
Sveit Önnu Gunnlaugar Níelsen 1.203
Sveit Stefaníu Sigurbjörnsdóttur 1.195
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Sveit Jóns Stefánssonar 637
Sveit Birkis Jónssonar 618
Sveit Stefaníu Sigurbjörnsdóttur 608
Sveit Önnu Gunnlaugar Níelsen 577
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ mánud. 11. nóv. 2002.
24 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S.
Björn E. Pétursson - Hilmar Ólafsson 285
Júlíus Guðmundsson - Rafn Kristjánsson263
Hannes Ingibergss. - Ólafur Gunnarss. 226
Árangur A-V.
Sigtryggur Ellertsson - Viggó Nordquist281
Eysteinn Einarsson - Magnús Oddsson 230
Ásta Erlingsdóttir - Sigurður Pálsson 228
Magnús Halldórsson - Þorsteinn Laufdal228
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 14. nóvember. 22 pör. Með-
alskor 216 stig.
Árangur N-S.
Sæmundur Björnss. - Olíver Kristóferss. 252
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 245
Jóhann M. Guðm. - Hjálmar Gíslason 233
Viggó Nordquist - Friðrik Hermannss. 233
Árangur A-V.
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 280
Oddur Jónsson - Halla Ólafsdóttir 247
Hanníbal Helgason - Magnús Jósefsson 246
Félag eldri borgara í Kópavogi
Það mættu 24 pör til leiks þriðju-
daginn 12. nóvember.
Lokastaða efstu para í N/S:
Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 271
Guðm. Magnússon – Magnús Guðmss. 251
Ingibjörg Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 244
Hæsta skor í A/V:
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 270
Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 260
Sigurður Karlsson – Ólafur Lárusson 256
Sl. föstudag mættu svo 26 pör og
þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 376
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 375
Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 361
Hæsta skor í A/V:
Auðunn Guðmundss. – Bragi Björnss. 390
Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 387
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 380
Meðalskorin á þriðjudag var 216
en 312 á föstudag.
Stefán og Björn unnu
landstvímenninginn
Sigurvegarar eru Stefán Stefáns-
son og Björn Þorláksson frá Bf. Ak-
ureyrar með 67,93 % skor. Í 2. sæti
eru Guðmundur Gunnarsson og Jón-
as Birgisson frá Bf. Gosa, Þingeyri
með 65,83 % skor og í 3. sæti eru
Bjarni Sveinsson og Helgi Hlynur
Ásgrímsson frá Bf. Fjarðabyggðar
með 63,47 % skor.Alls tóku 118 pör
þátt í Landstvímenningi 2002.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson